Morgunblaðið - 30.05.1997, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ELSTI og reyndasti hluti Barnakórs Grensáskirkju, Kammerkórinn.
Kammerkór Grensás-
kirkju syngur í Páfagarði
Vortón-
leikar
Víkinga
SÖNGSVEITIN Víkingar
heldur tónleika á morgun,
laugardag kl. 16, í samkomu-
húsinu í Sandgerði.
Á efnisskrá eru m.a. lög
eftir Sigfús Halldórsson, Eirík
Bjarnason og Bellman. Einnig
koma fram söngvarar úr söng-
deild Tónlistarskólans í Sand-
gerði og syngja einsöng og
dúetta. Stjómandi Söngsveit-
arinnar er Einar Öm Einars-
son og undirleikari á harmon-
ikku er Ásgeir Gunnarsson.
KAMMERKÓR Grensáskirkju
heldur til Italíu mánudaginn
2. júní nk. og munu syngja við
messu í Péturskirkjunni í Róm,
á tónleikum í St. Agnesarkirkj-
unni og á tónleikum hjá FAO,
matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna.
Kammerkór Grensáskirkju
er hluti Bamakórs Grensás-
kirkju sem telur 130 börn á
aldrinum 6-17 ára. í Kammer-
kórnum eru 42 börn á aldrin-
um_ 14-17 ára.
Á efnisskrá kórsins er tón-
list af ýmsu tagi; kirkjutónlist,
íslensk tónlist, þjóðlög, negra-
sálmar og lög úr söngleikjum.
Tónlistina flytur kórinn ýmist
með eða án undirleiks. Söngur
kórsins hefur verið hljóðritað-
ur og gefinn út á hjóðsnældu.
Píanóleikari í ferðinni er
Helga L. Finnbogadóttir.
Lokatónleikar
í Grensáskirkju
Lokatónleikar Kammer-
kórsins verða í Grensáskirkju
á Sjómannadaginn kl. 17.
Stjórnandi er Margrét J.
Pálmadóttir.
Tveir kórar á
Kirkjulistahátíð
KIRKJULISTAHÁTÍÐ lýkur nú um
helgina. í kvöld kl. 20 eru tónleikar
Voces spontane con flauto, með
þeim Comelia Giese, Karin Schneid-
er-Rie6ner, Gottfried Zawichowski
og Manuelu Wiesler. Á morgun,
laugardag kl. 10, flytur Friedhelm
Mennekes fyrirlestur í Norræna
húsinu um „Tryptíkur" (altaris-
myndir í þremur hlutum), nýja list
í gömlum kirkjum.
Tónleikar Dómkórsins og Skóla-
kórs Kársness í Hallgrímskirkju er
síðasta atriðið á Kirkjulistahátíð á
sunnudag.
Á tónieikunum syngur Dómkór-
inn tónverk frá ýmsum tímum, allt
frá Orlando di Lasso til Knut
Nystedt. Einnig syngur kórinn verk
eftir íslenska höfunda. Skólakór
Kársness syngur m.a. Stabat Mater
eftir Pergolesi. Einsöng syngja Jó-
hanna S. Halldórsdóttir og Magnea
Tómasdóttir söngkonur, en þær eru
VERK Ríkeyjar í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
báðar fyrrverandi kórfélagar. Að
auki syngur kórinn verk eftir Mend-
elssohn, Grieg o.fl.
Kórarnir hafa áður haldið tón-
leika saman og hafa kórstjórarnir
með sér gott samstarf. Þórunn
Bjömsdóttir stjórnandi Skólakórs
Kársness syngur í Dómkórnum og
Marteinn H. Friðriksson, stjómandi
Dómkórsins, leikur undir söng
Skólakórsins á orgel.
Dómkórinn er að fara í tónleika-
ferð tii Ungverjalands, þar sem hann
syngur á barokkhátíð í Eger, í Búda-
pest og víðar. I ferðinni syngur kór-
inn sömu efnisskrá og á tónleikun-
um í Hallgrímskirkju. Skólakór
Kársness er einnig á leið til Kanada,
þar sem kórinn kemur m.a. fram á
Northem Encounters í Toronto.
Tónleikarnir á Kirkjulistahátíð
verða haldnir í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 1. júní og hefjast þeir
kl. 17.
Ríkey í
Ráðhúsinu
RÍKEY Ingimundardóttir opnar 37.
einkasýningu sína í Ráðhúsi
Reykjavíkur á morgun, laugardag,
kl. 15-18.
Aðalinnihald þessarar sýningar
eru brenndar leirlágmyndir sem
lýsa Reykjavík og ýmsum frægum
persónum, einnig verða þar skúlp-
túrar og málverk.
Sýningin stendur til 9. júní.
HVENÆR HÓFST
NÚTÍMINN Á ÍSLANDI?
Frteðimenn skiptast á skoðunum á íslenska söguþinginu,
fóstudaginn 30. mai kL 9:00 í Hátíðarsal Háskóla íslands.
Aðgangur er öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Föstudagur 30. maí, kl. 9:00-12:00
9:00-9:10 Guðmundur Hálfdanarson dósent: „Inngangur og kynning.“
9:10-9:20 Heimir Þorleifsson sagnfræðingur: „Sagan og nútíminn."
9:20-9:30 Guðrún Ólafsdóttir dósent: „Sveit og borg - byggðaþróun.“
9:30-9:40 Stefán Ólafsson prófessor: „Lífskjör og velferðarríkið.“
9:40-9:50 Sigr/ður Dúna Kristmundsdóttir dósent: „Móðir, kona, meyja - og nútíminn.“
9:50-10:00 Sigurður Líndal prófessor: „Innreið nútímans í íslenska lagagerð."
10:00-10:15 Kaffihlé.
10:15-10:25 Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor: „Rannsóknir og vísindi.“
10:25-10:35 Jón Torfi Jónasson prófessor: „Upphaf nútímamenntakerfis á íslandi.“
10:35-10:45 Auður Ólafsdóttir listfræðingur: „Nútíminn og íslensk listsköpun.“
10:45-10:55 Svanur Kristjánsson prófessor: „Upphaf íslenskra nútímastjórnmála.”
10:55-11:05 Magnús S. Magnússon hagsögufræðingur: „Innreið nútímans í íslenskri ernahagssögu.“
11:05-11:15 Kaffihlé.
11:15-12:00 Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjórar : Guðmundur Hálfdanarson dósent og Þorsteinn Þórhallsson sagnfræðingur
V
Deo dicamus gratias
í HEILD var söngur Drengjakórs Laugarneskirkju góður
að mati gagnrýnanda.
roNLisr
Laugarneskirkja
KÓRSÖNGUR
DRENGJAKÓR
LAUGARNESKIRKJU
undir stjóm Friðriks S. Kristinssonar
flutti íslensk og eriend kórverk.
Pianóleikari var Ástríður
Haraldsdóttir og raddþjálfari
Björk Jónsdóttir.
Miðvikudagurinn 28. maí, 1997.
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
hélt vortónleika sína sl. miðviku-
dagskvöld. Kórinn skipa þrír hópar,
þ.e. drengjakórinn, sem er megin-
kórinn, þá Schola Cantomm, undir-
búningsdeild og eldri deild, en þar
í hópi eru þeir herramenn, sem
formlega em hættir í kórnum og
skiptast í tenor- og bassaraddir. Sú
venja þekkist erlendis frá, að eldri
nemendur drengjakóra syngi með í
verkum fyrir blandaða kóra, eins
og gert var í seinni hluta efnisskrár.
Tónleikarnir hófust með því að
meginkórinn og undirbúningsdeild-
in sungu þijú íslensk þjóðlög, Gefðu
að móðurmálið mitt, Lysthúskvæði
og Sofðu unga ástin mín og söng
kórinn þessi lög af þokka. Megin-
kórinn söng síðan nokkur lög og
þá komu fram nokkrir einsöngvar-
ar, Borgþór Sveinn Eyþórsson í lagi
Ahlfors, Ef þig langar að syngja,
Magnús Sigurbjörnsson í Fylgd eft-
ir Sigursvein D. Kristinsson og Jón
Emil Guðmundsson og Þorkell
Gunnar Sigurbjörnsson er sungu
tvísöng í Ave Maria, eftir Gabriel
Faure. Söngur kórs og einsöngvara
var fallega mótaður.
Tónstaða og nákvæmni í fram-
burði texta og tónmótunar er mikið
og flókið vandamál, sem útheimtir
markvissa þjálfun, unna á löngum
tíma. Tónstaða kórsins var í heild
nokkuð góð og framburður sérlega
skýr. í nokkrum lögum gætti þess
óróleika, sem oft kemur fram er
flytjendur gerast andstuttir og á
sér oft stað undir álagi. Nauðsyn-
legt er að þjálfa kórinn í að syngja
„hægt“, þ.e. að flýta ekki. Þessi
óróleiki olli því að oft vantaði upp
á að söngurinn næði því að vera
sérlega góður og átti söngstjórinn
nokkurn þátt í því með mjög óróleg-
um og á köflum allt of hröðum
taktslætti. Þetta kom að nokkru
fram í keðjusöngnum Jubilate Deo
eftir Schutz. Ljúfur ómur eftir
Bortniansky var fallega sunginn af
kórnum og Einari Njálssyni. Tveir
dúettar voru ágætlega fluttir, Trip
it in a ring, eftir Purcell, sunginn
af bræðrunum Sölva Rúnari og
Daða Rúnari Péturssonum og Mai-
glöckchen und die Blumelain, eftir
Mendelssohn, sem Hjalti Magnús-
son og Hrafn Davíðsson sungu sér-
lega fallega. Drottin Guð af himn-
um háum, eftir Mozart og Exultav-
it eftir Burkhart voru vel flutt af
drengjakórnum.
Eldri nemendur komu svo til við-
bótar við flutning síðustu fjögurra
verkanna og á efnisskránni var Ave
Verum, eftir Elgar, Rex virtutis,
eftir meistara Jóhannes Pétur-Lúð-
víksson frá Palestrína, Sjá, þann
hinn mikla flokk, eftir Grieg og Deo
dicamus gratias, eftir nemanda J.S.
Bachs, Gottfried August Homilius,
er starfaði í Dresden frá 1742.
Eins og fyrr segir er tónstaðan
á köflum nokkuð góð og sömuleiðis
framburður en eins fýrr var sagt,
var nokkur óróleiki er einkenndi
sönginn í heild. Tónmyndun kórsins
er á mjúku nótunum og gat stund-
um að heyra hinn gullna hljóm
drengjaraddanna, sem áttu einnig
til töluverða „dýnamik". í heild var
söngur kórsins góður og sérstak-
lega fallegur í lögunum eftir Elgar.
Bortniansky, Mozart og síðasta lag-
inu, eftir Homilius, en texti lagsins,
Deo dicanus gratias, var yftrskrift
tónleikanna.
Jón Ásgeirsson