Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNIMGAR ERLA G UÐMUNDSDÓTTIR + Erla Guðmundsdóttir fædd- ist á Auðunarstöðum í Vest- ur-Húnavatnssýslu 28. apríl 1921. Hún andaðist á Landspít- alanum 24. febrúar siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirbju 6. mars. Mér finnst f ara vel á því að senda Erlu Guðmundsdóttur hinstu kveðju því að í bemskuminninum mínum birtist hún ætíð sem uppá- haldsfrænkan, og þó voru þær margar vænar. Það voru náin tengsl milli heimila okkar í Víðid- alnum, enda voru feður okkar Erlu bræður og fjölskylda hennar fram- úrskarandi gestrisin og ljúf í hví- vetna. Fyrir mér sem bam var það alltaf ævintýri líkast að heimsælq'a Auðunarstaði. Pjör og lífsgleði Auðunarstaðasystkina kom öllum í gott skap og átti mikinn þátt í að skapa þessar ljúfu minningar frá bernskuárunum. Þar var líka barnaskóli sveitarinnar til húsa á ámnum fyrir stríð, farskóli tvo mánuði á ári í fjögur ár. Þetta þætti nú víst ekki mikill undirbún- ingur undir framhaldsnám nú á dögum, en jákvætt og hlýlegt um- hverfi og traust kennsla bætti úr og sáði fræjum frekari námsáhuga sem leiddi mörg okkar býsna langt síðar meir. Þótt ég tengdist yngri bræðmnum nánar vegna svipaðs aldurs, hreifst ég alltaf sérstaklega af Erlu vegna fegurðar hennar, tindrandi augna og leiftrandi kímn- igáfu. Hún hafði líka til að bera þetta óbilandi traust og tryggð við vini og kunningja sem einkenndi alla fjölskyldu hennar. Þótt leiðir okkar Erlu skildu um alllangt skeið þegar ég hvarf á braut til að búa mig frekar undir lífshlaupið, slitnuðu tengslin aldrei alveg. Meira að segja mættust göt- ur okkar norður í Eyjafirði þegar ég var við nám á Akureyri og Erla í Húsmæðraskólanum á Lauga- landi. í minningunni var það ekki ósvipað því að hitta gamlan vin af tilviljun á götu í London eða New York. Þegar Erla var svo orðin húsmóðir á Auðunarstöðum heim- sóttum við hjónin og bræður mínir Erlu og Bjöm og nutum gestrisni þeirra og vinsemdar, fengum fregnir af gömulum vinum og kunningjum í sveitinni og drukkum af viskubrunni fólks sem hafði hlot- ið heilbrigt lífsviðhorf í arf og ávaxtað það með fijórri lífsreynslu sinni. Er borgarbúar leita uppruna síns, getur fátt verið yndislegra en samneyti við fólk með slíka reisn, glaðværð og hlýhug. Þegar Erla og Bjöm fluttu til höfustaðarins voru kynnin end- umýjuð í umhverfi sem okkur sveitabömunum er kannski enn framandi. Fjarlægðir hér syðra virðast stundum meiri en land- fræðilegar staðreyndir gefa tilefni til. Koma þar til ijölskyldubönd hvers og eins og ýmsar annir. Engu að síður urðu samkvæmi frænd- fólksins úr Víðidalnum til að end- umýja þessi gömlu tengsl við frænkuna góðu og hennar fólk. Fyrir allar þessar ánægjustundir vil ég þakka. Minningin um Erlu verður ætíð dýrmæt perla sem allir gömlu vinimir munu varðveita alla tíð. Bimi og fjölskyldu vottum við hjónin innilega samúð á sorgar- stundu. Sölvi Eysteinsson. Morgunblaðið/Silli SVIPMYND frá sveitakeppni Brídsfélag Húsavíkur sem nýlega er lokið. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Brídsfélag SÁÁ ÞRIÐJUDAGINN 4. mars var spilaður eins kvölds Mitchell-tvímenningur. 14 pör spiluðu 7 umferðir, 4 spil á milli para. Meðalskor var 168 og lokastaðan varð eftirfamdi. NS Guðbrandur Guðjohnsen - Magnús Þorkelsson 207 KristinnÓskarsson-ÓskarKristinsson 194 GottskáikGu^jónsson-ÁmiH.Friðriksson 169 AV GuðlaugurSveinsson-UnnsteinnJónsson 198 Nicolai Þorsteinsson - Sigurður Þorgeirsson 179 Cecil Haraidsson - Sturla Snæbjömsson 172 Keppnisstjóri var að venju Matthías Þorvaldsson og verður haldið áfram með eins kvölds tvímenningskeppni þar sem notuð verða forgefín spil. Keppt er um verðlaunagripi á hverju kvöldi og afhending verðlauna fer fram með formlegum hætti að Lokinni spilamennsku. Félagið vill hvetja sem flesta til að niæta, spilað er í húsnæði Úlfaldans, Ármúla 40 og hefst spila- mennska stundvíslega klukkan 19.30. Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 3. mars byijaði Butler- tvímenningur félagsins með þátttöku 14 para. Þau spiluðu 4 umferðir með 6 spilum á milli para og efstu pör voru: Halldór Einarsson - Gunnlaugur Óskarsson +49 Sverrir Jónsson - Ólafur Ingimundarson +43 Guðbrandur Sigurbergsson - Friðþjófur Einarsson +36 Sigrún Amórsdóttir - Bjöm Höskuldsson +20 Halldór Þórólfsson - Hulda Hjálmarsdóttir +18 Butler-tvímenningnum verður fram haldið næstu tvö mánudagskvöld. Spil- að er í félagsálmu Haukahússins með innkeyrslu frá Flatahrauni. Spila- mennska byijar kl. 19.30 og eru allir spilarar velkomnir. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríksson. Þriðjudagsspilamennska BR Þriðjudaginn 4. mars var spilað eins kvölds tölvureiknaður Monrad Baró- meter með forgefnum spilum. 18 pör spiluðu 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Efstu pör urðu: Ingimundur Guðmundsson - Friðjón Margeirsson +40 Maria Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundarson +31 GuðmundurBaldursson-SævinBjamason +28 Ómar Olgeirsson - Eyþór Jónsson +25 ÞórirLeifsson-EggertBergsson +24 Pörum er boðið upp á að leggja 500 krónur í verðlaunapott, sem síðan rennur til hæsta parsins sem lagði í hann. Guðmundur og Sævin unnu pottinn eftir æsispennandi baráttu við þá Ómar og Eyþór og Þóri og Egg- ert. Spilarar sem eru 20 ára og yngri fá að spila frítt á þriðjudagskvöldum hjá BR og hefur u.þ.b. eitt par á kvöldi nýtt sér það. Vonandi er að fleiri ung- ir spilarar nýti sér þetta tækifæri til að fá sér spilareynslu sér að kostnað- arlausu. Þriðjudagsspilamennska BR er röð eins kvölds tvímenninga með forgefn- um spilum. Spilaður eru Mitchell og Monrad Barómeter tvímenningar til skiptis. Byijað er að spila kl. 19.30 og eru allir spilarar velkomnir. Keppn- isstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson. Bridsfélag Reykjavíkur Miðvikudaginn 5. mars var spilaður eins kvölds tölvureiknaður Monrad- Butler tvímenningur með forgefnum spilum. 22 pör spiluðu 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Efstu pör urðu: Tryggvi Ingason - Ragnar Torfi Jónasson +38 SigurðurB.Þorsteinsson-HelgiSigurðsson +35 Kjartan Jóhannsson - Helgi Hermannsson +31 Jóhann Magnússon - Rúnar Hauksson +31 Jóhanna Siguijónsdóttir - Una Ámadóttir +25 GuðbjömÞórðarson-GuðmundurGrétarsson +19 Næstu 2 miðvikudagskvöld verða spilaðir eins kvölds Monrad Butler tvímenningar. Veitt verða sérstök verðlaun fyrir besta árangurinn úr 2 af þessum 3 Monrad Butler tvímenn- ingum. Næsta keppni félagsins er síð- an Aðaltvímenningur BR 1997. Brídsfélag Kópavogs þegar ein umferð er eftir í aðalsvei- takeppni félagsins er andi. staðan eftirfar- Tralli 233 Vinir 217 Helgi Víborg 217 Guðmundur Pálsson 212 Júlíus Snorrason 203 Brídsfélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Þriðjudagskvöldið 4. mars var spiluð síðasta umferðin í aðalsveita- keppni BRE en sjö sveitir tóku þátt. Lokastaðan varð á þessa leið: Sv. Þorbergs Haukssonar 230 Þorbergur, Böðvar, Haukur, Búi Sv.AðalsteinsJónssonar 206 Aðalsteinn, Gísli, Kristmann, Magnús, Svavar Sv.JónasarJónssonar 197 Jónas, Guðmundur, Auðbergur, Hafsteinn Sv. Kristjáns Kristjánssonar _ 195 Kristján, Ásgeir, Jón Ingi, Sigurður, ísak Sv. Atla Jóhannessonar 194 Atli, Jóhann, Svala, Ragna Bridsfélag Húsavíkur Aðalsveitakeppni Bridsfélags Húsa- víkur er nýlokið og þá keppni sigraði sveit Þórólfs Jónassonar með 137 stig- um, í öðru sæti varð sveit Óla Kristins- sonar með 132 stig og í þriðja sæti varð sveit Sveins Aðalgeirssonar með 123 stig. í sigursveitinni auk Þórólfs eru Ámi Helgason, Hlöðver Pétur Hlöð- versson, Einar Svansson og Halldór Gunnarsson. Sveit Þórólfs hefur oft undanfarin ár átt í keppni við sveit Óla og Guð- mundar og verið í öðru sæti, en nú bar Þórólfur og hans menn sigur úr býtum. Alls kepptu 8 sveitir og spilaðar voru 7 umferðir. Jón Garðar efstur á al- þjóðamóti TR SKAK Félagsheimili TR ALÞJÓÐAMÓT TR Alþjóðlegt skákmót, haldið 3.-12. mars i félagsheimÚi Taflfélags Reykjavíkur í Fákafeni 12. JÓN Garðar Viðarsson er efst- ur eftir fjórar umferðir, en á eft- ir að tefla við stórmeistarana á mótinu. Það þarf sex vinninga af níu mögulegum til að hreppa áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Jón Garðar þarf nú tvo og hálfan úr fimm skákum til að ná sínum fyrsta áfanga. Eins og margsinn- is hefur verið bent á hér í skák- þættinum myndi Jón Garðar bera nafnbótina með sóma, en hann hefur oft verið í svipaðri stöðu og þessari og klúðrað málum á lokasprettinum. Það er því alltof snemmt að spá því hver nið- urstaðan verður. Mótið var sett á laggimar samhliða því að erlendu stór- meistaramir Mikhail Ivanov, Rússlandi og Igors Rausis, Lett- landi, komu til landsins til að tefla fyrir TR í deilda- keppninni. Til að nýta komu þeirra setti TR þetta mót á laggimar og það veitir upprennandi skák- mönnum upplagt tækifæri. Þröstur Þórhallsson er búinn að gera jafntefli við þá Rausis og Ivanov og stendur ágætlega að vígi. Staðan eftir fjórar um- ferðir af níu er þessi: 1. Jón G. Viðarsson 3‘/z v. 2. Þröstur Þórhallsson 3 v. 3. -6. Mikhail Ivanov, Igors Rausis, Þorsteinn Þorsteinsson og Daniel V. Pedersen 2 */* v. 7. Jón Viktor Gunnarsson 1 ‘A v. 8. -9. Bergsteinn Einarsson og Björg- vin Víglundsson 1 v. 10. James Burden 0 v. Ungi danski þátttakandinn á mótinu átti sér einskis ills von þegar hann hleypti Þresti Þór- hallssyni út í uppáhaldsafbrigði sitt í skoska leiknum. En þar tók hann að sér verkefni sem aðeins er á valdi reyndustu stórmeist- ara. Þröstur fléttaði skemmtilega saman hótanir um allt borð og vann fljótt. Ávallt gaman að sjá hann meðhöndla slíkar stöður. Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Daniel V. Pedersen Skoski leikurinn 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 - exd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rxc6 - bxc6 6. e5 - De7 7. De2 - Rd5 8. c4 - Rb6 9. Rd2 - Bb7 10. b3 - a5 11. Bb2 - a4 12. Hbl - De6 13. De3 - axb3 14. axb3 - Bb4 15. Bd3 - 0-0 16. 0-0 - d5 17. Rf3 - f6 SJÁ STÖÐUMYND Svarta staðan lítur ekki mjög illa út, en með því að láta nú hveija hótunina reka aðra leiðir Þröstur skákina til lykta: 18. c5 - Rd7 19. Df4 - Bxc5 20. Bf5 - De7 21. Dh4 - h6 22. b4 - Bb6 23. e6 - Rb8 24. Dg4 Svörtu stöðunni verður ekki bjargað. Hvítur hótar 25. Dg6 og svartur verður því að veikja kóngsstöðuna. 24. - g5 25. Dh5 - Ra6 25. - Dg7 26. Hbel með hótuninni 27. e7 bjargaði engu. 26. Dxh6 - Dg7 27. Dh5 og svartur gafst upp. Skákkeppni stofnana Búnaðarbanki íslands sigraði eina ferðina enn í skákkeppni stofnana og fyrirtækja sem lauk í vikunni, í þetta sinn með meiri yfirburðum en oft áður. Heimilt er nú að hafa lánsmann í hverrri sveit. Úrsiit í A-flokki: 1. Búnaðarbanki íslands 29 v. af 36 2. VISA ísland 23 'U v. 3. Markaðsmenn, A-sveit 23 v. 4. Iðnskólinn f Reykjavík 21 ‘A v. 5. íslandsbanki 20‘A v. 6. Landsbanki íslands 19‘A v. o.s.frv. Menntaskólinn í Kópavogi flyst upp í A-flokk að ári eftir öruggan sigur í B-flokknum: 1. Menntaskólinn f Kópavogi 20 v. af 28 2. Búnaðarbanki íslands, B sveit 17 ‘A v. 3. Auroro 17‘A v. Hraðskákmót Hellis Hraðskákmót Hellis verður haldið mánudaginn 10. mars kl. 20. Tefldar verða 5 mínútna skákir, 7x2 umferðir eftir Monrad kerfi. Teflt verður í félagsheimili Hellis, Þönglabakka 1, Mjóddinni (hjá Bridssam- bandinu). Þetta mót hefur jafnan verið eitt vinsælasta skákmót Hellis. Heildarverðlaun eru kr. 10.000. Margeir Pétursson Jón Garðar Viðarsson 9\c-óen 4 - Gœðavara GjdfdVdia nidldi ocj kdlfistell. Allii veróílokkdi. (/1rv)//^K\\s\V VERSLUNIN Liiugavegi 52, s. 562 4244. Heiinsfi tPijii liönnuóir m.d. Gidiirii Versdte.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.