Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNPLIST
Norræna húsið-sýn-
injjarsalur og and-
dy ri
MÁLVERK/VEGGSPJÖLD
Samsýningar. Opið kl. 14-19 alla
daga til 26. janúar; aðgangur
ókeypis.
ÞEGAR abstraktmálverkið var að
koma fram á fyrri hluta aldarinnar
voru skoðanir manna skiptar um
hvaða gildi það hefði helst tjl að
bera. Ein kenningin benti áQálf-
stæðar tilvísanir lita og líniJjyrir
hughrif mannsins, önnur ^Stjöaði
frelsi listamannsins til að tjainnri
gildi sálar sinnar án þess að- þurfa
að vísa til hiutbundins veruleilffienn
aðrir urðu til að benda á þapðíki-
dæmi léttleika og skreytilistaSem
opnaðist þegar listamaðurimr'var
ekki lengur bundinn við fyrirrjj^Jrdir
í verkum sínum. LU
Alvöruþrungin tjáning ogQjsst
andóf gegn veraldlegum þankagangi
var mest áberandi í þeirri abstrakt-
list sem varð hin ríkjandi stefna í
málverkinu á Vesturlöndum um og
eftir miðja öldina, en vék um síðir
fyrir öðrum viðhorfum, þar sem hlut-
veruleikinn var oft í fýrirrúmi með
einum eða öðrum hætti. Abstrakt-
málverkið hvarf þó ekki af vettvangi
og lifir enn góðu lífi hjá ýmsum lista-
LISTIR
Abstrakt flæði
og ánægja
mönnum, þar sem hver og
einn velur sér þau viðmið
sem honum þykja henta sér.
Þetta kemur vel fram í
þeim málverkum sem Þór
Ludwig Stiefel og Gerhard
Roland Zeller sýna í Nor-
ræna húsinu um þessar
mundir. Þeir sækja sitt
myndefni í fang þeirra óhlut-
bundu náttúruafla sem sífellt
móta umhverfi okkar, en
hvor með sínum hætti, þó
léttleikinn ráði rílqum hjá
báðum. Verkin bjóða upp á
ákveðið frelsi til handa
áhorfandanum, eins og Þór
bendir á:
„í abstrakt listinni gefur
listamaðurinn áhorfandan-
um kost á að skapa með sér;
áhorfandinn klárar myndina
með eigin hugarflugi. Ýmis-
legt er gefið í skyn, með lit-
um, formum og andstæðum;
skotið er fram myndrænum fyrri-
parti og áhorfandinn botnar verkið."
Gerhard Zeller leitar í vinnubrögð-
Morgunblaðið/Ásdís
ÞÓR Ludwig Stiefel: Árstíðir.
um sínum mjög í smiðju Jackson
Pollock, sem var brautryðjandi á
sviði þeirrar slettu- eða dropatækni
sem hér er áberandi í yfir-
borði myndanna. Undir þess-
um sveigðu línum eru hins
vegar fjölskrúðugir litafletir
sem skapa sífelldan óróa og
hreyfmgu í myndunum,
þannig að áhorfandinn getur
valið sér upphaf og endi hvar
sem er á ferðum sínum um
flötinn. Það er létt yfir þessu
litaspili og skreytigildið verð-
ur áberandi, eins og sést t.d.
í „Vorbylur" (nr. 16) og
„Slagveður" (nr. 7); kjarninn
er hins vegar mikilvægur
þáttur í málverkum eins og
„Orka“ (nr. 11).
Myndir Þórs Stiefel
byggja á stærri litflötum, þar
sem grunnlitirnir eru vand-
lega settir niður í ýmsum
blæbrigðum. Síðan vinnur
listamaðurinn ofan á grunn-
inn með dropun litanna, sköf-
un og jafnvel með því að
rispa í undirlagið. Utkoman verður
markviss myndbygging sem hentar
vel, og má nefna verk eins og „Árs-
tíðir“ (nr. 2), „Upphaf“ (nr. 7) og
„Álfakletta“ (nr. 16) sem góð dæmi
þessa.
Það er létt yfir þessari sýningu
þeirra félaga, sem sýnir að abstrakt-
málverkið lifir enn góðu lífí þar sem
það flæðir fram úr höndum yngri
sem eldri listamanna.
Anddyri
En það er önnur sýning í gangi
í Norræna húsinu sem vert er að
vekja athygli á. í haust sem leið fór
mikil norræn lestrarkeppni undir
heitinu „Mírnir" fram innan grunn-
skólanna. í tengslum við keppnina
unnu margir bekkir nemenda víða
um land skemmtileg veggspjöld, og
sýnishorn af þeim bestu skreyta nú
veggi anddyris Norræna hússins.
Það er vel til fundið að fá nemend-
ur til að tengja hið ritaða mál við
myndefni með þessum hætti, og
gaman að sjá með hvaða hætti unga
fólkið leysir úr þessu viðfangsefni.
Veggspjöldin sem voru valin til verð-
launa eru vel að þeim komin, en hér
eru einnig fjölmörg önnur sem verð-
skulda athygli. Sérstaklega má
benda á verk ýmissa úr yngstu ald-
urshópunum, þar sem fölskvalaus
gleðin yfir skemmtilegum viðfangs-
efnum skín í gegn.
Þarna getur að líta jákvæða ímynd
þeirra sem erfa munu landið, og er
full ástæða til að þakka þeim vel
unnin verk.
Eiríkur Þorláksson
í
I
I
í
fl
fl
(
fl
fl
i
C
Best að
vera góður
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
„LITLI-KLÁUS er lífsglaður grallari, hann er svolítið skáld í sér, hefur frjótt
ímyndunarafl og spinnur sögur sem verða honum og öðrum til góðs á einhvern
ótrúlegan hátt,“ segir Bergur Þór Ingólfsson sem leikur Litla-Kláus. Hér er hann
ásamt Sigrúnu Eddu Björnsdóttur sem leikur konu Litla-Kláusar, Lísu.
í dag verður bamaleikritið Litli-Kláus og Stóri-Kláus
sem byggt er á ævintýri H.C. Andersen frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu. Leikritið sem síðast var sýnt í Þjóðleik-
húsinu árið 1972 hefur verið fært í nýjan búning af
Asdísi Þórhallsdóttur leikstjóra eins og Þröstur Helga-
son komst að þegar hann fýlgdist með æfingu. Einnig
hafa Jóhann G. Jóhannsson og Þórarinn Eldjám samið
nýja tónlist og söngtexta við verkið.
BARNALEIKRIT leikársins í Þjóðleikhúsinu
er sótt í smiðju sígildra verka og byggist á
ævintýri H.C. Andersen um Litla-Kláus og
Stóra-Kláus. Litli Kláus er bláfátækur en
bæði glaður og nægjusamur. Stóri-Kláus er
hins vegar ríkur og bæði skapillur og gráðug-
ur. Leikritið hefur verið sýnt tvisvar sinnum
áður í Þjóðleikhúsinu, árin 1952 og 1971,
en er komið í nýjan búning í uppfærslu Ásdís-
ar Þórhallsdóttur sem lejkstýrir nú í fyrsta
skipti í Þjóðleikhúsinu. í sýningunni er ný
tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson, tónlistar-
stjóra Þjóðleikhússins, og nýir söngtextar
eftir Þórarin Eldjárn.
Gróteska
Ásdís er menntuð í leikhúsfræðum í Rúss-
landi og sækir aðferðir sínar í þann skóla
við uppsetningu leikritsins. „Maður fínnur
ekki upp neitt nýtt þótt ungur sé,“ sagði
Ásdís þegar hún var spurð urn aðferðina. „Eg
leita því í smiðju annarra. Ég hef einkum
litið til gróteskunnar sem Rússar þróuðu
áfram á sínum tíma, einkum Mayerhold.
Gróteskan byggist á því að gera líkamshreyf-
ingar stórar. Eg hef líka reynt að virkja fleiri
skilningarvit en bara heym og tilfinninga-
skynjun með það fyrir augum að ná til yngstu
áhorfendanna. Ég reyni því agjiöfða til sjón-
ar, litaskyns, heymar og framvegis.
Þannig reyni ég að vefa eitíUem könguló-
arvef til að fanga athygli un^Jólksins. Þetta
er mjög skemmtileg aðferð ogJientar bama-
leikhúsi afskapleg-a vel. ViðSigum tveggja
og þriggja ára böm á æfir^gj og þau vom
hreinlega bergnumin." if)
Græðgin og góðSönin
Ævintýri H.C. Andersen »4klqa flest börn,
en þau segja iðulega söguUtl átökum góðs
og ills. Eins er það í LitlaíIIEáusi og Stóra-
Kláusi. Litli-Kláus er vinnumaður hjá Stóra-
Kláusi; hann vinnur sex daga vikunnar og
fær að launum lánaða hesta Stóra-Kláusar
fyrri partinn á frídegi sínum, sunnudeginum,
þegar Stóri-Kláus fer til messu eins og flest-
ir aðrir. Sjálfur á Litli-Kláus aðeins einn
hest en þegar hann sér allt fólkið koma frá
kirkju á sunnudögum stenst hann ekki freist-
inguna og kallar grobbinn, „hott, hott allir
mínir hestar". Þetta kann Stóri-Kláus ekki
að meta og eftir margar aðvaranir rotar
hann eina hestinn sem Litli-Kláus á í bræðis-
kasti. Til að hann og kona hans og amma
svelti ekki sér Litli-Kláus ekki annað ráð en
að halda í kaupstað og selja húðina af hesti
sínum. Á leiðinni hittir hann hins vegar
djákna nokkurn sem er í vanda staddur.
Ovart prangar Litli-Kláus galdrakarli inn á
djáknann sem hann sagðist hafa yfir að ráða
og fær fyrir heila skeffu af gullpeningum.
Þegar Stóri-Kláus fréttir af þessari frægðar-
ferð Litla-Kláusar í kaupstað með hestshúð-
ina vill hann gera eins og lætur slátra öllum
fjómm hestunum sínum og flá af þeim húð-
ina. Ætlar hann að selja húðirnar í kaup-
staðnum og fá fyrir fjórar skeffur af gullpen-
ingum. Þegar á markaðinn er komið er hins
vegar bara hlegið að honum, enda dettur
engum í hug að gefa heila skeffu gulls fyrir
hestshúð. Og þar með upphefst hið mikla
ævintýri þar sem Litla-Kláusi verður allt að
gulli fyrir heppnina og góðmennskuna eina
saman en Stóra-Kláusi gengur ekkert í
græðgi sinni.
Bergur Þór Ingólfsson og Jóhann Sigurðar-
son leika Litla-Kláus og Stóra-Kláus og segja
að verkið fjalli fyrst og fremst um ákveðin
gildi í lífinu. „Leikritið hefur þann boðskap
að það er best að vera góður,“ segir Jóhann
og Bergur Þór bætir við: „Þama er fjallað
um tvær ólíkar manngerðir og afdrif þeirra.
Litli-Kláus er lífsglaður grallari, hann er svo-
lítið skáld í sér, hefur frjótt ímyndunarafl
og spinnur sögur sem verða honum og öðmm
til góðs á einhvern ótrúlegan hátt. Stóri-
Kláus er hins vegar hálfgert fyrirtæki, hann
er vélrænn vitleysingur og hugsar ekki um
neitt annað en gróðann sem hann getur hugs-
anlega haft út úr hlutunum. Við getum rétt
ímyndað okkur að það kemur honum í koll.“
Höfuðið hoggið af
Eins og gengur verða persónur ævintýris-
ins fyrir ýmsum áföllum; höfuðið er til dæm-
is hoggið af ömmu Litla-Kláusar. í sýning-
unni er ekkert dregið undan í þessu atriði
og Stóri-Kláus sýndur læðast að ömmunni
sofandi og höggva höfuðið af sem veltur síð-
an um á sviðinu. Að sögn Ásdísar er ákveð-
in hugsun að baki því að ganga alla leið í
þessu efni. „Gott og illt togast á í börnum
eins og öllum öðmm; þetta eru tilfinningar
sem þau þekkja. Og samkvæmt því sem sál-
fræðingar segja er það mjög hollt fyrir börn
að sjá þessar tilfinningar persónugerast í
leikhúsi eða ævintýrum vegna þess að þann-
ig læra þau um gott og illt. Bruno Betten-
heim heldur því raunar fram að það sé bein-
línis skaðlegt fyrir börn að kynnast ekki jafnt
hinu illa sem hinu góða i persónugervingum
eins og vondu nominni, ljóta úlfínum, galdra-
karlinum, góða spámanninum, vitringnum,
hetjunni, álfkonunni góðu og svo framvegis,
því þannig læra þau hvað er gott og hvemig
fer fyrir þeim sem hegða sér illa og hinum
sem hegða sér vel. Vegna þessa þótti mér
eðlilegast að ganga alla leið en reyni eftir
fremsta megni að vera alltaf með skýringar
með sögunni; um leið og vondir eða ljótir
hlutir gerast bendum við á það, til dæmis
með því að syngja „ljótt er að sjá“. í sýning-
unni fær Stóri-Kláus líka skott og stór eyru
þegar líður á söguna og verður þannig smám
saman að þeirri ævintýrapersónu sem börnin
þekkja einna best, vonda úlfínum sem svo
hlýtur mjög skelfíleg endalok."
Bergur Þór og Jóhann eru sammála Ás-
dísi um að draga eigi fram hið góða og illa
skýrum dráttum í sýningunni. „Vafalaust á
þetta eftir að vekja eitthvert umtal á meðal
hinna fullorðnu en börnin eiga örugglega
eftir að taka þessu eins og það er,“ segir
Bergur Þór.
„I nýju ævintýrunum sem krakkarnir alast
upp með í dag,“ segir Jóhann, „hefur það
verið lenska að gera allt svo fágað og fínt,
krakkar mega orðið ekkert illt sjá. I gömlu
ævintýrunum var þetta ekki svona, þar voru
menn drepnir og ömmur hálshoggnar. Þann-
ig eru dregnar skarpari línur og myndin verð-
ur ljósari í huga barnsins."
Auk Bergs Þórs og Jóphanns eru í leikara-
hóp sýningarinnar þau Sigrún Edda Bjöms-
dóttir, Bryndís Pétursdóttir, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Örn Árnason, Magnús Ragn-
arsson, Harpa Amardóttir, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Jóhann
Gunnar Jóhannsson, Sveinn Þórir Geirsson
og Valur Freyr Einarsson.
Lýsingu hannar Jóhann Bjarni Pálmason,
höfundur leikmyndar og búninga er Messíana
Tómasdóttir, dansahöfundur er Ástrós Gunn-
arsdóttir. Hljómsveitina skipa Bryndís Páls-
dóttir, Zbigniew Dubak, Sigurður Flosason
og Jóhann G. Jóhannsson.
fl
fl
fl
fl
c
<
fl
fl
(
fl
fl
fl