Morgunblaðið - 23.01.1997, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dvalar- og atvinnuleyfi bandarísku hjónanna hér á landi runnu út í síðustu viku
Taka bamsins kærð
til Hæstaréttar
LÖGMAÐUR Hanes-hjónanna
hyggst í dag kæra til Hæstaréttar
úrskurð sem heimilaði að Zenith
Helton, dótturdóttir Connie Jean
Hanes, væri tekin úr þeirra höndum.
Ragnar Tómas Amason sem fer með
málið fyrir hönd AP-lögmanna stað-
festi í samtali við Morgunblaðið að
slík kæra væri í bígerð, þar sem taka
þurfi til athugunar hvort það hafí
verið baminu fyrir bestu að taka það
úr umsjá hjónanna.
Bandarísk yfirvöld munu hafa
ógilt vegabréf Hanes-hjónanna i gær
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins og em vegabréfín væntanlega
nú í vörslu bandaríska sendiráðsins.
Stefán Eiríksson, lögmaður í
dómsmálaráðuneytinu, segir það af-
stöðu ráðuneytisins að stúlkan verði
afhent bandarískum yfírvöldum eins
fljótt og auðið er, enda séu sérfræð-
ingar þess á þeirri skoðun að hérlend-
is séu engir aðilar sem hafí lögmæta
forsjá bamsins, á grundvelli þeirra
upplýsinga sem liggja fyrir.
Barnið sé bandarískur ríkisborgari
og hafí að mati ráðuneytisins komið
með ólögmætum hætti til landsins
og þar af leiðandi eðlilegast að
bandarísk yfirvöld taki við baminu.
Móðir bamsins átti að koma til
landsins árla í morgun og samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins verður
í för með henni tökulið á vegum
Unsolved Mysteries sjónarpsþáttar-
ins bandaríska, sem fjallaði um mál-
ið í byijun janúar.
Dvalar- og atvinnuleyfi Connie
Jean Hanes og eiginmanns hennar,
Donalds, runnu út í seinustu viku
og hafa ekki verið endumýjuð, þrátt
fyrir að hjónin hafí lagt fram umsókn
þar að lútandi, að sögn Jóhanns Jó-
hannssonar, yfírmanns útlendinga-
eftirlitsins. Donald Hanes hefur
starfað undanfarna mánuði hjá
tölvudeild Flugmálastjórnar.
Hafa kærufrest
Jóhann segir bein afskipti útlend-
ingaeftirlitsins af hjónunum ekki
hafin og ekki hafí verið tekin ákvörð-
un um hvemig haldið verður á mál-
um. Hins vegar sé m.a. í athugun
að vísa þeim úr landi, en væri slíkt
gert gætu hjónin kært þá ákvörðun
innan fimmtán daga og jafnframt
vísað málinu til ráðherra, þannig að
slík framkvæmd myndi hafa nokkum
aðdraganda. Hins vegar sé ótfma-
bært að ræða þessa málsmeðferð
fyrr en búið er að kynna fólkinu þau
úrræði sem em til staðar.
Jóhann segir að ferill hjónanna
hafí ekki verið kannaður þegar dval-
arleyfi var veitt, enda slíkt ógjörning-
ur í ljósi fjölda þeirra dvalarleyfa sem
veitt eru á hveiju ári.
Líðan telpunnar ágæt
Telpan sem tekin var af hjónunum,
Zenith Elaine Helton, er nú í umsjá
Félagsmálastofnunar Kópavogs.
Guðmundur Ágústson, sem skipaður
var réttargæslumaður hjónanna til
þess tíma að Héraðsdómur Reykja-
ness samþykkti kröfu um farbann á
þau, segir að henni líði með ágætum
og væri vel sinnt, samkvæmt þeim
upplýsingum sem honum hafí borist.
Guðmundur kveðst þeirrar skoð-
unar að hann telji farbannið óþarft,
enda búið að leggja hald á vegabréf
hjónanna og þau komist því ekki úr
landi.
„Ég hef að vísu aðeins heyrt aðra
hlið málsins og vil ekki tjá mig mik-
ið um það, eðli málsins samkvæmt,
en skilst á hjónunum að barnið hafí
verið verulega vanrækt og að móðir-
in hafí leiðst út í eiturlyfjaneyslu.
Þau sögðu að mjög mikið hafi þurft
til að þau slitu öll tengsl við fyrri
heimkynni og lögðust í útlegð, en
þau vissu að ef þau reyndu að dylj-
ast í Bandaríkjunum myndu þau
finnast."
Hann kveðst ekki vilja túlka við-
brögð eða tilfinningar hjónanna, en
telji þó að þeim hafí ekki komið mjög
á óvart að barnið var tekið af þeim
og málsmeðferð íslenskra stjórnvalda
í kjölfarið.
Bandarísk yfírvöld hafa ekki lagt
fram formlega beiðni um framsal
hjónanna en hennar er að vænta
fljótlega, að sögn Stefáns. Fyrir
nokkru var hins vegar gefín út al-
þjóðleg handtökuskipun vegna ólög-
mæts brottnáms bamsins, með það
fyrir augum að framsals yrði krafíst.
Frekari gagna beðið
„Við bíðum nú eftir formlegri
framsalsbeiðni þar sem fram koma
ítarlegar upplýsingar um þau afbrot
sem fólkið er grunað um að hafa
framið og önnur fylgigögn," segir
hann.
Stefán segir verið að kanna for-
sendur fyrir því að vísa fólkinu úr
landi og hvernig því verði komið til
Bandaríkjanna og barninu til móður
sinnar. Ekki liggja fyrir upplýsingar
um að hjónin hafí reynt að dyljast
hérlendis og eru þau meðal annars
skráð fyrir síma undir réttum nöfn-
um.
Richard Lundberg, upplýsingafull-
trúi bandaríska sendiráðsins, segir
að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna
meðhöndli málið með lög um einka-
lífsvernd að leiðarljósi, og verði því
ekki veittar upplýsingar um þá sem
málið varðar eins og sakir standa.
Málsmeðferð að öðru leyti einskorð-
ist við samskipti á mill sendiráðsins
og yfirvalda hér.
„Málið er á viðkvæmu stigi og
þótt að önnur hlið þess sé orðin opin-
ber, snýr hin hliðin að viðkomandi
einstaklingum og réttarstöðu
þeirra," segir hann.
Aðspurður um rannsókn sendi-
ráðsins á grunsemdum um að hjónin
hafí yfirgefið Bandaríkin ásamt
baminu með fölsuð vegabréf segir
Lundberg ekki endanlega niðurstöðu
liggja fyrir.
Upplýsingar ófáanlegar
Aðspurður um sakaskrá Donald
Hanes, segir Paul Bresson, talsmað-
ur bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, þá stefnu rekna af stofnuninni
að veita ekki utanaðkomandi aðilum
aðgang að gögnum af því tagi, auk
þess sem lög um einkalífsvernd tor-
veldi mjög alla miðlun slíkra upplýs-
inga.
Umfjöllun í Óráðnum gátum átti
þátt í að Zenith fannst
Aðstoða lögreglu
BANDARÍSKI sjónvarpsþátturinn
Óráðnar gátur (Unsolved Mysteri-
es) sem flallaði um hvarf Zenith
E. Helton 3. janúar hóf göngu
sína í bandarísku sjónvarpi í nú-
verandi mynd árið 1988.
Samkvæmt upplýsingum frá
framleiðendum þáttanna, sem
reiða sig m.a. á upplýsingar frá
áhorfendum, hafa ábendingar
þeirra orðið til þess að aðstoða
laganna verði við að handsama
um 40% þeirra flóttamanna sem
fjailað hefur verið um.
Sömu heimildir herma að I 92
tilvikum hafi umfjöliun orðið
þess valdandi að fólk hafi náð
fundi þeirra sem lýst var eftir
og lausn hafi fundist á 263 mál-
um fyrir þeirra atbeina.
Þátturinn fjallar um ráðgátur
og sakamál af ýmsu tagi, þar á
meðal dularfull mannshvörf, eftir-
lýsta flóttamenn, horfnar ástir,
mál sem snúast um háar fjárhæð-
ir eða mikiar eignir sem engir
hafa gert tilkall til og fleira.
Þátturinn hefur sex sinnum
verið tilnefndur til Emmy-sjón-
varpsverðlauna og stærir sig af
því að hafa fengið hrós frá banda-
rísku alríkislögreglunni fyrir þjón-
ustu við almenning.
Kynnir í þáttunum er Robert
Stack leikari, sem m.a. lék lög-
reglumanninn Elliot Ness í sjón-
varpsþáttum um The Untouch-
ables fyrir nokkrum áratugum.
Suðurvangur — Hafnarfirði
3ja herb. íbúð — iaus nú þegar
Til sölu rúmgóð og skemmtileg 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjöl-
býlishúsi. (búðin skiptist í góða stofu, rúmgott sjónvarpshol,
eldhús m/borðkróki, sérþvottahús og búr inn af eldhúsi. Á
sérgangi eru 2 svefnherb. og baðherb. fbúðin er um 94 fm að
stærð.
Sléttahraun — Hafnarfirði
— 3ja herb. — iaus strax
Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. (búðin er mikið
endurnýjuð með nýjum gólfefnum, þ.e. parketi og flísum.
Þvottahús á hæðinni.
Ásgarður — Rvík — 2ja herb.
laus strax — sérinng. — hagst. lán
Vönduð tæplega 60 fm 2ja herb. íbúð á 2. hæð. Vandaðar
innréttingar. Parket á gólfum. Sérinng. Gott útsýni. Áhv. hag-
stæð langtímalán 3,6 millj., þ.e. gömlu veð deildarlánin með
4,9% vöxtum. Greiðslubyrði rúmlega 18 þús. á mán.
CONNIE Jean og Donald á heimili sínu í Kópavoginum í gær. Morgunbiaðið/Kristinn
Fasta þar til hún kemur
„VIÐ urðum fyrir algjöru áfalli
að frétta af því að Zenith hefði
verið tekin af leikskólanum. Við
fáum ekki einu sinni að tala við
hana i síma. Ég myndi gera allt
til að fá hana aftur. Eftir að hún
var tekin frá okkur með jafn
ómannúðlegum hætti og raun ber
vitni hef ég fastað og læt ekki
bita inn fyrir mínar varir þar til
hún er komin aftur til okkar,“
segir Connie Jean Hanes í sam-
tali við Morgunblaðið.
Connie segir að Kelly, dóttir
sín, hafi verið einstæð móðir
þriggja ára dóttur þegar hún varð
ófrisk af Zenith árið 1992. Þar á
ofan hafi hún þjáðst af erfiðum
gigtarsjúkdómi frá 9 ára aldri.
„Hún treysti sér því ekki til að
ala upp annað barn og hefði farið
í fóstureyðingu ef við hefðum
ekki lýst yfir áhuga á að ættleiða
barnið. Ég var viðstödd fæðing-
una og varð fyrst til að snerta
Zenith fyrir utan starfsfólk
sjúkrahússins. Kelly jafnaði sig
eftir keisaraskurðinn hjá okkur í
Utah. Hún myndaði ekki tengsl
við barnið og sagðist vi(ja fara
aftur til Arizona og skilja barnið
eftir hjá okkur aðeins mánuði
eftir fæðinguna. Að hennar frum-
kvæði var gengið frá því að barn-
ið tilheyrði okkur um aldur og
ævi. Hún skilaði meira að segja
inn samþykki föður,“ segir
Connie Jean.
Erfitt tímabil
Donald Hanes, eiginmaður
Conniear, segir að skömmu síðar
hafi tekið við erfitt tímabil. „Kelly
fór að taka barnið án leyfis, t.d.
af barnaheimilinu, og við þurftum
að ganga í gegnum erfitt ferli til
að ná því aftur. Við gerðum okk-
ur grein fyrir því að við yrðum
annað hvort að gefa Zenith frá
okkur eða halda áfram að vernda
hana. Tilkynning Kellyjar um að
hún myndi skilja Zenith eftir í
vörslu þriggja ára systur sinnar
á meðan hún færi út á flugvöll
varð svo til að hjálpa okkur að
taka ákvörðun," segir hann.
Hann segir að Kelly hafi farið
að beijast fyrir því að fá barnið
aftur eftir að því hafði verið skil-
að til hjónanna vorið 1993. „Þegar
við gerðum okkur grein fyrir því
að dómarinn hafði engan áhuga
á að taka tillit til þess að kærasti
Kellyjar barði Connie að barninu
ásjáandi varð niðurstaðan ljós.
Við myndum aldrei halda barn-
inu. Áður en kom að réttarhöldun-
um héldum við því úr landi. Fyrst
fórum við Connie, Michael, 16 ára
sonur hennar og Zenith, til Bret-
lands og þaðan til íslands haustið
1995. Hér hefur okkur liðið vel.
Ég hef unnið hjá Flugmálastjórn,
Connie hefur unnið við skriftir
heima og Zenith hefur verið í leik-
skóla.“
Á sakaskrá vegna
ölvunaraksturs
Donald játar því að vera á saka-
skrá í Bandaríkjunum eins og
fram hefur komið í fréttum. „Ég
er á sakaskrá af því að ég ók ölv-
aður og lenti í óhappi árið 1984.
Hins vegar er ekki rétt að ég sé
á skilorði því að ég hef tekið út
mína refsingu og á ekkert sökótt
við lögin," segir hann. Þau viður-
kenna að hafa ranglega skráð
Zenith í vegabréf Conniear til að
komast út úr Bandaríkjunum en
segjast ekki hafa leynt neinu hér
á landi.
Connie segist hafa frétt að
Kelly væri á leiðinni til íslands.
„Ég get ekki hugsað til þess að
hún taki Zenith enda hefur hún
hvorki aðstæður né áhuga á að
hafa hana. Hún er reið út í mig
og reiðin bitnar á barninu. Núna
höfum við frétt að saga hennar
sé komin á alnetið,“ segir hún.
Hún tekur fram að þau Rjónin
hafi fengið ómetanlegan stuðning
frá félögum sínum í islenskri
Kirkju Jesús Krists hinnar síðari
daga heilögu (Mormónakirkjunn-
ar).
í
I
I
I