Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 56. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sókn gegn uppreisnarmönnum stöðvuð Hafna friðar- boði Berisha Tirana. Reuter. VOPNAÐIR uppreisnarmenn í borg- unum Sarande og Vlore höfnuðu í gær friðarboði Sali Berisha forseta og sögðust ekki myndu leggja niður vopn fyrr en hann færi frá. Berisha stöðvaði í gær sókn her- sveita gegn uppreisnarmönnum og bauð öllum andstæðingum sínum sakaruppgjöf legðu þeir niður vopn fyrir klukkan sex að staðartíma í fyrramálið. „Við leggjum ekki frá okkur vopnin fyrr en Berisha segir af sér,“ sagði Fuat Karali, fyrrverandi lög- regluforingi og einn af leiðtogum uppreisnarmanna í Sarande, á úti- fundi í borginni. Fulltrúar Evrópusambandsins (ESB) og Evrópuráðsins fögnuðu vopnahléi Berisha og hvöttu hann til þess að takmarka það ekki við tvo sólarhringa. Báðar stofnanirnar hertu á friðarumleitunum sínum í gær. Hans Van Mierlo, fulltrúi ESB, átti þriggja stunda fund með Berisha í gær og hvatti hann ítrek- að til þess að gera ESB kleift að hjálpa landinu út úr þeim ógöngum sem það væri komið í. Van Mierlo sagðist hafa skýrt fyrir Berisha þá afstöðu ESB, að efna bæri til nýrra þingkosninga og landinu yrði sett ný stjórnar- skrá. Sagði hann Berisha hafa tek- Reuter NOKKRAR albanskar fjölskyldur, 24 karlar, 11 konur og 11 börn, komu á báti til borgarinnar Otranto á Ítalíu í gær eftir flótta frá heimalandinu. Olíklegt var talið að hópurinn, sem er nátengdur, fengi ítalska landvist. ið sér frest til að íhuga þann valkost. undir forystu Franz Vranitzky fyrr- Von er á sendisveit Öryggis- og verandi kanslara Austurríkis til Tir- samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) ana í dag. Reuter Alþjóða- dagur kvenna ALÞJÓÐADAGUR kvenna er í dag og i ávarpi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna (SÞ), í tilefni dagsins er vakin athygli á, að konur séu að jafnaði ekki hafðar með þegar þess er freistað að leysa alþjóða- deilur og átök með samningum. Vísbendingar sýni þó, að sögn Annans, að framlag kvenna í friðarumleitunum einkennist af jákvæðni og lipurð. Samkvæmt skýrslum SÞ eru Norðurlöndin lengst komin á sviði jafnréttis kynjanna. í Rússlandi eykst áhugi kvenna á herþjónustu og var myndin tekin á morgunmars- éringu í herskóla í Novotsjer- kassk. Námið þar tekur fimm ár og skuldbinda stúlkur sig við inn- töku að ganga ekki í hjónaband næstu þrjú árin. Tsjúbaís fengin mikil völd Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti skip- aði í gær Anatolí Tsjúbaís, skrifstofu- stjóra sinn, í starf fyrsta varaforsæt- isráðherra ríkisstjómarinnar. Hermt er, að Tsjúbaís yrði fengin yfírstjórn efnahagsmála í hendur og þrír ráðherrar, sem bera sama titil, yrðu annað hvort lækkaðir í tign eða settir af. Að sögn /nterfax-fréttastof- unnar hefur Jeltsín ákveðið að gefa Víktor Tsjemomýrdín forsætisráð- herra og Tsjúbaís fijálsar hendur til að stokka upp í ríkisstjóminni. Stjómmálaskýrendur spáðu því í gær, að Tsjemomýrdín yrði losaður undan daglegri stjóm efnahagsmála. Tsjúbaís er 41 árs annálaður umbóta- sinni sem nýtur álits á Vesturlöndum. Hann er hins vegar óvinsæll heima fyrir, ekki síst meðal kommúnista. Hrifning þeirra var lítil. „Þessi út- nefning á einungis eftir að leiða meiri harmleik yfír rússnesku þjóð- ina,“ sagði Gennadí Zjúganov, leið- togi kommúnista. ------»-■»'<----- Fylgishrun danska Ihalds- flokksins Kaupmannahöfn. Morgunblaðid. FYLGI danska íhaldsflokksins hefur hrapað og er aðeins 10,7% sam- kvæmt könnun Politiken, en var 14,7 prósent áður en formannsskiptin urðu í flokknum. Eftir að Hans Engell sagði af sér formennsku vegna ölvunaraksturs fór fylgið úr 14,7 prósentum niður í 13,1 prósent. Eftir að 30 ára ölvun- ardómur Per Stig Mollers, eftir- manns Engells, kom upp og Moller afneitaði honum fór fylgið niður í 10,7 prósent. Fylgistapið er ekki aðeins álitið stafa af viðbrögðum Mollers, heldur af því að flokksforystan virtist klofin og villuráfandi eftir fréttirnar. mm mm Sprengjutil- ræði í Peking Peking. Reuter. SPRENGJA sem sprakk í strætis- vagni í Peking í gær varð að minnsta kosti tveimur farþegum að bana og særði a.m.k. 30 manns, marga þeirra lífshættulega. Sprengingin varð í Xidan-verzl- unarhverfinu á mesta annatíma, klukkan 6.30 síðdegis. Tilgangur- inn með tilræðinu var óljós og ekki hafði frétzt af neinum handtökum. Skriður kominn á við- ræður NATO og Rússa Brussel. Reuter. WILLIAM Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, kom í gær til Brussel þar sem hann átti fundi með framkvæmdastjóra og sendi- herrum aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins (NATO) um tilraunir bandalagsins til að ná samkomu- lagi við Rússa í tengslum við fyrir- hugaða stækkun þess. Á sunnudag heldur Javier Solana, fram- kvæmdastjóri NATO, til Moskvu þar sem hann mun eiga fund með Jevgení Prímakov, utanríkisráð- herra Rússa, um málið. Aukinn kraftur hefur færst í tilraunir NATO og Rússa til að ná samkomulagi um formleg tengsl Rússlands við bandalagið, en þau verða efalítið aðalumræðu- efni Bill Clintons Bandaríkjafor- Nást drög aö sam- komulagi með fjölmörgum ófrá- gengnum endum um helgina? seta og Borísar Jeltsíns Rúss- landsforseta á leiðtogafundi þeirra sem haldinn verður í Hels- inki 20.-21. mars. Áfram um að ná samningum Á fimmtudag átti Strobe Tal- bott, aðalsamningamaður Banda- ríkjamanna við Rússa, fund með fulltrúum NATO áður en hann hélt til Moskvu til fundar við Prím- akov. Sá síðarnefndi mun fljúga til Washington til frekari funda- halda eftir að hafa rætt við Solana í Moskvu. Ekki er búist við miklum tíðind- um af fundi Solanas og Prímakovs í Moskvu á sunnudag en þó er talið mögulegt að niðurstaðan verði drög að samkomulagi, með fjölmörgum ófrágengnum endum. Hann sé hins vegar mikilvægur undirbúningur leiðtogafundarins í Helsinki. Sjálfur er Solana von- góður, sagðist í vikunni ekki vilja gera lítið úr þeim erfiðleikum sem samningamenn glímdu við, en hann teldi Rússa mjög áfram um að ná samningum um formleg tengsl við bandalagið og að það myndi nást. Flókin fjölskyldu- tengsl Róm. Reuter. HÁLFFERTUG kona hefur vakíð mikla hneykslan á Italíu en hún hefur tekið að sér að ganga með tvo drengi, sem ekki eru þó bræður. Fyrir þremur mánuðum var komið fyrir í legi kon- unnar tveimur eggjum frá tveimur konum og höfðu þau áður verið fijóvguð með sæði úr eiginmönnum þeirra. Að getnaði drengj- anna og meðgöngu standa þvi fimm manns. Allt fólkið er ítalskt en aðgerðin var hins vegar gerð í Sviss vegna þess, að ítölsku Iæknasamtökin banna félagsmönnum sínum að aðstoða við barnsburð af þessu tagi þótt ekki sé hann bannaður i landslögum. Rosy Bindi, heilbrigðis- ráðherra Ítalíu, fordæmdi leigumóðurina og foreldra drengjanna. í blaðinu La Stampa sagði, að drengirnir myndu eiga tvo feður og þijár mæður og með því væri ver- ið að kollvarpa hugmyndum manna um fjölskylduna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.