Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 13
Morgunblaðið/Hólmfríður
Stokkið fram af bökkunum
Grímsey. Morgunblaðið.
ÞEGÁR snjór er mikili I Grímsey
eins og nú er vinsæll leikur hjá
stálpuðum börnum að stökkva
og renna sér í bökkunum án snjó-
þotu eða sleða. Þeim er þó ekki
alveg sama í hvaða bakka þau
leika sér, en svæðið austur af
höfninni er einna best. Foreldr-
arnir eru misjafnlega hrifnir af
þessari iðju barnanna en eiga það
þó flestir sameiginlegt að hafa á
sínum æskuárum stundað þessi
stökk eða annað álika glannalegt
og þótt gaman.
AKUREYRI
Óvenjuleg uppákoma á árshátíð vélsleðamanna í Sjallanum
Arshátíðarnefnd fékk
Jenkins vodka að gjöf
VÉLSLEÐAMENN héldu sína
árlegu árshátíð í Sjallanum á
Akureyri um síðustu helgi, í
tengslum við sýninguna Vetrar-
sport ’97 og þykir kannski ekki
í frásögur færandi. Eftir að há-
tíðin hófst gekk aðili í salnum
upp á svið og færði árshátíðar-
nefndinni fallegan pakka fyrir
vel unnin störf.
Gerði flöskuna
upptæka á staðnum
Er pakkinn var opnaður brá
mörgum í brún en þá kom í þ’ós
vodkaflaska sem bar nafnið
Jenkins. Það er einmitt sama
tegund og gerð var upptæk í
stóra smyglmálinu sem kom upp
í Reykjavík fyrir skömmu og
reyndar teygði anga sína til
Akureyrar. Einn þeirra sem
sæti áttu í árshátíðarnefndinni
var Þorsteinn Pétursson, eftir-
litsmaður veitingahúsa á Akur-
eyri.
„Þegar ég sá hvers kyns var
gerði ég flöskuna upptæka og
sendi strax upp á lögreglustöð.
Auk þess að vera í árshátíðar-
nefndinni var ég líka veislustjóri
á hátíðinni og þessi aðili sem
gaf flöskuna hefur kannski ekki
áttað sig á því að ég kæmi nærri
framkvæmdinni. Mér þykir lík-
legt að þessi flaska sé hluti af
smyglinu sem upp komst um
daginn, það hefur a.m.k. ekki
verið fluttur inn neinn Jenkins
vodki til sölu í vínbúðum hér.“
Þorsteinn sagði að mönnum
hefði ekki þótt þessi uppákoma
neitt sérstaklega skemmtileg og
ekki haft neitt við það að athuga
að flaskan væri gerð upptæk.
Hann sagði að öðru leyti hefði
árshátíðin farið vel fram og ver-
ið menningarleg og fjölsótt.
Daníel Snorrason, lögreglu-
fulltrúi hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri, sagði
ekki ljóst hvort þessi uppákoma
ætti eftir að hafa einhvern eftir-
máia en málið væri í skoðun.
Morgunblaðið/Kristján
LÖGREGLAN á Akureyri
hefur gert upptækt töluvert
magn af Jenkins vodka, sömu
tegundar og árshátíðarnefnd
vélsleðamanna fékk að gjöf
um helgina.
Endurskipulagning á rekstri
Ólafsfjarðarbæjar
Tæknifræðingi
sagt upp störfum
Ólafsfjörður. Morgunblaðið.
Á FUNDI bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar, sem haldinn var síðdegis
í gær, var tillaga fulltrúa meiri-
hlutans í bæjarráði Ólafsfjarðar,
um að segja tæknifræðingi bæjar-
ins upp störfum, samþykkt með
fjórum atkvæðum meirihlutans
gegn þremur atkvæðum fulltrúa
minnihlutans.
Fulltrúar meirihlutans í bæjar-
ráði, Þorsteinn Ásgeirsson og Jón-
ína Óskarsdóttir, lögðu á fundi
bæjarráðs fyrr í vikunni fram til-
lögu um að segja bæjartæknifræð-
ingi upp störfum hjá Ólafsfjarð-
arbæ. „Bæjarráð Ólafsljarðar
leggur til við bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar, að tæknifræðingi verði
sagt upp störfum frá og með 1.
febrúar 1997. Uppsögnin er til
komin vegna samdráttar í fram-
kvæmdum í bæjarfélaginu og liður
í endurskipulagningu í rekstri
bæjarfélagsins," segir í tillögu sem
lögð var fram á fundi bæjarstjórn-
ar í gær.
Nokkrar umræður urðu um
þessa tillögu á fundi bæjarstjórnar
og skoðanir skiptar, en tillagan
var samþykkt með atkvæðum
meirihlutans.
25 milljónir
í framkvæmdir
Önnur umræða um fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs Ólafsfjarðar
var á fundinum i gær. Samkvæmt
henni er gert ráð fyrir að heildar-
tekjur bæjarins og stofnana hans
verði um 213 milljónir króna. Til
reksturs málaflokka fara 154
milljónir eða 72,43% af tekjum.
Um 25 milljónum króna verður
varið til framkvæmda, bæði í
gjaldfærðum og eignfærðum fjár-
festingum. Þá er gert ráð fyrir að
greiða niður lán um 24,5 milljónir
króna.
Tveir ökumenn grunaðir um ölvun við akstur
Annar 16 ára á stolnum bíl
LÖGREGLAN á Akureyri handtók
16 ára pilt á stolnum bíl um kl. 22
í fyrrakvöld. Áður hafði lögreglan
fengið spurnir af ferðum piltsins
sem einnig var grunaður um ölv-
un. Við eftirgrennslan fannst bíll-
Heimshugleiðsla
SAMVERA verður í Deiglunni í
Kaupvangsstræti í dag, fimmtudag.
Ætlunin er að sameina hugi fólks
öðru fólki víða um heim á sama
tíma, frá kl. 17.30 til 17.35. Fólk
af ólíku þjóðerni og fjölbreyttrar
trúar sem á þá ósk heitasta að jörð-
inni berist heilun og ljós mun sam-
eina hugi sína. Umsjón annast
Michael Willcocks, en nánari upp-
lýsingar má fá á alnetinu;
http://w.w.w. gaiamind.com.
inn syðst í Þórunnarstræti en þar
sem pilturinn stöðvaði ekki bílinn
hóf lögreglan eftirför norður Þór-
unnarstræti og suður Glerárgötu.
Þar missti pilturinn fljótelga vald
á bílnum og var handtekinn.
Fyrr um kvöldið var ungur öku-
maður tekinn fyrir að keyra á
annan bíl á gatnamótum Aðal-
strætis og Drottningarbrautar og
stinga af frá vettvangi. Lögreglan
fann manninn heima hjá sér
nokkru síðar og við yfirheyrslu
viðurkenndi hann verknaðinn og
að hafa ekið undir áhrifum áfeng-
is.
Daníel Snorrason, lögreglufull-
trúi á rannsóknardeild lögreglunn-
ar, vildi beina því til ökumanna
að læsa bílum sínum eða í það
minnsta taka lyklana úr bílunum
þegar þeir eru yfirgefnir.
Til leigu
Verslunarhúsnæði í nýju húsi í miðbæ Akureyrar. Stærð 60 fm.
Upplýsingar í síma 462 6368.
Snjóflóða-
námskeið
STARFSFÓLK skíðasvæða á Ak-
ureyri, Dalvík og Húsavík sat
námskeið í Skíðastöðum í Hlíðar-
fjalli þar sein fjallað var um mat
á si\jóflóðum. Vegna ófærðar
komust starfsmenn skíðasvæðis-
ins í Ólafsfirði ekki á námskeiðið.
Leifur Örn Svavarsson yfir-
kennari hjá Björgunarskóla
Landsbjargar og Slysavarnafé-
lags íslands var leiðbeinandi á
námskeiðinu. Fyrirlestrar voru
haldnir um morguninn þar sem
m.a. var fjallað um við hvaða
aðstæður hætta er á snjóflóðum
og hvernig best er að standa að
björgun. Eftir hádegi voru verk-
legar æfingar en á þessari mynd
eru þátttakendur að skoða snjóa-
lög m.a. með tilliti til snjóflóða-
hættu.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Þriggja mán-
aða fangelsi
fyrir innbrot
og þjófnað
RÚMLEGA þrítugur karlmaður
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í 6 mánaða
fangelsi, þar af í 3 mánuði skilorðs-
bundið fyrir innbrot og þjófnað.
Með athæfi sínu braut maðurinn
skilorð. Kona um fertugt sem var
í slagtogi með honum hlaut
tveggja mánaða skilorðsbundinn
dóm. Þeim er einnig gert að greiða
sakarkostnað og útlagðan kostnað
ríkissjóðs vegna réttargæslu og
flugfars.
Utanborðsmótor, golfsett og
tölva
Var manninum gefið að sök að
hafa stolið utanborðsmótor, einnig
farsíma, radarvara og útvarps- og
segulbandstæki úr bifreið í félagi
við annan mann. Þá var ákærðu
gefið að sök að hafa í júlí í fyrra
brotist inn í golfskálann á
Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði og
stolið þremur golfsettum og síðar
inn í golfskála Hamars í Svarfað-
ardal og stolið tölvu með fylgihlut-
um og prentara.
Þýfið falið í ræsi og
skógarlundi
Þýfi úr golfskálunum var komið
fyrir í ræsi í Hörgárdal og skógar-
lundi norðan Akureyrar í því
augnamiði að koma því í verð síð-
ar. Tölvan og fylgihlutir fundust
áður en fólkið hafði komið að nýju
og vitjað þeirra.
Konan játaði beina aðild að inn-
brotinu í golfskálann í Svarfaðar-
dal en neitaði að hafa vitað um
fyrirætlan félaga síns við golfskál-
ann í Ólafsfirði.
Morgunblaðið/Kristján
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskólinn byijar aftur
næstkomandi laugardag, 25.
janúar kl. 11 í Svalbarðs-
kirkju og kl. 13.30 í Greni-
víkurkirkju. Guðsþjónusta
verður í Grenivíkurkirkju á
sunnudag, 26. janúar kl. 14.
Fermingarbörn mæti kl. 11.
Kyrrðar- og fyrirbænastund
í Svalbarðskirkju á sunnu-
dagskvöld kl. 21.