Morgunblaðið - 30.05.1997, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AEG
Uppþvottavélar
Heimsins
hljóölátustu
á verði frá:
69.900,-
ara
_if^i BRÆÐURNIR
(jfpORMSSQN
Láqmúla 8 • Sími 533 2800
Umboðamenn: __________________________
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni
Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúð.Búðardal. Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin.Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.
Straumur.ísafirði.Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA.Dalvík.KEA, Siglufirði.
KEA, Ólafsfirði. Kf. Pingeyinga, Húsavík.Urö, Raufarhöfn.Lónið, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson,
Egilsstöðum. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfirði.
KASK, Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk.
• 43 db (re 1 pw)
• Turbo þurrkun
• HurSar bremsa
• Sjólfvirk vatns-
skömmtun
• Vatnsöryggiskerfi
Þýskt vörumerki
þýskt hugvit
þýsk framleiðsla
107 REYKJAVfK Sfmi 511 2200.: 7 , ^;
AVango W*
FATNAÐUR FYRIR
ÚTIVI5TINA.
I MIKIDÚRVALAF
:VÖNDUÐUM FATNADI
SEM HENTAR VIÐ
ÍSLENSKAR ADSTÆDUR
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn til
gatnamálastj óra
VALGERÐUR hringdi og
vildi hún koma á framfæri
fyrirspurn til gatnamála-
stjóra um það hvort ekki
sé hægt að þvo götur mið-
borgarinnar eftir helgar,
svipað og gert er erlendis.
Einnig vill hún beina þeim
tilmælum til kaupmanna
hvort ekki sé hægt að nota
bréfpoka undir sælgæti,
bömin hendi þessum plast-
pokum í götuna sem síðan
séu f|úkandi um allt, en
bréfpokarnir eyðist upp.
Frímerkja-
safnarar!
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf: „Halló. Ég
er ungur frímerkjasafnari.
Eg hef átt í erfiðleikum
með _að fá notuð frímerki
frá íslandi en ég er að
safna þeim. Er einhver á
íslandi sem gæti sent mér
nokkur notuð frímerki?
Það mundi gleðja mig mik-
ið. Ef einhver vill verða við
ósk minni þá sendi ég
þakklæti mitt. Kærar
kveðjur."
Alan Gorton,
8409 N.E. 140th Court,
Vancouver,
Washington 98682, USA
Þakkir fyrir
góða tónlist
ÉG ÆTLA að þakka sér-
staklega fyrir sígildu tón-
listarrásina: Klassík FM
106,8. Þar getum við
hlustað á gömlu meistar-
ana frá því snemma á
morgnana og þar til seint
á kvöldin. Það hafa fleiri
aðilar byrjað með sígildar
rásir en gefist upp. Ég
veit að það er fjöldi fólks
mjög þakklátur fyrir þessa
tónlist og vil ég hér með
koma á framfæri þakklæti
fyrir. Það má einnig minn-
ast á það að þar sem
gróskan í tónlistarlífi ís-
lendinga er mjög mikil
þyrfti okkar sameiginlegi
miðill, Sjónvarpið, að sinna
þessum stóra hópi betur
en gert er. Sérstaklega þar
sem nú er farið að sjón-
varpa í stereo. Ég hugsa
að margir yrðu þakklátir
fyrir að fá stöku sinnum
góða tónleika á skjáinn.
Sigríður.
Ábending
til Pósts
og síma/SVR
GUÐLAUG hringdi og
vildi hún benda Pósti og
síma/SVR á að á þátttöku-
seðlum sem fylgja nýju
símaskránni vantar pláss
fyrir nafn og heimilisfang
sendanda. Einnig er á
sama seðli rangt heimilis-
fang Bylgjunnar.
Tapað/fundið
Brúnn leðurhanski
tapaðist
BRÚNN leðurhanski tap-
aðist annaðhvort við
Fálkaborg á Fálkabakka
eða við Krummahóla 2
mánudaginn 26. maí. Skil-
vís finnandi hafi samband
í síma 557-4721.
Myndavél
glataðist við
Strandarkirkju
STARFSMAÐUR Strand-
arkirkju tapaði myndavél
við kirkjuna á 2. hvíta-
sunnu. I myndavélinni eru
myndir af framkvæmdum
við kirkjuna og eru þær
viðkomandi ómetanlegar.
Þeir sem kynnu að hafa
orðið varir við myndavél-
ina eru vinsamlega beðnir
um að hafa samband við
staðarhaldara í síma
483-3880 eða í kirkjunni
(sumarhús) í síma
483-3797.
Kvenúr
fannst
KVENÚR fannst í miðbæ
Reykjavíkur 19. maí. Uppl.
í síma 557-7811.
Hólabrekkuskóli -
gleraugu töpuðust
ELÍSABET tapaði gler-
augunum. sínum í bekk 92.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 557-9852.
Gullhálsmen
tapaðist
LÍTIÐ gullhálsmen, með
demanti, tapaðist á göngu
í Grasagarðinum á sumar-
daginn fyrsta. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma
551-4733.
Víkveiji skrifar...
MEST lesna bók landsmanna
er líklega símaskráin. Nú
berast símnotendum tilkynningar
um að þeir geti sótt sér nýjustu
útgáfu af þessari þörfu bók á
næsta pósthús. Víkveiji hefur ver-
ið með heimilissíma og fékk sér
auk þess handsíma (GSM) í fyrra.
Einnig er maki Víkverja með hand-
síma. Nú bar svo við að á heimili
Víkvetja bárust þijár ávísanir á
nýjar símaskrár, stílaðar á sitt
hvert símanúmeranna þriggja.
Víkveiji hefur skráð helstu
símanúmer sem hann hringir í í
minni handsímans og hefur því
ekki þörf fyrir aukaeintak af síma-
skránni. Víkveiji hringdi í þjón-
ustudeild Pósts og sima hf. og
spurði hvort hægt væri að afsala
sér símaskrá gegn afslætti á af-
notagjaldi. Viðmælanda Víkveija
kom spurningin auðheyrilega á
óvart og varð fyrst á að skella upp
úr. Eftir að hafa ráðfært sig við
einhvern samstarfsmann kom það
svar að símaskráin væri ókeypis
og fylgdi númerinu, hvort sem
manni líkaði betur eða verr.
Því vaknaði sú spurning hvers
vegna Póstur og sími hf. gefur
ekki viðskiptavinum sínum kost á
því að sleppa því að fá símaskrá,
gegn afslætti á afnotagjaldi? Þegar
Víkveiji skráði farsímanúmer sitt
var hann spurður hvort hann vildi
njóta ýmissa þjónustuþátta fyrir-
tækisins. Mætti ekki bæta við
spurningu um hvort maður óski
eftir símaskrá á þetta tiltekna núm-
er? Ef ekki, væri þá ekki rétt að
bjóða upp á sérstaka ferða-útgáfu
af símaskránni, t.d. með axlarólum,
fyrir handsímaeigendur! Ef til vill
breytist þetta með aukinni sam-
keppni í farsímaþjónustu!
xxx
VÍKVERJI vill vekja athygli á
frábærri þjónustu fyrirtækis-
ins Japanskra véla í Hafnarfirði,
sem flytur m.a. inn notaðar sjálf-
skiptingar í bíla frá Japan. I vetur
keypti Víkveiji umræddan hlut
með þriggja mánaða ábyrgð en
skömmu áður en hún rann út var
ljóst á stundum að sjálfskiptingin
var að gefa sig. Eigandi fyrirtækis-
ins var beðinn um að staðfesta það
en varð einskis áskynja í reynslu-
akstri.
Hins vegar sagði hann að ef
ástandið versnaði væri um að gera
að hafa samband aftur og ef á
þyrfti að halda yrði skipt um gír-
kassa bíleiganda að kostnaðar-
lausu. Hann áréttaði að ábyrgðin
yrði áfram í gildi en baðst af-
sökunar á því að hann gæti ekk-
ert gert að svo stöddu því hann
fengi ekki gírkassa fyrr en í lok
maí.
xxx
FYRIR skömmu var sjálfskipt-
ingin nánast hætt að standa
undir nafni og haft var samband
við fyrirtækið um hádegisbil. Eig-
andinn sagðist eiga vél en vanda-
málið væri að hann væri óvenju
fáliðaður og ætti því erfitt með að
fara í verkið. Skiljanlega væri
vandi Víkveija mun meiri, því hann
gæti örugglega ekki án bíls verið
vinnunnar vegna, og því yrði þetta
mál að hafa forgang. Það var sem
við manninn mælt, bíllinn var sam-
stundis tekinn inn á Bílaverkstæði
Hafnarfjarðar og tilbúinn fyrir
miðnætti.
Notuð sjálfskipting eins og hér
er til umræðu kostar tugi þús-
unda króna en vélin og vinnan
féllu undir ábyrgðina. Þegar eig-
andi fyrirtækisins var spurður
hvort hann væri ekki tryggður
fyrir svona skakkaföllum sagði
hann erfitt við að eiga. Vélarnar
væru yfirfarnar hinu megin á
hnettinum og ættu að vera í lagi
en kæmi bilun strax í ljós við ísetn-
ingu fengi hann tjónið bætt frá
Japan. I umræddu tilfelli yrði
hann að taka kostnaðinn á sig og
við því væri ekkert að gera. Aðal-
atriðið væri að viðskiptavinurinn
væri ánægður. Og annað er ekki
hægt í kjölfar slíkrar þjónustu.
Þess ber að geta að þetta voru
fyrstu viðskipti Víkveija við fyrir-
tækið.
xxx
KÖTTURINN Sófus, sem býr í
nágrenni KR-vallarins í vest-
urbænum, vakti athygli vallar-
gesta í leiknum gegn Skallagrími
um síðustu helgi. Honum hafa lík-
lega verið farnar að leiðast árang-
urslitlar sóknarlotur „sinna
manna“ snemma í síðari hálfleik
þegar hann gekk hiklaust upp
hægri kantinn væntanlega í þeim
tilgangi að veita Hilmari Björns-
syni aðstoð.
Sófusi til mikillar undrunar var
aðstoð hans afþökkuð og gekk
maður undir manns hönd að hrekja
hann af velli. I fyrstu brást Sófus
illa við og hugðist færa sig aftar
á völlinn en sá fljótlega að hann
mátti ekki við margnum og tók
stefnuna út af vellinum áður en
dómarinn skarst í leikinn. Greini-
legt var að hann hafði vitneskju
um að ekki þýðir að deila við dóm-
arann.
í sínum svarta og hvíta pelsi
sem móðir náttúra hafði gefið
honum hraktist Sófus út af vellin-
um en hugsar sér eflaust gott til
glóðarinnar að fá að reyna fóta-
mennt sína á næstu æfingu KR-
liðsins. Víst er hins vegar að þessi
óvænta heimsókn hafði góð áhrif
á KR-liðið því það bætti við þrem-
ur mörkum eftir heimsókn Sóf-
usar og kæmi ekki á óvart að
hann yrði gerður að lukkudýri liðs-
ins.