Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 64

Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, Stm 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ríkissaksóknari leggur fram bókun við sjópróf Skipstjórmn hugsan- lega sóttur til saka BÓKUN var lögð fram af hálfu embættis ríkissaksóknara þegar sjó- próf voru haidin í gær, vegna strands flutningaskipsins Vikartinds á mið- vikudag. í bókuninni kemur fram, að ríkissaksóknari er að kanna hvort skipstjóri flutningaskipsins hafi hugsanlega bakað sér refsiábyrgð og er vísað til almennra hegningar- laga, siglingalaga og laga um vamir gegn mengun sjávar. Sjópróf stóðu í allan gærdag og verður fram haldið í dag. í gær kom 'í*Tram að Landhelgisgæslan og Eim- skip höfðu hvatt skipstjóra flutn- ingaskipsins til að taka ákvörðun um að leita aðstoðar vegna yfirvof- andi hættu. Skipstjórinn og 1. stýri- maður báru hins vegar báðir, að þeir hefðu ekki talið hættu á ferðum fyrr en akkeri skipsins misstu festu og skipið rak á skammri stundu upp í fjöru. Skömmu áður en skýrslutökum fyrir dómi lauk í gær var lögð fram bókun ríkissaksóknara. í bókuninni voru dómarar upplýstir um, að ríkis- saksóknari væri að kanna hvort framganga skipstjórans í málinu varðaði við lög. Vísað er til 4. mgr. 220. greinar hegningarlaga, þar sem segir að varðhaldi eða fangelsi allt að 4 árum skuli sá sæta, sem í ábata- skyni, af gáska eða á annan ófyrir- leitinn hátt stofnar lífi eða heilsu annarra í augljósan háska. Yfirsjón eða vanræksla Þá vísar embætti ríkissaksóknara til 238. greinar siglingalaga, þar sem segir að ef skipstjóri hafi orðið vald- ur að skipstrandi, árekstri eða öðru sjóslysi með yfírsjónum eða van- rækslu í starfí sínu varði það sekt- um, varðhaldi eða fangelsi. Ef skip- stjóri er sakfelldur fyrir brot á þess- ari grein gæti einnig komið til greina að svipta hann skipsstjórnarréttind- um ákveðinn tíma. Loks vísar ríkissaksóknari til laga um varnir gegn megnun sjávar. í sjötta kafla laganna er kveðið á um ábyrgð vegna mengunar sjávar. Þar segir m.a. að ef hætta er á mengun skuli sá, sem bæri ábyrgð á henni, gera allt sem í hans valdi stendur til þess að koma í veg fyrir eða draga úr henni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins kom til tals fyrir réttinum í gær að dómsforseti óskaði lög- reglurannsóknar vegna hugsanlegra brota skipstjórans. Ekki var þó tekin afstaða til þess, en sjóprófum frestað til morguns. ■ Höfnuðu hjálp/32 ■ Flutningar/12 ■ Reyna á/14 Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Hátt fiskverð vegna brælunnar HÁTT fiskverð er nú á fiskmörk- uðum landsins vegna langvarandi brælu að undanförnu. Þannig sejdist kílóið af ýsu á 235 krónur á íslandsmarkaði í gær en aðeins voru seld um þrjú tonn. Þá voru seld átta tonn af smáýsu á Fisk- markaði Suðurnesja í gær á 208 krónur kílóið. Verð á ýsu hefur verið mjög hátt undanfarnar vikur vegna brælunnar og fór ýsuverðið t.d. upp í 260 krónur í febrúar sl. ■ Haugabræla/17 Mikil óvissa í kjaraviðræðunum VSÍ tilbúið að ræða flata hækkun í prósentum MIKILL ágreiningur er milli landssambanda ASÍ og vinnu- veitenda um þær kröfur og gagntilboð sem fram hafa komið í kjaraviðræðum á undanfömum dögum. Ákveðið hefur verið að halda viðræðum áfram yfír helg- ina til að kanna hvort flötur er á áframhaldandi viðræðum, sem geti leitt til samkomulags. Fyrstu verkföll sem boðuð hafa verið hefjast á miðnætti annað kvöld. Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari segir að staðan sé óráðin og ákveðin þáttaskil hafí orðið í viðræðunum. „Við höfum þegar undirgeng- ist að minnsta kosti 5% aukn- ingu á launakostnaði með okkar tilboði. Við erum reiðubúnir að ræða aðrar útfærslur á því, þess vegna um flata prósentuhækk- un, þar sem ekki yrðu gerðar neinar aðrar breytingar, líkt og samningar sumra þessara fé- laga, til dæmis við Stöð 2, hafa falið í sér. Af okkar hálfu er engin krafa uppi um það að hækka taxtakaup um tugi pró- senta og gera aðrar þær breyt- ingar sem því fylgja. Við erum alveg eins tilbúnir að semja á einföldum nótum með svipuðum launakostnaðarauka," segir, framkvæmdastjóri VSÍ. VMSÍ-félög undirbúa verkfallskosningar „Það er mjög mikill ágrein- ingur um samningstíma, breyt- ingar á yfirvinnuálögum, svo- kallaðan fleytitíma, sem felur í sér að starfsmenn vinni dag- vinnu á mismunandi tímum yfir daginn, einstaklingsbundið, og svo munar mjög miklu á launa- !iðum,“ segir Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ. ■ Viðræður/4 Morgunblaðið/Páll Stefánsson Hagnaður Landsbanka 262 milljónir króna Vikartindur í brimrótinu VÉLAR og tæki björgunarmanna virtust ekki stór eða burðug frammi fyrir stórum skrokki Vikartinds í briminu í Háfsfjöru suður undan Þykkvabæ siðdegis í gær. Fulltrúar útgerðar og tryggingafélags eru að leggja á ráðin um björgun á olíu, farmi og sjálfu skipinu ásamt sérfræð- ingum erlendra björgunarfyrir- tækja. Stefnt var að því að áætl- un yrði tilbúin í dag og að björg- unaraðgerðir gætu hafist strax eftir helgi. Meðan þessu fer fram bylja brimskaflarnir á skipinu. Sýslumaðurinn í Rangárvalla- sýslu ákvað að strandstað yrði lokað fyrir almennri umferð og lögreglan minnir á að brúsum með hættulegum efnum gæti hafa skolað á land í fjörum langt frá strandstaðnum. HAGNAÐUR Landsbankans fyrir skatta og óreglulega liði nam 582 milljónum króna á síðasta ári, en þegar tekið hefur verið tillit til þess- ara liða, sem eru meðal annars vegna eldri lífeyrisskuldbindinga að upphæð 260 milljónir króna, nam hagnaðurinn 262 milljónum króna samanborið við 177 miiljónir árið áður. Björgvin Vilmundarson, formað- ur bankastjórnar Landsbanka ís- lands, sagði á ársfundi bankans í gær, þar sem afkoman var kynnt og ársreikningur bankans undirrit- aður, að þessi rekstrarniðurstaða væri langt frá því viðunandi, allra síst í ljósi þess að árferði hefði ver- ið gott á síðasta ári og nauðsyn á að bæta afkomuna í gjörbreyttu rekstrarumhverfi næstu ára. Bankar ávaxti lífeyrissparnað Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sagði meðal annars í ávarpi sínu á fund- inum, að allir þeir sem hefðu heim- ildir til að taka að sér ávöxtun fjár- muna almenning ættu að hafa jafn- an kost á því að ávaxta lífeyrissparn- að landsmanna. Sú þróun sem orðið hafí hér á landi að lífeyrissjóðakerf- ið sé nánast alfarið bundið á klafa einkaréttar og skylduaðildar greið: anda sé óhugsandi til frambúðar. í lífeyrissjóðum landsmanna væri varðveittur sparnaður að verðmæti um 300 milljarðar en það nálgist að vera um helmingur af öllum pen- ingalegum sparnaði í landinu. Ef stjórnvöld teldu það einhvers virði að hafa í framtíðinni sterka og öfluga banka á Islandi væri augljóst að skapa yrði þeim grundvöll til þess að taka með eðlilegum hætti þátt í lífeyrisspamaði landsmanna. ■ Langtfrá/16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.