Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 26

Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Staðall um verðspjöld og vöruupplýsingar í verslunum Mælieiningarverð mik- ilvægt fyrir neytendur VERÐSPJÖLD í matvöruverslun- um hérlendis eru með ýmsu móti. Mismunandi er hversu stór spjöld- in eru svo og letrið á þeim. Þá eru upplýs- ingamar ekki alltaf þær sömu. Að sögn Guðlaugar Ric- hter hjá Staðlaráði Is- lands hefur auk þess borið á því að brotið sé gegn reglum Samkeppnisstofnunar frá 1994 þar sem kveðið er á um að verð- merkja skuli vörur með mæliein- ingarverði (samanburðarverði). Mælieiningarverð auðveldar val vöru samanburð á sölustað á sama hátt og innihaldslýsing vöru gerir þeim kleift að bera saman gæði.“ Guð- „Mælieiningarverði, sem er kfló-, lítra-, rúm eða fermetraverð vöru, er ætlað að auðvelda neyt- endum að velja vöru og gera verð- LÖGÐ er áhersla á mælieiningarverðið enda talið að skýrar upplýs ingar um það séu til hagsbóta fyrir neytendur. laug segir að fyrir ári hafi verið kallaður saman hópur fólks sem hafði hagsmuna að gæta til að samræma framsetningu upplýs- inga á verðspjöldum og vinna að gerð staðals. I hópnum sátu full- trúar Kaupmannasamtakanna, Neytendasamtakanna, Samkeppn- isstofnunar, Samtaka hugbúnað- arframleiðenda, Samtaka iðnaðar- ins og ýmissa stórverslana. „Afraksturinn hefur nú litið dagsins ljós í frumvarpi að staðli ÍST81“, segir Guðlaug. Frumvarp- ið er nú til almennrar umsagnar til 15. apríl næstkomandi. Er öllum fijálst að senda at- hugasemdir við frumvarpið til Staðlaráðs ís- lands. Farið verður yfir at- hugasemdir og tekið tillit til þeirra eins og tilefni gefst til áður en staðallinn verður síðan endan- lega gefinn út. Eigendum verslana er ekki skylt að fýlgja þessum staðli en vænta má að hann verði víða notaður þar sem fulltrúar margra verslana og samtaka verslunarmanna tóku þátt í gerð hans. Nánari upplýs- ingar eru veittar hjá Staðlaráði íslands og á heimasíðu þess á al- netinu. Slóðin er http://stri.is. Gos frá Vífil- felli hækkar um allt að 6,5% í BYRJTJN febrúar hækkaði gos frá Vífilfelli að meðaltali um 4%. Mest varð hækkunin á gos- drykkjum á glerflöskum eða 6,5% en gos á kútum og ávaxta- safi hækkaði minnst eða um 3,5%. Þorsteinn M. Jónsson fram- kvæmdastjóri hjá Vífilfelli segir ástæður hækkunarinnar þrí- þættar. „í fyrsta lagi er um hækkun á hráefniskostnaði að ræða, þ.e.a.s. plasti og þykkn- inu sem notað er. í öðru lagi hefur gengið hækkað en við eig- um þá við pund og bandaríkja- dollar. í síðasta lagi er fyrirtæk- ið að búa sig undir væntanlegar launahækkanir. Við eigum því ekki eftir að hækka verðlista okkar eftir að kjarasamningar nást,“ segir hann. „Meðalverð til okkar á gosi í tveggja lítra umbúðum frá árinu 1991 hefur hækkað um 5,5% en hefðu hækkanir fylgt verð- vísitölu næmi hún 14,4%. Með þessu vil ég benda á að fyrir- tækið hefur tekið á sig nokkuð af kostnaðarauka með hagræð- ingu hjá fyrirtækinu.“ Nýtt Grænmetisréttir Gaui litli ágræn- um kosti NÝLEGA kom út matreiðslubókin Mataræði - Gaui litli á grænum kosti eftir Sólveigu Eiríksdóttur og Guðjón Sigmundsson. í uppskrift- imar er hvorki notað kjöt né fiskur og þær eru fitusnauðar, ger-, og sykurlausar. Uppskriftunum sem eru á sjö- unda tug er raðað saman í fjórtán máltíðir þannig að saman standa aðalréttir, meðlæti, salöt og salat- sósur. í lokin eru nokkrir sykur-, og gerlausir eftiréttir. Myndimar í bókinni eru ljósmyndaðar af Krist- jáni Maack sem naut aðstoðar Val- dísar Guðmundsdóttur. Útgefandi er bókarforlagið Una og verð bókarinnar er 2.980 krónur. Við birtum hér eina uppskrift út bókinni, uppskrift að grænmetis- bollum. ______'Ablómkálshous í bitum_____ 3 gulrætur, gróft rifnar 1 pk. stíft tofu, u.þ.b. 400 g 1 egg (mó sleppa) 1 tsk. cuminfræ lú tsk. malaður kóríander Lífræn fram- leiðsla í Blómavali UM HELGINA verður kynning á lífrænum afurðum frá Valla- nesi á Fljótsdalshéraði. Hjónin Kristbjörg Kristmundsdóttir og Eymundur Magnússon hafa stundað lífrænan búskap í Valla- nesi í hartnær tuttugu ár. Krist- björg og Eymundur verða til við- tals í Blómavali í dag, laugar- dag, og á morgun, sunnudag. Fæðubót- arefni KOMIÐ er á markað sænskt fæðu- bótarefni undir nafninu Life Ext- ension. Það er unnið úr vanillu- kjama, „wild yam“ og hveitigrasi. Engin tilverkuð efnasambönd eru í þessu fæðubótarefni. í fréttatil- kynningu frá fyrirtækinu Celsus sem flytur efnið inn segir að sam- setning þess innihaldi ákjósanlega næringu til að vinna gegn öldrun líkamans. Þá eru í fæðubótarefn- inu kjarnasýrur fyrir DNA- og RNA-starfsemi frumanna. í frétta- tilkynningunni segir ennfremur að um sé að ræða fæðubót en ekki vítamín, þó hver tafla innihaldi ikex-tess,® m líka 500 af Acerola C-vít- amíni. Fram kemur í j fréttatilkynning- M“”' unni að efninu sé ætlað að vinna gegn vöðvabólgu og stirðleika í lið- um, auka orku, bæta líkamlega líðan, stuðla að andlegu jafnvægi, draga úr streitu, vinna gegn sí- þreytu, auka kyngetu og bæta útlit. Hvert glas inniheldur tveggja mánaða skammt og kostar 5.820 krónur. Fæðubótarefnið fæst hjá Ingólfsapóteki og Snyrti- og tísku- húsi Heiðars og er sent í póstkr- öfu. Heildsalan Celsus er innflytj- andi. 1 tsk. salt 'A tsk. cayennepipar 2 hvítlauksrif 1 tsk. tamari sojasósa 2 soðnar kartöflur (fró deginum óður) 7 msk. sojamjöl eða heilhveiti Allt sett í matvinnsluvél nema mjölið. Blandað þar til farsið er orðið silkimjúkt. Þá er mjölinu bætt út í og blandað vel saman við. Boll- umar mótaðar með matskeið, vættri í vatni og steiktar á pönnu þangað til liturinn er gullinn báðum megin. Hægt er að snúa bollunum oftar en einu sinni við til að forðast að þær brenni. Borið fram með bökuðu grænmeti, agúrkusalati og kaldri gulrótarsósu. _ Lesendur spyrja Tollvernd á tómötum o g agúrkum Þá bendir hann á að með þess- ari nýju reglugerð stighækki toll- vemd á tómötum, agúrkum, sal- ati og papriku þar sem svokölluðu EES-tímabili er að Ijúka. Fram að þessu hafa engin gjöld verið á þessum grænmetistegundum. Reglugerðin gildir út júní. Innihaldslýsing- ar á flatkökum Lesandi keypti flatkökur fyrir 1; nokkrum dögum og komst V að því að engin inni haldslýsing var á kökunum. Hann veltir fyrir sér hvort ekki sé skylda að upplýsa neytendur um ! hvaða hráefni not- uð em í bakstur- inn? Svar: „Það á að merkja öll matvæli með heiti vöru og nafni og heimilisfangi framleiðanda, þyngd, geymsluskilyrðum og í flestum tilvikum geymsluþoli,“ segir Guð- rún Gunnarsdóttir, matvælafræð- ingur hjá Hollustuvernd ríkisins. „Innihaldslýsing á alltaf að vera á pakkningum." Hún segir eftirlit með merking- um vera á vegum Heilbrigðiseftir- litsins. „Séu umbúðir vanmerktar eins og í þessu tilviki þar sem innihaldslýsingu vantar ber að gera athugasemdir þar um og krefjast úrbóta.“ Próteinskert fæða Annar lesandi hafði samband fyrir nokkru. Hann stóð frammi fyrir því að þurfa að telja ofan í sig prótein og komst að því að allur gangur er á hvort matvömr era merktar með næringargildi. Eru engar reglur þar um? Svar: „Framleiðendum er skylt að merkja matvörur með nær- ingargildi þegar fullyrt er um einhvers konar næringar- fræðilega eiginleika matvör- unnar,“ segir Guðrún Gunnars- dóttir, matvæla- fræðingur hjá Hollustu- vernd ríkisins. „Að öðm leyti er framleiðendum í sjálfsvald sett hvort þeir merkja matvörumar með þessum upplýsingum. í Bandaríkjunum ber framleiðendum skylda til að merkja matvörarnar með upplýs- ingum um næringargildi. Gulrætur af misjöfnum gæðum Þá var neytendasíðu bent á að íslenskar gulrætur væra ekki mjög fallegar um þessar mundir og verðið ekki í samræmi við gæði. Erlendar gulrætur væra einnig á háu verði. Svar: „Á markaðnum era bæði léleg og fyrsta flokks gæði af ís- lenskum gulrótum," segir Ólafur Friðriksson, deildarstjóri hjá land- búnaðarráðuneytinu. „Á næstu vikum mun íslensk framleiðsla ekki anna eftirspurn. Um miðjan mánuð er væntanleg ný reglugerð um tollvernd á grænmeti. I henni kemur fram að tollvemd á gulrót- um verður afnumin. Eins og stendur er 30% verðtollur á gulrót- um og 136 króna magntollur,“ segir Olafur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.