Morgunblaðið - 30.05.1997, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Leikhópurinn Voff frumsýnir Af hveiju ég?
Blákaldar staðreyndir
um vímuefnaneyslu
LEIKHÓPURINN Voff, sem sam-
anstendur af unglingum úr Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri, frum-
sýnir leikritið Af hveiju ég? eftir
Aðalstein Bergdal í Dynheimum í
kvöld, föstudagskvöld, 30. maí kl.
20.30. Aðalsteinn er einnig leik-
stjóri og hannar leikmynd.
Leikritið varð til vegna tilmæla
íþrótta- og tómstundaráðs um að
koma umræðu um vímuefnamál inn
í leiklistarkennslu og má segja að
með þessu leikriti, sem og sýningu
á neðri hæð Dynheima, sé stigið
fyrsta skrefið að vímuefnalausum
skólum á Akureyri árið 2000, en
að því markmiði er stefnt.
Nöturleg saga
„Þetta er heldur nöturleg saga,
blákaldar staðreyndir um afleiðing-
ar vímuefnaneyslu sem ég byggi á
fjölmörgum viðtölum sem ég hef
átt við fyrrverandi og núverandi
neytendur vímuefna," segir Aðal-
steinn, en bætir við að ekki sé um
neina ítroðslu að ræða. Leikritið
gerist á sunnudagskvöldi til mánu-
dagsmorguns, sagan gerist á
keramikvinnustofu og segir frá
ungu fólki sem ánetjast hefur fíkni-
efnum. „Þetta er þrælerfitt verkefni
fyrir krakkana, það gengur mikið
á og heilmikið um sterkar tilfinning-
ar, það gerir miklar kröfur til þeirra
en þau standa sig ótrúlega vel,“
segir Aðalsteinn um leikhópinn.
I honum eru Jóhannes Gabríel
Rios Kristjánsson, Árni Már Val-
mundarson, Birgir Stefánsson,
Kartín Björk Sævarsdóttir, Hildi-
gunnur Magnúsdóttir, Katla Þor-
steinsdóttir, Anna Gunndís Guð-
mundsdóttir og Kristín Sigurðar-
dóttir en sýningarstjóri er Guðrún
íris Úlvarsdóttir.
Sýnt í grunnskólunum í haust
Leikritið verður sem fyrr segir
frumsýnt í kvöld, en einnig verða
sýningar á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Einungis verða þessar
þijár sýningar í bili, en ætlunin að
sýna verkið í öllum grunnskólum
bæjarins í haust. Þá er einnig gert
ráð fyrir að fara með það víðar,
jafnvel um allan fjórðunginn og í
raun segir Aðalsteinn að hægt sé
að fá sýninguna hvert sem er. Ung-
mennafélag íslands hefur þannig
falast eftir því að leikritið verði
sýnt á landsmóti í Borgarnesi í sum-
ar.
Morgunblaðið/Benjamín
ÞORSTEINN og Pálmi setja niður kartöflur við bæinn Gröf
í Eyjafjarðarsveit.
Vorverkin ganga vel í Eyjafjarðarsveit
*
Aburðardreifingin
leikur einn
KFUM og K
félagar
kveðja
Björgvin
KVEÐJUSAMKOMA fyrir Björg-
vin Jörgensson, stofnanda KFUM
og K á Akureyri, verður í félags-
heimili KFUM og K í Sunnuhlíð
næstkomandi sunnudag.
Björgvin er að flytja til Skaga-
strandar í byijun næsta mánaðar.
Hann hóf að undirbúa stofnun
KFUM á Akureyri í desember 1946
og var stofnfundurinn haldinn 5
árum síðar, 1. desember árið 1951.
Félagar í KFUM og K eru hvattir
til að mæta og taka þátt í kveðju-
samkomunni.
Helgi Hróbjartsson kristniboði
verður aðalræðumaður á samkom-
unni, sem og einnig á kristniboðs-
samkomum í kvöld, föstudagskvöld
og laugardagskvöld, en þá verða
haldnar samkomur kl. 20.30.
Ráðning skólasljóra við sameinaðan
barna- og gagnfræðaskóla
Meirihluti mælir með
Karli Erlendssyni
MEIRIHLUTI skólanefndar Ak-
ureyrar mælir með því að Karl
Erlendsson skólastjóri Þela-
merkurskóla verði ráðinn skóla-
stjóri við skóla sem verður til
við sameiningu Barnaskóla Ak-
ureyrar og Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar. Tveir umsækjendur
voru um stöðuna.
Jón Ingi Cæsarsson skóla-
nefndarmaður skilaði bókun þar
sem segir að það verkefni að
sameina tvo skóla á Brekkunni
geri miklar kröfur til hæfni og
verkstjórnarhæfileika hins nýja
skólastjóra og það sé sitt mat
að hvorugur umsækjenda stand-
Fjölskyldudag-
skrá á sjó-
mannadaginn
VIÐAMIKIL hátíðarhöld verða á
Akureyri í tengslum við sjó-
mannadaginn og verður lögð
áhersla á að gera dagskrána
skemmtilega bæði fyrir börn og
fullprðna.
Á laugardag verður róðrar-
keppni á Pollinum og hefst hún
kl. 13 við hús Slysavarnafélags-
ins við Strandgötu. Pylsuveisla
verður á svæðinu í boði Pizza
67 og þá verður boðið upp á
skemmtisiglingu fyrir börn í
Sæfara. Knattspyrnumót sjó-
manna verður í íþróttahúsi KA
og hefst það kl. 16. Golfmót sjó-
manna verður á Jaðarsvelli kl.
19. Götuleikhús verður á ferð-
inni.
Hátíðarguðsþjónustur verða í
Akureyrarkirkju og Glerárkirkju
kl. 11 á sjómannadaginn. Heiðr-
anir og athöfn við minnisvarða
sjómanna við Glerárkirkju verður
að lokinni messu.
Hátíðarhöld dagsins hefjast
kl. 13.30 á svæðinu við Odd-
eyrarbryggju. Steingrímur J.
Sigfússon, alþingismaður og for-
ist þær kröfur sem gerðar séu.
Lagði Jón Ingi til að leitað yrði
til núverandi skólastjóra um að
stjórna sameiningarferlinu
næsta skólaár og staðan auglýst
fyrir skólaárið 1998-1999.
í sameiginlegri umsögn kenn-
araráða skólanna kemur einnig
fram sú skoðun að hvorugur
umsækjenda hafi ekki nægilega
sterkar forsendur til að glíma
við þetta erfiða verkefni.
Á fundi skólanefndar var ein-
róma samþykkt að ráða Þorgerði
Guðlaugsdóttur aðstoðarskóla-
stjóra við Giljaskóla.
maður sjávarútvegsnefndar Al-
þingis, flytur hátíðarræðu.
Magnús Scheving bregður á leik
með börnunum, keppt verður um
Smugubikarinn, Götuleikhús
Akureyrar skemmtir og þyrla
Landhelgisgæslunnar sýnir
björgun.
Sjómannadansleikur verður í
íþróttahöllinni um kvöldið, Gísli
Rúnar Jónsson stjómar samkom-
unni, Skari Skrípó verður á
staðnum og Snörurnar taka létta
kántrýsveiflu. Hljómsveitin Pap-
ar leikur í aðalsal og PKK í kaf-
fiteríu á efri hæð.
Djassað í
Deiglunni
LOKAPUNKTUR djassnám-
skeiðs Sumarháskólans á Akur-
eyri verður í kvöld, föstudags-
kvöldið, 30. maí þegar haldnir
verða tónleikar í Deiglunni í
Grófargili.
Á tónleikunum koma fram
nemendur djassnámskeiðs Sum-
arháskólans en því stjórnaði Sig-
urður Flosason saxófónleikari.
Nemendurnir kynna afrakstur
námskeiðsins á tónleikunum sem
hefjast kl. 21 og er aðgangur
ókeypis.
Eyjafjarðarsveit. Morgnnblaðið.
EYFIRSKIR bændur hafa
stundað vorverkin af krafti síð-
astliðna viku þegar hlýnaði
verulega í veðri eftir alllangan
kuldakafla.
Áburðardreifing á tún stend-
ur nú sem hæst og nokkrir
hafa þegar lokið því verki, t.d.
Ytra-Laugalandsbændur sem
báru á 75 hektara á aðeins
tveimur dögum. Með notkun
stórsekkja sem taka 600 kíló
er áburðardreifingin leikur
einn miðað við gömlu aðferðina
þegar rogast þurfti með tólf
50 kílóa pokka til að fá sama
skammt í dreifarann. Enn eru
þó nokkrir bændur sem taka
áburðinn í litlum pokum sem
nú eru orðnir 40 kíló hver.
Nokkrir eru byrjaðir að setja
niður kartöflur og er það á
svipuðum tíma og í meðalári.
Grafarbændur, Þorsteinn
Ingólfsson og Pálmi
Þorsteinsson létu ekki sitt eftir
liggja í blíðunni um helgina og
komu útsæðinu niður.
Þorsteinn sagði að þetta væri
erfið búgrein, verð á kartöflum
til bænda væri afar lágt vegna
undirboða og offramleiðslu og
samstaða kartöflubænda væri
ekki mikil. „Þetta er gerlegt
þar sem þetta er aukabúgrein
hjá mér,“ sagði Þorsteinn en
hann býr einnig með kýr og
kindur.
IHi
iSÍliífSPll .. i jj, 1 n n lílli IPé gf ; <
ijliaii ■ ■wi
IIOTEL KEA
19 4 4
460 2000
NETFANG
SIMANUMER
NÚMERIN HAFA NÚ PEGAR VERIÐ TEKIN í NOTKUN
Hótel Ólafsfjörður
Sæunn Axels ehf. kaupir
ÓiafsfjiirOui', Morgunblaðið.
GENGIÐ var í gær frá samning-
um á kaupum Sæunnar Axels
ehf. á Hótel Ólafsfirði í Ólafs-
firði og var skrifað undir samn-
ing þess efnis milli fyrirtækisins
og Skeljungs sem var eigandi
hótelsins. Með þessum kaupum
er lokið löngum óvissukafla um
stöðu hótelmála í Ólafsfirði.
Bjartsýn á framhaldið
„Við munum reka hótelið á
eigin vegum, en olíusalan
verður rekin á vegum Skeljungs
þannig að það verður eins og
áður. Mér fannst ekki hægt að
horfa upp á þennan ónýtta
möguleika sem hótelið er,
einhver varð að taka af skarið.
Ég er ekki í vafa um að
reksturinn á hótelinu getur
gengið, öðruvísi værum við ekki
að fara út í þetta,“ sagði Sæunn
Axelsdóttir framkvæmdastjóri.
Sæunn sagði að hótelið og
söluskálinn yrði opnað sem
allra fyrst og sagðist hún líta
björtum augum á framhaldið.