Morgunblaðið - 30.05.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 19
Nýtt mat á stöðu
ýmissa hvalastofna
SJÖUNDI fundur NAMMCO, Norð-
ur-Atlantshafssjávarspendýraráðs-
ins, stendur nú yfir á Hotel Föroyar
í Þórshöfn. Sitja hann fulltrúar frá
Færeyjum, Grænlandi, íslandi og
Noregi auk áheyrnarfulltrúa frá
Kanada, Danmörk, Japan og Rúss-
landi og fulltrúa ýmissa alþjóðlegra
samtaka.
Einn megintilgangur NAMMCO
er að stuðla að verndun, skynsam-
legri nýtingu og rannsóknum á sjáv-
Síldveiðar
Norðmanna
ganga hægt
Osló. Morgunblaðið.
NORÐMENN hafa enn ekki
náð að veiða helming síldar-
kvóta síns á þessu ári. Slæmt
veðurfar hefur valdið því að
afli þeirra er aðeins orðinn
310.000 tonn og því standa
eftir um 540.000 tonn. Gert er
ráð fyrir að það veiðist ekki
fyrr en með haustinu. Norsku
síldarverksmiðjurnar eiga í erf-
iðleikum með að taka á móti
miklu af síld í einu til manneld-
is og því er ljóst að töluverður
hluti fer til bræðslu.
arspendýrum í Norður-Atlantshafi.
Fyrir fundinn nú verður lögð skýrsla
vísindanefndar ráðsins en veiði-
stjórnunamefndin, sem gerir tillögur
um vemdun, nýtingu og vísindalegar
rannsóknir, mun skila sínu áliti beint
til ráðsins.
Halvard P. Johansen, formaður
NAMMCO, setti fundinn en einnig
ávarpaði John Petersen, sjávarút-
vegsráðherra í Færeyjum, fundar-
menn að loknum þriðja ársfundi
sjávarútvegsráðherra ríkjanna við
Norður-Atlantshaf. Var sá fundur
einnig haldinn í Þórshöfn og sjávar-
útvegsráðherrar NAMMCO-ríkjanna
verða því viðstaddir setningu
NAMMCO-fundarins.
Fjallað um grindhvalinn
Eitt aðalmál fundarins er skýrsla
vísindanefndarinnar um nýtt mat á
stöðu ýmissa hvalastofna í Norður-
Atlantshafi. Þar er meðal annars
fjallað um grindhvalinn og áhrif
veiða Færeyinga á stöðu stofnsins;
um áhrif hrefnu og sels á stöðu
ýmissa mikilvægra fiskstofna og um
þann þátt, sem selurinn á í út-
breiðslu hringorms í fiski.
Meðal þess, sem er á dagskrá
veiðistjórnunarnefndarinnar, eru
áætlanir um að NAMMCO-ríkin
skiptist á eftirlitsmönnum sín í milli.
Ákvörðun um fisk-
aflann í næstu viku
ÁKVÖRÐUNAR sjávarútvegsráð-
herra um leyfilegan afla helztu
fisktegunda á íslandsmiðum næsta
fiskveiðiár er að vænta i næstu
viku. Ráðherrann mun funda með
helztu hagsmunaaðilum áður en sú
ákvörðun verður tekin. Ljóst er að
leyfilegt þorskaflamark verður
218.000 tonn eins og lagt er til af
Hafrannsóknastofnun, enda er það
í samræmi við ákvörðun stjórn-
valda frá því fyrir tveimur árum,
að aldrei verði veitt meira úr þorsk-
stofninum en 25% af meðalstærð
veiðistofns hverju sinni. Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra segir
að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
byggist einfaldlega á ákvörðun
stjórnvalda um aflaregluna svoköll-
uðu og því verði leyfilegur þorskk-
vóti eins og áður segir 218.000
tonn.
Að öðru leyti segir Þorsteinn að
slík aflaregla gildi ekki um aðrar
fisktegundir, en hann muni að öll-
um líkindum fara í meginatriðum
að tillögum Hafrannsóknastofnun-
ar um hámarksafla.
Morgunblaðið/Þorsteinn Kristjánsson
NÚ ER farið að síga á seinni hluta síldveiðanna. Huginn VE á því, eins og önnur skip
aðeins eftir eina veiðiferð.
Síldveiðar takmarkaðar
við eina veiðiferð á skip
SÍLDVEIÐAR íslenzku skipanna
úr norsk-íslenzka stofninum gengu
illa síðasta sólarhringinn en í gær
var aflinn kominn rúmlega
180.000 tonn. Leyfilegur heildar-
afli er 233.000 tonn. Alls hefur
51 skip landað síld nú í maí og
er Júpíter ÞH aflahæstur. Sjávar-
útvegsráðuneytið hefur nú gefið
út reglugerð þess efnis að veiðarn-
ar verði takmarkaðar við eina
veiðiferð á skip eftir mánaðamótin.
Samkvæmt reglugerðinni falla
leyfi þeirra síldarbáta, sem landað
hafa síld á yfirstandandi vertíð,
niður þegar við næstu löndun eftir
31. maí næstkomandi. Leyfi þeirra
báta, sem ekki hafa landað síld á
þessari vertíð, falla niður frá og
með 1. júní. Með reglugerðinni er
Um 50.000 tonn
óveidd af leyfileg-
um heildarafla
stefnt að því að hvert skip, sem
farið hefur til síldveiða á vertíð-
inni, geti farið eina veiðiferð eftir
sjómannadag, sem er næsta
sunnudag. Þær upplýsingar, sem
liggja fyrir um afla og burðargetu
síldarflotans, benda til þess að
mjög fari nærri því, að leyfilegur
heildarafli íslands náist með einni
veiðiferð þeirra skipa, sem tekið
hafa þátt í veiðunum til þessa.
Upphaflega sóttu rúmlega 92
skip um leyfi til síldveiðanna og
fengu flest leyfi. Aðeins 51 skip
hefur nýtt sér leyfið og því ljóst
að 40 skip af þeim, sem sóttu um,
munu ekki nýta sér þessa veiði.
6 verksmiðjur með
meira en 10.000 tonn
Sex fiskimjölsverksmiðjur höfðu
um miðja vikuna tekið á móti meiru
en 10.000 tonnum af sfld. SR-Mjöl
á Seyðisfirði hefur tekið á móti
langmestu, um 33.000 tonnum,
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði með
rúm 20.000, Síldarvinnslan í Nes-
kaupstað með 19.600, Hraðfrysti-
hús Eskifjarðar er með tæp 19.000
tonn, Hraðfrystistöð Þórshafnar
með 12.300 tonn tæp og SR-Mjöl
Raufarhöfn með tæp 12.000 tonn.
NÓATÚN
til hamingju
með Sjómannadaginn!
NOATUN
Verslanir Nóatúns eru opnar
tll kl. 21, öll kvöld.
NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERHOLT! 6, MOS. • JL-HÚSIVESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68