Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLASLIT
_ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
STUDENTSEFNIN tuttugu. Fremsta röð frá vinstri: Arnbjörg Helga, Kristín Dröfn, Harpa, Anna Fríða, Sig-
rún Arna, EIín,_ Rúna, Sæunn Sigríður og María. Miðröð frá vinstri: Kristján Þór, Hilmar, Anna Karen,
Hrefna Silvía, Asgeir Guðbjartur og Atli Freyr. Aftasta röð frá vinstri: Bjarki, Jónas Bergmann, Kristinn,
Bjarni Heiðar og Olafur Sölvi.
MÆÐGURNAR Kristín Dröfn Einarsdóttir og Anna Karen Kristjáns-
dóttir, brautskráðust frá Framhaldsskóla Vestfjarða á laugardag.
Kristín Dröfn hlaut næsthæstu meðaleinkunn af mála- og samfélags-
braut, 7,5, og móðirin fékk hæstu meðaleinkunn af hagfræðibraut, 7,7.
TVEIR bæjarfulltrúar voru á meðal nýstúdenta frá Framhaldsskóla
Vestfjarða og mun slíkt vera einsdæmi a.m.k. þegar um er að ræða stúd-
enta frá dagskóla. Hér eru þeir vinirnir Kristinn Hermannsson (t.v.) og
Hilmar Magnússon, en hann var „Dux schoale" með meðaleinkunnina 8,1.
STÚDENTSEFNIN sem brautskráðust frá Menntaskólanum á Isafirði fyrir tuttugu árum ásamt skólameist-
arahjónunum, Bryndísi Schram og Jóni Baldvin Hannibalssyni. Hópurinn var sá síðasti sem þau hjón braut-
skráðu frá skólanum og sá eini sem Bryndís hefur brautskráð, en hún gegndi starfi skólameistara um eins
árs skeið í fajrveru bónda síns. Á myndinni er einnig Anna Karen Kristjánsdóttir.
Framhaldsskóla Vestfjarða slitið í fímmta skipti
Tuttugu stúdentar
brautskráðir
Ísafírði. Morgunbiaðið.
Framhaldsskóla Vestfjarða var
slitið í fimmta skipti á laugardag.
Tuttugu stúdentsefni voru braut-
skráð frá skólanum að þessu sinni,
ellefu stúlkur og níu piltar. Þá
fengu tíu vélaverðir skírteini sín
og tveir fengu skírteini fyrii- að
hafa lokið 2. stigi vélstjórnarnáms.
Fimm nemendur luku tveggja ára
verslunarprófi af viðskiptabraut
og fékk hæstu meðaleinkun þar
Friðrik Einarsson, eða 8,5. Af
sjúkraliðabraut, brautskráðust
fimm nemendur með sjúkraliða-
próf. Hæstar einkunnir þar fengu
þær Sigríður Ragna Jóhannsdótt-
ir, 8,7 og Pálína Elíasdóttir, sem
var með 8,2 í meðaleinkunn.
Tveir iðnnemar með skólapróf í
vélsmíði brautskráðust frá skól-
anum og einn nemandi með al-
mennt meistarapróf. Af stúdents-
efnunum tuttugu, luku fjórir námi
af hagfræðibraut. Hæstu einkunn
af hagfræðibraut hlaut Anna
Karen Kristjánsdóttir, eða 7,7.
Af mála- og samfélagsbraut
komu sjö stúdentsefni. Af þeim
hlaut hæstu einkunn Hilmar
Magnússon, eða 8,1, og var hann
„Dux schoale“ þetta árið. Hilmar
og Kristinn Hermannsson, sem
einnig lauk prófi á mála- og sam-
félagsbraut, pru bæjarfulltrúar
Funklistans í Isafjarðarbæ, Næst-
hæstu einkunn af mála- og samfé-
lagsbraut hlaut Kristín Dröfn Ein-
arsdóttir, 7,5, en þess má geta að
hún er dóttir Önnu Karenar Krist-
jánsdóttir, sem hlaut hæstu með-
aleinkun af hagfræðibraut. Af
Skólaslit Fj ölbrautaskóla Suðurnesja
Góður námsárangur sunddrottning’ar
Keflavík. Morgnnblaðið.
-f VORONN Fjölbrautaskóla Suður-
nesja var slitið við hátíðlega athöfn í
sal skólans, laugardaginn 24. maí,
að viðstöddu fjölmenni að vanda. Að
þessu sinni voru 65 nemendur
brautskráðir. Stúdentar voru íjöl-
mennastir, samtals 42, af iðnbraut
voru 11, úr grunndeild 4, af tveggja
ára braut 4, tveir vélstjórar og tveir
sjúkraliðar.
Eftir að Ólafur Jón Arnbjömsson
skólameistari hafði afhent nemend-
um brautskráningarskírteini af-
henti Elísabet Karlsdóttir sviðs-
stjóri verðlaun fyrir góðan námsár-
'f.mgur. Þar má nefna frábæran
námsárangur Eydísar Konráðsdótt-
ur sem er þekktari sem afreksmað-
ur í sundi. Eydís hlaut 6 viðurkenn-
ingar: Fyrir góðan námsárangur á
stúdentsprófi, fyrir frammistöðu í
ensku, fyrir góðan árangur í stærð-
fræði og raungreinum og fyrir góða
frammistöðu í íslensku. Þrándur
V Sigurjón Ólafsson hlaut 4 viður-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
NEMENDUR á vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja ásamt Ólafi Jóni Arnbjörnssyni skólameistara sem er lengst til vinstri og Oddnýju
Ilarðardóttur aðstoðarskólameistara sem er lengst til hægri.