Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/GSH
CABRIEL Chagas (fyrir miðju) bætti enn einni skrautfjöðrinni í
hatt sinn þegar hann vann Cap Gemini tvímenninginn um helgina
ásamt Marcelo Branco. Myndin var tekin á Ólympíumótinu á
Ródos og meðspilari Chagas heitir einnig Branco, en ber skírn-
arnöfnin Pedro Paulo og er bróðir Marcelos.
Chagas o g Branco
unnu Cap Gemini
Frakkar og Indónesar koma á Bridshátíð
BRIDS
Ilaag, Ilollandi
CAP GEMINI
Árlegt mót 16 valinna bridspara
haldið í Haag, Hollandi dagana
16.-19. janúar.
BRASILÍUMENNIRNIR Gabriel
Chagas og Marcelo Branco unnu
hið árlega Cap Gemini tvímennings-
mót sem haldið var í Hollandi um
helgina.
Þetta er í annað skipti sem Bras-
ilíumennirnir vinna þetta mót og
þeir hafa einnig orðið þar tvívegis
í öðru sæti.
Mótið var geysisterkt en þangað
var að venju boðið 16 útvöldum
bridspörum víðsvegar að úr heimin-
um. Italimir Buratti og Lanzarotti
urðu í 2. sæti og Pólveijarnir Mart-
ens og Szymanowski í því 3. I 4.
sæti urðu ítalimir Lauria og
Versace og í 5. sæti varð eina
kvennaparið, Sun og Wang frá
Kína. í 6. og síðasta verðlaunasæt-
inu urðu Berkowitz og Cohen frá
Bandaríkjunum. Sigurvegarar síð-
asta árs, Norðmennirnir Helness og
Stabell urðu í 12. sæti.
Brasilíumennirnir fóru illa með
nýbakaða ólympíumeistara, þá
Szwarc og Bompis sem urðu raunar
í næstneðsta sæti í Haag. í viður-
eign þessara para kom eftirfarandi
spil fyrir:
Norður/AV á hættu.
Vestur
♦ 65
♦ G752
♦ Á97
♦ ÁG84
Norður
♦ 942
♦ Á109
♦ KDG1032
♦ 9
Austur
♦ 107
♦ K863
♦ --
♦ KD76532
Suður
♦ ÁKDG83
V D4
♦ 8654
♦ 10
Við flest borð voru spilaðir 4
spaðar í NS og það gerðist einnig
við borð Brasilíumannanna og
Frakkanna.
Vestur Norður Austur Suður
Chagas Bompis Branco Szwarc
1 tígull 2 lauf 2 spaðar
3 tíglar pass 3 hjörtu 4 lauf
4 hjörtu 4 spaðar dobl//
Þetta er hressileg sagnröð og
lokadoblið virðist við fyrstu sýn
býsna hart. En það var meint - og
skilið - sem útspilsdobl, því Chagas
spilaði út tígulás og meiri tígli.
Branco trompaði og spilaði laufi á
ás Chagas og fékk aðra tígulstungu
til baka. Einn niður. Á fjórum borð-
um fékk suður að vinna 4 spaða.
Ólympíumeistarar á
Bridshátíð
Nú liggur fyrir að þrír af frönsku
ólympíumeisturunum keppa á
Bridshátíð dagana 14.-17. febrúar.
Þetta eru Christian Mari, Alain
Levy og Henri Szwarc sem allir
hafa spilað í frönskum landsliðum
í áratugi. Fjórði liðsmaðurinn verð-
ur Philippe Chronier, sem einnig
hefur margoft spilað í frönskum
landsliðum og unnið með þeim Evr-
óputitla auk þess sem hann hefur
þjálfað franska kvennalandsliðið.
Þá hafa Indónesar einnig þekkst
boð um að senda sveit til keppni á
Bridshátíð. Indónesía varð í öðru
sæti á síðasta Ólympíumóti og vann
ísland í 8 liða úrslitum.
Þekktustu spilarar Indónesíu
áttu ekki heimangengt en tveir úr
ólympíuliðinu koma til íslands, þeir
Franky Karwur og Santje Panelew-
en. Með þeim koma Munawar Saw-
irudin, sem oft hefur spilað í indó-
nesískum landsliðum; og Dadan
Waradia.
Þá hefur Zia Mahmood verið
boðið að koma með sveit að venju,
en ekki liggur enn fyrir hvort hann
þekkist boðið. Loks koma þær Liz
MacGowan og Heather Dhondy frá
Bretlandi, en þær unnu heimsmeist-
aramótið í blönduðum flokki ásamt
okkar mönnum á Ródos í haust,
sællar minningar.
FÓTHVÍLA
Efþú vilt láta þér líða
virkilega vei.
EG Skrifstofubúnaður ,hi.
Áinúla 20. 108 Rvlk. Sírai 533 5900
Sjáðu nýjan frábæran
hugbúnað:
www.treknet.is^throun
gl KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Ánægður
viðskiptavinur
er besta
auglýsingin
ÉG STÓÐ í stórræðum um
og eftir áramótin, s.s.
flutningum og standsetn-
ingu á húsnæði. Má þar
t. d. nefna parketlögn, og
þar sem kunnáttan var
ekki fyrir hendi var farið
á stúfana að leita upplýs-
inga og ráðgjafar um verk-
ið.
Um það bil jafnmörg
svör og ráðleggingar feng-
ust og staðirnir voru marg-
ir og upplýsingamar sem
fengust voru misjafnar,
allt frá því að vera loðnar
upp í það að vera nokkuð
greinargóðar. Síðast lagði
ég leið mína í Parket og
gólf hf. í Vegmúla 2 og
keypti þar m.a. olíu o.fl.
sem þurfti við lokafrágang
á parketinu. Þar fékk ég
í kaupbæti allar þær upp-
lýsingar sem ég hefði vilj-
að fá strax í upphafi verks.
Nú á ég eftir að leggja
u. þ.b. helminginn af park-
etinu og bíður það betri
tíma. En þegar þar að kem-
ur fer ég í verslunina park-
et og gólf eftir efni og
upplýsingum.
Þá átti ég einnig ágætis
viðskipti við verslunina
Pipar og salt ehf., Klappar-
stíg 44.
Eg hafði fengið ljómandi
fallegan teketil í jólagjöf
en við nánari skoðun
reyndist galli í lokinu á
katlinum. Ég ætlaði því að
skipta og fá heilt eintak,
en því miður var þessi teg-
und uppseld í versluninni.
Mér var boðið að fá aðra
tegund af katli en mér leist
best á þann sem ég hafði
fengið, en þeir katlar voru
ekki væntanlegir fyrr en
einhvem tíma í vor. Þá var
boðist til að panta stakt lok
fyrir mig á ketilinn og þáði
ég það.
Skömmu síðar er hringt
í mig frá versluninni og
mér sagt að búið sé að
panta lokið, síðan liðu
nokkrir dagar og þá var
hringt aftur og sagt að
lokið væri komið.
Þetta er náttúrulega ein-
stök þjónusta og hana ber
að þakka.
Ánægður viðskiptavinur
Góð þjónusta
GERÐUR hringdi og vildi
þakka fyrir góða þjónustu
í Jack & Jones í Kringl-
unni. Hún var að leita að
buxum sem vora ekki til
á staðnum, en voru til í
hinni búðinni og þeir
sendu eftir réttu buxunum
fyrir hana á meðan hún
beið og vill hún þakka fyr-
ir það.
Tapað/fundið
Silkislæða
tapaðist
SVÖRT silkislæða með
gulleitu munstri, tapaðist á
Hótel Holti 8. janúar sl.
Skilvís fmnandi vinsam-
lega hafið samband í síma
561-4332. Fundarlaun.
Poki fannst
í SÍÐUSTU viku fannst
poki merktur versluninni
17. í pokanum er ný flík.
Upplýsingar í síma
553- 3113.
Kvenmannsjakki
tapaðist
SVARTUR kvenmanns-
jakki tapaðist á Veitinga-
staðnum CcLsa Blanca
laugardagskvöldið 4. jan-
úar. í vasa jakkans var
m.a. varalitur. Skilvís
fínnandi hafi sambandi í
síma 581-4125 eftir
klukkan 16.
Bíllyklar töpuðust
BÍLLYKLAR, þ.e. stakur
lykill úr þykku plasti, töp-
uðust ofarlega á Lauga-
vegi, líklega nálægt versl-
uninni 17, mánudaginn 20.
janúar. Skilvís finnandi
hafí samband í síma
554- 3137.
Bakpoki tapaðist
BLÁR bakpoki tapaðist í
miðbænum miðvikudaginn
15. janúar. Skilvís fínnandi
hafí samband í síma
551-0591. Fundarlaun.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á Ho-
ogovens-skákmótinu í Wijk
aan Zee sem hófst um heig-
ina. Öldungurinn sterki
Viktor Kortsnoj (2.635)
var með hvítt, en Bosníu-
maðurinn Predrag Nikolic
(2.6 hafði svart og átti
leik.
31. - f4! 32. exf4 -
Bg4+ 33. Kel - Hh8!
og Kortsnoj gafst upp,
því hann á ekki viðun-
andi vörn gegn máthótun
með drottningarfórninni
34. - Dxfl+ 35. Kxfl -
Hxhl. Það kostar alltof
mikið lið að reyna að
verjast henni.
Staðan í Wijk aan Zee
eftir tvær umferðir var
þannig: 1. Piket 2 v.,
2.-5. Onísjúk, Úkraínu, I.
Sokolov, Hollandi, Jermol-
insky, Bandaríkjunum og
Timman, Hollandi 1 'U v.,
6.-9. Short, Englandi, Van
Wely, Hollandi, P. Nikolic,
Bosníu og Lautier, Frakk-
landi 1 v., 10.—13. Granda
Zunjiga, Perú, Illescas
Cordoba, Spáni, Kortsnoj,
Sviss og Salov, Rússlandi
'U v. 14. Glek, Rússlandi 0
COSPER
ÉG er að velta einu fyrir mér. Af hverju réð konan
mín þennan unga garðyrkjumann fyrst við
höfum engan garð?
Víkverji skrifar...
ALDRAÐUR kunningi Víkveija,
sem verið hefur opinber
starfsmaður allt sitt líf, en dvelst
nú á dvalarheimili fyrir aldraða lýsti
nýlega fyrir Víkverja, hvemig ríkis-
sjóður kemur fram við hann á ævi-
kvöldinu. Lýsingin var ekki falleg.
Þessi aldni herramaður hefur
dágóðan lifeyri frá Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins. I skatta greið-
ir hann um 30 þúsund krónur á
mánuði, en síðan eru teknar af
honum í dvalarkostnað á dvalar-
heimilinu um 80 þúsund krónur.
Eftir á hann 8 þúsund króna ijár-
hæð til eigin ráðstöfunar. Hann
segist vera rétt við eitthvert mark,
sem stórhækkar dvalarkostnað
hans á dvalarheimilinu, hefði hann
örlítið lægri Iífeyri frá lífeyrissjóðn-
um, myndi það skipta sköpum fyrir
það hvað eftir væri.
Þessi aldni starfsmaður ríkisins
var mjög sár sem nærri má geta
yfir því hvernig farið væri með líf-
eyri hans. Honum fannst greinilega
lítið til um allan þann sparnað sem
hann hafði allt sitt líf sparað saman
til ævikvöldsins, taldi það hafa ver-
ið forsjálni af sinni hálfu, svo að
hann þyrfti ekki að hafa peningaá-
hyggjur í ellinni. En til hvers var
sparað? Nú situr hann eftir með 8
þúsundirnar, sem varla hrökkva til
neins.
XXX
VÍKVERJI fór í kvikmyndahús
í vikunni og sá allskemmti-
lega og hressilega mynd, sem er
ekki í frásögur færandi. Kvik-
myndahúsin í Reykjavík standa sig
afburðavel í að bjóða upp á góða
skemmtan og nýlegar ef ekki nýjar
myndir eru daglegt brauð í húsun-
um. Að auki er alls ekki dýrt að
fara í bíó á íslandi miðað við kostn-
að við slíkt víða erlendis.
En kvikmyndahúsin bjóða upp á
fleira en góðar kvikmyndir. í hléinu
er boðið til sölu alls konar sælgæti,
þar með talið poppkom og látum það
vera. En ekki gat Víkveiji betur séð
en fólk hafi verið að nærast á frönsk-
um kartöflum og kokteilsósu í kvik-
myndahúsinu, sem hann heimsótti í
vikunni. Fólk var með bakka með
þessum rétti og í bakkanum var bolli
fyrir sósuna og svo át það í erg og
gríð eins og því væri borgað fyrir.
Yfirleitt eru kvikmyndahús borg-
arinnar vel úr garði gerð, með góðu
áklæði á sætum. Það er sem Vík-
veiji sjái áklæðin eftir nokkur miss-
eri ef slíkt sem þetta verður leyft
áfram, blettótt og Ijót. Raunar
finnst Víkveija að ekki sé síður
ástæða til þess að banna borðhald
í kvikmyndahúsum jafnt og reyk-
ingar. Hvers vegna fólk þarf að
matast á meðan það horfir á spenn-
andi kvikmynd, er óskiljanlegt.
xxx
VÍKVERJI rakst á merkar upp-
lýsingar á heimasíðu lögregl-
unnar í Reykjavík um skotvopnaeign
borgarbúa. Þar kemur í ljós að byssu-
eign Reykvíkinga er hvorki meiri né
minni en 12.815 byssur og eru þær
síðan flokkaðar eftir tegundum. Þar
eru 7.543 haglabyssur, 4.450 rifflar,
442 skammbyssur, 251 loftbyssa, 66
fjárbyssur og 63 skotvopn, sem flokk-
uð eru undir „annað“.
Leyfishafar, þ.e.a.s. þeir sem
hafa byssuleyfi, eru hins vegar ekki
nema 6.154 talsins, þannig að með-
altalseign hvers manns með byssu-
leyfi er rétt rúmlega 2 byssur. Sam-
tals eru leyfishafar 6.036 karlar og
118 konur og flestir eru leyfishaf-
arnir á aldrinum frá þrítugu og upp
í fimmtugt. Frá gildistöku laga nr.
46/1977, sem eru núgildandi lög
um skotvopn, sprengiefni og skot-
elda, hafa um 8.100 aðilar verið
skráðir fyrir skotvopnaleyfi og 980
fyrir afnotaleyfi af skotvopnum.