Morgunblaðið - 30.05.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
f
I
I
I
i
1
1
I
j
1
I
1
i
I
í
I
(
í
i
i
i
<
í
I
(
(
(
(
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 51
BREF TIL BLAÐSINS
TIZJ30Ð
Qjósmyudastofa
Éfunnars úugimarssonar
Suðurveri, sími 553 4852
Um kerfisvillur
Frá Birni Péturssyni:
ALLA getur það hent að lenda
í greiðsluvandræðum, svo t.d. af-
borganir af lánum dragist. Við-
brögð skuldareigenda geta verið
misjöfn, allt frá því að sýna samúð
og skilning til harkalegra inn-
heimtuaðgerða. Verst er þó við að
eiga þegar tölvur eru látnar sjá um
málin, við þær er ekki hægt að
ræða og aðgerðir þeirra hlíta aðeins
skipunum sem forritarar leggja
þeim til. En stundum koma fram
kerfisvillur þegar farið er að nýta
forritunina og eru afleiðing mann-
legra mistaka forritara eða þess
sem óskaði kerfisbreytinganna. Þá
er komið að viðkomandi ráðamönn-
um, hvernig þeir bregðast við.
Sumir vilja þegja málið í hel og
framkvæma kerfisleiðréttingu
hljóðalaust en aðrir biðjast afsök-
unar og láta „kerfið" leiðrétta mi-
stök sem gerð voru.
Undirritaður lenti í skrítnum við-
skiptum sem rekja má til kerfismis-
taka. Lánagreiðsla sem tafðist
vegna uppákomandi aðstæðna fékk
alvarlegar afleiðingar. í stuttu
máli:
Afborgun var greidd 5. maí með
tilheyrandi dráttarvöxtum. Nokkr-
um dögum seinna kom viðbótar-
krafa kr. 450, sem greidd var 15.
maí ásamt dráttarvöxtum kr. 2, eða
alls kr. 452. Sú krafa bar með sér
að innágreiðsla hafði átt sér stað
en tilkynninga- og greiðslugjald
hafði hækkað um kr. 450. Enn
barst viðbótarkrafa kr. 154 og bar
með sér viðurkenningu á hækkaðri
innborgun, en jafnframt að tilkynn-
ingar- og greiðslugjald hafði hækk-
að um kr. 150. Ekki náðist að
greiða þessa kröfu þegar
LOKAAÐVÖRUN barst dags. 20.
maí 1997 með kröfu um kr. 559
ásamt hótun um að verði ekki
skuldin greidd eða um hana samið
innan tiltekins tíma þá verði kraf-
ist uppboðs á veðinu í samræmi
við 5. gr. laga nr. 88 frá 1991 um
aukatekjur ríkissjóðs.
En nú hitnaði mér í hamsi, og
ég ákvað að fara á skrifstofu
Tryggingastofnunar ríkisins sem
er minn skuldareigandi. Eg gat
ómögulega sætt mig við að í hvert
skipti sem ég vildi bæta fyrir þá
synd mína að geta ekki staðið í
skilum á gjalddaga, þá kæmi ný
krafa eða hótun um aðgöngu að
veðinu. Ég tók mér frí frá vinnu,
ók á Laugaveginn, greiddi minn
50 kall í stöðumæli og arkaði til
gjaldkera og óskaði skýringa. Mér
var bent á að tala við afgreiðslu
og þar tók á móti mér starfsmaður
sem sá strax hvað um var að vera.
Starfsmaðurinn skýrði mér frá því
að þetta væru mistök þeirra vegna
breytinga á tölvukerfi, og ég var
ljúfmannlega beðinn afsökunar á
þessu og sagt að mál mitt yrði
leiðrétt. En mér var þá hugsað til
þeirra sem kynnu að vera í sömu
sporum og ég, því spurði ég hvort
send yrði út leiðrétting til ann-
arra, og jafnframt hvort greiðsla
mín 15. maí hefði þá ekki verið
ranglega innheimt. Starfsmaður-
inn taldi að ekki væri hægt að
senda út leiðréttingar því þau vissu
ekki hverjir hefðu fengið svona
bréf, en taldi að greiðsla mín yrði
þó leiðrétt og spurt var hvort ekki
mætti draga hana þá frá næstu
afborgun. Vegna þessarar ljúfu og
prúðu framkomu starfsmannsins,
féllst ég að að Tryggingastofnunin
mætti halda greiðslunni til næstu
afborgunar (en gleymdi auðvitað
að spyija um vaxtakjörin því af
reynslunni veit ég um nákvæmni
þeirra!). Því þakkaði ég fyrir mig
og fór út rórri í skapi kl.9.15 þann
23.maí sl.
En eftirá að hyggja,- munu aðr-
ir þeir sem fengið hafa svona
sírukkanir fá leiðréttingu mála
sinna. Mun stofnunin af eigin hvöt-
um leitast við að leiðrétta mál
þeirra sem fara í banka eða spari-
sjóð og greiða sírukkanir, eða verð-
ur fólk að leita sérstaklega eftir
leiðréttingu mála sinna. Verður
málið afgreitt í kyrrþey, eða óskað
opinberlega afsökunar og fólki boð-
in leiðrétting? Hveijir bera svo
ábyrgð á „kerfismistökum" forrit-
arar eða þeir sem óska eftir breyt-
ingunum?
Flestum er það sárt að geta ekki
staðið við greiðsluloforð og skyldur
og ég bið afsökunar á vangetu
minni í þessu tilfelli sem um ræðir.
En því ber ég þetta á torg að það
kunna að vera fleiri sem hafa orðið
fyrir barðinu á þessum kerfis-
mistökum og eiga rétt á lagfæringu
mála sinna.
BJÖRN PÉTURSSON,
Reykjavíkurvegi 40, Hafnarfirði.
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
„SÁ SEM kemur færandi hendi, á
jafnan eitthvað handa flestum,"
sagði þýskt skáld forðum, og þó
ekki nákvæmlega svona, því að
hann orti á þýskri tungu, því máli,
sem næst kemst íslenskunni um
skýrleik og hnitmiðun. En sam-
bandið milli tungumála er þannig,
að það sem er sagt með þessum
orðum á einu verður stundum að
orða öðruvísi á hinu.
En þetta vil ég nú taka fram um
hina íslensku heimspeki kennda við
Níal (Njál), að hún hefur að segja
mönnum er margt og mikið, en
fyrst skal þó ævinlega spurt um
sanngildið. Við getum gengið að
því vísu að í þeim fræðum er ekk-
ert fullyrt nema það sem hægt er
að standa við, eða hefur verið sann-
prófað. Þegar ég sagði lærdóms-
manni einum fyrir mörgum árum,
að Pyþagóras hefði sagt lífið vera
komið frá stjörnunum, þá svaraði
maðurinn: „Þetta getur ekki verið
rétt, því að ekki stendur það svona
í mínum skrám. Allar heimildir hafa
fýrir löngu verið grandskoðaðar í
leit að Pýþagórasar-ummælum."
En þegar ég komst síðar í bókina
Filosofúmena, sá ég, að íslenski
heimspekingurinn hafði fullkom-
lega haft rétt fyrir sér.
Menn ætla að heimspeki Pýþagó-
rasar hafi farið að breiðast út frá
honum um 550 f.Kr. og sé hann
því góðum tímaspöl á undan Hera-
klítosi, sem sagður er hafa kennt
um 500 f.Kr. Hvað hafa heimspeki-
fræðingarnir vitað um h'fskenningu
fyrirsagnir keim af því: „frá líflausu
til lifandi," segja þær. En trúmenn-
irnir hafa haldið, að sköpunarleiðin
lægi frá hinum æðsta veruleika nið-
ur í djúpið og dimmuna.
Það sem íslensk heimspeki hefur
fram yfír, er meðal annars að hún
gerir hlut trúmannanna betri en
áður hefur verið. Heildaryfirlitið er
hér. Menn skilja að jarðarefnin hafa
ekki ein sér getað búið til manninn.
Ef hann átti að verða til, varð að
koma „leiðbeining að ofan“ -
magnan frá fyrirmynd. Lífið er
komið frá stjörnunum og þangað
frá enn öðrum stjörnum, og svo
koll af kolli, því að óendanleg er
leiðin til framfara og fulikomnunar
í alheimi efnisins.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Uppruni lífsins
Heraklítosar? Að því er virðist ekki
neitt. Hvað segir hann þá sjálfur?
„Lífið er neisti frá efni stjarnanna.“
Þegar ég las ritgerð Þorsteins Þor-
steinssonar lífefnafræðings um
uppruna lífsins, í bókinni „Samstill-
ing lífs og efnis í alheimi“ (1996),
sá ég að hann gerir ráð fyrir því
að lífið nærist af orku sem berst
frá einni stjörnu til annarrar. En í
ótal fræðibókum um þetta efni,
kemur fram undrun og aðdáun yfir
hinni fyrstu kviknun. „Próteinin
gátu ekki orðið til án kjarnasýrunn-
ar; kjarnasýran ekki án próteinanna
og hvaðan kom þá hvorttveggja?"
segja þeir og undrast.
Hvers vegna er ég að segja frá
þessu? Það er af því að ráðstefnum
um líf í alheimi, höldnum af „topp-
mönnum í toppgreinum" fer nú sí-
fellt fjölgandi. Ein verður í Trieste,
Ítalíu í september, og kennir sig
við „exobiology" í stað „astrobio-
logy“ en það breytir engu. - í stað
þess að lengja málið með eigin út-
skýringum, set ég hér dagskrá ráð-
stefnunnar, sem eins vel mætti
nefna stefnuskrá hennar:
„1. Frá líflausu til lifandi efnis:
hið jarðneska dæmi (um þá þró-
un).// 2. Orkumiðlun í efnafræði-
legri þróun.// 3. Elstu þróunarstig
erfðafræðilegrar vitneskju.// 4.
Stjörnulíffræði í Jarðar-grennd
(earth orbit).// 5. Stjörnulíffræði á
Mars.// 6. Stjörnulíffræði á hala-
stjörnum og smástirnum.// 7.
Stjörnulíffræði á Titan (tungl Sat-
úrnusar, geysistórt).// 8. Leitin að
plánetum utan sólhverfis.// 9. Leit-
in að vitsmunum utan jarðar".
Þetta ætla þeir að tala um suður
í Trieste í haust. Það hefur lengi
verið aðferð vísindanna, að byggja
sem mest upp frá hinu smáa og
nærtæka, í átt til hinna stóru heilda
- og það þótt heildirnar séu oft
miklu meira en samsafnið eitt.
Margir hafa til dæmis verið mjög
sannfærðir um að orsakirnar til
þess, að hér náði að koma fram líf,
hafi verið eiginleikar efnisins og
annað ekki, og bera ofanritaðar
Clint Eastwood Gene Hackman Ed Harris
- / f: " '
. - ^VV ; 7!
~~~■
....
i ... •/.
ABSOLUTE
POWER
FRUMSYND f DAGI
CASTI.r ROCJ^
HASKOLABIO
Blab allra landsmanna!
JttorðxvnMíiíúfc
- kjarni málsins!
■7
■t