Morgunblaðið - 23.01.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4»
1
FRETTIR
Landsvirkjun samþykkir að bjóða út virkjanir vegna stóriðjuframkvæmda
Framkvæmt fyrir 17
milljarða á 3 árum i
(
s
I
Morgunblaðið/Ingvar
LÖGREGLAN handtók þre-
menningana í gærkvöldi.
Stálu peningum
frá Læknavakt-
inni og keyrðu
á brott
LÖGREGLAN í Reyig'avík hand-
tók tvo unga karlmenn og eina
konu á tíunda timanum í gær-
kvöldi eftir að þau höfðu stolið
skiptimynt úr peningakassa hjá
Læknavaktinni við Barónsstíg og
haft á brott með sér.
Að sögn lögreglunnar keyrðu
þremenningarnir upp að Lækna-
vaktinni og fór einn þeirra inn
og vildi fá að tala við lækni.
Hann fékk hins vegar ekki þá
þjónustu sem hann óskaði eftir,
fór þá í peningakassann, hljóp
út og komst undan í bílnum, áður
en starfsmenn Læknavaktarinn-
ar feng^u við ráðið. Lögreglan
náði þremenningunum skömmu
síðar á Háteigsvegi, eftir að hafa
fengið upplýsingar um númer
bílsins sem þau voru í.
Eftir yfirheyrslur l\já Iögregl-
unni var konunni sleppt, en karl-
mennirnir tveir fengu að dúsa í
fangaklefunum í nótt.
STJÓRN Landsvirkjunar samþykkti
í gær að bjóða út framkvæmdir við
Sultartangavirkjun, Hágöngumiðlun
og háspennulínu frá Búrfellsstöð að
Sandskeiði. Alls er áætlað að virkj-
unarframkvæmdirnar og tilheyrandi
háspennulínur kosti Landsvirkjun
um 17 milljarða króna. Þessar fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar til að
mæta orkuþörf fyrirhugaðs álvers
Columbia Ventures og stækkunar
jámblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga, sem og almennri raforku-
þörf landsins næstu ár.
Útboðin verða með fyrirvara um
að af byggingu álversins og stækkun
jámblendiverksmiðjunnar verði en
það mun liggja fyrir um mánaðamót-
in febrúar/mars.
Stjórn Landsvirkjunar veitti einn-
ig stjórnarformanni og forstjóra fyr-
irtækisins umboð til að undirrita
drög að orkusölusamningi við Col-
umbia Ventures. Gert er ráð fyrir
að orkuþörf álversins verði 930
gígawattstundir á ári, raforkusala
til álversins hefjist 1. júní 1998 og
að samningurinn gildi til 2019.
Þá fengu stjórnarformaður og
forstjóri umboð til að undirrita við-
auka að rafmagnssamningi við ís-
lenska jámblendifélagið, sem felur
í sér framlengingu núverandi raf-
magnssamnings um 20 ár og gefur
Járnblendifélaginu kost á að auka
raforkukaup sín um 370 gígawatt-
stundir á ári vegna stækkunar verk-
smiðjunnar. Félagið hefur frest til
18. febrúar til að ákveða hvort það
ræðst í þessi auknu orkukaup. Sam-
kvæmt upplýsingum Landsvirkjunar
er umsamið rafmagnsverð verð-
tryggt miðað við norskar vísitölur
og felur í sér verulega hækkun frá
núgildandi samningi.
Loks fengu forstjóri og stjórnar-
formaður Landsvirkjunar umboð til
að undirrita samninga við Reykja-
víkurborg um kaup á rafmagni frá
Nesjavallavirkjun í þágu álvers Col-
umbia Ventures. Þessir samningar
eru enn til umfjöllunar í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Forsendur
staðfestar
„Stjórn Landsvirkjunar hefur af-
markaðan þátt með höndum í þessu
heildardæmi, að framleiða og selja
raforku. Það sem felst í þessu er
að við erum búin að staðfesta á
hvaða forsendum við erum reiðubúin
til að gera það og sú staðfesting er
nauðsynleg fyrir Columbia Ventures
til að geta gengið frá endanlegum
fjármögnunarsamningum af þeirra
hálfu. Við erum reiðubúin til að
ganga frá samningum á þessum
nótum en þeir eiga eftir að ganga
frá fjármögnun og að skila okkur
verklokatryggingu sem við teljum
fullnægjandi," sagði Helga Jónsdótt-
ir stjórnarformaður Landsvirkjunar.
Helga sagði aðspurð, að varla
væri hægt að lesa ákvarðanir stjórn-
ar Landsvirkjunar um virkjanaútboð
öðruvísi en svo, að stjórnin telji mikl-
ar líkur á að af umræddum stóriðju-
framkvæmdum verði. En Helga vís-
aði jafnframt til svonefnds skaðleys-
issamnings milli Landsvirkjunar og
Columbia Ventures, sem felur það í
sér að Columbia hefur sett tryggingu
fyrir greiðslu 2/3 hluta útlagðs kostn-
aðar Landsvirkjunar og Reykja-
víkurborgar fram til 1. mars, ef
ekki verður af byggingu álversins.
Á næstu dögum verður auglýst
eftir tilboðum í gröft fyrir stöðvar-
hús og jöfnunarþró Sultartanga-
virkjunar og stíflugerð við Hágöngur
og sagði Helga Jónsdóttir að fram-
kvæmdir gætu hafist um mánaða-
mótin mars-apríl, ef allt gengi eftir.
Hágöngumiðlun, sem verður 380 ,
gígalítrar og nær yfir 40 ferkíló- '
metra, á að vera lokið haustið 1998. (
Sultartangavirkjun á að vera lokið
í nóvember 1999 en hún verður 120
megawött að stærð.
Kirkjugarðar
Reykjavíkur
Óvenju mikið
umjarðar-
farir í janúar
ÓVENJU mikið hefur verið um
útfarir á höfðuborgarsvæðinu
það sem af er þessum mánuði
eða mun fleiri en verið hafa á
sama tíma undanfarin ár, að
sögn Þórs Steins Ragnarssonar
framkvæmdastjóra Kirkju-
garða Reykjavíkurprófasts-
dæma. Hann segir að end-
anlegar tölur sem staðfesti
þetta liggi ekki enn fyrir, en
enginn vafi leiki á því að mun
meira hafí verið að gera í jan-
úar en venjulegt þykir. „Útfar-
ir í nóvember á sfðasta ári voru
98, í desember voru þær 118
og allt stefnir í að þær verði
mun fleiri nú í janúar," segir
hann.
ísleifur Jónsson útfararstjóri
hjá Útfararstofu Kirkjugarð-
anna staðfesti þetta einnig í
samtali við Morgunblaðið en
hann hefur með höndum u.þ.b.
85% allra útfara á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það eru reyndar
alltaf fleiri jarðarfarir í janúar
en aðra mánuði ársins og er
ástæðan fyrir því sú að færri
vinnudagar eru f desember
vegna stórhátíðanna og því
þarf að fresta mörgum jarðar-
förum fram í janúar," segir
hann.
Beðið
BRYNJA Siggeirsdóttir, þriggja
ára, beið aftan á reiðhjólinu eftir
mömmu sinni í Garðastræti á
dögunum. Hún passaði hjólið og
vettlinga mömmu sinnar meðan
hún brá sér sem snöggvast frá.
Tillögnr vinnuhóps S VR um endur-
skoðun leiðakerfis
Aksturstími leiða lengd- !
ur til að bæta stundvísi
og auka
VAGNSTJÓRUM og starfsmönnum
Strætisvagna Reykjavíkur voru í
gær kynntar tillögur um endurskoð-
un á leiðakerfi SVR og tillögur um
einstakar breytingar á tímaáætlun
og akstursleiðum. Tillögurnar eru
afrakstur starfs leiðakerfishóps
SVR en hann hefur unnið að endur-
skoðun kerfisins allt frá gildistöku
nýs leiðakerfis 15. ágúst sl.
í skýrslu um tillögur hópsins seg-
ir að við endurskoðun kerfisins hafi
sérstaklega verið reynt að stilla
aksturstíma þannig að kröfum um
stundvísi verði náð eftir því sem
unnt væri.
Helstu almennar uff ytingar
stefna að því að lengja aksturstíma
leiða, einkum í íbúðabyggðum, en
öryggi
með því móti er leitast við að bæta
stundvísi vagna, auka öryggi með
minni hraða og jafnframt að draga
úr álagi á vagnstjóra.
Á löngum leiðum er í tillögunum
gert ráð fyrir tímajöfnun á báðum
endastöðvum. Það gerir það að
verkum að þegar rólegt er þurfa
vagnar að tímajafna en þegar mik-
ið álag er dregur úr áhrifum seink-
unarinnar.
Samstilling leiða eftir
I tillögunum er eingöngu miðað
við aksturstíma á hverri leið og
vinna við samstillingu leiða er eftir.
í skýrslunni segir að samstilling sé
ekki framkvæmanleg fyrr en end-
anlegar breytingar liggja fyrir.
Kjaradeilan í loðnuverksmiðjum
Tillögxir YSÍ kynntar
SATTAFUNDUR var í deilu stétt-
arfélaga starfsfólks í loðnuverk-
smiðjum og vinnuveitenda þeirra
hjá ríkissáttasemjara í gær. Að
loknum fundi sagðist Sigurður Ing-
varsson, formaður Alþýðusambands
Austurlands, bjartsýnni en áður á
gang viðræðna. Segja mætti að al-
vöruviðræður væru loks hafnar.
Sigurður sagði að stéttarfélögin
hefðu í fyrsta skipti fengið ákveðin
viðbrögð við kröfum sínum á fund-
inum í gær því ljóst væri að vinnu-
veitendur væru nú farnir að vinna
í málinu. „Það eru ný viðbrögð.
Ég hef gagnrýnt þá fyrir að vinna
ekki í málinu, mæta óundirbúnir
til viðræðna og ætla að tefja málið
en nú er farið að vinna í málinu.
Ég held að það sé fyrir tilverknað
þeirra aðila sem reka þessar verk-
smiðjur."
Sigurður sagði að vinnuveitend-
ur hefðu boðað að þeir muni leggja
fram tillögur á föstudag sem rædd-
ar verða á næsta fundi aðilanna,
sem boðaður hefur verið á þriðju-
dag. J\