Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 12
12 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIKARTINDUR VIÐ ÞJÓRSÁRÓS
ÁTTA gámar steyptust í brimlöðrið
á síðdegisflóðinu í gær og brotnuðu
á fáum mínútum og dreifðist brakið
og fauk um alla fjöruna milli Þjórsár
og Hólsár.
Morgunblaðið/J úlíus
Úr sjávarmálinu
REYNT var að ná gámum og braki
úr sjávarmálinu og voru heillegir
gámar fluttir til Reykjavíkur.
Átta vörugámar til viðbótar fóru í sjóinn á síðdegisflóðinu í Háfsfjöru í gær
Skældir og snúnir
eftir smástund
í brimrótinu
ÁTTA gámar til viðbótar losnuðu af Vikart-
indi eftir ágang brimsins á síðdegisflóðinu í
Háfsfjöru í gær til viðbótar þeim sem fóru í
sjóinn strax eftir strandið. Eftir aðeins
skamma stund í brimrótinu voru þeir orðnir
skældir og snúnir og dreifðist vamingurinn
austur fjöruna og brakið úr gámunum einnig.
Tvö hollensk björgunarfyrirtæki hyggjast
leggja tilboð um björgun fyrir eigendur skips-
ins og samið hefur verið við þriðja fyrirtækið
um að ná olíunni úr tönkum þess. Ekki er
búist við að neinar aðgerðir hefjist fyrr en
eftir helgi nema hreinsunarstarf í fjörum.
Lögreglan, tollgæslumenn, fulltrúar Hollustu-
vemdar og björgunarmenn fylgdust með
framvindunni fram eftir kvöldi. Svæðið er
lokað umferð við afleggjarann að Þykkvabæj-
arfjöru.
Vikartindur hallast mjög á stjórnborðshlið
og gefur stöðugt yfir skipið. Þrátt fyrir það
virðist það liggja nánast óhaggað og meðan
svo er telja menn ekki stórhættu á að olía
leki úr tönkum. Hins vegar er hætt er við að
sjávargangurinn brjóti fleiri gáma af þilfarinu
en alls em milli 400 og 500 gámar enn um
borð.
Fulltrúar Hollustuverndar ríkisins, þeir
Davíð Egilsson, Eyjólfur Magnússon og Helgi
Jónsson sem fylgdust með ástandinu á strand-
stað, tjáðu blaðamanni Morgunblaðsins síð-
degis að ljóst væri að því lengur sem drægist
að ná olíu úr tönkum skipsins yrði það erfið-
ara þar sem hún þykknaði mjög þegar hún
kólnar. Sögðu þeir að þó yrði að undirbúa
allar björgunaraðgerðir sem best og því væri
ekki óeðlilegt að fulltrúar eigenda og trygg-
ingafélags þyrftu að taka til þess nokkurn
tíma. Þegar áætlun um björgunaraðgerðir
liggur fyrir verður hún borin undir Hollustu-
vernd sem þarf að samþykkja hana. Sögðu
þeir að fyrst yrði lögð áhersla á að ná ol-
íunni, síðan farmi skipsins og síðast yrði reynt
að fjarlægja skipsskrokkinn.
Brimskaflar buldu stöðugt á skrokki Vi-
kartinds enda hvassviðri og því spáð áfram
og brimið fór síst minnkandi. Á flóðinu milli
16.30 og 17 í gær losnuðu átta gámar til
viðbótar og á innan við 30 mínútum hafði
brak þeirra og varnings sem í þeim var bor-
ist upp í fjöruna. Var fjaran nánast eins og
sorphaugar yfir að líta og fauk varningurinn
langt upp í land.
Flutningar um sand-
inn óleyst vandamál
Stórvirkar vinnuvélar og fjölmennt lið björg-
unarmanna biðu á strandstað í gær eftir því
að teknar yrðu ákvarðanir um hvemig haga
skyldi framkvæmdum.Guðjón Guðmunds-
son var við Þjórsárós í gær og fylgdist með.
Morgunblaðið/Golli
SANDURINN er erfiður yfirferðar þungum bílum en jarðýtur
og gröfur voru til aðstoðar.
SUNDURTÆTTIR flutningagámar,
pappírsrúllur og alls kyns drasl ligg-
ur á víð og dreif um fjöruna skammt
frá Þjórsárósi þar sem þýska flutn-
ingaskipið Vikartindur strandaði á
miðvikudagskvöld. Tollgæslan inn-
siglaði þijá laskaða gáma í fjörunni
í gærmorgun og skömmu síðar var
byijað að fjarlægja það sem borist
hafði á land. Fulltrúi eigenda skips-
ins og breskur ráðgjafi í björgunar-
málum réðu ráðum sínum en þeir
töldu að skipið væri vel skorðað og
ekki mikii hætta á olíuleka frá því,
fyrsta kastið. Fulltrúar tveggja hol-
lenskra björgunarfyrirtækja, átta
manns, komu á strandstað í gær og
munu þeir meta hvort og hvernig
unnt verði að bjarga skipinu og farmi
þess.
Mikill fjöldi vinnuvéla og flutn-
ingabíla var í fjörunni. Stjórnendur
tækjanna biðu, eins og aðrir á staðn-
um, eftir því að teknar væru ákvarð-
anir um losun olíu úr skipinu og
björgun farms. Fjórir tankbílar frá
olíufélögunum, sem taka allt að 21
þúsund tonn af olíu, voru í
Þykkvabæ og von var á fleiri tankbíl-
um frá Olíudreifíngu hf. Ráðgert var
að fiytja lausa tanka á flutningabíl-
um út að strandstað og var tankbíl-
unum ætlað að taka við olíu úr þeim.
Frá Þykkvabæ út að strandstað er
þriggja til fjögurra kílómetra leið í
lausum sandi og krapa. Jarðýtur
ruddu slóða í fjörunni en líklegt má
telja að mesti farartálminn fyrir
flutningabílana verði í gegnum hálfs
metra djúpan krapa á um 5-600
metra kafla á þessari leið.
Færðin gæti versnað enn
Það var að heyra á skipuleggjend-
um, starfsmönnum verktakafyr-
irtækja, Eimskipafélagsins og fleiri
sem að björgunarstörfunum koma,
að það væri óleyst vandamál hvemig
koma ætti fullum oliutönkunum af
sandinum til byggða, svo fremi sem
það tækist að koma tönkunum að
strandstað og dæla olíunni úr skip-
inu. Fjörusandurinn er mjög laus í
sér og blandaður snjó og seltu og
búast sumir við því að færðin versni
enn ef veður brevtist og það tekur
að rigna.
Einnig er talið að það geti orðið
þung þraut að dæla svartolíunni úr
tönkum skipsins því þegar hún hefur
náð að kólna niður verður hún seig-
fljótandi og ráða venjulegar dælur
ekki við hana í því ástandi. Starfs-
menn olíufélaganna mátu það svo
að ef þessi áætlun gengi upp og
sandurinn yrði ekki sá farartálmi
sem menn óttast, þyrfti að fara
15-20 ferðir fram og til baka til
þess að losa 300 þúsund tonn af
svartolíu úr skipinu.
Meginmarkmiðið að koma í
veg fyrir olíuleka
Hugmyndir björgunarmanna
vom á fimmtudagskvöld í þá vem
að nýta jarðýturnar, sem komu á
strandstað upp úr kl. 23 það kvöld,
til þess að ryðja þá strax um nóttina
djúpa rás landmegin við skipið og
láta sjávarföllin á háflóði kl. 3.30
um það að færa skipið ofan í rásina
og rétta það þannig við. Talsverður
halli er á skipinu en hann hafði
aukist í gær og telja menn að skip-
ið sé vel skorðað í fjömnni.
Ekki fékkst grænt ljós á þessar
framkvæmdir frá eigendum skipsins
og þegar rætt var við Þjóðveijann
Vanselow, fulltrúa Peter Döhle, eig-
anda Vikartinds, í gærmorgun,
sagði hann að áður en hafist yrði
handa við slíkar framkvæmdir
þyrftu að liggja fyrir mun ítarlegri
upplýsingar um legu skipsins á
strandstað. Það yrði ekki rasað um
ráð fram.
„Meginmarkmið okkar núna er
að koma í veg fyrir olíuleka frá
skipinu. Á síðari stigum getum við
aðeins lagt mat á framhaldið og ef
það reynist mögulegt munum við
losa skipið af strandstað,“ sagði
Vanselow, fulltrúi eigenda skipsins.