Morgunblaðið - 08.03.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
I DAG
BRIPS
Dmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Eftir heldur dauflega byij-
un, færist mikið fjör í sagn-
ir:
Norður
♦ DIO
▼ G54
♦ DG8763
♦ G4
Vestur
♦ KG7642
V ÁKD97
♦ 105
♦ -
Austur
4 985
▼ 10632
♦ 4
♦ D10765
Suður
♦ Á3
4 8
♦ ÁK92 ♦ ÁK9832
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf
1 spaði 3 hjörtu Pass Pass 5 tíglar Pass Pass 5 hjörtu Pass 2 tíglar 6 tíglar
Vestur fær fyrsta slaginn
á hjartaás og spilar síðan
kónginum. Suður trompar
hátt til að halda liprum sam-
gangi við blindan, tekur svo
tvisvar tromp og endar í
borði. Nú er tímabært að
staldra við.
Sagnir vesturs á hættunni
benda til að hann sé með
10-11 spil í hálitunum,
sennilega 6-5, úr því austur
stutti ekki spaðann í upp-
hafi. Laufgosa er því spilað
úr borði með þeim ásetningi
að hleypa honum hringinn.
Austur sér hvað verða vill
og leggur á. Því miður, því
annars væri einfalt að nota
innkomuna til að trompa síð-
asta hjartað og henda síðan
spaða niður í hálauf. í stað-
inn spilar sagnhafi nú trompi
þrisvar í viðbót. Austur þarf
að halda í öll laufin sín og
fer því niður á einn spaða.
Þá er laufníu svínað, spaða
hent í laufás og laufáttu
spilað í þessari stöðu:
Norður
♦ D
r g
♦ 7
♦ -
Vestur
♦ KG
4 D
♦ -
♦ -
107
Austur
4
4
♦
4
Suður
4 Á3
4 -
♦ -
♦ 8
Vestri geðjast lítt að þvi
að henda hjartadrottning-
unni, svo hann lætur spaða-
gosann flúka. Sagnhafi
trompar laufáttuna og tekur
síðan spaðaás og síðasta
slaginn á spaðaþrist.
Hún skrifaði ekki einu
sinni í gestabókina
Arnað heilla
^/\ARA afmæli. I dag,
l Vrlaugardaginn 8.
mars, er sjötug Ingibjörg
Gunnarsdóttir frá Syðra-
Vallholti í SkagaJfirði,
fyrrverandi skrifstofu-
stjóri Hjúkrunarfélags
íslands. Ingibjörg var gift
Móses Aðalsteinssyni,
verkfræðingi, en hann lést
í febrúar 1994. Hún tekur
á móti gestum á heimili
sínu, Fremristekk 9, Breið-
holti, frá kl. 16—19 á af-
mælisdaginn.
70ÁEA afmæli. Hinn
I Vrll. mars verður sjö-
tug Laufey Guðmunds-
dóttir frá Hafnarnesi við
Fáskrúðsfjörð, Austur-
brún 6, Reykjavík. Hún
tekur á móti gestum sunnu-
daginn 9. mars að Sléttu-
vegi 17, Reykjavík, milli kl.
15-18.
rnÁRA afmæli. í dag,
tlvllaugardaginn 8.
mars, er fímmtug Halla
Hjálmarsdóttir, Hrísrima
15, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Þorsteinn Hans-
son. Þau hjónin eru að
heiman í dag.
r/\ÁRA afmæli. í dag,
tl Vflaugardaginn 8.
mars, er fimmtugur Björn
Jónsson, kennari við
Brúarárskóla, Jökulsár-
hlíð. Eiginkona hans er
Elsa Amadóttir, skóla-
syóri Brúarárskóla. Þau
eru að heiman í dag.
Barna & fiölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman þann 8. febrúar 1997
í Háteigskirkju, þau Laufey
Ósk Þórðardóttir og Al-
varo Miguel Calvi, af séra
Tómasi Sveinssyni. Þau eru
til heimilis að Laufrima 8,
Grafarvogi.
Bama & Qölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman þann 15. febrúar
1997 í Grensáskirkju, þau
Ágústa Birgisdóttir og
Guðni Þórarinsson, af
séra Pálma Matthíassyni.
Þau eru til heimilis að
Gaukshólum 2.
COSPER
MAMMA! Pabbi er að kenna Friðu
„Riðum heim til hóla“.
STJÖRNUSPA
eftir Franccs Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert félagslyndur og vilt
helzt vinna með mörgum.
Þér lætur sérstaklega vel
að umgangast börn.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl) a-S
Þér hefur tekizt að ná tökum
á fjármálunum. Þar með
getur þú lagt þig betur fram
heima fyrir og í vinnunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt erfítt með að einbeita
þér í vinnunni af tilhugsun
um ferðalög og skemmtanir.
Láttu dagdrauma eiga sig á
daginn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 7»
Þú vinnur þér alla hluti of
erfiða. Gættu þess að láta
ekki vonbrigði þín bitna á
öðrum.
Krabbi
(21. júní — 22. júlf) H$0
Þú og félagi þinn komist að
samkomulagi og viðskiptin
ganga vel. Kvöldinu fylgir
óvænt tilboð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú færð góðar fréttir af fjár-
festingum þínum. Og í
einkalífinu gengur þér líka
allt í haginn. En varastu
drambsemi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Morgunstund gefur gull í
mund. Reyndu að halda
dampinum allan daginn.
Sýndu þínum nánustu meiri
nærgætni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Ástin blómstrar hjá þér í
dag. Það er tilvalið að taka
sér tíma til að hugsa svolítið
um sjálfan sig og sína nán-
ustu.
hilf*
DTilbod d mokkatcrtum
Kökurnar frá Sigrúnu eru sælgæti -smakkaöu
•• i/liri: Hún Sigrúnar írá Ólafsfirði er með tilboð á mokkatertum
um þessa helgi. Formkökur, kleinur, ömmusnúðar,
SIGRUNAR
ostakökur, rúllutertur og fleira ljúfengt meðlæti með
kaffinu á verði sem kemur öllum á óvart.
DBarnavörur d tilboði
Bílstólar, skiptitöskur, kerrur og fl á sprengiverði
Á bamavörusprengjunni í fyrra var mikið af vandaðri vöru á algjöra
tombóluverði. Nú er aftur kominn inn vöralager af bamavöra og
leikföngum á einstöku verði. Þetta er gott tæiafæri fyrir ungt fólk með böm
til að gera hagstæð kaup á nauðsynjavöra sem oft er mjög dýr.
Matvœlamarkaður
& Kolaportsins
-gœðamatvœli ó góðu verði
Á matvæfatiarkaði Kolaportsins er að firma gæðamatvæli á
góðu verði. í sölubásunum standa yfirleitt framleiðendumir
sjálfir. Bergur í síldinni, Skarphéðinn og Gylfi í laxinum,
Benni í kjötinu, Erla og Sigrún í kökunum, Pálmi í ferska
fiskinum, Magnea f grænmetinu, Anna og Guðlaugur í
kartöflunum, Kristinn og Eyfi í hákarlinum og margir fleiri.
KOIAPORTIÐ ^
Opiðlaugardagaogsunnudagakl. 11-17
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember) mj0
Þú hefur jákvæð áhrif á sam-
ferðarfólk þitt. Ljúktu við
það sem situr á hakanum í
vinnunni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Einhver tíðindi berast sem
munu skipta sköpum fyrir
þig. Kvöldskemmtun mun
koma þér á óvart.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú blómstrar í félagslífmu.
Gættu þess bara að ganga
ekki fram af þér.
Vatnsberi
(20.janúar-18. febrúar) ðh
Eitthvað sem þú átt ógert
hvílir á þér eins og mara.
Drífðu það af og njóttu ein-
verunnar í kvöld.
Fiskar
(19.febrúar-20.mars) 2*
Það birtir til í fjármálunum.
Gefðu þér tíma í dag til að
svara bréfum, sem liggja
óafgreidd á borði þínu.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 1997
á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3,
og hefst fundurinn kl. 14.00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18,
4. hæð, frá og með 17. mars,
fram að hádegi fundardags.
Stjóm Olíufélagsins hf.
Olíufélagiðhf