Morgunblaðið - 30.05.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
_________AÐSEIMDAR GREIWAR_______
„Við reykjum sko
ekki þennan óþverra
Opið bréf til heilbrigðisráðherra
aðildarríkja Evrópusambandsins
TILGANGUR okkar með bréfi
þessu er þríþættur:
1. Að lýsa yfir áköfum stuðningi
við alþjóðlegt bandalag heilbrigðis-
samtaka í baráttunni gegn tóbaks-
auglýsingum innan ES.
2. Að skora á ykkur að taka á
tóbaki eins og öðrum markaðsvör-
um; láta það sæta prófunum og rísa
með niðurstöður þeirra að vopni til
varnar heilsu þeirra 340 milljóna
manna sem búa í ríkjum ES.
3. Að mæla með því að þið útveg-
ið nauðsynlegt fjármagn til að fræða
aðalmarkhóp tóbaksauglýsenda -
börnin ykkar - um þann óheyrilega
kostnað og þau lífshættulegu heilsu-
spjöll sem tóbaksneysla hefur í för
með sér.
Árlega deyja um 400.000 Banda-
ríkjamenn af völdum sjúkdóma sem
rekja má til beinna tóbaksreykinga
og um 60.000 manns af völdum sjúk-
dóma sem rekja má til óbeinna reyk-
inga. Þetta þýðir einfaldlega að tveir
einstaklingar í Bandaríkjunum láta
lífið af völdum tóbaksreykinga á
hverri mínútu.
Annar okkar, Wayne McLaren
„Marlboro-maðurinn", hefur nú bar-
ist fyrir lífi sínu sl. eitt og hálft ár.
Tekið var úr honum illkynja æxli en
við það missti hann annað lungað
og rifbein og helmingur barkans
lamaðist. Hann missti málið um
stund en skurðaðgerð á barkanum
hefur nú gert honum kleift að tala
á ný. Eftir skurðaðgerðina fór að
bera á skertri sjón og heyrn og jafn-
vægisskynið brenglaðist. Sú öfluga
lyfja- og geislameðferð, sem hann
þarf að ganga í gegnum, dregur enn
meira úr kröftum hans. Læknar
hafa ekki hikað við að kenna tóbaks-
reykingum alfarið um það hvernig
komið er fyrir honum. Hann berst
nú fyrir lífi sínu í einum tilgangi;
að miðla staðreyndum um hversu
reykingar hafi eitrað líf sitt, í eigin-
legri merkingu þeirra orða, og helg-
ar líf sitt því að forða öðrum frá
þeirri angist sem því fylgir að tak-
ast á við krabbamein eins og hann
verður nú að gera.
Hinn okkar, David Goerlitz fyrr-
um „Winstonmaðurinn", kom aug-
lýsingaheiminum í Bandaríkjunum í
Eftirfarandi bréf sem
er stílað á heilbrigðis-
ráðherra Evrópusam-
bandsríkjanna er frá
tveimur fyrrverandi
„andlitum“ helstu tób-
aksframleiðenda heims,
David B. Goerlitz
(áður „Winston-
maðurinn“) og Wayne
McLaren (áður
Marlboro-maðurinn).
Bréfið er þýtt af
Þorgrími Þráinssyni
framkvæmdastjóra
Tóbaksvarnanefndar.
uppnám þegar hann tilkynnti árið
1990 að hann væri hættur að reykja
og tók að fordæma auglýsingar tób-
aksfyrirtækjanna samkvæmt eigin
reynslu og væna þau um lygar.
Hann vann hjá Winston tóbaksfyrir-
tækinu í rúm sex ár, frá 1982 til
1988, en þann tíma var andlit hans
alþekkt á sjónvarpsskjánum í
Bandaríkjunum í umfangsmikilli
auglýsingaherferð sem kom Winston
upp í annað sæti meðal mest seldu
sígaretta í heiminum. Hlutverk hans
var að leika „harðskeytta hermann-
inn“; ímynd hins kjarkaða og
hrausta sonar þjóðarinnar. Hann
kom fram í 42 mismunandi auglýs-
ingum, miklu fleiri en nokkur annar
einstaklingur hafði gert í tóbaksaug-
lýsingum. Áhugi hans á starfinu fór
hinsvegar dvínandi og sannfæring
hans um það að tóbaksneysla væri
skaðlaus varð smátt og smátt að
engu þegar hann gerði sér æ betur
grein fyrir hinum raunverulega til-
gangi tóbaksframleiðenda. Það atvik
sem e.t.v. sagði honum mest um
þetta átti sér stað þegar hann var
við myndatöku uppi á fjalli og aug-
lýsingastjórar R.J. Reynolds gerðu
gys að honum fyrir að þurfa að
nota súrefnisgrímu. Þegar hann
spurði þá hvort þeir reyktu ekki líka
svöruðu þeir: „Nei, við reykjum sko
ekki þennan óþverra, við seljum
hann bara. Við látum unglingana,
fátæklingana, negrana og heimsk-
ingjana um að reykja." Þá rann það
upp fyrir honum að þrennt af þessu
hafði átt við hann þegar hann byij-
aði 13 ára gamall að reykja: hann
var ungur, fátækur og heimskur.
Þá var hann aðeins skotspónn tób-
akssölumanna og nú var hann verk-
færi auglýsenda til að gera aðra
unglinga háða reykingum. Tímann
þarna á milli varð hann sjálfur að
gjalda dýru verði á heilsu sinni: Þijá-
tíu og tveggja ára að aldri fékk
hann slag sem olli því að hann missti
bragðskynið og tilfinninguna í
tveimur fingrum, vinstra læri og
vinstra helmingi andlitsins.
Síðastliðin þijú ár hefur hann
haldið fyrirlestra í kirkjum, skólum
og sýningarsölum, hvar sem tæki-
færi hefur gefist þar sem hann flett-
ir ofan af raunverulegum tilgangi
tóbaksauglýsinga. Á þessum tíma
hefur hann náð til 500.000 barna
og fullorðinna víða um heim með
boðskap sínum.
Við höfum sameinað krafta okkar
í þeirri von að þið notið tækifærið,
sem tilvist Evrópusambandsins gef-
ur, til þess að ráðast þegar í stað
eftir öllum mögulegum leiðum gegn
útbreiðslu tóbaksávanans, einkan-
lega á vettvangi tóbaksauglýsinga.
Við erum fúsir til að koma til Evr-
ópu til að segja frá reynslu okkar
ef það gæt.i orðið til að sannfæra
ykkur um þá miklu ógn sem stafar
af tóbaksframleiðendum og ban-
vænni framleiðslu þeirra.
(Innskot þýðanda: McLaren lést í
júlí 1992. Goerlitz berst enn fyrir
lifi sínu).
Höfundar eru Goerlitz - áður
Winston-maðurinn
ogMcLaren - áður
Marlboromaðurinn.
Breyting á heimsóknartíma
sængurkvennadeilda
FÆÐING barns er
stórkostlegur áfangi í
lífi hverrar fjölskyldu.
Tíminn fyrst eftir fæð-
inguna er tími aðlögun-
ar barnsins, foreldra
þess og systkina, tími
þeirra til að kynnast
hvert öðru. Æskilegt
er að nýfædda barnið
myndi sem fyrst tengsl
við nánustu fjölskyldu
sína og því mikilvægt
að gera fjölskyldunni
fært að sameinast sem
fyrst eftir fæðinguna.
Á sama tíma þarf
móðirin að hvílast eftir
fæðinguna og læra að
um í þjóðfélaginu.
Feður hafa óskað eft-
ir meiri tíma með ný-
fæddu barni sínu og
fjölskyidunni og Al-
þjóða heilbrigðismála-
stofnunin (WHO) hefur
beint þeim tilmælum til
þeirra er annast sæng-
urkonur og nýbura að
auka aðgengni feðra að
nýfæddu barni sínu og
konu. Starfsemi
Kvennadeildar Landsp-
ítalans er helguð
umönnun, meðferð og
annarri þjónustu við
Guðrúii Björg konur og fjölskyldur
Sveinbjörnsdóttir þeirra. Því hefur verið
ákveðið að breyta heimsóknartímum
gefa barni sínu bijóst. Bijóstagjöf
er mikilvæg móður og barni, en það
tekur tíma fyrir móður og barn að
finna hvað hentar best. Bijóstagjöf
er til að næra barnið en ekki síður
til að efla tengslin við barnið og
veita því ástúð.
Heimsóknir margra utanaðkom-
andi aðila eru þreytandi, raska aðlög-
un móður og bams, hafa oft neikvæð
áhrif á bijóstagjöf og auka einnig
smithættu af algengum veirusýking-
á sængurkvennadeildum Landspítal-
ans f.o.m. 1. júní 1997. Heimsóknar-
tíminn verður lengri eða frá kl.
14.00-21.00. Hann er eingöngu
ætlaður föður barnsins, systkinum
þess, ömmum og öfum. Nýfædda
barnið dvelur þá með fjölskyldu sinni
á sængurkvennastofunni. Sérstök
gát skal höfð við umönnun nýburans
sem er viðkvæmur fyrir sýkingum
fyrstu dagana. Æskilegt er að fjöl-
Fæðing barns er stór-
kostlegur áfangi í lífí
hverrar ij'ölskyldu.
Guðrún Björg Sigur-
björnsdóttir fjallar
hér um heimsóknir á
sængurkvennadeild.
skyldan taki tillit til sængurkonu og
nýburans eftir fæðingu, þannig að
ekki séu fleiri en 4 heimsóknargest-
ir í einu hjá hverri konu og lengd
heimsókna stillt í hóf.
Mælst er til þess að aðrir ættingj-
ar, vinir og kunningjar gefi fjölskyld-
unni tækifæri til að aðlagast breytt-
um fjölskylduhögum í ró og næði.
Nýfædda barnið er komið til að vera.
Nægur tími er því til að heimsækja
fjölskylduna þegar heim er komið
og æskilegt að skipuleggja heim-
sóknina í samráði við fjölskylduna.
Höfundur er yfirijósmóðir
Kvennadeildar Landspítalans.
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 37
STEINAR WAAGE
f SKÓVERSLUN N
Mikið úrval af herramokkasíum
Ath. Extra breiðir
Tegund: A.M. 61113
Verð: 6.995,-
Stærðir: 40-46
Litur: Svartir og vínrauðir
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
STEINAR WAAGE . STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN •/ SKÓVERSLUN ^
SÍMl 551 8519 SÍMI 568 9212
C
óðkort
Athugið!
Takmarkað
VORTILBOÐ
‘Mari&a
niTÍÁ fiffíÍGr'i -M
,\ *■ . ÍÍWHw
119.900
■■■ ■■■ ■■ ■■ 'Kr r - /[•. rt jr
r r-
f (*“ , • • /. • r rr •
r • r L.ir.mivri'ír nyjir i'.ií'ir
NOKIA 1611
26.990
BT. Tölvur
Grensásvegi 3 -108 Reykjavík
;á.r,:(íir.r.rr.affrr;r.
mínrwr'; rfritmarfti
t'újTtrjr r:vr:j r r [ :
, Sími: 5885900
fax: 5885905
Onið uirka dagafrá
10-18
BH. 70-90 B,C
Buxur. 38-44
lympi
Laugaveg 26 sími 551 3300
Kringlunni 8-12 sími 553 3600
«
'.Ifiuniiili