Morgunblaðið - 30.05.1997, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
kaupir Pétur Jónsson RE
FRETTIR
jfí*—
PÉTUR Jónsson RE fær heimahöfn á Húsavík
um miðjan ágúst næstkomandi.
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur
hefur fest kaup á rækjuveiðiskip-
inu Pétri Jónssyni RE 69 og var
gengið frá samningi um kaupin
milli Fiskiðjusamlagsins og Péturs
Stefánssonar, eiganda skipsins, í
gær. Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlagsins
vildi í samtali við Morgunblaðið
ekki gefa upp kaupverð skipsins
en sagði það vera á bilinu 80-90%
af tryggingamati þess sem er 963
milljónir króna.
Enginn kvóti fylgir skipinu, en
til stendur að færa yfír á það kvót-
ann af togurunum Júlíusi Hafstein
og Kolbeinsey sem Fiskiðjusamlag-
ið á og hyggst selja til að fjár-
magna kaupin á Pétri Jónssyni,
en sá kvóti er samtals 4.500 þorsk-
ígildi.
Fiskiðj usamlagið
endurfjármagnað frá grunni
Skipið verður afhent nýjum eig-
endum 16. ágúst næstkomandi,
og um það leyti kemur til landsins
nýtt skip sem verið er að smíða í
Noregi fyrir Pétur Stefánsson, en
það verður sjósett 20. júní næst-
komandi. Fiskiðjusamlagið og
Pétur Stefánsson hafa gert sam-
komulag um kaup Fiskiðjusam-
lagsins á rækju frá hinu nýja skipi
næstu þrjú kvótaár, og með þeim
samningi og kaupunum á Pétri
Jónssyni RE verða um 8 þúsund
tonn unnin árlega í rækjuverk-
smiðju fyrirtækisins. Einar Svans-
son sagði að Fiskiðjusamlag Húsa-
víkur myndi fara í hlutafjáraukn-
ingu og auk þess selja hlutabréf
að verðmæti 160 milljónir króna
sem eru í eigu félagsins til að fjár-
magna kaupin á Pétri Jónssyni.
„Skuldir félagsins munu því
ekki aukast við þessa aðgerð. Þar
að auki fáum við alveg nýja fjár-
mögnun á félagið í formi væntan-
legs stórs láns inn á Pétur Jóns-
son, sem verður þá nánast eina
lánið sem fyrirtækið verður með.
Við munum endurfjármagna Fisk-
iðjusamlagið með þessu í leiðinni
alveg frá grunni, og þessi aðgerð
mun breyta mjög verulega efna-
hag félagsins,“ sagði hann.
Getur dregið tvö
troll samtímis
Pétur Jónsson RE var smíðaður
í Noregi og kom skipið til landsins
í júlí 1994. Það er sérstaklega
búið til vinnslu og frystingar á
rækju og um borð eru þijár tog-
vindur þannig að unnt er að draga
tvö troll samtímis. Skipið er tæp-
lega tvö þúsund tonn, 59 metrar
á lengd og knúið liðlega fjögur
þúsund hestafla vél. Frystigeta
skipsins á sólarhring er 43 tonn
og alls rúmast um 400 tonn af
frystum afurðum um borð. Að jafn-
aði eru 20 manns í áhöfn skipsins.
■ ■ |
Morgunblaðið/Ásdís
BÖRN klipptu á borðann þegar ný æfingalaug Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra var tekin í notkun.
Ný sundlaug
í Æfingastöð
Styrktarfélagsins
12 mánaða dómur
fyrir lánveitingar
til Emerald Air
HÆSTIRÉTTUR þyngdi í gær um
tvo mánuði dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur yfir fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Lífeyrissjóðs bænda fyrir að
hafa lánað flugfélaginu Emeraid Air
rúmar 97 milljónir króna af fé Lífeyr-
issjóðs bænda án nokkurra ábyrgða
eða trygginga og án þess að bera
ákvörðun sína undir stjóm sjóðsins.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar skai
maðurinn sæta fangelsi í 12 mánuði,
en haldi hann almennt skilorð í 3 ár
frá uppkvaðningu dómsins fellur refs-
ing hans niður.
Maðurinn var ákærður fyrir brot
framin á árinu 1995 og gert að sök
að hafa misnotað aðstöðu sína og
stefnt fé Lífeyrissjóðs bænda í stór-
fellda hættu með lánveitingunum.
Lífeyrissjóðurinn var stofnhluthafí í
félaginu Activa sem stofnað var árið
1994 um þátttöku íslenskra aðila í
Emerald Air Ltd. og lagði fram 10,8
milljónir í hlutafé. Framkvæmdastjóri
lífeyrissjóðsins var kjörinn stjórnar-
formaður Activa og jafnframt kjörinn
í stjóm Emerald Air. í dómi Hæsta-
réttar segir að ekki hafi komið fram
að maðurinn hafí notið persónulegs
ávinnings af broti sínu.
Flugvél lenti í árekstri
FLUGVÉL skemmdist nokkuð þeg-
ar hún lenti í árekstri við tvær bif-
reiðar skömmu eftir hádegi í gær
á Reykjavíkurflugvelli.
Málavextir voru þeir að fólksbif-
reið var að draga flugvélina eftir
flugbraut á Reykjavíkurflugvelli,
þegar ökumaður bílsins þurfti að
hemla snögglega. Sá sem stýrði
flugvélinni náði hins vegar ekki að
stöðva hana nægjanlega fljótt, með
þeim afleiðingum að vængir flug-
vélarinnar rákust í dráttarbilinn og
aðra bifreið sem þar var nærri.
Hæstiréttur
Dæmdur fyrir að aka
vélsleða í þéttbýli
NÝ sundlaug var vígð f gær í
Æfingastöð Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra í Reylyavík. Er
hún stærri en sú sem fyrir var
og sérstaklega hönnuð og byggð
með þarfir skjólstæðinga félags-
ins í huga.
Heildarkostnaður við laugina
er 60 miiyónir og komu 1,5 miHj-
ónir frá hinu opinbera en hitt er
fé sem félagið hefur aflað með
árlegu happdrætti sínu og útgáfu
tímarits auk gjafafjár. Komu gjaf-
ir frá Asbjörgu Jónsdóttur á
Akranesi, sem gaf húseign til
minningar um mann sinn, Jón
Bjarna Magnússon, frá hjónunum
Sigurfyóð Olafsdóttur og Magnúsi
Bjarnasyni og úr Minningarsjóði
Kristínar Björnsdóttur.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra flutti ávarp við
vigsluna, séra Halldór Gröndal
blessaði laugina og börn úr hópi
skjólstæðinga félagsins tóku
fyrstu sundtökin.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
mann, sem ók á snjósleða eftir göt-
um á Egilsstöðum fyrir að hafa
brotið umferðarlög og ekið torfæru-
tæki í þéttbýli.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ekið á vélsleða án hlífðar-
hjálms eftir tveimur götum á Egils-
stöðum. Á þeirri leið ók hann yfir
þjóðveg. Samkvæmt skýrslu
ákærða fyrir héraðsdómi var hann
að fara með vélsleðann í eftirlit á
verkstæði en tækið var nýtt og
hafði fengið skoðun nokkrum dög-
um áður. Akærða var boðið að ljúka
málinu með 4 þús. króna sekt sem
hann hafnaði.
í dómnum segir enn fremur að
samkvæmt lögum sé bannað að
meginstefnu að aka torfærutækjum
og þar með vélsleðum á vegum sem
ekki eru einkavegir. Jafnframt að
ekki megi án sérstaks ieyfis land-
eigenda eða umráðamanns lands,
aka, stöðva eða leggja vélknúnu
ökutæki utan vegar í þéttbýli á
svæði sem ekki er ætlað fyrir um-
ferð þeirra. Fram kemur að ein-
göngu megi aka vélsleða yfir vegi
eða eftir vegi skemmstu leið utan
þéttbýlis. Jafnframt segir að ákærði
hefði ekki haft heimild frá þar til
bærum aðila að aka torfærutæki
utan vega á Egilsstöðum.
Var ákærði dæmdur til að greiða
allan áfrýjunarkostnað að meðtöld-
um saksóknaralaunum kr. 25 þús.
í ríkissjóð og laun skipaðs vetjanda
kr. 25 þús.
Sendifulltrúi
RKÍ enn í
Afghanistan
INGA Margrét Róbertsdóttir,
sendifulltrúi Rauða kross íslands
í Afghanistan,
er enn í borg-
inni Mazar-i-
Sharif ásamt
öðrum starfs-
mönnum Al-
þjóðaráðs
Rauða kross-
ins þar. Garðar
Guðjónsson,
kynningarfull-
trúi RKÍ, segir
að samkvæmt
upplýsingum sem hann fékk frá
höfuðstöðvunum í Genf um há-
degi í gær ami ekkert að þeim.
„Þau hlúa að særðum og sinna
þeim störfum sem til er ætlast
af þeim við aðstæður sem þess-
ar,“ segir Garðar. Inga Margrét
er sjúkraþjálfi og hefur frá því í
desember si. unnið við að endur-
hæfa fólk sem fengið hefur gervi-
limi á gervilimaverkstæði Rauða
krossins í borginni.
Til stendur að hún snúi heim
á leið á næstu dögum, þar sem
henni er illmögulegt að starfa
vegna ástandsins í landinu. Ekki
er þó ijóst hvenær það verður,
þar sem lendingarleyfi fyrir flug-
vél Rauða krossins er enn ekki
fengið.
Dísarfellið
Enn frekari
sjópróf?
SJÓPPRÓFUM vegna þess er
tveir menn fórust með Dísarfell-
inu suðaustur af landinu 9. mars
sl. var fram haldið í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fyrradag.
Teknar voru skýrslur af
deildarstjóra skiparekstrardeild-
ar Samskipa og öllum yfírmönn-
um á Dísarfellinu; þ.e. báðum
skipstjórum, öðrum stýrimanni
og vélstjórum.
Við lok þinghaldsins krafðist
fulltrúi rannsóknarnefndar sjó-
slysa að málinu yrði einungis
frestað en þinghaldi ekki slitið.
Að sögn Jóns Finnbjörnssonar,
héraðsdómara, sem stjórnar sjó-
prófunum, ræðst það í dag hvort
um frekari sjópróf verður að
ræða.
Handteknir
með stolnar
ávísanir og bíl
MAÐUR með stolið ávísanahefti
í fórum sínum var handtekinn í
fyrradag við verslun á Grensás-
vegi eftir að hann reyndi að
kaupa vörur þar.
Eftir að hann var færður á
lögreglustöð vísaði hann á annan
aðila, sem einnig var handtekinn.
Grunur var um að ökutæki
sem mennirnir óku hefði verið
stolið og einnig að þeir hefðu
stolið fieiri ökutækjum. Þeir
höfðu haft þann háttinn á að
fara á bílasöiur og fá lánaðar
bifreiðar til reynsluaksturs, en
ekki skilað þeim á sama stað.
Játning liggur fyrir.
Vatnsskemmd-
ir í Hrafnistu
TALIÐ er að hálfrar milljónar
kr. tjón hafi orðið á gólfi salar
í Norðurbrún, vistheimili aldr-
aðra á Hrafnistu, í fyrrinótt eft-
ir að vatn lak þar inn nætur-
langt.
Talið er fullvíst að einhveijir
óprúttnir aðilar hafi sett vatns-
slöngu inn um gat sem lá að
salnum og vatn lekið úr henni
alia nóttina. Ekki er vitað hveij-
ir voru að verki.
Inga Margrét
Róbertsdóttir