Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 43 HERMANN GUÐLA UGSSON tanga. Fyrirtækið hefur á þessum 25 árum gengið í gegn um marg- víslega erfiðleika, en Sigurður stóð við bak þess og víðtækar en flestir vissu af. Þá má geta þess, að þrír synir hans hafa verið í framvarðar- sveit Meleyrar hf., þeir Magnús, Ólafur og Guðmundur Tryggvi, sem nú er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Það var þegar í upphafi sam- starfs okkar, sem Sigurður sýndi hve vel hann hafði ræktað með sér hæfileikana til að láta blinduna ekki hamla sér í samskiptum við aðra. Svo ótrúlegt sem það var að sjá hann rétta okkur, honum ann- ars ókunnugum mönnum, eigin- handarstimpil sinn og fela okkur að setja þannig nafn sitt undir ýmis skjöl, sem þó vörðuðu hann miklu. Slíkt var traust það sem hann byggði á eigin mati, þótt kynnin væru ekki þá orðin löng. Svona var hann í öllum þessum samskiptum. Þá má ekki gleyma henni Ollu, þessari elskulegu konu, sem vildi helst vera amma þessara stráka. Þau hjónin veru sannarlega samstiga í lífi, starfi og leik. Einu sinni á ári hittist hópurinn að vest- an og héðan og var þá glaðst yfir samfundunum, þótt einnig væri setið yfir ráðagerðum um eflingu fyrirtækisins. Góðir og farsælir tímar, sem þakka ber af alhug. Við ævilok Sigurðar Sveins skulu honum þökkuð góð kynni og beðið blessunar Guðs um ókomna tíð. Fjölskyldu og ættingjum öllum vottum við samúð og hluttekningu. Megi minning góðs félaga lifa með okkur öllum. Þess biðja samstarfsfélagar á Hvammstanga. Karl Sigurgeirsson. Komið er að kveðjustund - góð- ur vinur hefur kvatt. Sigurður Sv. Guðmundsson, eða Siggi Sveins eins og ég heyrði hann ætíð kallaðan, var eftirminni- legur maður. Ég kynntist honum fyrst árið 1981 er ég fluttist hing- að vestur og hóf störf á skrifstof- unni hjá Rækjuverksmiðjunni hf. í Hnífsdal. Hann var „grand old man“ fyrir- tækisins. Synir hans Kristján og Muggur sáu þá um reksturinn en hann hafði allt á hreinu um stöðu mála. Þá hafði hann verðið blindur í mörg ár en í okkar samskiptum gleymdist það, því oftar en ekki var sagt: „Sjáumst síðar“ eða „við lítum á þetta“. Hann notaði símann óspart ef hann þurfti eitthvað að fá að vita og var oft ótrúlegt hversu nálægt hann fór um stöðuna hvort heldur voru birgðir í frysti eða ógreiddar afurðir og bankareikninga hafði hann á hreinu. Eitt sinn sagði end- urskoðandi fyrirtækisins við mig að Siggi vissi betur um stöðu fyrir- tækisins en margur yngri og sjá- andi stjórnandinn. Hann var með hugann við reksturinn og bátana í Djúpinu - því talstöðin var hans og hefur eflaust mörgum rækjusjó- manninum þótt öryggi í því að vita af Sigga. Hann hafði mikinn áhuga á því sem fram fór í kringum hann og hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum hvort heldur var á bæj- ar- eða landsmálum en Alla og fjöl- skyldan voru honum allt. Alla og Siggi bjuggu á Árbakka í Hnífsdal og getur maður séð Hnífsdal fyrir sér á árum áður þegar þar bjó hver athafnamaður- inn af öðrum. Fyrir nokkrum árum íhugaði ég kaup á gömlu húsi í Hnífsdal og langaði að fá að vita hvenær það hefði verið byggt. Það stóð ekki á svari hjá Sigga því hann sagði mér að árið 1910 hefði hann fæðst í þessu húsi og þá var það u.þ.b. nýtt. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Sigurði Sv. Guðmunds- syni. Ég votta Öllu og fjölskyldu samúð mína og bið Guð að blessa þau. Sigrún. + Hermann Guðlaugsson fæddist í Reykjavík 30. jan- úar 1910. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Isafirði 28. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 6. febrúar. Þegar andlátsfregn berst fram- kallast minningar og þakklæti frá liðnum tímum. Frá unglingsárum mínum á ég Ijúfar minningar um fjölskyiduna á Njálsgötu 27. Það var mikil gæfa að kynnast þeim, ekkert kynslóðabil, afinn á heimil- inu, foreldrar, synir tveir og Sessa vinkona mín. Þetta menningar- heimili sem falleg málverk prýddu, húsgögn, bækur að ógleymdu píanóinu ásamt umræðu um þjóð- félagsmál var áhrifaríkt. Þau áhrif urðu til dæmis til þess að við Sessa gengum Keflavíkurgöngu frá Hafnarfirði niður í miðbæ Reykja- víkur, í nýjum strigaskóm frá „Ola Jó“ kaupmanni á hominu með 25 kr. í nesti, en áttum eiginlega að vera að lesa fyrir vorpróf. Guðrún og Hermann vissu sem var, það voru sárir fætur og lúin bein, sem þau sóttu á bíl niður í bæ, og sögðu að nú yrðu „elsku telpurnar að hvíla sig“. Ógleymanlegt er hve fallega og vel þau töluðu við alla og um alla, sama hvort um menn eða dýr var að ræða. Kisur voru stundum á heimilinu, og man ég eftir einni sem fylgdi Hermanni eftir og sat við búðardymar meðan hann verslaði. Minnisstæðir eru bílarnir þeirra, oft stórir og kraftmiklir. Þegar Sessa fékk bílpróf naut hún trausts og hvatningar að vera ökumaður. Var gaman að fara út að aka á R-871. Þegar systkini mín vom að koma í heimsókn í bæinn var sjálf- sagt að gleðja þau með góðgæti. Ógleymanleg er gleðin þegar „Gunna Maja“ elsta barnabamið + Böðvar Jónsson, fyrrver- andi verksmiðjustjóri, fæddist í Holti í Álftaveri í V-Skaftafellssýslu 8. desem- ber 1911. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 18. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 26. febrúar. Mig langar í fáeinum orðum að minnast míns ágæta tengdaföður Böðvars Jónssonar, sem er látinn eftir stutta sjúkdómslegu. Þó að Böðvar hafi kvænst tengdamóður minni, Betsý Ágústsdóttur, tveim- ur árum eftir að ég giftist syni hennar, Kristmanni Karlssyni, þá leit ég alltaf á Böðvar sem tengda- föður minn. Og betri tengdaföður hefði ég ekki getað fengið. Böðvar var glæsilegur maður og bar ald- urinn óvenju vel. Hann var alltaf mjög smekklega klæddur. Það var alltf eftir honum tekið hvar sem hann fór. Hann var gáfumaður og þó skólagangan hafi ekki verið löng var Böðvar mjög fróður og var alveg sama hvað um var rætt, það var ekki komið að tómum kofunum hjá honum. Hann var dætrum mínum mjög góður afi. Fannst þeim ótrúlegt hvað afi í Reykjó vissi mikið, og vildu þær endilega að hann tæki þátt í spum- ingakeppni. Efuðust þær þá ekki um hver myndi vinna. En það var ekki hans stíll. Böðvar var óspar á að miðla okkur af reynslu sinni og þekkingu. Hann sagði okkur oft að hann hefði átt sjö bræður og sjö systur. Og hann var sannur fæddist, og kom heim á Njálsgöt- una umvafin öllum. Ólst hún upp í faðmi ömmu og afa, naut hvatn- ingar og trausts til þess frama sem hún hefur unnið á listabraut. Frá- sögn Hermanns frá brúðkaupsdegi hennar er ein sú fegursta sem ég hef heyrt, rómantískur ævintýra- ljómi og gleði, ásamt stolti, og eiga þau hjón nú lítinn Hermann. Margt væri hægt að segja í minningu Hermanns. Það var allt- af gaman og gott að vera með þeim hjónum, náttúran heillaði og sveitin. Þau höfðu gaman af veiði- skap og fórum við Sessa oft með þeim í veiðiferðir upp að Elliða- vatni. Eins voru ræktaðar kartöfl- ur á Ártúnsholti. Þau komu sér upp sumarbústað við Meðalfells- vatn. Var gaman að vera með þeim þar og voru þau í essinu sínu þegar ijúka fór úr strompnum og hugað að veiðiskap. Hermann var húsgagnasmiður og vann við það um árabil. Um tíma voru þau hjón með fornsölu í bílskúrnum. Ekki veit ég um arðsemi, en ósjaldan kom fyrir að sótt voru inn í stofu húsgögn ef vantaði, að ég tali nú ekki um ef ungt og efnalítið fólk átti í hlut. Var gjaman sagt er að uppgjöri kom: „Þið borgið bara þegar þið sjáið ykkur fært.“ Ungur missti Hermann móður sína, fór þá til vandalausra. Hefur það haft djúp áhrif á barnssálina og stóð hann vörð um lítilmagnann alla tíð. Það veganesti, sem Her- mann lagði samferðafólki og samfélaginu til, er auður sem ekki verður frá okkur tekinn. Allt sem fjölskyldan á Njálsgötu 27 hefur fært mér er ómetanlegt og ógleymanlegt. Minningin um fjöl- skylduföður yljar um ókomna tíma. Guðsblessun fylgi ástvinum öllum og framtíð þeirra. Guðrún Jónsdóttir. bróðir, því mikið hjálpaði hann systkinum sínum og hélt saman hópnum. Hann reyndist aldraðri tengda- móður sinni afar vel, en hún lést fyrir rúmlega tveimur árum, tæp- lega 98 ára gömul. Ég og fjöl- skylda mín höfum verið svo hepp- in að hafa farið í nokkur ferðalög með þeim hjónum, bæði innan- lands og utan. Voru það mjög skemmtilegar ferðir, og var Böð- var þá auðvitað leiðsögumaður og miðlaði okkur af þekkingu sinni. Oft höfum við gist á heimili þeirra, og notið þeirra frábæru gestrisni. Ófáar eru ferðirnar sem afi í Reykjó fór með dætur mínar til og frá Reykjavíkurflugvelli þegar þær voru í sínum tannréttinga- ferðum. Lítillega höfum við getað endurgoldið gestrisni þeirra, því þegar þau komu til Eyja gistu þau oftast hjá okkur. Þá var gaman, þá var hátíð í bæ. Böðvar og Betsý voru gift í tæp 30 ár. Þau ferðuðust mikið og áttu hamingjuríka daga. Það var mjög ánægjulegt að vera með þeim, sjá þá ást og virðingu sem þau báru hvort til annars, og hvað þau töluðu alltaf fallega hvort við annað. Að hafa átt samleið með slíkum heiðursmanni sem Böðvar Jónsson var, það gerir mann rík- an. Elsku tengdamamma, ég og fjölskylda mín sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur, einn- ig börnum Böðvars og fjölskyldum þeirra. Blessuð sé minning hans. Kristín Bergsdóttir. BOÐVAR JÓNSSON + Eiginmaður minn, fósturfaðir, faðir, tengdafaðir og afi, ÁRNI ÞORSTEINSSON, Fljótstungu, sem lést mánudaginn 3. mars sl., verður jarðsettur í dag 8. mars, kl.14.00. Athöfnin fer fram í Reykholtskirkju, en jarðsett verður á Gilsbakka. Sætaferðir verða frá B.S.Í. kl. 10.30 sama dag og Hyrnunni, Borgarnesi, kl. 13.00. Ingibjörg Bergþórsdóttir, Hjörtur Bergþór Hjartarson, Helga Brynjólfsdóttir, Jónína Marta Árnadóttir, Guðbjöm Sigvaldason, Þorsteinn Árnason, Pia Hesselvig og barnabörn. + Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og am- ma, RÓSA BJÖRNSDÓTTIR, Sunnubraut 12, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 19. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda vinsemd og samúð. Guðni Jóhannsson, Grétar Guðnason, Heiðbjört Kristjánsdóttir og synir. + Alúðarþakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, afa og langafa, ÁGÚSTAR VALMUNDSSONAR, Egilsbraut 9, Þorlákshöfn. Sérstakar þakkir til allra er réttu honum hjálp- arhönd eftir að hann átti við líkamlega fötlun að stríða. Guð biessi ykkur öll. Sigríður Guðjónsdóttir, Sigrún Ágústsdóttir, Magnús Flosi Jónsson, Jóhann Grétarsson, Heiðrún Þorsteinsdóttir, Ágúst Örn Grétarsson, Ragnheiður María Hannesdóttir, Davíð Arnar Ágústsson. + Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vin- semd sem við höfum notið við andlát og útför móður okkar, ömmu og langömmu, CECILÍU CAMILLU HELGASON, Lindarhvoli í Þverárhlíð, og auðsýnda virðingu við minningu hennar. Jón Guðbjöm Guðbjörnsson, Guðrún Ása Þorsteinsdóttir, Sigurbjörg Guðrún Jóhannesd., Þröstur Leifsson, barnabörn og barnbarnaböm. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur, tengdadóttur, móður okkar, systur, mágkonu og ömmu, VALGERÐAR INGÓLFSDÓTTUR, Baðsvöllum 8, Grindavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og öðru starfsfólki á deild 11E Landspítalans fyrir einstaka alúð og umhyggju. Ólafur Sigurpálsson, Vigdís Magnúsdóttir, Sigurpáll Aðalgeirsson, Ingólfur Guðjónsson, Erla Hjördis Ólafsdóttir, Vigdís Guðrún Ólafsdóttir, Magnús Ingólfsson, Guðrún Bára Ingólfsdóttir, Ágúst Þór Ingólfsson, Guðbjörg Þórisdóttir, Jón Þór Helgason, Bergljót S. Steinarsdóttir, David C. Bustion, Kristín E. Pálsdóttir, og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.