Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 41
FRÉTTIR
Á MYNDINNI eru stjórnarmenn, talið frá vinstri: Hannes Sigurðsson, Ólöf Ríkharðsdóttir, Gunnar
Reynir Antonsson, Rut Pálsdóttir, Signrrós M. Siguijónsdóttir, Sigurjón Einarsson og Salvar Hall-
dór Björnsson, framkvæmdastjóri Aðalútgáfunnar.
afhent peningagjöf
SALVAR Halldór Björnsson
afhenti fimmtudaginn 9. jan-
úar, fyrir hönd Aðalútáfunnar,
Sigurrósu Siguijónsdóttur, for-
manni Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu, eina og hálfa
milljón króna, sem er hlutur
Sjálfsbjargar á höfuðborgar-
svæðinu á sölu Ferðafélaga
barnanna á síðasta ári.
Ferðafélagi barnanna er bók
og spóla sem gefin voru út í
sumar 1996 af Aðalútgáfunni
og rann hlutur af ágóða sölunn-
ar til uppbyggingar á útivistar-
svæði félagsins við Elliðavatn
sem er sérhannað með þarfir
fatlaðra í huga.
Bónstöð Magnúsar flytur
Meistara-
prófsfyrir-
lestur á
vegum HI
SÓLVEIG Halldórsdóttir heldur
meistaraprófsfyrirlestur föstudag-
inn 24. janúar kl. 15 á Grensávegi
12. Fyrirlesturinn nefnist: „Hita-
þolið sellulasaensím úr Rhodother-
mus marinus."
í fréttatilkynningu segir: „Úr hita-
kæru bakteríunni R. marinus var
einangrað ensím sem brýtur niður
sellulósa, sem er uppistaða tijávið-
ar. Gen ensímsins var einangrað
og raðgreint og ensímið framleitt
í miklu magni. Eiginleikar ensíms-
ins voru rannsakaðir. Það reyndist
vera eitt hitaþolnasta ensím sinnar
tegundar sem fundist hefur. Það
heldur virkni sinni vel við 90C.
Ýmis not eru fyrir sellulasa í iðn-
aði.“
Verkefnið var unnið á Rann-
sóknastofu í sameindaerfðafræði
á Líffræðistofnun Háskólans.
---------------
Islands-
meistara-
keppni í köku-
skreytingum
LANDSSAMBAND bakarameist-
ara, Klúbbur bakarameistara og
bakarasveinafélag íslands standa
nú í þriðja sinn fyrir Islandsmeist-
arakeppni í kökuskreytingum.
Keppnin verður í Perlunni 24.-26.
janúar.
Laugardaginn 25. janúar kl. 16
verða úrslit kynnt og verðlaun
veitt. Aðgangseyrir er 300 kr.,
ókeypis fyrir börn yngri en tólf
ára. Opið er föstudag kl. 13-18,
laugardag kl. 10-18 og sunnudag
kl. 13-17.
BÓNSTÖÐ Magnúsar hefur verið
flutt um set í Hafnarfirði og er
nú til húsa í Hjallahrauni 9 við
BÆJARSTJÓRN Neskaupstaðar
samþykkti eftirfarandi ályktun á
fundi sínum sl. þriðjudag:
Bæjarstjóm Neskaupstaðar skor-
ar á stjórnvöld að tryggja Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
nægilegt fjármagn þannig að það
geti sinnt því mikilvæga hlutverki
sem því er ætlað. Um árabil hefur
verið unnið að hagræðingu innan
stofnunarinnar og ljóst er sam-
kvæmt nýjustu úttektum að vart
verður gengið lengra í þá átt.
Fjárveitingar til Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað hafa
verið svo naumt skammtaðar að
þær hafa ekki dugað til að halda
uppi þeirri þjónustu sem því ber og
eru því nýjustu hugmyndir stjórn-
valda um niðurskurð á fjárveiting-
um til þess og annarra landsbyggð-
arsjúkrahúsa með öllu óraunhæfar.
hliðina á Slysavarnafélaginu.
Bónstöðin verður opin á laugar-
dögum til 1. júní nk.
Slíkur niðurskurður leiðir til þess
að grípa verður til tímabundinna
lokana deilda og því verður ekki
trúað að stjómvöld ætli að bjóða
íbúum heils landsfjórðungs upp á
að þar verði engin bráðaþjónusta
veitt hluta úr ári. Slíkt mundi færa
Austfirðinga 40 ár aftur í tímann
og er algerlega óásættanlegt í lok
20. aldar.
íbúatölur frá 1. desember sl. sýna
svo ekki var um villst að lands-
byggðin á í vök að veijast og atlaga
að þeirri heilbrigðisþjónustu sem
rekin er á landsbyggðinni mun ýta
enn frekar á fólksstrauminn til höf-
uðborgarsvæðisins. Því skorar
bæjastjórn Neskaupstaðar á stjórn-
völd að efla heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni í stað þess að draga
úr henni.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar
Sjúkrahúsinu verði
tryggt rekstrarfé
Fyrirlestur um jarð-
skjálftabylgjur og
áhrif á lagnakerfi
BENEDIKT Halldórsson heldur op-
inberan fyrirlestur á morgun, föstu-
daginn 24. janúar, sem nefnist: Um
útbreiðslu jarðskjálftabyglna og
áhrif þeirra á lagnakerfi. Fyrirlest-
urinn, sem er lokaáfangi náms til
meistaraprófs við verkfræðideild
Háskóla íslands, verður haldinn í
stofu 158 í húsi verkfræði- og raun-
vísindadeilda (VR II) við Hjarðar-
haga og hefst hann kl. 15.30.
Benedikt lauk prófi í jarðeðlis-
fræði frá raunvísindadeild Háskóla
íslands í júní 1994 og hóf meistara-
nám við verkfræðideild Háskóla ís-
lands sama ár. Hluta námsins
stundaði hann við Tækniháskólann
í Þrándheimi. Umsjónarnefnd
námsins skipa prófessorarnir Páll
Einarsson, Júlíus Sólnes og Ragnar
Sigbjörnsson sem er formaður
nefndarinnar og aðalleiðbeinandi.
„í fyrirlestrinum verður fjallað um
þróun reiknilíkans af bylgjuút-
breiðslu jarðskjálftabylgna og grein-
ingu áhrifa þeirra á lagnakerfi ofan-
jarðar. Slík lagnakerfi einkennast
af því að einingar þess eru því sem
næst láréttar og liggja um stórt
svæði samanborið við önnur mann-
virki, s.s. hús. Þessir eiginleikar
valda því að hefðbundnar aðferðir
sem notaðar eru í tengslum við hönn-
un jarðskjálftaþolinna húsbygginga
duga skammt við hönnun lagna-
kerfa. Munurinn er fólginn í því að
fyrir lagnakerfi þarf að taka tillit
til bylgjuhreyfingar yfirborðs jarðar-
innar í jarðskjálftum og hvernig þær
valda mismunahreyfingu á undir-
stöðum þeirra," segir í fréttatilkynn-
ingar frá HÍ.
AUÐUR Kristinsdóttir, eigandi Garnbúðarinnar Tinnu, afhendir
Birnu Björnsdóttur viðurkenninguna Gullpijónar ársins 1996.
Gullpijónar
ársins 1996
NÝLEGA veitti Garnbúðin
Tinna viðurkenninguna Gull-
prjónar ársins 1996. Að þessu
sinni var það Birna Björnsdóttir
á Selljarnarnesi sem hlaut við-
urkenninguna. Hún er blind, en
hefur þrátt fyrir það prjónað
og heklað mikinn fjölda af flík-
ura.
I fréttatilkynningu segir að
pijónaflíkur hennar þyki sér-
lega fallegar og séu af öllum
gerðum, svo sem peysur, vettl-
ingar, húfur, treflar og teppi.
Viðurkenningin sem Birna
hlaut er tvíþætt, annars vegar
að ýta undir áhuga fólks á að
pijóna og hins vegar að verð-
launa það sem vel er gert í
pijónaskap á Islandi. Þetta er í
þriðja sinn sem viðurkenningin
er veitt.
Afmælis-
hátíð á
Sir Oliver
í TILEFNI af fimmtíu ára afmæli
Þórhalls Sigurðssonar (Ladda)
verður haldin afmælishátíð á Sir
Oliver í kvöld,
fimmtudagskvöld.
Meðal skemmtiat-
riða má nefna að
Laddi treður upp
auk þess að Tón-
smiðjan úr Gerðu-
bergi leikur en
þess má geta að
yngsti meðlimur-
inn í þessari
hljómsveit er 62
ára og sá elsti 75 ára. Þeim til
aðstoðar verður Ólafur Þórðarson
úr Ríó Tríó en hljóðfæraskipan er
tvær harmonikur og tvær munn-
hörpur.
Allir eru velkomnir á afmæl-
ishátíðina.
Amber Harris í
Kefas, kristnu
samfélagi
AMBER Harris predikar í Kefas,
kristnu samfélagi, Dalvegi 24,
Kópavogi, laugardaginn 8. febrúar.
Amber Harris kemur frá Banda-
ríkjunum og hefur predikað víðs-
vegar um heiminn. Amber Harris
semur lög og syngur þau Guði til
dýrðar. Samkoman hefst kl. 14 og
eru allir hjartanlega velkomnir.
-----♦—♦—♦-----
LEIÐRÉTT
Hannes Hansson
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
sjávarútvegsráðuneytinu í fyrra-
dag, þar sem greint var frá skipan
tveggja starfshópa, kom fram að
einn nefndarmanna annars starfs-
hópsins væri Hannes Hansson. Þau
leiðu mistök voru gerð að Hannes
var sagður Hannesson og er beðist
velvirðingar á þeim.
Þórhallur
Sigurðsson
(Laddi).