Morgunblaðið - 30.05.1997, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
íbúar Seljahverfis segja tengibraut úr Fífuhvammi inn á Jaðarsel vera skipulagsmistök
Aðalskipu-
lagið var
harðlega
gagnrýnt
Morgunblaðið/Golli
FULLT var út úr dyrum á borgarafundi í Seljahverfi á miðvikudagskvöldið.
íbúar í Seljahverfi hafa
ítrekað lýst áhyggjum
sínum af aukinni um-
ferð sem stendurtil að
beina um hverfið sam-
kvæmt aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996 til
2016. Pétur Blöndal
sat borgarafund þar
sem sinnuleysi yfirvalda
var mótmælt.
HÖRÐ gagnrýni á aðalskipulag
Reykjavíkur kom fram á borgara-
fundi íbúa í Seljahverfi sem haldinn
var síðastliðið miðvikudagskvöld.
Samþykkt var einróma á fund-
inum að skora á borgarstjórn og
Borgarskipulag Reykjavíkur að
fella tengibraut úr Fífuhvamms-
hverfi í Kópavogi inn á Jaðarsel í
Seljahverfi út af aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996 til 2016.
Jafnframt ítrekaði fundurinn mót-
mæli gegn staðsetningu Amames-
vegar vestan í Vatnsendahvarfí við
jaðar Seljahverfis. Skorað var á yfír-
völd að fella þessa stofnbraut út af
aðalskipulagi Reykjavíkur og leita
raunhæfra leiða til að leggja hana
austan Vatnsendahvarfs.
Ástandið svartara en áður
Ólafur Dýrmundsson gerði grein
fyrir aðdraganda málsins í fram-
sögu. Sagði hann að allt frá árinu
1982 hefði fyrirhugaðri legu Arn-
arnesvegar á vinsælu útivistarsvæði
við jaðar Seljahverfis ítrekað verið
mótmælt. Hefðu m.a. undirskrifta-
listar með 3 þúsund nöfnum verið
afhentir borgarstjóra í mótmæla-
skyni í apríl 1984.
Því hefði það valdið sér vonbrigð-
um að í aðalskipulagi Reykjavíkur
1996 til 2016 væri þessi gamli
draugur enn að gera vart við sig.
Nýr draugur hefði svo bæst í hóp-
inn. Breyta ætti Jaðarseli úr safn-
götu í tengibraut sem þýddi verulega
aukna umferð. Ljóst væri að umferð-
arþungi um Jaðarsel væri þegar svo
mikill að mörgum þætti nóg um,
enda hefðu verið lagðar þar þijár
hraðahindranir.
Ólafur sagði það óviðunandi að
tengibraut um Jaðarsel yrði lögð á
undan Arnarnesvegi enda væri fyr-
irséð að af því skapaðist geigvæn-
lega mikilll umferðarþungi. Tengi-
brautin þyrfti þá að anna allri um-
ferð sem annars færi um Arnarnes-
veg. Það væri mikil umferð, enda
um stofnbraut að ræða.
„Skipulagsmistök og umhverf-
isplága" voru orðin sem hann við-
hafði um Arnarnesveg. Stóðu þau
á gömlum glærum sem hann dró
upp úr farteskinu frá mótmæla-
fundi árið 1984. „Ástandið var svart
þá,“ sagði hann þungur á manninn.
„En nú er það svartara. Við eigum
einnig von á að Jaðarsel verði gert
að tengibraut.“
Kostnaði komið
á Reykvíkinga
Magnús Bjamason tók undir með
Ólafi og sagði að Arnarnesvegur
yrði að rísa á undan tengibraut-
inni, þess vegna væri óviðunandi
að tengibrautin væri inni á borgar-
skipulagi. Hann sagði Kópavogsbúa
vera að koma kostnaði við gatna-
gerð yfir á Reykvíkinga með því
að tengja aðalumferðaræðar yfir í
mitt íbúðarhverfi í Reykjavík. Skor-
aði hann á borgarfulltrúa að standa
betur vörð um hagsmuni Reykvík-
inga.
„Eg flutti í Seljahverfí með fjöl-
skyldu minni fyrir ári vegna þess
að það er gott og rólegt hverfi,“
sagði Haukur Þór Haraldsson.
Hann sagðist hafa þungar áhyggjur
af því að Jaðarsel yrði gert að tengi-
braut með aukinni slysahættu sem
sonur hans að fara yfir götuna á
hveijum degi í skólann. „Sama gild-
ir um áttatíu önnur börn sem eiga
heima fyrir ofan Jaðarsel," sagði
hann.
Þorsteinn Tómasson bar fram þá
fyrirspum hvað orðið hefði um þá
tillögu að Arnarnesvegur lægi aust-
an Vatnsendahvarfs. Hann sagði
að íbúar Seljahverfis viðurkenndu
að þörf væri á tengingu til þess að
svæðið yrði ein skipulagsleg heild,
en fyrst þyrfti að leysa vandamálið
með Amarnesveg.
Skipulag ennþá í mótun
Margrét Sæmundsdóttir úr
Skipulagsnefnd Reykjavíkur sagði
ánægjulegt hversu málefnalegar
umræðurnar á fundinum væm. í
máli hennar kom fram að ekki yrði
af lagningu tengibrautar milli Fífu-
hvammsvegar og Jaðarsels nema
Arnarnesvegur yrði lagður fyrst.
Þannig að ekki yrði um eins mikla
umferðaraukningu að ræða um Jað-
arsel og margir fundarmanna óttuð-
ust.
Einnig sagði Margrét að komið
hefði til umræðu í viðræðum borg-
arstjóra og bæjarstjóra Kópavogs
að færa Arnarnesveg austur fyrir
Vatnsendahvarf. Skipulag í Kópa-
vogi á þessu svæði væri í mótun
um þessar mundir og verið væri að
endurmeta legu Arnarnesvegar og
Fífuhvammsvegar austan Reykja-
nesbrautar og hvemig þeir tengjast
saman. Einnig væri unnið að mótun
deiliskipulags íbúa á þessu svæði.
„Skipulagsaðilar í báðum sveitarfé-
iögum munu halda áfram samvinnu
um lausn þessa máls,“ sagði hún.
Hlynntur tengibrautum
Stefán Hermannsson, borgar-
verkfræðingur, sagðist vera ein-
dregið þeirrar skoðunar að tengi-
brautir, á borð við þá sem leggja
ætti úr Fífuhvammshverfi í Jaðar-
sel, ættu að liggja milli hverfa,
ekki aðeins stofnbrautir. „Annað
er ólánlegt skipulag," sagði hann
og bætti við að ekki mætti vera
múr á milli Kópavogs og Reykjavík-
ur.
Stefán ítrekaði að ekki kæmi til
greina að tengibrautin yrði lögð
fyrr en Arnarnesvegur væri kominn
í gagnið. Hann sagði að ef farið
yrði að þeirri kröfu að leggja Arnar-
nesveg austan Vatnsendahvarfs
kæmi sú skrýtna niðurstaða að
umferðarþungi um Jaðarsel yrði
meiri en ella. „Ólafur á því e.t.v.
eftir að skipta um skoðun eftir
nokkur ár,“ sagði hann.
Fótboltavelli ofaukið?
Jónína Bjartmarz sagði Amar-
nesveg ógnun við lífsgæði Joeirra
sem byggju í Seljahverfi. I máli
hennar kom fram að íbúar í Klyfja-
seli hefðu sóst eftir því að fá byggð-
an fótboltavöll austan Jaðarsels,
vegna þess hve hættulegt það væri
fyrir krakka að fara alltaf yfir þessa
umferðargötu. Fótboltavöllur hefði
fengist samþykktur hjá borgar-
skipulagi, en nú sæi hún ekki betur
en að Amarnesvegur ætti að liggja
þvert yfir hann. Tók Stefán Her-
mannsson, borgarverkfræðingur,
undir að honum virtist dálítið
þröngt um fótboltavöllinn á skipu-
laginu.
Sólveig Siguijónsdóttir sagðist
vera stolt af því að búa í Selja-
hverfí, þessu friðsæla og barnvæna
hverfi. Ekki mætti eyðileggja það
fyrir íbúunum. „Við viljum hjálpa
borgarstjórninni til þess að ekki
verði annað Miklubrautarslys,"
sagði hún og kvartaði undan því
að henni virtust öll svör sem fengj-
ust frá borgaryfirvöldum vera alltof
loðin.
Magnús Bjarnason tók loks aftur
til máls og þakkaði fulltrúum borg-
aryfirvalda góð viðbrögð. „En hvers
vegna, ef allt er svona gott, em
báðir þessir vegir inni á borgar-
skipulagi," spurði hann. Fleiri tóku
til máls á fundinum, þ.á m. borgar-
fulltrúar bæði R-listans og Sjálf-
stæðisflokksins. Að lokum var kjör-
in starfsnefnd á fundinum til þess
að fylgjast með framgangi þessara
mála fyrir hönd íbúa Seljahverfis.
í henni eiga sæti Ólafur Dýrmunds-
son, Jónína Heiða Bjartmarz,
Magnús Bjarnason og Haukur Þór
Haraldsson.
Ármúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
Hafnarfjörður
Melabraut 19 (Suðurbrautarmegin)
Gott og bjart ca 550 fm iðnaðarhúsnæði með
góðri skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu.
Möguleiki að skipta húsnæðinu í smærri
einingar. Langtímaleiga kemur til greina. Til
afhendingar strax.
Niðurstaða fund-
arins liðsauki
fyrir borgarsljórn
„ÉG lít á niðurstöðu þessa fundar
sem liðsauka, sem við fáum í
borgarstjórn, við tillögu okkar um
að ofanbyggðarvegur verði flutt-
ur austur fyrir Vatnsendahvarf,"
sagði Guðrún Ágústsdóttir, borg-
arfulltrúi, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Við höfum verið í viðræðum
við bæði Kópavog og Vegagerð
ríkisins um þann flutning. Þar
lægi Arnamesvegurinn miklu bet-
ur í landi, yrði betri tenging og
að flestu leyti mun æskilegri leið.“
Guðrún segir að þessar viðræð-
ur séu í gangi og muni halda
áfram samhliða viðræðum við
fulltrúa íbúa í samráðshópnum
sem skipaður hafi verið í gær.
„Við getum einnig hugsanlega
látið Jaðarselið vera brotna línu
á aðalskipulaginu, sem hefði þá
þýðingu að það yrði ekki gert að
tengibraut á skipulagstímabil-
inu,“ sagði hún. „Þetta er vilji
borgarinnar; við erum að vinna
að málinu og vonandi næst nið-
urstaða í samræmi við það.“