Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 47 > 'd I í P j j I i I I I i 1 I í ! I í i I I J I _________________GREINARGERÐ__________________ Aðgerðir Bj örgunarmiðstoð var SVFI vegna Yikartinds Fyrst beðið um aðstoð um kl. 19 Morgunblaðið birtir hér lýsingu Slysavarnafélags íslands á aðgerðum Björgunarmiðstöðvar SVFÍ síðastliðinn miðvikudag vegna flutningaskipsins Vikartinds. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÚR stjórnstöð Björgunarmiðstöðvar Slysavarnafélags Islands. KL. 12.52 barst Björgunarmiðstöð SVFÍ skeyti frá TFV, fjarskiptamið- stöð Pósts og Síma í Vestmannaeyj- um, þess lútandi að miðstöðin hefði móttekið „securite" kall kl. 12.40 frá flutningaskipinu Vikartindi (DAFC) sem statt var á stað 63° 43,5 n., 020° 53,5’ v. sem er utan við Þjórsárós. Skipstjórinn hafði til- kynnt að vélar skipsins hefðu stöðv- ast og bað um að skip í nágrenninu sýndu varúð. TFV hafði haft sam- band umsvifalaust við skipið og spurst fyrir um það hvort aðstoðar væri óskað en fékk neikvætt svar. I skeytinu sem sent var bæði LHG og SVFÍ var spurst fyrir um það hvaða skip væru á svæðinu (fyrir- spurn til Tilkynningaskyldunnar sem er í Björgunarmiðstöð SVFÍ) og hvort varðskip væri á svæðinu (fyrirspurn til LHG) ef allt færi á versta veg. Björgunarmiðstöð SVFÍ sendi TFV upplýsingar um skip og báta á svæðinu kl. 13.11. LHG lætur Björgunarmiðstöð SVFÍ vita að staður Vikartinds kl. 12.58 sé 63° 43,9’n., 020° 52,4’v., að rekhraði Vikartinds væri 2,5 sml/klst. og að rekstefna væri 030° réttvísandi. Stjórnstöð LHG tilkynnti að vs. Ægir væri væntanlegt á svæðið eftir 20 mínútur. Að þesssu loknu var hafist handa við að kalla út björgunarsveitir SVFÍ á Stokkseyri, Eyrarbakka, Þykkvabæ og Hvols- velli. Þær voru beðnar um að vera í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegs strands Vikartinds. Kl. 13.49 barst Björgunarmið- stöð SVFÍ skeyti frá TFV þar sem miðstöðin tilkynnti að þeir hefðu heyrt Heijólf spyija Vikartind um ástandið kl. 13.44. Svarið frá skip- inu var að það væri hætt að reka og að akkerin virtust halda. Einnig höfðu þeir heyrt vs. Ægi tilkynna Vikartindi að þeir ættu eftir minna en 8 sml. að skipinu. Kl. 14.11 barst Björgunarmið- stoð SVFÍ tilkynning frá LHG um að vs. Ægir væri komið að Vikar- tindi og að aðstoð Heijólfs hefði verið afþökkuð. Kl. 14.23 barst Björgunarmið- stöð skeyti frá TFV þess efnis að þeir hefðu heyrt fjarskipti milli vs. Ægis, Vikartinds og Heijólfs kl. 14.08 þar sem frekari aðstoð Her- jólfs var afþökkuð og að feijan mundi halda áfram til Vestmanna- eyja. Einnig að TFV hefði haft sam- band við Vikartind og spurst fyrir um hvort skipið væri komið á sigl- ingu. Svarið frá skipinu var það að ætlunin væri að bíða eftir að él gengi yfir og þá hífa upp akkeri og freista þess að sigla fyrir eigin vélarafli. Kl. 14.29 barst Björgunarmið- stöð skeyti frá TFV þar sem mið- stöðin skýrði frá því að þeir hefðu heyrt vs. Ægi kalla á Vikartind kl. 14.25 og vara þá við því að akkeris- keðjurnar lægju í kross fyrir framan stefnið. Vikartindur sagðist skoða þetta nánar eftir að hryðja gengi yfir. Vs. Ægir sagðist fylgjast með. Björgunarmiðstöð SVFÍ barst tilkynning um það frá LHG kl. 14.43 að Vikartindur hygðist reyna að gangsetja aðal- vél og létta akkeri. Veður á svæðinu væri SV 6-7 vindstig. Kl. 14.50 barst Björgunarmið- stöð skeyti frá TFV þar sem mið- stöðin skýrði frá því að kl. 14.47 hefðu þeir spurt Vikartind um fjar- lægð skipsins frá landi og að svarið hafi verið 1,5 sml. Verið væri að hífa upp akkeri og að óvíst væri hversu langan tíma það tæki. Björgunarmiðstöð SVFÍ hafði samband við þær björgunarsveitir SVFÍ sem settar höfðu verið í við- bragðsstöðu og skipaði þeim að halda með hraði með fluglínutæki niður að Þjórsárósum. Björgunar- sveitir SVFÍ á Hvolsvelli og í Þykkvabæ ættu að fara austan megin en sveitirnar frá Stokkseyri og Eyrarbakka vestanmegin. Björg- unarsveit SVFÍ á Hvolsvelli til- kynnti að þeir óskuðu eftir að Flug- björgunarsveitin á Hellu yrði í við- bragðsstöðu. Lögreglan á Hvols- velli hafði samband við Björgunar- miðstöð og spurðist fyrir um hvað væri að gerast. Lögreglu var skýrt frá því. Björgunarmiðstöð barst tilkynn- ing frá LHG kl. 14.48 um að Vikar- tindur keyrði aðalvél á neyðarkæl- ingu. Björgunarmiðstöð SVFÍ heyrði samtal á milli vs. Ægis og Vikar- tinds á rás 16 VHF kl. 15.13 þar sem tilkynnt var um að akkerisspil Vikartinds væri í ólagi. Kl. 15.23 barst Björgunarmið- stöð skeyti frá TFV um það að miðstöðin hefði heyrt Vikartind kalla í vs. Ægi kl. 15.12 og til- kynna að akkerisspilið væri í ólagi. Áætlað var að viðgerð á því tæki Vi klst. og ætlunin væri að sækja varahluti aftur á. Myndu láta vita þegar þeir gætu farið að hífa aftur. Kl. 15.31 barst skeyti frá TFV um það að mið- stöðin hefði heyrt varð- skipið tilkynna Vikartindi að það héldi uppí vind og sjó, þeir væru með mannskapinn afturá að gera klárt og kæmu aftur þegar allt yrði klárt. Björgunarsveitir SVFÍ vestan Þjórsár tilkynntu að þær væru komnar í fjöruna og sæju skipið og við öllu búnar. Björgunarmiðstöð SVFÍ tilkynnir lögreglunni á Selfossi þl. 16.10 um ástand mála við Þjórsárósa. LHG hafði samband við Björgun- armiðstöð SVFÍ kl. 16.56 og sagði að lögreglan á Hvolsvelli hefði haft samband og teldi hættu á því að Vikartind myndi reka austur fyrir ósa Hólsár ef það slitnaði upp og teldi að hafa ætti viðbúnað þar. LHG og Björgunarmiðstöð voru sammála um að það væri óhugs- andi miðað við allar aðstæður. Björgunarmiðstöð hafði samband við lögreglu á Hvolsvelli og til- kynnti þeim að þótt svo ólíklega vildi til að rek Vikartinds yrði í suðaustur tæki það að minnsta kosti 3-4 klst. að reka austur fyrir og því nægur tími til að bregðast við. Björgunarsveitir SVFÍ austan Þjórsár tilkynntu að þær væru komnar í fjöruna og sæju skipið. Von væri á liðsauka frá Flugbjörg- unarsveitinni á Hellu. Björgunarmiðstöð SVFÍ kallaði Björgunarsveit SVFI á Selfossi út kl 18.10 og bað hana að vera í við- bragðsstöðu til að fara í fjöruna austan megin við Þjórsá eða vestan megin ef Vikartind skyldi reka upp, þannig að hægt væri að veita liðs- auka hvorum megin sem það yrði. Ákveðið var að liðsaukinn biði í bíl við brúna yfir Þjórsá. Tilkynnt björgunarmönnum í fjörunni. Björgunarsveitir SVFÍ á vettvangi tilkynntu að þær hefðu þá þegar kallað út björgunarsveit SVFl í Þorlákshöfn sem liðsauka. Björgun- arsveit SVFÍ í Landeyjum hafði samband við Björgunarmiðstöð og spurðist fyrir um hvort þörf væri fyrir aðstoð þeirra. Sagt að vera til taks í björgunarstöð sinni. Haft samband við LHG og borið undir þá hvort þeir teldu ekki rétt að fá skip á svæðið ef aukatogkraft þyrfti til að draga Vikartind út. LHG taldi það ekki nauðsynlegt. Einnig var spurst fyrir um það hvort LHG teldi það ekki ráðlegt að láta þyrlu LHG taka hluta áhafnar Vikartinds af skipinu áður en myrkur skylli á. LHG sammála. Þrýst á skipstjóra um að taka ákvörðun um hvað hann vildi láta gera, aðstæður fóru versn- andi og myrkur var að skella á. Björgunarmiðstöð SVFÍ hafði samband við LHG kl. 18.55 og spurðist fyrir um hvaða ákvörðun skipstjóri Vikartinds hefði tekið. LHG kvað hann hafa neitað allri aðstoð. Verið væri að gera við aðal- vél og að það tæki um 2 klst. LHG sagði að það hefði hann verið að segja í allan dag. Vettvangsstjóra björgunarsveita við Þjórsá, Jóni Hermannssyni, björgunarsveit SVFÍ á Hvolsvelli, var tilkynnt þetta. Björgunarmiðstöð SVFI heyrir kl. 19.10 Vikartind biðja vs. Ægi á rás 16 VHF að koma taug á milli skipanna. Fylgst með skiptum skip- anna á rás 16 VHF. Um kl. 19.45 eftir að varðskipið hafði gert til- raunir til að koma taug á milli skip- anna heyrðist til varðskipsins þar sem það tilkynnti Vikartindi að hætt yrði við, varðskipið sjálft væri komið í hættu, brotsjóir í brúar- hæð, kölluð yrði til þyrla. Stuttu seinna heyrðist varðskipið tilkynna Vikartindi að það teldi að það hefði misst mann fyrir borð og spurði Vikartind hvort það sæi hann í sjónum við stjórn- borðssíðuna. Björgunarmiðstöð SVFÍ hafði samband kl. 19.57 við Vestmanna- ey (TFLC) sem var statt á 63° 20’n., 019o 52’v. og bað það að halda tafarlaust á vettvang sem það og gerði. Hringt í Björgunarmiðstöð SVFÍ á beinni línu TFA (Gufunes) LHG og SVFÍ frá TFA og beðið um stað- festingu á móttöku neyðarkalls Vikartinds. LHG tilkynnti að TF- LIF væri lögð af stað og að beðið hefði verið um aðstoð þyrlna Varn- arliðsins. Björgunarmiðstöð SVFÍ heyrði Vikartind senda Mayday neyðarkall kl. 20.13 um að það væri strandað á stað 63° 45.8’n., 020° 46.8v. Hlustað á rás 16 VHF á skipti björgunarsveita og varðskips. Björgunarsveitir brugðust strax við og hófu leit að skipveija varðskips- ins sem fallið hafði fyrir borð. Vett- vangsstjóri björgunarsveita við Þjórsá hafði samband við Björgun- armiðstöð og bað um að þyrlur Varnarliðsins yrðu tafarlaust sendar á vettvang. Tjáð að það hefði verið gert. Bað um að bifreið Hjálparsveitar Skáta í Hveragerði yrði kölluð út og fengin í fjöruna austanmegin við Þjórsá til að flytja skipbrotsmenn ef lent yrði með þá þar. Björgunarmiðstöð brást við þessu. Björgunarmiðstöð hafði samband við Vestmannaey ki. 20.22 sem sagðist verða á vettvangi laust fyr- ir kl. 24. Björgunarmiðstöð heyrði TF-LÍF tilkynna kl. 20.27 á rás 16 VHF að hún væri byijuð að hífa áhöfn Vikartinds frá borði. Haft samband við Vestmannaey og greint frá at- burðarás. Björgunarmiðstöð heyrði vs. Ægi tilkynna vettvangsstjórn björgunar- sveita kl. 20.56 að hífíngum væri að ljúka og að TF-LÍF bæði um að kveikt væri á blysi í fjörunni þar sem bjarghringi varðskipsins rak á land. Björgunarmiðstöð hafði samband við vettvangsstjóra kl. 21.35 og óskaði eftir staðfestingu á því að TF-LÍF væri lent með áhöfn Vikar- tinds í fjörunni. Vettvangsstjóri staðfesti þetta og tilkynnti enn- fremur að verið væri að flytja áhöfnina í hús í Þykkvabæ til lækn- isskoðunar. Björgunarmiðstöð heyrði kl. 21.41 TFV bera skilaboð á milli vs. Ægis og Vestmannaeyjar þar sem fram kom að varðskipið teldi að ekki væri þörf fyrir aðstoð togarans og afþakkaði frekari hjálp hans. LHG hafði samband við Björgun- armiðstöð kl. 22.30 og óskaði eftir hnitum á fundarstöðum bjarg- hringja vs. Ægis. Haft samband við vettvangsstjóra sem gaf upp hnitið 63° 45,8’n., 020° 45,3’v. á vestari hringnum og hinn staðinn 240 m austar í flæðarmálinu. LHG tilkynnt þetta en stjómstöð hennar taldi líklegasta leitarsvæði 63° 45,5’n., 020° 46.3’v. og 0.5 sml. út frá þeim stað. Báðu um að leitar- menn yrðu minntir á að sandurinn hylur fljótt. Þessu komið til skila. Vettvangsstjóri tilkynnti Björg- unarmiðstöð kl. 23.15 að Vikartind- ur væri farinn að láta á sjá og að farið væri að losna um gáma. Upp- lýsingum um það komið til Eim- skipafélagsins. Einnig tilkynnt um að fundist hefði bjarghringur merktur skipaskrámúmerinu 2253 sem er Elliði GK. Þessum upplýs- ingum komið til LHG. Björgunarmiðstöð bámst fjölda- margar upphringingar og fyrir- spurnir á meðan á aðgerðum stóð, m.a. frá lögfræðingi útgerðar Vikartinds sem spurðist fyrir um hvort SVFÍ gæti tekið á móti áhöfn Vikartinds er hún kæmi til Reykja- víkur. Var honum tjáð að þeir væm velkomnir í höfuðstöðvar SVFÍ þangað til búið væri að koma þeim fyrir. Björgunarmiðstöð gerði ráðstafanir til mót- töku en var sú aðstoð afturkölluð síðar af forr- áðamönnum Eimskipafé- lagsins. Eftir samráð við LHG þar sem fram kom að vs. Ægir hefði fært sig frá vettvangi og að TF-LÍF hefði hætt leit var farið fram á það að björgunarsveitir héldu áfram leit um nóttina með 10 mönnum á tveimur bifreiðum vestanmegin við Þjórsá og 10 mönnum á 2 bifreiðum austanmegin við hana. Beðið var um það að önnur bifreiðin austan megin einbeitti sér að svæðinu þar sem bjarghringirnir fundust. Aðrir björgunarsveitamenn beðnir um að hvíla sig og vera reiðubúnir til leit- ar í birtingu. Aðgerðastjóri í Björgunarmið- stöð SVFÍ hætti formlega störfum kl. 01.30, 6.3. 1997 og gaf vakt- manni fyrirmæli um að kalla sig út eða annan starfsmann Björgun- ardeildar SVFÍ ef aðstæður breytt- ust. Björgunar- sveitir í við- bragðsstöðu Leit haldið áfram um nóttina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.