Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 15
Fundur BSRB
Launafólk
fái réttláta
hlutdeild
Á ALMENNUM fundi BSRB á
Akureyri var samþykkt ályktun,
þar sem þess er krafíst að launa-
fólk fái réttláta hlutdeild í góð-
ærinu sem nú ríkir í íslensku
efnahagslífí. Fundurinn leggur
áherslu á verulega hækkun
launataxta í þeim samningavið-
ræðum sem nú standa yfír.
Góðærið hefur skilað sér til
fyrirtækjanna, fjármagnseig-
enda, bankastjóra og annarra úr
sjálftökuliðinu en þess verður
ekki vart í launaumslögum al-
menns launafólks. Fundurinn
krefst þess að gildistími samn-
inga verði frá síðustu áramótum
þegar samningar runnu út.
BSRB hafnar geðþóttalaunum.
Slíkt launakerfí hefur í för með
sér aukið launamisrétti og launa-
leynd. Það verður aldrei sam-
þykkt að nokkrum útvöldum ein-
staklingum verði umbunað af for-
stöðumönnum á kostnað al-
mennra launahækkana. Forsenda
þess að góðærið nái til allra er
almenn launahækkun í réttlátu
launakerfi.
36% barna ekki
í öryggisbelti
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
í NÝLEGRI könnun sem Slysa-
varnafélag íslands, Umferðarráð
og Betri borg fyrir böm stóðu
að um allt land kom fram að
aðeins 64% barna á Ólafsfirði eru
spennt í öryggisbelti í bíl eða tvö
af hveijum þremur. Könnunin var
gerð í lok janúar síðastliðins og
sá Slysavarnadeild kvenna á Ól-
afsfírði um framkvæmdina.
Á Dalvík notuðu 71% bama
belti, 84% á Akureyri og 69% á
Siglufirði.
Yfír landið allt eru niðurstöður
í ár lakari en í fyrra en þá not-
uðu um 72% bílbelti en 68% nú
yfír landið. Mörg þeirra bama
sem eru föst voru einungis fest
með bílbelti þrátt fyrir að viðeig-
andi öryggisbúnaður s.s. barna-
stóll eða bílpúði hafi verið fyrir
hendi í bílnum.
Listíálögum
LÁRUS Hinriksson opnar í dag,
laugardaginn 8. mars kl. 16 sýn-
ingu á mál-
verkum í Deigl-
unni á Akur-
eyri.
Yfirskrift
sýningarinnar
er List í álög-
um, en áifar og
huldufólk hafa
lengi átt hug
Lárusar. Sýningin er opin frá kl.
14 til 18 daglega og lýkur henni
16. mars næstkomandi.
Slysavarna-
félagshúsið
FA vill í húsið
FERÐAFÉLAG Akureyrar hefur
óskað eftir við bæjaryfirvöld að
kannaður verði sá möguleiki að
félagið geti eignast hluta af hús-
eign Slysavarnafélagsins sem er
á uppfyllingu sunnan Strandgötu.
Yrði það gert með tilstyrk bæjar-
ins en þannig leystust húsnæðis-
mál Ferðafélagsins til frambúðar.
Núverandi húsnæði félagsins,
Strandgata 23, bakhús sem snýr
að Lundargötu á að víkja sam-
kvæmt deiliskipulagi af Oddeyri
en Akureyrarbær hefur sagt upp
stöðuleyfi fyrir húseignina.
Jakob Björnsson bæjarstjóri og
Sigurður J. Sigurðsson bæjarfull-
trúi munu ræða við forsvarsmenn
Ferðafélags Akureyrar um erind-
ið.
Tekjur Akureyrarhafnar jukust um 17% milli ára
Skipakomur færri
í fyrra en árið áður
HEILDARTEKJUR Akureyrar-
hafnar á síðasta ári urðu 105,3
milljónir króna og jukust um tæp
17% milli ára. Veruleg hækkun
varð á hafnartekjum og vegur þar
þyngst mikil aukning í vöruflutn-
ingum um höfnina. Einnig jukust
leigutekjur verulega, eða um tæp
94% og á flotkvíin sinn þátt í því
en árið 1996 var fyrsta heila árið
sem hún er í leigu. Leigutekjur
hafnarinnar námu 19,2 milljónum
króna en voru 9,9 milljónir króna
árið áður.
Að sögn Guðmundar Sigur-
björnssonar, hafnarstjóra komu 814
skip til hafnar á Akureyri á síðasta
ári og er það fækkun um 68 skip
frá árinu 1995. Munar þar mestu
um fækkun á viðkomum feija en
Sæfari flutti bækistöð sína frá Ak-
ureyri til Dalvíkur í apríl á síðasta
ári. Fiskiskipum fækkaði einnig
verulega en viðkomum vöruflutn-
ingaskipa fjölgaði.
Aukning í vöruflutningum
Vöruflutningar um höfnina juk-
ust um 18% og voru samtals
177.900 tonn. Guðmundur segir að
eftir að Eimskip tók upp nýja sigl-
ingaleið í byijun síðasta árs og hóf
vikulegar siglingar með vörur beint
frá Akureyri til hafna í Evrópu eða
frá evrópskum höfnum beint til
Akureyrar, hafi strax orðið vart við
aukningu í vöruflutningum um
Akureyrarhöfn.
Landaður afli í Akureyrarhöfn á
síðasta ári var 96.230 tonn, sem
er aukning um rúmt 41% frá árinu
áður. Löndun á bolfiski dróst saman
um 15% milli ára og nam tæpum
12.900 tonnum í fyrra og löndun á
frystum fiski dróst saman um rúm
16% og var á síðasta ári rúm 8.200
tonn. Guðmundur segir að þrátt
fyrir mikla aukningu á landaðri
loðnu og nokkra aukningu í löndun
á frystri rækju, hafí það ekki nægt
til að halda í horfinu varðandi afla-
gjöldin, vegna þess samdráttar sem
varð á lönduðum bolfiski og frystum
fiski milli ára.
Starfsemin
undir sama þak
Á síðasta ári var unnið að ný-
framkvæmdum fyrir 36,4 milljónir
króna og þar af fóru 11,4 milljónir
króna til framkvæmda í Krossanesi
og 9,6 milljónir króna í svæði vest-
an Oddeyrarbryggju. Þá var lokið
gerð deiliskipulags í Krossanesi og
unnið er að gerð deiliskipulags
vöruhafnarsvæðis. í nóvember var
undirritaður leigusamningur við
Eimskip um rúmlega 9.000 fer-
metra viðbótarlóð á vöruhafnar-
svæðinu, þar sem höfnin hefur ver-
ið að kaupa lóðir og hús til niður-
rifs undanfarin ár.
Endurskoðun á rekstri Akur-
eyrarhafnar fór fram á síðasta ári,
þar sem m.a. kom fram mikilvægi
þess að öll starfsemi hafnarinnar
sé undir sama þaki. í framhaldi af
því samþykkti hafnarstjórn að láta
teikna hafnarhús á lóð norðan nú-
verandi bílavogar, sem rúmaði alla
starfsemina og hófst hönnunar-
vinna í lok ársins. Jafnframt var
ákveðið að leggja niður rekstur
Áhaldahúss hafnarinnar í núver-
andi mynd, segja upp þremur
starfsmönnum og eru starfsmenn
nú_ átta.
í lok síðasta árs var Hafnasamlag
Norðurlands stofnað, með aðild
fímm sveitarfélaga. Þau eru Akur-
eyrarbær, Grýtubakkahreppur,
Svalbarðsstrandarhreppur, Glæsi-
bæjarhreppur og Arnarneshreppur.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Vænn koli
Grímsey. Morgunblaðið.
SIGFUS Jóhannesson á Magnúsi
EA 25 frá Grímsey kom úr róðri
nú nýlega með einn stærsta kola
sem veiðst hefur við eyna. Hann
vó 5 kíló en algengasta þyngd kola
er rúmlega 1 kíló. Þessi koli fékkst
á miðum sem kallast Bleyðan og
eru suðvestur af Grímsey. Sigfús
fékk samtals um 900 kíló í róðrin-
um, en hann sagðist aldrei hafa
veitt jafnstóran kola á sínum sjó-
mannsferli.
Á myndinni er Sigfús með kolann
væna og annan venjulegan til við-
miðunar, en við hlið hans stendur
Hinrik Olason.
Akureyrar-
mót í list-
hlaupi
Morgunblaðið/Kristján
GÖNGUGARPARNIR þrír sem taka þátt í leiðangrinum. F.v.
Einar Stefánsson, Hallgrímur Magnússon og Björn Ólafsson.
Hlífðarfatnaður
sóttur til Akureyrar
Messur
FÉLAGARNIR þrír úr Hjálparsveit
skáta í Reykjavík og Kópavogi, sem
ætla að klífa Mount Everest, hæsta
fjall heims, innan tíðar, voru stadd-
ir á Akureyri í vikunni. Þeir Einar
Stefánsson, Hallgrímur Magnússon
og Björn Olafsson, héldu mynda-
sýningu í húsnæði Hjálparsveitar
skáta, þar sem þeir kynntu fyrri
afrek sín og ræddu um fyrirhugaða
ferð á hæsta fjall heims. Einnig
heimsóttu þeir Foldu og sóttu hlífð-
arfatnað sem þeir koma til með að
nota í leiðangrinum.
Hlífðarfatnaðurinn sem hefur
fengið nafnið Cintamani, er íslensk-
ur, hannaður og framleiddur í Foldu
í samvinnu við þá félaga. Folda
hefur gert samstarfssamning við
Jan Davidsson og er hann aðalhönn-
uður fatnaðarins, auk þess sem
hann hefur haft yfirumsjón með
framleiðslunni innan fyrirtækisins.
Er þetta janframt eini íslenski fatn-
aðurinn sem notaður verður í leið-
angrinum. Björn Ólafsson segir að
þeim félögum lítist mjög vel á hlífð-
arfatnaðinn, enda hafi þeir haft
tækifæri til að hafa áhrif á út-
færslu og hönnum hans.
Það besta sem til er
„Það er vissulega skemmtilegt
að geta notað íslenskan fatnað í
leiðangrinum en við myndum ekki
nota hann nema af því að þetta er
það besta sem til er,“ sagði Björn.
Þeir félagar eru sammála um að
samstarfið við Foldu hafi gengið
n\jög vel og að innan fyrirtækisins
sé mikil verkþekking til staðar.
Þremenningarnir eru sammála
um að notkun íslenska hlífðarfatn-
aðarins geti haft mjög jákvæð áhrif
á frekari markaðssetningu hans,
enda varla hægt að nota hann við
erfiðari aðstæður en á hæsta fjalli
heims. Einar Stefánsson segir að
þeir komi til með að vera í Cinta-
mani fatnaðinum upp í 7.500 metra
hæð en fjallið er alls 8.848 metrar.
Þá þurfi þeir að skipta yfír í dún-
galla vegna kulda.
Tveir íslendingar til viðbótar
taka þátt í leiðangrinum og munu
þeir fylgja hópnum í aðalbúðirnar,
sem eru í 5.300 metra hæð. Þetta
eru þeir Hörður Magnússon, bróðir
Hallgríms og Jón Þór Víglundsson,
myndatökumaður á Sjónvarpinu.
AKURERYARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimili kl.
11. Öll böm velkomin. Munið
kirkjubílana. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur, Svavar A. Jónsson,
umræður og kaffisopi í safnaðar-
heimili eftir guðsþjónustu.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Æsku-
lýðsfundur í kapellu kl. 17 á
morgun. Biblíulestur kl. 20.30 í
safnaðarheimili. Mömmumorg-
unn í safnaðarheimili á miðviku-
dagsmorgun. Föstuguðsþjónusta
kl. 20.30 sama dag. Fyrirbæna-
þjónusta kl. 17.15 á fímmtudag.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
koma verður í kirkjunni kl. 11 á
morgun. Foreldrar hvattir til að
koma með börnum sínum. Messa
verður kl. 14 á morgun. Sr. Helgi
Hróbjartsson kristniboði prédik-
ar. Foreldrar fermingarbarna
hvattir til að koma með börnun-
um sínum. Sr. Helgi mun ræða
um kristniboð í safnaðarsal kirkj-
unnar eftir messu. Boðið er upp
á barnagæslu og barnasamvera
á meðan messað er. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 20.20. á
sunnudagskvöld. Ath. breyttan
tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli á morgun kl. 11.
Unglingaklúbbur kl. 16. almenn
samkoma kl. 20. Heimilasam-
AKUREYRARMÓT í listhlaupi
var haldið í vikunni. Keppt var í
tveimur flokkum, yngri og eldri
flokki.
Jódís Eva Eiríksdóttir varð í
fyrsta sæti í yngri flokki, Audrey
Freyja Clarke í öðru og Sigrún
María Magnúsdóttir í þriðja sæti.
í eldri flokki sigraði Rakel Þor-
steinsdóttir, Auður Dögg Páls-
dóttir varð önnur og Inga Fanney
Gunnarsdóttir þriðja.
bandið á mánudag kl. 16,
krakkaklúbbur á miðvikudag kl.
17, biblía og bæn sama dag kl.
20.30. Ellefu plús mínus á
fimmtudag kl. 17. Hjálparflokk-
ur sama dag kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
HÚSAVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun
í Miðhvammi. Foreldrar hvattir
til þátttöku ásamt börnum sín-
um. Guðsþjónusta kl. 14, altaris-
ganga. Fermdur verður Benedikt
Þorri Siguijónsson, Kaldbak.
Stúlknakór syngur undir stjóm
Hólmfríðar Benediktsdóttur.
Fermingarbörn aðstoða. Helgi-
stund í Miðhvammi kl. 16. Lesið
úr passíusálmunum.
_ HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Ársfundur safnaðarins kl. 12 á
laugardag. Almenn samkoma kl.
14, barnablessun, ræðumaður
Mike Fitzgerald, mikill og fjöl-
breyttur söngur. Bænastundir
frá kl. 6-7 mánudags- miðviku-
dags- og föstudagsmorgna. Von-
arlínan, sími 462 1210, símsvari
með orð úr hugguninni sem gefa
huggun og von.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudag-
skóli á morgun, sunnudag kl.
13.30 í Lundarskóla. Almenn
samkoma á Sjónarhæð kl. 17.
Ræðuefni: Heitur og kaldur
kristindómur. Ástjarnarfundur á
mánudag kl. 18 á Sjónarhæð.
Unglingafundur kl. 20.30 á
föstudag á Sjónarhæð.