Morgunblaðið - 30.05.1997, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FLUGSTÖÐIN í Vestmannaeyjum sem ráðgert er að endurbæta og stækka á næstunni.
Endurbætur gerðar á
Flugstöðinni í Eyjum
Vestmannaeyjum - Unnið er að
hönnun endurbóta og stækkunar á
flugstöðinni í Vestmannaeyjum.
Árni Johnsen, alþingismaður og
flugráðsmaður, segir að þörf hafí
verið orðin á að gera endurbætur á
flugstöðinni þar sem brýnt viðhald
liggur fyrir og eins vegna þess mikla
fjölda sem fer um flugvöllinn á ári,
þar sem flugstöðin í núverandi mynd
annaði engan veginn þeim fjölda.
Hefði framkvæmdin verið samþykkt
í flugráði og staðfest í samgöngu-
nefnd Alþingis.
Árni sagði að Þorgeir Pálsson,
flugmálastjóri, Haukur Hauksson,
varaflugmálastjóri, Jóhann Jónsson,
framkvæmdastjóri flugvalla, og
Bjami Snæbjömsson, arkitekt,
hefðu verið á ferð í Eyjum fyrir
skömmu til að skoða flugstöðina og
leggja línur varðandi endurbætum-
ar. Ámi sagði að endurbæturnar
felist aðallega í því að lagfæra það
sem þarfnaðist viðhalds og eins verði
reynt að aðgreina svæði fyrir komu-
og brottfararfarþega. Hann sagði að
í Vestmannaeyjum væri það talsverð
sérstaða hversu margir tækju á
móti og fylgdu til brottfarar hveijum
farþega sem um völlinn færi, þannig
að reikna mætti með að umferð um
flugstöðina væri þrefaldur farþega-
fjöldi um flugvöllinn.
Árni sagði að samráð hefði verið
haft við talsmenn Flugleiða, ís-
landsflugs og Flugfélags Vest-
mannaeyja um hvernig best yrði
staðið að breytingunum. Arkitekt-
inn væri nú að vinna úr þeim línum
sem gefnar hefðu verið og trúlega
yrði niðurstaðan bæði breyting á
innra skipulagi og stækkun flug-
stöðvarinnar.
Árni sagði að fleiri framkvæmdir
væru einnig á döfinni við Vest-
mannaeyjaflugvöll því ákveðið
hefði verið að auka tækjabúnað
vallarins enn frekar og setja upp
ný ljós á völlinn sem gæfu öflugri
lýsingu en þau ljós sem fyrir væru.
Ljós sett á
Bakkaflugvöll
Vestmannaeyjum - Unnið er að
uppsetningu ljósabúnaðar á báðar
flugbrautir Bakkaflugvallar og er
reiknað með að verkinu ljúki á
næstu tveirnur til þremur vikum.
Að sögn Árna Johnsen, alþingis-
manns, sem sæti á í flugráði gjör-
breytir ljósabúnaðurinn nýtingu
vallarins.
Bakkaflugvöllur er í dag sjötti
fjölfamasti flugvöllur landsins í inn-
anlandsflugi, en 15.000 til 20.000
farþegar fara um hann á ári. Árni
sagði að mest umferð hefði verið
um hann yfir sumartímann enda
hefði til þessa ekki verið hægt að
lenda á vellinum í skammdeginu
eftir að birtu tekur að bregða. Með
uppsetningu Ijósabúnaðarins yrði
breyting á þessu sem örugglega
myndi þýða enn frekari umferð um
völlinn.
Ljósabúnaðurinn sem verið er að
setja á Bakkaflugvöll kemur af flug-
vellinum á Hornafirði en þar hafa
verið sett ný ljós vegna nýrra krafna
varðandi flugvöllinn þar. Ljósin voru
síðan yfirfarin og gerð upp áður en
uppsetning þeirra hófst á Bakka.
Bakkaflugvöllur er í umsjá flug-
málastjórnar og þar er umsjónar-
maður vallar í hlutastarfi árið um
kring. Tvær brautir eru á Bakka-
flugvelli, austur-vesturbraut sem er
1100 metrar og norður-suðurbraut
sem er um 700 metrar. Flugskýli
hefur verið reist við flugvöllinn og
radíóhús verður byggt utan um
tækjabúnað þann sem nú kemur á
völlinn.
Árni sagði að flug milli Bakka
og Vestmannaeyja yrði sífell vin-
sælli kostur hjá þeim sem ferðuðust
milli lands og Eyja. Vegur niður að
Bakkaflugvelli hefði ekki verið nógu
góður til þessa en vonir stæðu til
að það breyttist fljótlega. Nú þegar
væri búið að setja slitlag á helming
vegarins og unnið væri að því að
fá fjármagn til að stytta þann spotta
sem eftir væri og að leggja slitlag.
Með breytingu á veginum myndi
leiðin niður að vellinum styttast um
einn kílómetra og sagðist Árni gera
sér vonir um að ráðist yrði í þær
framkvæmdir fljótlega.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
UNNIÐ að lagningu Ijósabúnaðar á Bakkaflugvelli.
Góð gjöf
Hornafirði - Endurlífgunarbún-
aður var gefinn til sundlaugar-
innar á Höfn af 11 félagasamtök-
um, Björgunarfélagi Hornafjarð-
ar, Kvenfélagasambandi Austur-
Skaftafellssýslu, Kvenfélögunum
i Oræfum, Suðursveit, Mýrum,
Nesjum og á Höfn, Kiwanis-
klúbbnum Ósi, Lionsklúbbunum
á Höfn og Slysavarnadeildinni
Framtíðinni.
Búnaðurinn er Weinmann
endurlifgunarbúnaður með súr-
efni, Ferno Dura bakborð fyrir
sundlaugar og NecLoc hálskrag-
ar. Með þessari höfðinglegu gjöf
fylgdi sú ósk um að tæki þessi
komi að sem bestum notum ef
slys ber að höndum og einnig við
þjálfun og kennslu í endurlífgun
og sjúkrameðhöndlun.
Morgunblaðið/Sigrun Svembjomsdóttir
GEFENDUR búnaðarins auk Magnúsar Jakobssonar starfsmann sundlaugarinnar og Onnu Sigurðar-
dóttur bæjarstjóra og Hauks Þorvaldssonar æskulýðs- og íþróttafulltrúa Hafnar.
Besta aðal-
einkunn
gefin
Egilsstöðum - Héraðsprent á Eg-
ilsstöðum útskrifaði í fyrsta skipti
tvo prentsveina. Það er jafnframt
í fyrsta sinn sem slíkir sveinar
útskrifast úr prentsmiðju á Austur-
landi.
Sveinarnir eru Valur Einarsson
og Gunnhildur Ingvarsdóttir en
hún rekur Héraðsprent ásamt
manni sínum, Þráni Skarphéðins-
syni. Valur og Gunnhildur fengu
bæði 9,1 í aðaleinkunn en það er
hæsta meðaleinkunn sem gefín
hefur verið í þessari grein frá upp-
hafi. Það var Rafn Arnason, for-
maður prófnefndar, sem afhenti
þeim prófskírteinin.
Morgunblaðið/Albert Kemp
KRAKKARNIR á Ieikskólanum Kærabæ sungu
og léku á árshátíðinni.
Árshátíð
Leikskólans
Kærabæjar
Fáskrúðsfirði - Árshátíð Leikskól-
ans Kærabæjar á Fáskrúðsfirði
var haldin í félagsheimilinu Skrúð
laugardaginn 24. maí sl.
A árshátíðinni sungu börnin og
fóru í ýmsa leiki. Einnig voru til
sýnis myndir eftir börnin og var
það jafnframt sölusýning. Húsfyll-
ir var og var boðið upp á kaffi
og vöfflur til styrktar starfsemi
skólans. Krökkunum sem nú eru
að kveðja skólann voru afhent við-
urkenningarskjöl af forstöðukon-
unni Hallveigu Ingimarsdóttur.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
GUNNHILDUR Ingvarsdóttir og Valur Einarsson, nýútskrifaðir
prentsveinar, ásamt Rafni Árnasyni, formanni prófnefndar.
(
t
L
í
t
C
t
t
c
L
c
4
C;
4
<
i
\i
i
i
fi
\ i
i
i
((
i