Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖIMD/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
BÍÓIIM í
BORGIIMNI
Amald Indriðason og Sæbjöm
Valdimarsson
BÍÓBORGIIM
/ fjötrum -k-k'A
Space Jam k k
Surviving Picasso kkk
Ævintýraflakkarinn k'A
SAMBÍÓIIM, ÁLFA-
BAKKA
Kona klerksins k
Ævintýraflakkarinn k
Ærsladraugar k k'A
Djöflaeyjan kkk'h
Dagsljós kk'h
Lausnargjaldið kkk
Hringjarinn í Notre Dame
kkk
Sonur forsetans k k
HÁSKÓLABÍÓ
Móri og skuggi k k
Undrið kkk'A
Leyndarmál og lygar
kkkk
Regnboginn k
KRINGLUBÍÓ
Space Jam k k
Auðuga ekkjan k
Kvennaklúbburinn k k'h
Hringjarinn í Notre Dame
kkk
LAUGARÁSBÍÓ
Borg englanna k'h
Koss dauðans kkk'A
Samantekin ráð kk
REGNBOGINN
Englendingurinn kkk'A
Múgsefjun kkk
Sú eina rétta kkk
STJÖRIMUBÍÓ
Málið^ gegn Larry Flynt
Djöflaeyjan kkk'A
Gullbrá og birnirnir þrír k'A
ÚR MYNDINNI „That Darn Cat“ eða Fjárans kötturinn.
Frá Larry Flynt
í Fjárans köttinn
LARRY Karaszewski og Scott
Alexander, sem nýlega unnu Golden
Globe-verðlaunin fyrir handrit sitt
að myndinni „People vs. Larry
Flint“ eru nú staddir á heldur mild-
ari slóðum eða í Disneylandi. Nýj-
asta afrek tvíeykisins er endurgerð
Disney-myndarinnar „That Darn
Cat“, eða Fjárans kötturinn, frá
árinu 1965 og þykir mörgum sem
kúvendingin sé algjör ef miðað er
við sótsvarta kómedíu þeirra félaga
um Bd Wood og nú síðast Flynt.
„Við skrifuðum handritið fyrir
fimm árum,“ segir Alexander, „og
reyndum að hafa Fjárans köttinn
hæfilega geggjaðan. Sex menn voru
svo ráðnir til að endurskrifa og
betrumbæta en við breyttum ekki
sögunni eða uppbyggingu hennar,
samtölin eru bara öðruvísi," segir
Karaszewski,
Næsta verkefni Larrys og Scotts
er þó væntanlega meira í þeirra
stíl en það er saga grínistans And-
ys Kaufmans.
MYNDBOND
Frankie stjörnuglit
(Frankie starlight)
D r a m a
kkVi
Framleiðandi: Noel Pearson. Leik-
stjóri: Michael Lindsay-Hogg.
Handritshöfundar: Chet Raymo og
Ronan O’Leary eftir sögu þess fyrr-
nefnda. Kvikmyndataka: Paul Lau-
fer. Tónlist: Elmer Bernstein. Aðal-
hlutverk: Annie Parillaud, Matt
Dillon, Gabriel Byme, Corban Wal-
ker og Alan Pentony. 95 mín. ír-
land. Pandora Cinéma/Háskólabíó
1997. Útgáfudagur: 4. mars
FRANKIE Bois er dvergur. Hann
skrifar ævisögu móður sinnar og bók-
in fær mjög góðar móttökur. Aldrei
áður hefur hann notið jafnmikillar
athygli. í bókinni segir frá franskri
móður hans sem
kornung strauk
frá hersetnu landi
sínu yfir til Ir-
lands. Hún eign-
ast fljótlega
drenginn sinn, en
einnig elskhuga
sem gengur
Frankie í föður-
stað. Þau mæðgin
eru þó ekki þar
með komin í heila höfn.
Frankie stjömuglit er mjög falleg
mynd, en kannski dulítið of hógvær.
Hún hefði mátt vera átakameiri á
tilfínningasviðinu, þar sem sagan
gefur oft tilefni til þess. Þetta er
samt góð frásögn, sem flýtur vel
áfram milli fortíðar og nútíðar. Leik-
urinn er einnig ansi hógvær. Annie
Parillaud er mjög þögul og illskiljan-
leg persóna. Það kann að vera vegna
þess að sagan er sögð út frá drengn-
um sem ekki hafði skilning á líðan
mömmu sinnar. Matt Dillon er ágæt-
ur sem Texasbúi, en hefði mátt láta
meira til sín taka. Honum virðist ein-
hvern veginn ekki líða vel í þessu
hlutverki. Bestur er Gabriel Byme
og kemur það ekkert á óvart. Hann
er frábær leikari og hér notar hann
minnstu svipbrigði til að eldast um
fímmtán ár. Þetta er hugljúf mynd
um mannleg örlög og mannlegt eðli.
Hún er fallega tekin, lagleg saga,
en er öðmvísi en gengur og gerist
og getur eflaust glatt margan.
Hildur Loftsdóttir.
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
UM GRAM GÆÐIN ÞARF ENGINN AÐ EFAST
OG VERÐIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆÐARA.
ALLT AÐ 10.000 KR. VERÐLÆKKUN
Á EINSTÖKUM GERÐUM GRAM KÆLISKÁPA.
GRAM HF-462
Áður 60.990
Nú > > 36.980
GRAM Ytri mál mm: Rými lítr. Staógr.
gerð: B x D x H kæl.+fr. kr.
Kæliskápar án frystis:
K-130 550 x601x 715 116 39.990
K-155TU 550 x601x 843 155 47.490
KS-200 550x601x1065 195 48.440
KS-240 550x601x1265 240 53.980
KS-180TU 595 x601x 843 168 49.990
KS-300E ,595x601x1343 271 56.990
KS-350E 595x601x1542 323 63.980
KS-400E 595 x601x 1742 377 71.970
Kæliskápar með frysti
KF-120 550 x601 x 715 94 + 14 41.990
KF-135TU 550x601x 843 109 + 27 48.980
KF-184 550x601x1065 139+33 48.980
KF-232GT 550x601x1285 186+33 56.940
KF-263 550x601x1465 197 + 55 54.990
KF-245EG 595x601x1342 168+62 62.990
KF-355E 595x601x1742 272 + 62 69.990
KF-345E 595x601x1742 190 +133 79.990
Frystiskápar:
FS-100 550x601x 715 77 39.990
FS-133 550 x601x 865 119 46.990
FS-175 550x601x1065 160 52.990
FS-150 595 x601x 900 131 48.970
FS-250E 595x601x1342 224 59.990
FS-290E 595x601x1542 269 69.990
FS-340E 595x601x1742 314 78.990
Frystikistur:
HF-234 800 x695x 850 234 42.980
HF-348 1100 x695x 850 348 48.980
HF-462 1400 x695x 850 462 56.980
HF-576 1700 x695x 850 576 72.980
FB-203 800 x695x 850 202 45.980
FB-308 1100 x695x 850 307 52.990
(FB-gerðir hafa 75mm einangrun - orkusparandi)
EURO og VISA raðgreiðslur án útborgunar.
FRÍ HEIMSENDING - og við fjarlægjum
gamla tækið án aukakosnaðar.
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420
Hasar, gaman
o g aftur hasar
ERU bíó-
gestir hrifn-
ari af Harri-
son Ford
GETUR Carrey sagt satt í nýjustu mynd
sinni Liar, Liar?
Kvikmyndastj örn-
ur berjast um
hylli bíógesta
STAR Wars-myndirnar sitja nú sem
fastast á toppnum þegar bíóaðsókn
í Bandaríkjunum er skoðuð. Spum-
ingin er hve lengi munu þær verma
topp tíu-listann og hvaða myndir
geta hugsanlega leyst þær af hólmi.
Kannski tekst kvikmyndastjörnum á
borð við Brad Pitt og Jim Carrey
að sigra Stjörnustríðið en myndir
með þeim em væntanlegar í banda-
rísk kvikmyndahús nú í mars.
Brad Pitt gerði sinni mynd, The
Devil’s Own, engan greiða á dögun-
um þegar hann sagði blaðamanni
Newsweek að hún væri ein heljarinn-
ar mistök. Síðan hefur hann reyndar
dregið í land og sagt að The Devil’s
Own sé prýðileg hasarmynd. Ætli
framleiðendur myndarinnar hafi
ekki beðið Pitt um að hætta að fæla
fólk frá myndinni? í The Devil’s
Own leikur Pitt IRA-mann sem er
á flótta og blekkir lögreglumann í
New York til þess að veita sér húsa-
skjól. Það er Harrison Ford sem leik-
ur lögreglumanninn. Hann er í þeirri
sérkennilegu aðstöðu að vera í sam-
keppni við yngri útgáfu af sjálfum
sér í hlutverki Han Solo! En það var
einmitt Solo-mllan í Star Wars sem
fyrst vakti athygli á honum sem
kvikmyndaleikara.
Nýjasta mynd Jims Carrey, Liar,
Liar, er leikstýrt af Tom Shadyac
en hann leikstýrði kvikmyndinni sem
gerði Carrey að stjörnu, Ace Vent-
ura: Pet Detective. í Liar, Liar leik-
ur Carrey lyginn lögfræðing sem
verður fyrir álögum og neyðist til
þess að segja sannleikann í heilan
dag. Auglýsingaskmmið fullyrðir að
í þessari mynd verði persóna Carrey
hlýlegri og mannlegri en í fyrri
myndum. Það verður gaman að sjá
hver reyndin verður.
Af öðrum kvikmyndum sem á að
selja sem stórmyndir í þessum mán-
uði í Bandaríkjunum má nefna Dýrð-
linginn (The Saint) með Val Kilmer
í titilhlutverkinu. Phillip Noyce has-
armyndaleikstjóri - hann stýrði t.d.
Patriot Games og Clear and Present
Danger - segir í viðtali við tímaritið
Entertainment Weekly að sá Simon
Templar sem bíógestir fái að berja
augum á hvíta tjaldinu eigi fátt sam-
eiginlegt með sjónvarpsútgáfunni
sem Roger Moore lék. Noyce fullyrð-
ir að fáir muni eftir Moore þáttunum
og þess vegna hafí sú ákvörðun ver-
ið tekin að móta persónur og sögu-
þráð alveg frá grunni. Kannski fáir
muni eftir Roger Moore í hlutverki
Simon Templar en blaðamaður
Morgunblaðsins man vel eftir Ian
Ogilvy í þessu hlutverki í bresku
þáttaröðinni The Return of the Saint
frá 1979-’80.
Bandaríkjamenn fá loksins að sjá
hina umdeildu mynd Davids Cronen-
bergs, Crash, í lok mars. Hún fjallar
um fólk sem fær kynferðislega útrás
í tengslum við bílslys og hneykslaði
Breta svo rækilega síðasta haust að
reynt var að banna allar sýningar á
henni.
Ef engin af ofangreindum kvik-
myndum vekja áhuga má benda á
að einnig verða frumsýndar í mars
glæpamyndin City of Industry með
Harvey Keitel og Stephen Dorff, og
dramað Commandments með Aidan
Quinn í hlutverki manns er ákveður
að brjóta boðorðin tíu eftir að hafa
misst bæði eiginkonu sína og starf.
Auk þess geta bandarískir bíógestir
séð Tim Allen í endurgerð á frönsku
myndinni Indjáni í stórborginni.