Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Fjármálaráðherra um launavísitölu
Of ónákvæm
til samanburðar
milli starfsstétta
FRETTIR
Morgunblaðið/Golli
Riddarar
umferðarskiltanna
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir varasamt að nota
launavísitöluútreikninga Hagstof-
unnar til þess að bera saman til-
tekna hópa launþega. „Gildi launa-
vísitölu Hagstofunnar felst fyrst
og fremst í því að mæla heildar-
launabreytingar í landinu frá ein-
um tíma til annars en hún er mjög
ónákvæmt tæki þegar bera skal
saman launabreytingar hjá mis-
munandi starfsstéttum," segir
Ú'ármálaráðherra.
Greint var frá því í Morgunblað-
inu á þriðjudag að hækkun vísi-
tölu launa á almennum markaði
frá 1. ársijórðungi í fyrra til loka
árs hefði numið 0,7% en vísitala
fyrir opinbera starfsmenn hefði
hækkað um 1,3% á sama tímabili.
Þá sagði að vísitala launa á al-
mennum markaði hefði hækkað
að meðaltali um 5,3% á síðasta
ári frá ársmeðaltali 1995 og að á
sama tíma hefði vísitala launa
opinberra starfsmanna og banka-
manna hækkað um 8,2% eða um
þijú prósentustig umfram hækkun
á almenna markaðinum.
Munurinn er innan
skekkjumarka
Friðrik segir að séu launabreyt-
ingar frá síðasta fjórðungi ársins
1995 til síðasta Qórðungs 1996
skoðaðar komi í Ijós að laun á al-
mennum vinnumarkaði hafí hækk-
að um 4,5% en um 5,5% hjá hinu
opinbera og öðrum. „Þetta eina
prósentustig er innan skekkju-
marka því Hagstofan hefur sjálf
bent á að líklega gæti nokkurs
ofmats á launabreytingum opin-
berra starfsmanna og banka-
manna og vanmats á launabreyt-
ingum á almennum vinnumarkaði.
MINNST er um ofbeldi á þeim
stofnunum innan heilbrigðis- og
félagsgeirans, þar sem starfsmenn
hafa fengið þjálfun í samskiptum
og réttum viðbrögðum. Þannig
svara allir starfsmenn fangelsa því
játandi að þeir hafi fengið slíka
þjálfun og þar eru fæst tilvik of-
beldis skráð. Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, Starfsmannafélagið
Sókn og Starfsmannafélag ríkis-
stofnana telja ástæðu til að setja
ákveðnar öryggisreglur, sem komi
bæði starfsmönnum og skjólstæð-
ingum stofnana til góða.
Stéttarfélögin bókuðu við síð-
ustu kjarasamninga að auka þyrfti
tiyggingavemd þeirra sem verða
fyrir ofbeldi í störfum sínum og
vísuðu til þess að í þremur dóms-
málum hefðu starfsmenn ekki haft
erindi sem erfiði þegar þeir leituðu
bóta. Að sögn Astu Möller, for-
manns Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, kom af þessu tilefni í
ljós að nauðsynlegt var að kanna
tíðni ofbeldis, hvers eðlis það væri
og til hvaða forvama unnt væri
að grípa. Stéttarfélögin leituðu til
Félagsvísindastofnunar og hefur
hún nú skilað niðurstöðum könn-
unar sinnar. Úrtakið var eitt þús-
Það verður auðvitað að taka tillit
til þessara sjónarmiða,“ segir Frið-
rik Sophusson.
Þá segir hann að Hagstofan
hafí bent á að gögn um þróun
launa séu ósamstæð og gefí ekki
færi á nákvæmum samanburði þó
að þau séu „þokkalegur mæli-
kvarði á þróun launa í heild sinni".
Launaþróun hjá hinu
opinbera misjöfn
Fjármálaráðherra segir enn-
fremur að launaþróun hafí verið
mjög misjöfn milli einstakra
starfsstétta hjá hinu opinbera á
undanfömum misseram, ekki síð-
ur en á almennum markaði. Hann
nefnir sem dæmi samninga við
framhalds- og grunnskólakennara
og hjúkrunarstéttir, að mestum
hluta kvennastéttir, sem fengið
hafí „nokkra uppreisn" eftir að
hafa setið eftir ámm saman.
Samdráttur veldur meiri
lækkun á almennum markaði
Einnig nefnir hann að samið sé
um fasta launataxta hjá ríkinu.
„En á almenna markaðinum er
um að ræða lágmarkslaunataxta
og yfírborganir mjög tíðar. Þessi
staðreynd veldur því að þegar
samdráttur er í efnahagslífínu
gætir meiri launabreytinga niður
á við þar,“ segir Friðrik.
„Það má líka benda á að einna
dýmstu samningar ríkisins í síðustu
kjarasamningum vom gerðir eftir
að ríkið gekk inn í viðræður milli
ASÍ og VSÍ. Þar má nefna til dæm-
is samninginn við Samiðn en hann
fól í sér í kringum 20% launahækk-
un fyrir þá sem unnu hjá ríkinu,
þar sem markmiðið var að færa
taxta að launum," segir hann loks.
und starfsmenn í heilbrigðis- og
félagsgeiranum, þriðjungur frá
hveiju stéttarfélagi. Tæp 80%
svömðu spumingum.
Af þeim sem svömðu töldu rúm
36% ofbeldi fínnast á sinni deild
eða vinnustað og kváðust 40%
þeirra telja ofbeldi algengt eða
mjög algengt, en rúm 48% töldu
það frekar eða mjög óalgengt. Ef
litið var til síðustu sex mánaða
kváðust 24,3% hafa orðið fyrir lík-
amlegu ofbeldi, öðru en kynferðis-
legu. Þá birtist ofbeldi einnig í
svívirðingum, kynferðislegri
áreitni í orðum, líkamlegri kynferð-
islegri áreitni eða hótunum. Sjúkl-
ingar eða skjólstæðingar vora oft-
ast gerendur, en samstarfsmenn
og yfírmenn áttu einnig hlut að
máli.
Misjafnt eftir stofnunum
Rúm 66% svarenda töldu öryggi
starfsmanna mjög eða frekar vel
tryggt, rúm 60% sögðu úrræði
skýr ef starfsmaður væri beittur
ofbeldi og rúmlega 21% sagðist
hafa fengið fræðslu eða þjálfun til
að takast á við ofbeldi.
„Þessar tölur eru mjog ólíkar
eftir stofnunum," segir Ásta Möll-
ÞESSIR vösku ungu drengir
reistu sér veglegan snjókastala
úr snjóruðningi á strætum Ak-
ureyrar í gærdag. Riddarar um-
ferðarskiltanna stilltu sér hreykn-
ir upp fyrir ljósmyndara við her-
fang sitt, skiltið alræmda, Bannað
er. „Þannig voru starfsmenn fang-
elsa þeir einu sem allir svömðu
því játandi að hafa fengið fræðslu
og þjálfun og jafnframt vom það
einu stofnanimar þar sem úrræði
vegna ofbeldis lágu fyrir og einu
stofnanimar þar sem öll slík tilvik
vom skráð. Þetta er athyglisvert
í ljósi þess, að 14,3% starfsmanna
þar kváðust hafa orðið fyrir líkam-
legu ofbeldi, þegar heildartalan er
24,3%. Ofbeldi er því minna þar
sem starfsmenn hafa fengið sér-
staka þjálfun og um leið finna
starfsmenn fangelsa mun síður
fyrir andlegri vanlíðan eftir ofbeldi
en starfsmenn annarra stofnana,
sem em ekki viðbúnir að takast á
við slíkt.“
Ásta segir þessar niðurstöður
renna stoðum undir þá skoðun
starfsmanna, að nauðsynlegt sé
að setja ákveðnar öryggisreglur.
„Starfsmenn þurfa að fá þjálfun í
samskiptum, upplýsingar um hvort
skjólstæðingur hefur áður gerst
sekur um ofbeldi þurfa að vera
tiltækar svo starfsmenn geti verið
viðbúnir slíku, huga þarf að mönn-
un deilda svo unnt sé að takast á
við ofbeldi, stofnanir þurfa að
móta skýra stefnu um hvernig
að leggja. Þeir Pétur, Orri, Helgi
Rúnar og Arnar Freyr fara lík-
lega strax í dag að leita að fleiri
ögrandi götumannvirkjum til að
hernema. Vonandi láta þeir þó
vera að reyna klífa götuvitann
sem þeir snúa baki í.
bregðast eigi við, það þarf að vera
auðvelt að kalla eftir aðstoð og
skrá þarf hvert tilvik, svo unnt sé
að bregðast við á réttan hátt. Þeir
sem þátt tóku í könnuninni bentu
sjálfir á ýmislegt sem betur mætti
fara, til dæmis að skýra þurfi út
fyrir fólki af hverju það þarf að
bíða aðstoðar á slysadeild, svo
dæmi sé tekið. Þannig yrði komið
í veg fyrir reiði og hugsanlegt of-
beldi."
Rætt í tengslum við gerð
kjarasamninga
Ásta segir að fulltrúar stétt-
arfélaganna þriggja muni skýra
frá niðurstöðum könnunarinnar í
ráðuneytum fjármála, heilbrigð-
ismála, dómsmála og félagsmála,
auk þess sem stjórnendum við-
komandi stofnana verði skýrt frá
þeim. „Við vonum að leitað verði
úrbóta, en við höfum ekki sett
nein tímamörk í því. Hins vegar
reikna ég fastlega með að þessi
mál verði rædd í tengslum við
gerð kjarasamninga, enda er það
hlutverk stéttarfélaganna að
huga að aðbúnaði á vinnustað og
réttarstöðu félagsmanna, sem var
upphafið að þessari könnun."
*
Afangaskýrsla um
íslenska fiskvinnslu
Betri af-
koma botn-
fiskvinnslu
REKSTRARSKILYRÐI botnfisk-
vinnslu hafa batnað á undanförn-
um mánuðum að því er fram kem-
ur í áfangaskýrslu nefndar sem
sjávarútvegsráðherra skipaði í
nóvember til að kanna helstu þætti
í starfsumhverfi fískvinnslu og
framtíðarmöguleika hennar.
Áætlað er að halli á botnfísk-
vinnslu hafí numið 4,6% af tekjum
miðað við rekstrarskilyrði í desem-
ber si. samanborið við 8,5% halla
í ágúst. Fram kemur að botn-
fiskafli hefur dregist saman um
27,9% frá árinu 1988 til 1995 en
framleiðsla á landunnum botnfíski
hefur minnkað heldur minna, eða
um 26%.
Greinin rekin með hagnaði
Varðandi afkomu sjávarútvegs-
ins segir í skýrslunni að greinin í
heild hafi verið rekin með 1,3%
hagnaði í desember samanborið við
0,5% halla í ágúst.
Nefndin leggur í skýrslunni
áherslu á að halda núverandi
stefnu í gengismálum og að stefn-
an í ríkisfjármálum eigi að stuðla
að því að halda vöxtum í sem
mestu samræmi við það sem er í
helstu viðskiptalöndum. Þá telur
nefndin brýnt að skattar á sjávar-
útveginn séu ekki hærri en í grann-
löndunum.
Lögð er áhersla á að fískverð
eigi að vera fijálst eins og nú er
en leita þurfí leiða til að það taki
meira mið af gæðum hráefnisins.
-----»♦ ♦------
V eitingamaður læsir
sig inni í félagsheimili
Bærinn vill
höfða út-
burðarmál
VEITINGAMAÐUR Felgunnar á
Patreksfírði hélt enn til í húsnæði
Félagsheimilis Patreksfjarðar í
gærkvöldi, að sögn Ólafs Arnar
Olafssonar, formanns bæjarráðs og
stjómar félagsheimilisins. Veitinga-
maðurinn læsti sig inni í húsinu á
mánudag vegna ágreinings um
leigusamning og segir Ólafur að
bæjaryfirvöld láti bera hann út leys-
ist málið ekki með öðmm hætti.
Ólafur Örn segir að veitingamað-
urinn hafí gert leigusamning um
félagsheimilið árið 1994, til tveggja
ára, sem sagt hafí verið upp með
löglegum þriggja mánaða fyrirvara.
í fyrra. Uppsögnin átti að taka gildi
1. mars 1996 en bæjaryfírvöld
sendu leigutakanum nýjan samning
hinn 18. febrúar í samræmi við
ákvæði um forgang fyrri leigjanda.
Þegar samningurinn var gerður var
enginn veitingastaður rekinn í fé-
lagsheimilinu og styrkti bærinn
starfsemina með 1,8 milljóna króna
framlagi fyrstu tvö árin, að Ólafs
sögn.
Reksturinn ekki
styrktur áfram
Hann segir að leigutakinn hafí
síðan fengið leyfí til þess að reka
Felguna í einum sala félagsheimilis-
ins, sem ekki var nýttur á sumrin.
Þar sem annað öldurhús sé rekið í
bænum stríði það gegn samkeppnis-
lögum að styrkja rekstur félags-
heimilisins áfram. Þá segir Ólafur
að veitingamaðurinn hafí ekki viljað
að starfsmaður tæknideildar Vest-
urbyggðar hefði eftirlit með félags-
heimilinu, sem er eign bæjarins.
Hjúkrunarfræðingar, Sóknarfólk og starfsfólk ríkisstofnana
Settar verði öryggisreglur
vegna ofbeldis á vinnustöðum
I
i
§
!t
6
€
€
I
I
c
í
í
I
\
í
i
(
í