Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIKURTINDUR VIÐ ÞJÓRSARÓS
Reynaá
að bjarga
skípinu
JOHN Noble er sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði sjóbjörgunar og
kölluðu eigendur Vikartinds á hann til ráðgjafar um björgun skips-
ins. Noble er staddur á strandstað og sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að hann hefði komið að um 60 skipströndum á sínum starfsferli.
Hann sagði að enn væri verið að meta legu skipsins í þeim tilgangi
að geta tekið ákvörðun um hvernig best verði mætt þeirri mengun-
arógn sem vofir yfir og þeirri hættu sem steðjar að farmi skipsins.
Margir hafa
farmtrygg't
eftir strandið
LJÓST er að tryggingafélagið
Sjóvá-Almennar hefur tryggt
vörur sem eru um borð í Vi-
kartindi fyrir um 100 milljónir
króna, að sögn Ólafs B. Thors
framkvæmdastjóra.
„Við gátum alveg eins átt
von á að þessi upphæð væri
tvöfalt hærri, en miðað við þær
upplýsingar sem við höfum í
dag og byggjast á þeim aðilum
sem hafa haft samband við
okkur, á ég von á upphæðin
sé nær 100 milljónum en 200
milljónum," segir Ólafur.
Vakið til umhugsunar
„Við erum það stórir í
tryggingum á innfluttri
stykkjavöru, að við því var að
búast.“
Hann segir öruggt að tals-
vert af farmi skipsins sé
ótryggt, auk þess sem minna
af varningi hafi verið í skipinu
en reiknað var með í upphafi
vegna verkfalls í Kaupmanna-
höfn. Ólafur kveðst ekki vilja
slá neinu föstu varðandi
endurkröfurétt, of snemmt sé
að segja til um hvort fyrirtæk-
ið geti gert slíkar kröfur á
hendur útgerð skipsins eða
Eimskipi.
„Mjög margir hafa haft
samband við okkur til að
ganga frá farmtryggingum
eftir að skipið strandaði, þann-
ig að þetta hefur vakið menn
til umhugsunar um að hafa
tryggingar sínar í lagi.
Það virðist vera nokkuð um
að menn hafi almennt ekki
gert sér grein fyrir hættunni
samfara flutningum, sem nú
er orðin að raunveruleika,
kannski vegna þess að vöru-
meðferð hefur batnað mikið á
seinustu árum og skapað
mönnum falska öryggiskennd.
Atburðir sem þessir ýta hins
vegar við mönnum um að hafa
allt sitt á þurru,“ segir hann.
„Það er of snemmt að spá um
lyktir þessa máls, veðrið verður
sá þáttur sem mestu ræður í dag,“
sagði Noble þegar rætt var við
hann í gær.
Hann sagði að tvö hollensk
björgunarfýrirtæki, verktakar á
sviði sjóbjörgunar, hefðu sent full-
trúa til landsins. Þeir munu meta
ástandið á strandstað. Það ráðist
síðan af þeim tillögum sem þeir
setja fram um björgunarstarfið við
hvom verði samið.
Aðkomuleiðir lagaðar
„Forgangsverkefni er að koma
í veg fyrir menn stofni lífi og lim-
um í hættu við björgunina. Við
viljum ekki að fleiri bíði bana og
það er okkur efst í huga. Með
öryggi björgunarmanna efst í
huga ætlum við að gera allt sem
í okkar valdi stendur til þess að
veija umhverfið skaðlegum áhrif-
um frá skipinu,“ sagði Noble.
Aðspurður um hvort hann teldi
unnt að ná skipinu af strandstað
sagði hann að það yrði reynt en
of snemmt væri að segja til um
það.
„Við höfum ekki enn fyllilega
komist að því hvernig skipið hefur
skorðað sig í fjörunni en við mun-
um gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að losa skipið af
strandstað. Við höfum ekki gert
áætlun enn, til þess er of skamm-
ur tími liðinn. Við erum enn að
meta stöðuna,“ sagði Noble.
Hann sagði að það væri einnig
ofarlega í forgangsröðinni að laga
aðkomuleiðir að strandstaðnum
frá Þykkvabæ því vitað væri að
þörf væri fýrir meiri búnað. „Við
vinnum að því í samráði við sveit-
arstjórnina að gera góða aðkomu-
Ieið að skipinu svo allt að tíu flutn-
ingabílar geti ekið þangað svo
hægt sé að dæla úr skipinu án
þess að tafir verði á því,“ sagði
Noble.
Grefur undan skipinu
slj órnborðsmegin
Noble var beðinn um að bera
saman strand Vikartinds við önnur
strönd sem hann hefur komið að.
„Þetta er mjög alvarlegt, við orð-
um það svo að staðan sé mjög
ótrygg. Veðrið mun að stórum
hluta stjórna framvindunni. Skipið
virðist nokkuð stöðugt í augnablik-
B
■
Morgunblaðið/Golli
JOHN Naple, breskur ráðgjafi á sviði sjóbjörgunar, og Þjóðveijinn Vanselow, fulltrúi Peter Döhle,
eiganda Vikartinds, við skipið þar sem það lá skorðað í fjörunni skammt frá Þjórsárósi.
inu, það hreyfist ekki og ef ofsa-
veður brestur ekki á ætti það ekki
að hreyfast. Mesta vandamálið er
að það grefur undan skipinu
stjórnborðsmegin og það gæti end-
að með því að það legðist á hlið-
ina. Það gæti auðveldað losun olíu
úr skipinu en um leið aukið erfið-
leikana við að bjarga farminum."
Margar hugmyndir hafa verið
reifaðar á sandinum um björgun
skipsins. Þar á meðal að losa gám-
ana og láta þá fara í hafið til þess
að létta skipið. Noble segir að það
sé ekki fyrirhugað því ætlunin sé
að bjarga farminum.
„Eins og sakir standa er skipið
skorðað í fjörunni af sandi en sjór-
inn mun skola honum í burtu að
lokum. Við ætlum ekki á þessu
stigi að reyna að rétta skipið af,“
sagði Noble.
Líðan stýrimanns-
ins eftir atvikum góð
LÍÐAN stýrimannsins sem fót-
brotnaði um borð í varðskipinu
Ægi þegar áhöfn þess reyndi
að bjarga þýska flutningaskipinu
Vikartindi á miðvikudagskvöld
er eftir atvikum góð en hann
gekkst undir aðgerð á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur í fyrradag.
Lærleggur mannsins brotnaði
þegar mikið brot reið yfir skipið
og félagi hans fór fyrir borð.
Haukur Árnason, sérfræðingur
á bæklunardeild, segir að sér
hafí skilist á stýrimanninum að
hann hafi verið njörvaður niður.
„Samt fór hann svona. Hann
vissi ekki nákvæmlega hvernig
það gerðist en það hefur örugg-
lega komið í veg fyrir að verr
færi að hann var bundinn nið-
ur. Hann hélt því fram sjálfur
að bolurinn hefði hreinlega
hreyfst í aðra átt en fæturnir
og þess vegna hafi komið svona
feikilegt vogstangarafl á fæ-
turna,“ sagði Haukur.
BRIMIÐ skellur stöðugt á Vikartindi á strandstað í Háfsfjöru skammt frá Þjórsárósi. Brim-
rótið náði upp í efstu gáma á þilfarinu en um borð eru enn nálægt 500 gámar. Á háflóðinu
um klukkan 16.30, skömmu eftir að þessar myndir voru teknar, sviptust átta gámar af
Morgunblaðið/Páll Stefánsson
skipinu og skældust og brotnuðu á fáum mínútum. Skipið hvarf nánast sjónum manna þeg-
ar ágjöfin var mest. Brakið úr gámunum hafði dreifst um alla fjöruna milli Þjórsár og
Hólsár og lengst upp á land og var svæðið nánast eins og sorphaugur yfir að líta síðdegis í gær.