Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 39
SKÓLASLIT
Aðsókn í háskólanámið
á Hvanneyri fer vaxandi
Grund. Morgunblaðið.
LAUGARDAGINN 24. maí var bú-
vísindadeild Bændaskólans á Hvan-
neyri slitið að viðstöddum fyrrv.
skólastjóra, Guðmundi Jónssyni,
sem nú 95 ára gamall fagnar 50
ára afmæli þessa óskabarns síns.
Hann var einn af aðalhvatamönnum
þess að búvísindadeildin tók til
starfa við Bændaskólann 1947.
Magnús B. Jónsson skólastjóri
flutti skólslitaræðu og sagði m.a.:
„Ég býð ykkur öll velkomin að vera
viðstödd brautskráningu búfræði-
kandidata frá búvísindadeild á
Hvanneyri. Með þessari braut-
skráningu búfræðikandídata í dag
lýkur hefðbundnu skólastarfí þessa
skólaárs, sem er hið 108. í sögu
skólans. Sérstaklega vil ég bjóða
velkominn hingað í dag Guðmund
Jónsson fyrrverandi skólastjóra
Bændaskólans en á vordögum fyrir
hálfri öld var hann í samvinnu við
þáverandi landbúnaðarráðherra
Bjarna Ásgeirsson að vinna að því
að koma á fyrsta vísi að háskóla-
menntun fyrir leiðbeinendur á ís-
lenskum landbúnaði. Sú starfsemi
hófst síðan í byijun október árið
1947 þegar fyrstu nemendur sett-
ust til náms í framhaldsdeildinni á
Hvanneyri. Nú 50 árum síðar erum
við að brautskrá 25. nemendahóp-
inn og eru þá brautskráðir kandí-
datar héðan 207 að tölu. Þó nem-
endur í heild séu lítið fleiri en und-
anfarin ár er gleðilegt að aðsókn í
háskólanámið fer vaxandi og með
meiri fjölbreytni er iíklegt að að-
sóknin muni enn vaxa. I þeim 24
nemendahópum sem þegar eru út-
skrifaðir frá Hvanneyri eru 198
kandídatar. í dag brautskráist 25.
nemendahópurinn og 200. búfræði-
kandídatinn."
Bestum árangri á kandídatsprófi
náðu: 1. Daði Már Kristófersson,
8,6, 2. Amþrúður Heimisdóttir, 7,7
og 3. Jómnn Svavarsdóttir, 7,5.
„Prófskírteini þetta er vitnisburð-
ur um það að þið hafið lokið kandí-
datsprófi í búfræði frá búvísinda-
deild á Hvanneyri og megið bera
titilinn búfræðikandídat sem sam-
svarar hinu alþjóðlega fræðiheiti
Bachelor of science."
Þá fóru fram verðlaunaafhend-
ingar: Besta árangri á kandídats-
prófí náði Daði Már Kristófersson,
8,6. Verðlaun afhenti Sveinbjörn
Eyjólfsson f.h. Félags búfræði-
kandídata. Besta aðalritgerð á
kandídatsprófi: Daði M. Kristófers-
son 9,0 og Einar Edvaid Einarsson
9,0. Verðlaun veitti Þorsteinn Tóm-
asson f.h. Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins. Besta árangri í
hagfræðigreinum náði Daði M.
Kristófersson, 8,7. Verðlaun afhenti
Jónas Bjarnason fyrir Hagþjónustu
landbúnaðarins. Besta árangri í
bútæknigreinum náði Daði M.
Kristófersson, 9,0. Verðlaun afhenti
Magnús B. Jónsson f.h. Stofnlána-
deildar landbúnaðarins. Besta ár-
angri í búfjárræktar- og jarðrækt-
argreinum náði Daði M. Kristófers-
son, 8,5. Verðlaun afhenti Sigur-
Morgnnblaðið/Davíð Pétursson
ÚTSKRIFTARHÓPUR búvísindadeildar Bændaskólans á Hvanneyri.
geir Þorgeirsson f.h. Bændasam-
taka íslarids.
í lokaorðum skólastjóra til bú-
fræðikandídata sagði m.a.: „Þið
munið að sjálfsögðu verða að tak-
ast á við skammsýni samferðafólks-
ins sem með skammtíma hagsmuni
i sinni vill líta framhjá þeirri lykil-
staðreynd að án landbúnaðar sem
fullnægt getur fmmþörfum fæðu-
framleiðslunnar mun ekkert samfé-
lag geta staðist til lengdar."
/ i
Verkmenntaskóli Austurlands
Stúdentar útskrif-
aðir á eigin vegum
Neskaupstað. Morgunblaðið.
VERKMENNTASKOLA Austur-
lands í Neskaupstað var slitið
laugardaginn 24. maí sl. Að þessu
sinni voru útskrifaðir 21 nem-
andi, níu stúdentar, 10 iðnnemar
og tveir sjúkraliðar. Þetta er í
fyrsta skipti sem skólinn útskrif-
ar stúdenta á eigin vegum en
hingað til hefur það verið gert
með fulltingi Menntaskólans á
Egilsstöðum.
í máli skólameistara, Helgu
M. Steinson, við útskriftina
kom fram að auka á samstarf
framhaldsskólans í Austur-
landskjördæmi og stefnt er að
því að ráðinn verði verkefnis-
stjóri til að sinna auknu
samstarfi skólanna. Þá kom
fram að bætt aðstaða með til-
komu hins nýja verkkennsluhúss
skólans mun auðvelda honum að
bjóða upp á mun meira verk-
menntanám en hingað til hefur
verið hægt.
Fram kom að Albert Einarsson
sem verið hefur skólameistari
Verkmenntaskólans í 10 ár en í
leyfi sl. tvö ár mun láta af störf-
um í haust.
Um 170 nemendur stunda nám
við skólann og skiptast þeir svo
að um 60% voru við bóknám en
40% við verknám.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
SÍÐUSTU útskriftarnemar frá Reykholti.
í Reykholti. Svo var það að
menntamálaráðherra fól FVA að
annast skólastarf í Reykholti í til-
raunaskyni til tveggja ára sumarið
1995 og er nú síðara ári þeirrar
tilraunar að ljúka. Haustið 1995
hóf 61 nemandi nám og luku 46
haustprófum og 27 vorprófum.
Haustið 1996 hófu 35 nemendur
nám og nú eru 20 nemendur að
kveðja skólann.*1
Þá gat hún þess, að tveir nem-
endur hefðu skarað fram úr hvað
varðaði framfarir og frábæran
námsárangur, en það væru þau
Héðinn Birgir Ásbjömsson og Haf-
dís María Kristinsdóttir.
Margir tóku til máls við skóla-
slitin og í máli allra var söknuður,
en jafnframt bjartsýni á að finna
mætti höfuðbóli Snorra nýjan
starfsvettvang.
V
'i
FRABÆRT URVAL
FALLEGAR PLÖNTVR
FJÓLUR, STJÚPUR, KORNBLÓM, NELLIKKUR,
PELARGÓNÍUR, MORGUNFRÚ, LOBELÍA, FAGURFIFILL,
LJÓNSMUNNI, TÓBAKSHORN, O.FL. O.FL.
STJUPUR
KR. 45-
PELARGONIA
KR. 330-
TOBAKSHORN
KR. 280-
HENGITOBA KSHORN
KR. 280-
EINNIG :
BLOMSTRANDI RUNNAR, RÓSARUNNAR,
GARÐTRÉ, SKÓGARPLÖNTUR,
ÁBURÐUR, MOLD, O.FL.
PLONTUSALAN I FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-18. Sími 564 1777
Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG