Morgunblaðið - 30.05.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 23
ERLENT
Dóttir Fidels Castro birtir endurminningar sínar
Gat aldrei kallað Fidel pabba
Alina Fernandez, dóttir einræðisherrans Fidels Castro,
kveðst hafa veríð vanrækt í æsku og sakar föður sinn
um að hafa stórskaðað kúbönsku þjóðina.
Malaga. Morgunblaðið.
HÚN kýs enn að bera nafn mannsins sem hún
taldi að væri faðir sinn, allt þar til hún var
tíu ára gömul þegar móðir hennar upplýsti
hana um að hún væri dóttir hins almáttuga
Fidels Castro, einræðisherra kommúnista-
stjórnarinnar á Kúbu. Þá tók hún þessum tíð-
indum fagnandi, 25 árum síðar flúði hún þessa
„paradís" sem faðir hennar hafði skapað eftir
að hafa gerst einn helsti gagnrýnandi hans.
Nú hefur hún ritað endurminningar sínar, sem
komu út á dögunum og nefnist bókin „Alina.
Endurminningar hinnar uppreisnargjörnu
dóttur Fidels Castro“. (Á spænsku „Alina.
Memorias de la hija rebelde de Fidel Castro“.)
Alina Fernandez hefur búið í Bandaríkjunum
frá því hún flúði frá Kúbu árið 1993. Síðustu
mánuðina hefur hún hins vegar haldið sig í
Barcelona á Spáni þar sem hún hefur unnið
að ritun endurminninga sinna. Þetta er fremur
bitur og vansæl kona, ef marka má viðtal við
hana sem birtist í helgartímariti dagblaðsins
E1 País og því fer fjarri að hún hafi sætt sig
við stjórnarfar og framgöngu föður síns, sem
nú fyllir hóp lífseigari einræðisherra.
Hin vanrækta dóttir Guðs
Móðir Alinu, Nati Revuelta, var gift læknin-
um Orlando Fernandez þegar hún kynntist
Castro árið 1953. Fernandez fór úr landi er
Alina var aðeins fjögurra ára en það var ekki
fyrr en sex árum síðar sem móðir hennar
skýrði henni frá því að hinn skeggjaði leiðtogi
byltingarinnar á Kúbu væri faðir hennar. „Eg
varð mjög glöð. Það var sem ég væri dóttir
Guðs,“ segir Alina í fyrrnefndu viðtali.
Hún kveðst hafa verið öldungis vanrækt í
æsku. Móðir hennar hafi verið algjörlega blind
í dýrkun sinni á Castro, líkt og aðrir Kúbanir
á þessum árum. Munurinn sé hins vegar sá
að móðir hennar hafi enn ekki séð í gegnum
blekkingarvefinn sem umlyki allt þjóðfélagið
þar. Hún segist aldrei hafa getað leitað til föð-
ur síns enda sé hann ekki fær um að elska eða
opinbera tilfinningar sínar. „Ég tel að Fidel sé
ófær um að elska, í hans tilfelli er frekar um
að ræða stolt og þörfina fyrir að ráða. Ég get
ekki sagt að hann hafi sýnt mér ástúð.“
Naut ekki forréttinda
Hún segist aldrei hafa getað kallað föður
sinn „pabba“. „Aldrei. Ég hef aldrei kallað
Fidel pabba. Ég gat það ekki, hann hafði
komið of illa fram við allof marga.“
Alina kveðst ekki hafa notið beinna forrétt-
inda af neinum toga á Kúbu þótt alþýða manna
þar hafi almennt litið svo á að sú hlyti að vera
raunin. Hún hafi aldrei haft lífverði eða notið
þjónustu bílstjóra. Hins vegar hafi líf hennar
breyst mjög eftir að opinberað hafi verið að
hún væri dóttir einræðisherrans. Viðmót ai-
mennings hafí breyst og sú reynsla hafí verið
miður geðsleg; menn hafi ýmist gerst smeðju-
legir eða sýnt henni fyrirlitningu. Margir hafi
reynt að nýta sér hana til að koma persónuleg-
um erindum eða beiðnum til Castros.
Þegar hún hafði náð þroska og gert sér ljóst
að faðir hennar var æðsti ráðamaður raunveru-
legrar einræðisstjórnar reis hún upp gegn
honum. Hún tók að gagnrýna stjórnarhætti
hans, einkum í samtölum við erlenda blaða-
menn. Faðir hennar virðist hafa ákveðið að
líða henni þetta en flestir sem hún talaði töldu
hana geggjaða. „Ég var eina manneskjan á
Kúbu sem mátti opinbera skoðanir mínar.“
Kaldlyndur og valdasjúkur
Sögur þær sem hún hefur að segja af föður
sínum bregða hins vegar upp mynd af manni,
sem virðist öldungis gagntekinn af valdafíkn
og virðingarleysi fyrir öðrum. Þá benda frá-
sagnir hennar til þess að Castro sé maður
fremur kaldlyndur. „Móðir þín hefur einn galla,
hún er of góð,“ sagði hann einhveiju sinni.
„Vertu aldrei góð við nokkurn karlmann,"
bætti hann við.
Þegar Alina hugðist kvænast öðru sinni leist
föður hennar ekki á þann ráðahag vegna þess
að eiginmaðurinn tilvonandi var lögreglumað-
ur. „En hann er í lögregluliði þínu,“ sagði hún.
„Já en hann er líka nauðgari og enginn breyt-
ir sjálfum sér svo að heitið geti,“ bætti faðirinn
við og sagði dóttur sinni sögu máli sínu til stuðn-
ings. „Maður einn hugðist vinna gegn mér,
honum mistókst og við sendum hann í fangels-
ið. Á meðan hann sat inni, sá ég um fjölskyldu
hans, börnin hans. En þetta þjónaði engum
tilgangi því þegar honum var sleppt úr fang-
elsi hélt hann áfram þar sem frá var horfið.“
„Hóf hann á ný að beijast gegn þér?“ spurði
dóttirin. „Nei en við náðum honum þegar hann
reyndi að flýja land,“ var svarið.
Heilli kynslóð fórnað
Dóttir Castros kveðst aldrei hafa liðið vel
í heimalandi sínu. Heilli kynslóð Kúbana hafi
verið fómað á altari byltingarinnar. Síðustu
40 árin hafi þar vaxið úr grasi kynslóð sem
ekki þekki neitt annað en „tilbúna alsælu“
byltingarandans, „geggjaðar framleiðsluáætl-
anir“ og sjálfboðavinnu.
Alina segist hafa gerst andstæðingur föður
síns af pólitískum ástæðum en ekki sökum
þess að hann hafí vanrækt hana. Castro hafi
skaðað kúbönsku þjóðina og ekki verði séð að
byltingin eða stjóm hans hafi getið af sér neitt
það sem talist geti jákvætt. „Ég tel að það sé
Digital Press
ALINA Fernandez, landflótta dóttir
Fidels Castro, talar á blaðamannafundi
í New York.
skylda stjórnvalda að gæta hagsmuna fólksins
í landinu. Og það hefur hann ekki gert.“
Hamslaus innræting
í viðtalinu bregður hún upp athyglisverðri
mynd af hugmyndaheimi þeim sem einkennir
lífið á Kúbu og þeirri innrætingu sem þar fer
fram. Það sem komið hafi henni einna mest
á óvart eftir að hún flúði ríki föður síns hafi
verið að uppgötva að menn í Bandaríkjunum
væru ekki stöðugt að hugsa um Kúbu og
hvernig klekkja mætti á stjórninni þar. Kúban-
ir telji Kúbu nafla alheimsins. „Á Kúbu lifðum
við í þessari trú. Við sættum stöðugri innræt-
ingu í þá veru að Bandaríkjamenn hefðu að-
eins áhuga á Kúbu og að öll heimsbyggðin
fylgdist af athygli með þessari baráttu okkar."
Hún segir reynslu sína allt aðra. Hún hafi
hitt fólk í Bandaríkjunum sem hafi ekki haft
hugmynd um tilveru kúbönsku þjóðarinnar,
aðrir hafi einkum haft óljósar hugmyndir um
Che Guevara, byltingarleiðtogann fræga, og
enn aðrir hafi einkum viljað kynna sér ættar-
tengsl Che og Castros, talið að þeir hafi verið
frændur.
SIÓAMNMJ SJUÁi J
sjómanna- og fjölskylduhátið i Grindavik daganna 29. maí -1. júni 1997
o
Fimmtudaginn 29. mai.
Kl. 17.00 Opnun málverkasýningar Gunnars Þorleifssonar
í Menningarmiðstöðinni.
Kl. 20.00 Knattspyrna: ÍBV-Grindavík. (Kvennó) Víkurbraut 21.
Kl. 21.30 Víkingar bregða á leik við íþróttahúsið.
Harmónikuleikur við varðeld. Flugeldasýning.
<> Föstudagurinn 30. maí. Höfnin.
Kl. 15.00 Opnun markaðstjalds og sprell leiktækja.
Kl. 17.00 Línuskautahlaup.
<> Menningarmiðstöð
Kl. 15.00-20.00 Málverkasýning.
0
íþróttahúsið
Kl. 15.00-20.00 Opnun sýningar á veiðarfærum frá nemendum á
Sjávarútvegsbraut í Fjölbrautaskóia Suðurnesja og
skipslíkönum eftir Hlyn og Hafþór Helgasyni.
Kl. 17.30 Víðavangshlaup.
<J> Laugardagurinn 31. maí. Höfnin
Kl. 13.00 Lendir þyrla frá Varnarliðinu.
Kl. 14.00 Skemmtisigling. Opnun markaðstjalds og sprell leiktækja
t.d. risarennibraut, geimsnerill,
Puma-braut, hoppkastali, boxkastali,
sleggjukast, go-kart braut og fleira.
Björgunarsveitin Þorbjörn verður á ferðinni á
björgunarsveitarbílnum.
Hestaleiga og hestvagnaferðir.
Kl. 16.00 Kappróður.
O Menningarmiðstöð
Kl. 15.00-20.00 Málverkasýning í Menningarmiðstöð.
íþróttahús
Kl. 15.00-20.00 Sýning veiðarfæra og skipslíkana.
Kl. 18.00-20.00 Götukarfa við Festi.
<J> Sunnudagurinn 1. júní.
Sjómannadagur.
Kl. 13.00 Sjómannamessa. Skrúðganga verður farin frá kirkjunni eftir messu
að minnisvarða um drukknaða og týnda menn, þar sem lagður
verður blómsveigur.
Kl. 14.00 Hátíðarhöld við höfnina. Blásarasveit Grindavíkur leikur undir
stjórn Siguróla Geirssonar.
Ávarp sjómanna. Heiðrun aldraðra.
Viðurkenning vegna björgunarafreks.
Verðlaunaafhending, flekahlaup, björgunargallasund,
koddaslagur, kararóður, hjólreiðar.
Björgunarsveitarbíllinn verður á ferðinni.
Hestaleiga og hestvagnaferðir.
Kl. 14.00-20.00 Markaðstjald og sprell leiktæki.
Sýning í íþróttahúsi og Menningarmiðstöð.
Kl. 15.00-18.00 Félagsheimilið Festi.
Sjómannakaffi á vegum Kvenfélags Grindavíkur.
Kl. 20.00-03.00 Félagsheimilið Festi, hátíðardansleikur.
Öll dagskrá utandyra er háð veðri.
Sjómannadagsráð.
Útvarp Grindavík verður i gangi alla helgina.
Markaðstjald og sprell leiktæki verða opin meðan dagskrá er i gangi.
Ókeypis er I öll leiktæki.