Morgunblaðið - 23.01.1997, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
„Réttarhöld
aldarinnar“
í Brasilíu
Rio de Janeiro. Reuter.
RÉTTARHÖLD í morðmáli, sem lík-
legt er til að njóta meiri athygli en
öll önnur dómsmál í Brasilíu á öld-
inni, hófust í gær yfir stjörnu geysi-
vinsællar sápuóperu og eiginkonu
hans fyrrverandi.
Leikarinn, Guilherme de Padua
og eiginkonan, Paula Thomaz, eru
ákærð fyrir hrottafengið morð á
ungri mótleikkonu de Paduas í sjón-
varpssápuóperunni „De Corpo e
Alma“ (Af líkama og sál), Danielu
Perez, sem framið var í desember
urinn hafi framið morðið á meðan
hún skoðaði í búðarglugga í nálægri
verzlunarmiðstöð.
Stungin með skærum
Lögregla fann lík Perez í skóg-
lendi nokkru við íburðarmikið íbúð-
arhverfi ríkra við ströndina, Barra
da Tijuca. Nef hennar og andlit var
afmyndað af barsmíðum og að sögn
lögreglunnar hafði líkami hennar
verið stunginn 15 sinnum með skær-
um. Allt benti til að hörð átök hefðu
Tvær norður-kóreskar fjölskyldur
biðja um hæli í Suður-Kóreu
Fólkið flúði á
litlum báti í
grimmdarfrosti
Seoul, Bangkok. Reuter.
TVÆR norður-kóreskar fjölskyld-
ur, þar á meðal maður, sem tengd-
ur er fjölskyldu Kim Il-sungs heit-
ins, fyrrum forseta N-Kóreu, flýðu
til Suður-Kóreu í fyrradag og hafa
beðið þar hælis. FAO, Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Samein-
uðu þjóðanna, telur, að matars-
korturinn í N-Kóreu muni aukast
verulega á þessu ári og þurfi til
að koma mikil, alþjóðleg aðstoð
við landsmenn.
Fólkið, átta manns, flýði yfír
Gulahaf á litlum báti í grimmdar-
frosti og var loks tekið um borð í
s-kóreskan lögreglubát. Fréttir
eru um, að það hafi fyrst lagt leið
sína til Kína og síðan farið þaðan
til S-Kóreu. Sýndi s-kóreska sjón-
varpið myndir af fólkinu þegar það
steig frá borði og þuldi í sífellu:
„Þakka ykkur fyrir, þakka ykkur
fyrir.“
Aukin landamæragæsla
Flóttafólki frá N-Kóreu hefur
fjölgað mikið að undanfömu og í
síðusta mánuði flýði þaðan 16
manna fjölskylda og öryggisvörð-
ur. Kom hópurinn til Seoul í S-
Kóreu í síðustu viku eftir að hafa
ferðast á laun suður um allt Kína
og Hong Kong. Sögðu þau á blaða-
mannafundi, að N-Kóreu hefði
næstum þrefaldað fjölda varð-
manna á landamærunum við Kína
til að stemma stigu við landflótt-
anum.
Flóð hafa valdið miklum skaða
á ræktarlandi í N-Kóreu tvö sum-
ur í röð og eru fréttir um hungur-
sneyð sums staðar í landinu. í
nýrri skýrslu frá FAO segir, að
áætlað framboð af hrísgijónum
og maís á þessum vetri sé 2,84
milljónir tonna og vantar þá tvær
milljónir tonna upp á, að þörfum
landsmanna sé sinnt. Framleiðsla
N-Kóreumanna á áburði hefur
hrunið og þeir hafa ekki efni á
flytja hann inn eða aðrar nauð-
synjar, skordýraeitur, eldsneyti og
varahluti.
Vöruskipti leyfð
Fyrr í þessum mánuði heimilaði
Bandaríkjastjórn stórfyrirtækinu
Cargill Inc. að hefja vöruskipta-
verslun við N-Kóreustjóm og selja
þangað allt að tveimur milljónum
tonna af korni. Eru fulltrúar fyrir-
tækisins komnir til viðræðna um
þessi mál í Pyongyang, höfuðborg
N-Kóreu.
Fær ■ flestan sjó íneð
OSTKBJM
m&Mlsr-
„Síþreyta og depurð eru
erfiðir fylgikvillar sveppa-
sýkingar. OSTRIN
hjálpar mér, því það
gefiir aukna orku, úthald
og vellíðan."
Unnur Þorsteinsdóttir,
skrifstofumaður.
Sendum í póstkröfu
Heilsi
hornii
Skipagötu 6, Akureyri,
sími/fax 462 1889.
Upplýsingar um útsolustaði gefur Gula línan í síma 562 6262
„65 ára, síungur og vinn
10 tíma á dag, en ég
byrja líka hvern dag á
OSTRIN.“
Árni Valur Viggósson,
simaverkstjóri.
Reuter
Eyðilegg-
_ ingí
Ástralíu
MARK Simms, t.v., virðir fyrir sér
rústir heimilis síns en eiginkonan,
Rosemary, hefur leitað huggunar
slökkviliðsmanns. Miklir skógar-
eldar hafa geisað nærri Melbourne
í Ástraliu og er hús Simms-hjón-
anna á Dandenong-fjalli eitt þrjá-
tiu heimiia sem hafa orðið eldunum
að bráð. Þrír menn hafa látið lifið
í baráttunni við skógareldana, sem
eru nú að mestu kulnaðir.
1992.
Undanfarin fjögur ár hefur brasil-
ískur almenningur verið heltekinn
af áhuga á morðmáli þessu. Perez
lék hina kynþokkafullu Jasmín í
sjónvarpsþáttunum vinsælu, en de
Padua ástríðufullan elskhuga henn-
ar. í fyrstu játaði hann á sig verkn-
aðinn. Hann sagði Perez hafa elt
sig á röndum og reynt ítrekað að
fá sig til samræðis við sig. Síðar
breytti hann þessum framburði og
sagði eiginkonu sína, Paulu
Thomaz, hafa myrt leikkonuna í
afbrýðiskasti. Jafnvel þótt hann við-
urkenndi að hafa verið viðstaddur
glæpinn sagðist de Padua ekki hafa
getað hamið ofsann í hálfsturlaðri
eiginkonu sinni. Thomaz, sem þá
var 19 ára og bamshafandi, heldur
því aftur á móti fram, að eiginmað-
átt sér stað fyrir dauða hennar.
Gloria Perez, móðir Danielu, er
þekktur handritshöfundur að
sápuópemm og átti m.a. þátt í að
semja handritið að hinni örlagaríku
þáttaröðAf líkama og sál. Hún hef-
ur í minningu dóttur sinnar hleypt
af stað áróðursherferð gegn ofbeldi
gegn konum í Brasilíu.
Lögfræðingar de Padua og
Thomaz, sem hneppt voru í fang-
elsi skömmu eftir morðið, hafði
tekizt að fá réttarhöldunum frestað
allt fram til nú, eða í fjögur ár.
Reiknað var með að þúsundir
aðdáenda hinnar myrtu myndu
reyna að efna til óeirða í réttarsaln-
um. Vegna óttans við þau áhrif sem
athygli fjölmiðla gæti haft á réttar-
höldin hafa sjónvarpsupptökur á
þeim verið bannaðar.
Bankastjór-
inn laus úr
. gíslingu
STARFSMENN Crédit Foncier-
bankans í París klappa fyrir Jer-
ome Meyssonnier bankastjóra
þegar þeir slepptu honum úr gísl-
ingu í gær. Þá höfðu starfsmenn-
irnir meinað honum að fara úr
byggingunni í sex daga til að
mótmæla áformum um að loka
bankanum vegna bágrar fjár-
hagsstöðu. Sagði bankastjórinn
að með því að sleppa honum
gerðu starfsmennirnir mönnum
auðveldara fyrir að hefja viðræð-
ur um framtíð bankans.
Reuter
Stj órnarandstaðan í Serbíu hafnar málamiðlun
Ljær ekki máls á
nýjum kosningum
Beigrad. Reuter.
ZORAN Djindjic, einn af leiðtogum
stjómarandstöðunnar í Serbíu,
hafnaði í gær málamiðlun, sem for-
ystumenn Sóslalistaflokks Slobod-
ans Milosevic forseta eru sagðir
vera að íhuga til að freista þess að
leysa deiluna um borgarstjóma-
kosningarnar í nóvember.
Heimildarmenn í Sósíalista-
flokknum sögðu í fyrradag að leið-
togar flokksins væru að íhuga þann
möguleika að mynda bráðabirgða-
stjórn I Belgrad og hugsanlega fleiri
borgum og efna síðan til nýrra
kosninga eftir tvo mánuði.
„Við getum engan veginn fallist
á þetta,“ sagði Zoran Djindjic, einn
af leiðtogum Zajedno, bandalags
serbneskra stjómarandstöðuflokka.
„Þetta myndi þýða að við sættum
okkur við ógildingu kosninganna
og höfnuðum niðurstöðu Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu.“
Djindjic sagði að svo virtist sem
Milosevic væri að reyna að fresta
því að taka á vandamálinu í von
um að það leystist af sjálfu sér og
stjómarandstæðingamir þreyttust
á mótmælunum, sem hafa staðið í
66 daga. „Það em aðeins til tvö
skýr svör við vandanum - forsetinn
getur virt sigur Zajedno eða sagt
að það verði ekki gert - en hann
neitar að velja annan kostinn."
Engin kosningasvik í átta
borgum
Sósíalistar létu ógilda kosning-
arnar á þeirri forsendu að brögð
hefðu verið í tafli en fréttir hermdu
í gær að rannsókn dómsmálaráðu-
neytisins hefði leitt í ljós að ekki
hefðu fundist vísbendingar um
kosningasvik í átta af 14 borgum
og bæjum sem deilt er um. Stjórnar-
andstæðingar og stjórnarerindrekar
í Belgrad sögðu að niðurstaða ráðu-
neytisins myndi engin áhrif hafa á
mótmælin. Ráðuneytið sagði ekkert
um hvort kosningasvik hefðu átt
sér stað í sex borgum, þeirra á
meðal Belgrad.
Námsmenn hafa efnt til mót-
mæla allan sólarhringinn í höfuð-
borginni frá því á sunnudag og stað-
ið fyrir framan röð lögreglumanna
I miðborginni. Um 10.000 manns
tóku þátt I mótmælum námsmann-
anna í gær og jafn margir voru á
fundi Zajedno á torgi í grenndinni. J