Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Samskip hyggjast stofna Flutningamiðstöð Vestfjarða
Samstarfsaðíla leitað
til landfhitninga
ísafirði - Á næstu misserum
hyggja Samskip hf. á stofnun
flutningamiðstöðvar á Vestfjörð-
um með aðalstöðvar á ísafirði.
Að sögn Gunnars Jónssonar, um-
boðsaðila Samskipa á ísafirði,
verður hér um að ræða svipaða
flutningamiðstöð og Samskip
hafa sett upp víðsvegar um land
og verður um að ræða flutninga
bæði með bílum og skipum.
Gunnar segir að þarfir þeirra
sem kaupa flutning séu þess eðlis
að skipaferðir einar og sér dugi
ekki. „Ef menn ætla sér að vera
í þessum flutningabransa þá
verða þeir að geta boðið fjöl-
breytta kosti hvað varðar t.d. tíðni
ferða og kostnað."
Samskip leitar nú að sam-
starfsaðila um landflutningana og
mun hafa átt í viðræðum við
nokkra aðila hér vestra um það
mál. Áætlað er að Flutningamið-
stöð Vestfjarða á ísafirði verði til
húsa í svokölluðum Sultartanga
sem er húseign Norðurtangans
við Sundahöfn en Djúpbáturinn
hf. er þar einnig til húsa á efri
hæðð.
Skipaafgreiðsla Gunnars Jóns-
sonar, sem hefur verið með af-
greiðsluumboð fyrir Samskip hf.,
verður ekki hluti af hinu nýja flutn-
ingafyrirtæki en mun halda áfram
sinni eigin starfsemi sem verið
hefur m.a. við móttöku erlendra
skipa á íslandi, brettasmíði og ann-
að er fellur að starfseminni.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Skautasvell við Selfoss
Selfossi - Skautasvell hafa mynd-
ast víða í nágrenni Selfoss að
undanfömu, á tjörnum og túnum
þar sem vatn hefur safnast fyrir
í lægðum. Á túnunum í Laugar-
dælum og á golfvellinum við
Svarfhól má finna stór og renni-
slétt svell, þar sem vatnið hefur
frosið í kyrru veðri. Daði, Helga
og Lena skemmtu sér vel og
skautuðu á rennisléttu svelli á
Laugardælatúnunum.
Hótel ísafjörður
Andblær
liðinna tíma
ísafirði - Menningarmiðstöðin Edin-
borg, Litli Leikklúbburinn, Hótel Ísa-
fjörður og Byggðasafn Vestfjarða
hafa ákveðið að efna til þorrablóts
á Hótel ísafirði laugardaginn 8. febr-
úar nk. Á þorrablótinu verða flutt
fjölbreytt skemmtiatriði, tónlist, rím-
ur og fleira auk þess sem stiginn
verður léttur dans við undirleik
harmoniku-hljómsveitar.
í frétt frá Hótel ísafirði segir að
þorra verði blótað í þjóðlegum stíl
með trogi á borðum, fullu af há-
karli, harðfiski, súrmat, sviðum og
fleira góðgæti sem tilheyrir þessum
árstíma. Miðasala og upplýsingar
um þorrablótið fást á Hótel Isafirði.
Sama dag munu Vesturferðir á
ísafirði efna til „smakkferðar" um
ísafjarðarbæ og nágrenni. Farið
verður i söfnin í Ósvör og Neðsta-
kaupstað og í hákarls- og harðfisk-
verkun þar sem smakkaður verður
vestfirskur þorramatur.
Námskeið fyrir atvinnulausa haldin á Þingeyri
Ekki hægt að ætlast til þess að
við förum að keyra til Flateyrar
ísafirði - í desember sl. var að und-
irlagi félagsmálastjóra ísafjarðar-
bæjar sett á stofn nefnd atvinnu-
lausra á Þingeyri. Að sögn Valdísar
B. Kristjánsdóttur, eins nefndar-
manna, stendur nefndin fyrir opnu
húsi einu sinni í viku þar sem fólk
kemur saman til skrafs og ráða-
gerða.
„Við erum búin að vera á fullu
við að setja á laggimar tölvunám-
skeið fyrir atvinnulausa sem byijaði
20. janúar. Það eru tveir 13 manna
hópar í gangi go verður til að byija
með kenndur vélbúnaður tölvunnar
og ritvinnsluforritið Word. Við höf-
um einnig sett upp aðstöðu fyrir
fólk sem hefur áhuga á smíðum og
þess háttar og höfum opið tvisvar
í viku. Einnig er í bígerð ýmislegt
annað sem ekki hefur verið endan-
lega ákveðið og get ég nefnt í því
sambandi fyrirhugað vélavarða-
námskeið og fiskvinnslunámskeið."
Valdís var innt álits á gagnrýnis-
röddum sem hafa beinst að Þingeyr-
ingum vegna trega þeirra til að
sækja vinnu t.d. á Flateyri þar sem
skortur hefur verið á starfsfólki.
„Það er ekki hægt að ætlast til að
við förum að keyra til Flateyrar,
fólk sem er með börn hér á leik-
skóla þarf að fara fyrr af stað og
kemur seinna heim. Fólk er heldur
ekki hrifíð af að keyra t.d. Gemlu-
fallsheiðina þar sem nýlega varð
alvarlegt slys eins og flestir vita,
og Hvilftarströndina út á Flateyri
sem er þekkt snjóflóðasvæði." Val-
dís sagði að hún vissi til að ein-
hveijir Þingeyringar væru komnir
í vinnu á Suðureyri en taldi upp á
að einhveijir þeirra væru þar að
staðaldri. „Bæði Freyja á Suður-
eyri og Bakki í Bolungarvík hafa
auglýst eftir fólki hérna en ég veit
ekki til þess að Flateyringar hafi
auglýst."
Afrekskonan Sunna
Gestsdóttir styrkt
Skagaströnd - Landsliðskonunni
Sunnu Gestsdóttur úr USAH var
afhent 200 þúsund króna peninga-
gjöf frá Skagstrendingi hf. í lok
síðasta ár. Peningana fékk Sunna
sem viðurkenningu fyrir frábæran
árangur í ftjálsum íþróttum á liðn-
um árum og til stuðnings við frek-
ari æfingar og keppni á næstunni.
Sunna er landsliðskona í sprett-
hlaupum og langstökki og hefur nú
verið valin í „Sydney 2000“ hópinn
sem er hópur ungra efnilegra
íþróttamanna og kvenna sem líkleg
þykja til afreka á Ólympíuleikunum
í Sydney árið 2000. Hún hélt nú í
bytjun janúar til Bandaríkjanna í
skóla en þar mun hún jafnframt
stunda æfingar og keppni.
Óskar Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf., afhenti
Sunnu styrkinn og sagði hann að
með árangri sínum og skemmtilegri
framgöngu væri hún fyrirmynd
barna og unglinga, ekki síst í
heimahéraði sínu og hefði hvatt þau
til dáða.
Valdimar Guðmannsson, formað-
ur USAH, þakkaði Skagstrendingi
hf. góðan stuðning fyrr og nú við
uppbyggingu íþrótta- og æskulýðs-
starfs í héraðinu.
Morgunblaðið/Magnús B. Jónsson
LÁRUS Ægir Guðmundsson, stjórnarformaður Skagstrendings
hf., Valdimar Guðmannsson, formaður USAH, Sunna Gestsdótt-
ir og Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hláturinn
lengir lífíð
Blönduósi. - Hross á íslandi hafa
fulla ástæðu til að brosa. Ástæð-
una má rekja til þess að markað-
ur fyrir íslenskt hrossakjöt í Jap-
an hefur hrunið vegna matareitr-
unar þar eigi alls fyrir löngu og
fá fleiri hross að lifa fyrir bragð-
ið. Ekki er þó ógætilegt að ætla
að stóðeigendur og ef til vill fleiri
fengju sömu andlitsdrætti og
þetta húnvetnska hross ef and-
fætlingar okkar í Japan opnuðu
markað sinn fyrir hrossakjöt.
ísafjarðarflugvöllur
Upplýst um
flug á Alneti
ísafirði - Beintengd vefsíða
með nýjustu upplýsingum um
flug Flugleiða og Flugfélags
Norðurlands til Isafjarðar er
komin á Alnet. Á vefsíðunni
eru upplýsingar um komu- og
brottfaratíma og endurnýjast
þær á þriggja mínútna fresti.
Ef ófært er til ísafjarðar er
greint frá því hvenær flug skuli
athugað næst. Þá er á vefsíð-
unni aðgangur að nýjustu veð-
urspá sem og að upplýsingum
um flug til og frá Keflavíkur-
flugvelli. Umsjónarmenn vef-
síðunnar eru Gunnar Atli Jóns-
son og Björgvin Arnar Björg-
vinsson.
Netfangið er:
http://www.ismakk.is/flugleidir/