Morgunblaðið - 30.05.1997, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Franskir hægrimenn áhyggjufullir vegna þingkosninganna
Leotard gagnrýnir
„draumalið“ Chiracs
Paris. Reuter.
FRANSKIR hægrimenn virtust í
gær hafa áhyggjur af gangi kosn-
ingabaráttunnar eftir að Francois
Leotard, leiðtogi eins af stjórnar-
flokkunum, gagnrýndi þá ákvörðun
Jacques Chirac forseta að reyna að
snúa vörn í sókn með því að leiða
saman gaullistann Philippe Seguin,
sem þykir hallur undir ríkisforsjá,
og fijálshyggjumanninn Alain Mad-
elin. Með því að bjóða upp á þetta
nýja „draumalið" er markmiðið að
sætta andstæð sjónarmið innan
stjórnarflokkanna og gert er ráð
fyrir því að Seguin verði forsætisráð-
herra og Madelin fjármálaráðherra
haldi mið- og hægriflokkarnir velli
í kosningunum.
Alain Juppe, fráfarandi forsætis-
ráðherra Frakklands, varaði við því
í gær að vinstriflokkamir gætu borið
sigurorð af mið- og hægriflokkunum
í síðari umferð frönsku þingkosning-
anna á sunnudag eftir að hafa unnið
óvæntan sigur í fyrri umferðinni.
Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista,
virtist á hinn bóginn bjartsýnni en
áður á að vinstriflokkarnir kæmust
til valda og ræddi einkum til hvaða
aðgerða hann myndi grípa fyrst ef
hann yrði næsti forsætisráðherra
landsins.
„Ruglingur og ringulreið"
Juppe sagði í útvarpsviðtali að
franskir kjósendur yrðu að gera sér
grein fyrir hættunni á sigri vinstri-
flokkanna. Hann bætti þó við að
mjótt væri á munum og hægriflokk-
arnir gætu einnig staðið uppi sem
sigurvegarar. Hann neitaði því að
óttinn við ósigur væri að buga mið-
og hægriflokkana, sem höfðu 464
þingsæti af 577 þegar Jacques
Chirac forseti ákvað að flýta kosn-
ingunum.
Jospin sagði í viðtali við daglaðið
Le Monde að sigur vinstriflokkanna
væri ekki enn í höfn en bætti við
að kosningabarátta hægriflokkanna
einkenndist af „ruglingi og ringul-
reið“. Hann kvaðst ekki telja að
hægriflokkarnir gætu snúið vörn í
sókn eftir ósigurinn í fyrri umferð
kosninganna.
Jospin sagði í viðtali við dagblaðið
Sud Ouest að ef hann kæmist til
valda yrði mynduð stjórn, sem end-
urspeglaði hin ýmsu sjónarmið innan
bandalags sósíalista, kommúnista og
græningja. Fyrsta verk sitt yrði að
boða til viðræðna í næsta mánuði
um styttingu vinnuvikunnar til að
draga úr atvinnuleysinu og takmark-
aðar launahækkanir til að auka
kaupmátt launþega og blása lífi í
efnahaginn. Síðan hygðist hann
leggja fram fjárlagafrumvarp þar
sem áhersla yrði lögð á baráttuna
gegn atvinnuleysi, menntun og vís-
indi. Þriðja verkefnið yrði að ræða
við leiðtoga ríkja Evrópusambands-
ins um skilyrði sem hann setur fyrir
aðild Frakka að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu, EMU.
„Frjálslyndur lævirki og
sósíalískt hrossakjöt"
Juppe sagði að Seguin og Madelin
myndu vinna vel saman þar sem
þeir væru á sama máii í öllum höfuð-
atriðum en Jospin lýsti þessu tvíeyki
sem „furðulegum brandara“.
Seguin er forseti þingsins, barð-
ist áður gegn Maastricht-sáttmál-
anum og auknum efnahagslegum
samruna ESB-ríkjanna og vill að
baráttan gegn atvinnuleysi gangi
fyrir sparnaðaraðgerðum sem nauð-
synlegar eru til að Frakkar geti
gengið í EMU. Madelin, sem er fyrr-
verandi fjármálaráðherra, er hins
vegar fijálshyggjumaður og harður
stuðningsmaður samruna ESB-ríkj-
anna í efnahags- og peningamálum.
Francois Leotard, fyrrverandi
varnarmálaráðherra og leiðtogi eins
af stjómarflokkunum, UDF, var lítt
hrifinn af þessu tvíeyki og lýsti því
sem böku þar sem blandað væri
saman „fijálslyndum lævirkja og
stórum skammti af sósíalísku
hrossakjöti". „Slíkt er ekki boð-
legt... við verðum að velja á milli
þeirra. Við erum ef til vill í þessari
stöðu nú vegna þess að við höfum
ekki gert upp hug okkar síðustu tvö
árin,“ bætti hann við.
Frambyggj-
ar krefjast
skaðabóta
UNGIR drengir úr hópi
ástralskra frumbyggja, málaðir
að hefðbundnum sið, hefja dans
við opnun menningarseturs
frumbyggja í Katherine Gorge,
300 km suður af borginni Darw-
in. Fjöldi frumbyggja hefur far-
ið í mál við ástralska ríkið og
krafist skaðabóta vegna þess að
þeir voru teknir nauðugir frá
foreldrum sínum og aldir upp
þjá fósturforeldrum. Var þessi
stefna við lýði frá 1880 og fram
á sjöunda áratuginn. Yfirmaður
mannréttindaskrifstofu landsins
hvatti í gær kirkjur og sveitarfé-
lög til að stofna sjóði til að að-
stoða frumbyggjana, töpuðu
þeir málinu gagnvart hinu opin-
bera.
Reuter
Stækkun ESB
Þýski seðlabankinn gagnrýnir áform um endurmat gullbirgða
Akvörðun-
ar ekki að
vænta í ár
Búdapest. Reuter.
ÓLÍKLEGT er að Evrópusambandið
taki ákvörðun um það á þessu ári
hvaða ríkjum skuli boðið til form-
legra viðræðna um aðild að sam-
bandinu. Þetta upplýsti háttsettur
embættismaður framkvæmda-
stjórnar ESB á alþjóðlegri ráðstefnu
í Búdapest á þriðjudag.
Framkvæmdastjómin stefnir að
því að leggja ráðleggingar sínar um
hvaða ríkjum skuli boðið til aðildar-
viðræðna fyrir ráðherraráðið og
Evrópuþingið um miðjan júlí næst-
komandi, en gera má ráð fyrir að
ferlið sem málið þarf að ganga í
gegn um hjá þessum stofnunum
áður en samkomulagi um endanlega
ákvörðun er náð taki að minnsta
kosti hálft ár.
„Við þau ríki, sem ákveðið verður
að hefja aðildarviðræður við, ættu
viðræður að geta hafizt á fyrri árs-
helmingi 1998,“ sagði Paolo Cla-
rotti, ráðgjafi framkvæmdastjóm-
arinnar um málefni ríkja Mið- og
Austur-Evrópu, á ráðstefnu um al-
þjóðavæðingu fjármagnsmarkaða í
Búdapest.
Clarotti sagði viðræðurnar sjálfar
geta tekið a.m.k. tvö ár, og eftir
að boð um aðild hefur verið sam-
þykkt mun staðfesting aðildar nýrra
aðildarríkja hjá þjóðþingum gömlu
aðildarríkjanna og Evrópuþinginu
teygja þetta ferli fram yfir árið
2002. „Ég tel því árið 2002 vera
bjartsýnustu spá,“ sagði Clarotti.
Telja endurmatið grafa
undan styrk evrósins
Bonn. Reuter, The Daily Telegraph.
AUKIN óvissa ríkir á fjármála-
mörkuðum í Evrópu um styrk hins
nýja sameiginlega gjaldmiðils,
evrósins, eftir að þýski seðlabank-
inn, Bundesbank, gagnrýndi harð-
lega áform Theos Waigel, fjármála-
ráðherra.Þýskalands, um að endur-
meta gullbirgðir bankans. Þannig
hyggst Waigel létta undir með rík-
issjóði til að eiga auðveldara með
að uppfylla skilyrði fyrir þátttöku
í Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU.
Sérfræðingar sögðu ekki ósenni-
legt að annað hvort yrði gildistöku
EMU frestað eða þá að aðildarríkin
yrðu fleiri í upphafí og evróið veik-
ara. Á gjaldeyrismörkuðum minnk-
aði eftirspum eftir gjaldmiðlum
ríkja Evrópusambandsins og dollar-
inn styrktist.
Pólitískt
uppnám
Þýsk stjömvöld hafa í umræðunni
um EMU hampað þýska seðlabank-
anum og bent á hann sem dæmi
um sjálfstæðan seðlabanka, er taki
ekki við fyrirmæli frá stjórnmála-
mönnum. Örfáum mínútum eftir að
seðlabankinn greindi frá því á mið-
vikudag að hann væri andvígur
áformum um endurmat gullbirgða
og liti á slíkt sem atlögu við sjálf-
stæði sitt, lýsti Kohl því yfir að
endurmatið skyldi engu að síður
fara fram. Stefna Kohl og Waigel
að því að seðlabankinn endurgreiði
EVRÓPA^
ríkinu 20 milljarða marka í kjölfar
endurmatsins.
Áform ríkisstjórnarinnar hafa
valdið pólitísku uppnámi í Þýska-
landi og svo virðist sem hugmyndir
um endurmat gullforðans eigi litlu
fylgi að fagna í Þýskalandi. Jafnað-
armenn hafa þegar krafist þess að
Theo Waigel segi af sér sem fjár-
málaráðherra. „Hegðun stjórnar-
innar ógnar því sem við þurfum
mest á að halda, alþjóðlegum trú-
verðugleika,“ sagði Rudolf Scharp-
ing, leiðtogi jafnaðarmanna á þingi.
Hið áhrifamikla síðdegisblað Bild
sagði ríkisstjómina og seðlabank-
ann stefna í harðan árekstur og
óljóst væri hvaða afleiðingar það
hefði. Hins vegar væri öruggt að
einhver myndi hverfa sár af vett-
vangi. Blaðið sagði að sú harka sem
Þjóðveijar hefðu sýnt öðrum ESB-
ríkjum til þessa þegar Maastricht-
skilyrðin væru annars vegar, myndi
nú koma þeim í koll.
Dagblaðið Die Welt sagði í for-
ystugrein að seðlabankinn yrði að
andmæla hástöfum til að viðhalda
trúverðugleika sínum á erlendum
peningamörkuðum. Bankinn væri
að reyna að líma saman postulínið
er ríkisstjórnin hefði mölvað.
EMU í hættu?
Kohl hefur lagt ofurkapp á að
Þýskaland uppfylli skilyrði
Maastricht-sáttmálans fyrir þátt-
töku í EMU, þannig að hægt verði
að hrinda áformunum í framkvæmd
árið 1999, líkt og ákveðið hefur
verið. í skilyrðunum felst m.a. að
fjárlagahalli megi ekki vera meiri
en 3% af vergri landsframleiðslu og
opinberar skuldir ekki meiri en 60%.
Telja fréttaskýrendur að með deil-
unni við seðlabankann hafi Kohl
veikt stöðu sína verulega og auknar
líkur séu á að hann muni bíða ósig-
ur í kosningum á næsta ári. Breska
blaðið The Daily Telegraph segir
að varðandi almenningsálitið hefði
það eina er hefði getað komið sér
verr fyrir kanslarann, verið ásökun
um kynferðislega misnotkun á börn-
um. Slíkt sé mikilvægi sjálfstæði
seðjabankans í hugum fólks.
Áform þýsku stjómarinnar hafa
jafnframt vakið upp spurningar í
fjármálaheiminum um það, hvernig
EMU verði framkvæmt. Túlka
margir þetta sem vísbendingu um
að Maastricht-skilyrðin verði ekki
túlkuð þröngt og því gætu jafnvel
gjaldmiðlar á borð við ítölsku lír-
una, sem ekki er þekkt fyrir stöðug-
leika, verið með frá upphafi. Að
mati margra myndi þetta þýða að
evróið væri dauðadæmt frá upphafi.
Fylgni
sögð milli
mengunar
og glæpa
MENGAÐ vatn getur valdið
heilaskemmdum sem breyta
venjulegu fólki í ofbeldisfulla
glæpamenn, samkvæmt grein
sem tímaritið New Scientist
birti í gær. Greinarhöfundur-
inn, Roger Masters, við
Dartmouth-háskóla í New
Hampshire, bar saman töl-
fræðilegar upplýsingar um
glæpi frá bandarísku alríkis-
lögreglunni FBI og upplýs-
ingar umhverfisverndarstofn-
unarinnar EPA um blý- og
manganmengað vatn. Hann
komst að þeirri niðurstöðu að
skýr fylgni væri á milli meng-
unarinnar og tíðni morða, al-
varlegra líkamsárása og rána.
Glæpatíðnin væri þrefalt meiri
en meðaltalið í Bandaríkjunum
á svæðum þar sem mengunin
væri mest. „Mengunin er þar
stór þáttur ásamt fátækt,“
sagði Masters.
Blair sagður
leita ráðgjaf-
ar Thatcher
BRESKA blaðið The Sunday
Times hélt því fram um síð-
ustu helgi að Thatcher baró-
nessa og fyrrverandi forsætis-
ráðherra
Bretlands
hefði rætt við
Tony Blair
forsætisráð-
herra á laun
og veitt hon-
um ráð um
það hvernig
hann ætti að
spjara sig á annasömum og
mikilvægum fundum, sem
framundan eru á alþjóðlegum
vettvangi.
i blaðinu sagði að Blair
hefði boðið Thatcher í Down-
ing-stræti á fimmtudag í lið-
inni viku. Embættismaður einn
sagði að það væri sannarlega
athyglisvert að stjóm Verka-
mannaflokksins skyldi leita
ráða hjá henni eftir að hafa
verið aðeins þrjár vikur við
völd, en í þau sjö ár, sem
flokksbróðir hennar, John
Major, sat í Downing-stræti
hefði hún vart sést þar.
Guðlastdóm-
ur staðfestur
EGYPSKUR dómstóll hefur
hafnað beiðni rithöfundarins
Alaa Hameds um að hnekkja
dómi frá árinu 1992 vegna
bókar sem þótti full af guð-
lasti og klámi. Rithöfundinuin
hafði verið gert að greiða sekt
og öll eintök bókarinnar voru
gerð upptæk.
Dylan með
váfumyglu
BANDARÍSKRI rokktónlist-
armaðurinn Bob Dylan hefur
frestað Evrópuferð sinni vegna
hjartasýkingar. Hann var lagð-
ur inn á sjúkrahús í New York
um síðustu helgi með mikla
verki fyrir bijósti. Er Dylan
með váfumyglu; sýkingu í goll-
urshúsi og vefjum umhverfís
hjartað, sem veldur bólgu og
getur verið lífshættuleg.