Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Vilja bann við einræktun Bonn, London. Reuter. VÍSINDAMENNIRNIR, sem einræktuðu ána Dolly, segja að sömu aðferð megi beita til að einrækta menn, og að setja eigi alþjóðalög sem komi í veg fyrir að slíkt verði gert. Jiirgen Riittgers, rannsóknamálaráð- herra Þýskalands, hefur einnig hvatt til þess og segir röksemdir sumra visindamanna, sem eru hlynntir einræktun, minna á málflutning nasista. Skosku vísindamennirnir, sem einræktuðu Dolly, stefna hins vegar að því að „framleiða" kú fyrir næstu áramót, sem sé ekki aðeins einræktuð, heldur með arfbera eins og vísindamennirnir vilja hafa þá. Þeir ætla nú að einrækta kýr en breyta erfðaefninu áður, fjarlægja gen eða bæta við, til að kalla fram ákveðna eigin- leika. Sem dæmi má nefna, að þeir vilja framleiða mjólkurkýr lausar við hvatann, sem veldur mestu um mjólkurofnæmi hjá sumu fólki. Menn í varahluti Riittgers sagði, að einræktun manna væri nú þegar bönnuð í Þýskalandi og hann kvaðst vona, að Unesco, vísinda- og menn- ingarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, beitti sér fyrir alþjóð- legu banni við henni. „Við getum ekki setið með hendur i skauti og horft upp á, að menn verði einræktaðir. Með því færum við út yfir miklu alvarlegri siðferðis- mörk en gert var með kjarnorku- sprengjunni," sagði Riittgers. Riittgers sagði, að það væri „viðurstyggilegt" af sumum vís- indamönnum i Bandaríkjunum að styðja einræktun manna með þeim rökum, að það auðveldaði liffæraflutning. „Menn yrðu þá framleiddir í varahluti og síðan hent. Það er sama hugsunin og ríkti hjá nasistum." Óvissa um hvað Peking-stjórn aðhefst eftir yfirtöku Hong Kong TAIWAN hefur öflugan her og mikinn viðbúnað vegna hugsanlegra átaka við Kínveija. Þessir hermenn eru við æfingar á eynni Quemoy, sem er aðeins í tveggja km fjarlægð frá Kínaströnd. Deilt um slátur- húsaskýrslu London. Reuter. TALSMENN breska íhaldsflokksins neituðu í gær fréttum um átök innan ríkisstjórnarinnar vegna skýrslu um hreinlæti og hollustuhætti í slátur- húsum landsins. Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum hefur Verkamannaflokkurinn 26 prósentustiga forskot á íhalds- flokkinn en kosningar verða ekki síð- ar en í maí. Gerir John Major forsæt- isráðherra hvað hann getur til að svo virðist sem einhugur ríki í íhalds- flokknum en fjölmiðlar skýrðu frá því í gær, að mikil átök hefðu orðið innan ríkisstjórnarinnar um siátur- húsaskýrsiuna. Það var opinber nefnd, sem vann skýrsluna, og þar segir, að ástandið í sláturhúsunum sé afar slæmt. Talið er hugsanlegt, að það hafí leitt til matareitrunar en í Skotlandi hafa 20 manns látist vegna saurgerlamengun- ar. Sagt er, að ráðamenn hafí sagt skýrsluhöfundum að draga úr gagn- rýni sinni en þeir neitað og þvi hafí skýrslan aldrei verið birt opinberlega. STEINAR WAAGE / SKÓVERSLUN \ Domus Medica - Kringlunni Helsar skórnir komnir aftur Yerð kr: 9.900 Litur: Svartir -Mjúkt leður -Leðurfóðraðir -Leðursóli -Fótformaðir Stærðir: 34-431/2 -Innlegg PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR STEINAR WAAGE SKOVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 STEINAR WAAGE SKOVERSLUN ^ SÍMI 568 9212 #“ Otti magnast á Taiwan Taiwanar telja sig hafa ástæðu til að óttast að Kínverjar á meginlandinu beiti þá valdi og hrifsi undir sig Taiwan eftir að Hong Kong komist undir stjórn Kínverja, skrifar Jóhanna Kristj ónsdóttir. Jiang Zemin, Lee Teng-hui, forseti Kína. forseti Taiwans. EKKI þarf að fjölyrða að sú ákvörðun að Kínveijar taki við stjórn í Hong Kong hefur valdið miklum sveiflum, pólitískum sem tilfinningalegum. En ekki má heldur gleyma að Taiwan er ekki langt undan. Þar búa rösklega 20 milljónir Kínverja sem er sú tilhugsun óbæri- legust allra að lenda undir yfirráðum stjórnarinnar í Peking. Ekki er þar með sagt að Taiwan og Hong Kong séu hlið- stæður þar sem Taiwan er í orði kveðnu sjálfstætt ríki þótt Kínveij- ar á meginlandinu kalli það hérað í Kína. En Taiwanar gera sér grein fyrir að staða þeirra gæti veikst til muna gagnvart kínverskum stjórnvöldum eftir að Hong Kong hverfur inn á áhrifasvæði Kínveija. Síðan kemur svo röðin að Macau eftir tvö ár en þá afhenda Portú- galar Kínveijum nýlenduna. Þar búa á milli 400 og 500 þúsund manns. Misvísandi yfirlýsingar um Taiwan frá Peking Erfitt er að átta sig á því hvað stjómendurnir í Peking eru að bralla þessa dagana þegar Taiwan og framtíð eyjarinnar er annars vegar. Stundum eru gefnar digur- barkalegar yfírlýsingar, næsta dag er gefið í skyn að fullur vilji sé til raunsærrar málamiðlunar. Stjórn- málaskýrendur bijóta heilann um það hvað af þessu sem gefið er til kynna spegli í rauninni afstöðu Peking-stjórnarinnar. Sumir þeirra sem fylgjast með málefnum í Kína eru á því að Pek- ing stjórnin muni leggja sig fram um að sýna fulla hörku í Hong Kong-málinu en hins vegar rósemi og skynsemd til að sefa valdamenn á Taiwan næstu mánuðum áður en teknar verða að nýju upp við- ræður milli grannanna tveggja um framtíðarskipan mála. Þeir sérfræðingar sem halda þessari skoðun fram segja að jafn- skjótt og Hong Kong sé komin á sinn stað, eins og Kínveijar á meginlandinu kalla það, muni stjórnin í Taipei vera í mun veik- ari stöðu en áður til að gera kröf- ur um sjálfstæði og það muni Pek- ing-stjórn færa sér hiklaust í nyt. Síðustu ár hafa Taiwanar orðið að treysta mjög á Hong Kong varð- andi aðgengi að Kína. „Það sem þeir hafa að leiðarljósi er að nota fjölmiðlana til að skapa skelfingu og þá tilfinningu meðal þorra manna að tíminn sé að renna út, er haft eftir einum Kínasérfræð- ingnum sem gegnir lykilstöðu á vegum Taiwan-stjómarinnar. „En sannleikurinn er sá að við teljum að Kínveijar áformi að kjósa rétta augnabiikið til að hefja viðræður á ný. Þeir vilja velja stundina sem þeir vita að hentar þeim.“ Búist við að nýr Kínaforseti taki sér góðan tíma En hvað sem þessu líður ríkir ákveðið raunsæi líka hjá Peking- stjórn því hún hefur til að mynda ekki blandað sér í samninga um vöruflutninga sjóleiðis sem gerðir voru milli viðkomandi fyrirtækja í Kína og á Taiwan. Sá samningur hafði átt sér langan aðdraganda og vakti vonir um vaxandi sveigjanleika þegar sættir urðu loks í málinu og samningur var gerður. Þeir sem fylgjast með málefnum Taiwans og Kína verða einnig að átta sig á að taka ber með varúð stóryrtar yfirlýsingar einkum frá stjórnvöldum í Peking. Ekki hvað síst má reikna með að nýr forseti Kína, Jiang Zemin, muni taka sér góðan tíma til að íhuga hvaða skref er best að stíga og þá hversu stór. Það er ekki nema áratugur síðan þíðuvottur hófst í samskiptum þessara fornu fjenda eins og al- kunna er. Það væri barnaskapur að reikna með að málið yrði til lykta leitt í einum vetfangi. Auk þess má ætla að Kínveijar hafi ærið að gera að komast að niður- stöðu með Hong Kong til að byija með og síðan Macau. Því finnst mér sennilegt að þeir muni ekki flana að neinu í sambandi við Taiw- an því að tæknilega séð ráða þeir varla við meira. Það breytir því þó ekki að Taiw- anar eru uggandi um sinn hag og telja Peking-stjórnina til alls vísa eins og fyrri daginn. Menn skyldu einnig hafa í huga að þeir sem haf a verið hvað herská- astir í sambandi við hugsanlega yfirtöku á Taiwan eru kannski þeir sem síður hafa áhrif til nokk- urra framkvæmda. Þrátt fyrir harkalega gagnrýni á á umbótastefnu forseta Taiwans, Lee Ten-hui, m.a. í blöðum í Hong Kong sem styðja Kínastjórn opin- berlega, segja ýmsir að það beri ekki að taka jafn alvarlega og margir Taiwanar hyllast til að gera. Menn skyldu ekki vanmeta það að stjómendurnir í Peking hafi nú hætt að beina eldflaugum að Taiwan og það sé ekkert sem sýni að þeir hyggist grípa til stríðs- aðgerða. „Þeir hafa fengið nasa- sjón af því sem næst fram með friðsamlegum samningum," sagði taiwanskur stjórnarerindreki í samtali við mig nýlega. Hann bætti við að það breytti því ekki að mik- ill ótti ríkti meðal alþýðu manna á Taiwan, „enda teldi hún sig varla hafa ástæðu til að treysta stjórn- völdum í Peking“. I ) I > i i \ I \ i i L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.