Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 19 ERLENT Frábcert Kringlukast i Tölvusmiðir í vanda staddir Los Angeles. Reuter. GATEWAY 2000 Inc. og Seagate Technology Inc., tvö mikilvæg tölvuiðnaðarfyrirtæki, hafa varað við því að hagnaður þeirra á síð- asta ársfjórðungi kunni að verða minni en vonir hafi staðið til vegna tregrar eftirspurnar. I Palo Alto, Kaliforníu, hefur Internet Shopping Network (ISN) opnað beintengt uppboðssetur á veraldarvefnum og mun keppa við Onsale Inc. og fleiri aðila um doll- ara hátæknineytenda. Stjórnarformaður Dell Computer Corp., Michael Dell, sagði í New York að sala fyrirtækisins á ein- menningstölvum á alnetinu stæði með blóma og að söluverðmæti slagaði upp í 500 milljónir dollara á ári. Oracle fyrirtækið sagði í Red- wood Shores, Kaliforníu, að hagn- aður þess á fjórða ársfjórðungi hefði aukizt um 35%, svipað því og búizt hafði verið við í Wall Street, vegna góðrar sölu á hugbúnaði og auka- hlutum. Motorola fyrirtækið sagði í Chicago að það hygðist koma sér upp 12,9 milljarða dollara gervi- hnattakerfi til að bjóða fjarskipta- þjónustu hvar sem er í heiminum. Síðasti þing-fundurinn í Hong Kong Refsing við pólitísku andófi lág- mörkuð Hong Kong. Reuter. SÍÐASTI fundur löggjafarsam- kundu Hong Kong var haldin í gær og voru þar samþykkt lög, sem lágmarka eiga refsingar fyrir póli- tískt andóf eftir að yfirráðum Breta lýkur í landinu nk. mánu- dagskvöld og það sameinast Kína. Samkvæmt lögunum verður það ekki refsivert að hafa í frammi pólitískt andóf í ræðu og riti, ein- ungis verður hægt að dæma menn fyrir ofbeldisverk sem tengjast kunna pólitísku andófi. í fyrradag samþykktu bresk stjórnvöld, að 509 manna vopnað herlið kínverska alþýðuhersins fengi að fara yfir til Hong Kong klukkan 9 að morgni nk. mánu- dag, 30. júní, til þess að geta gætt öryggis kínveskra ráða- manna strax frá miðnætti á mánu- dagskvöld er breski fáninn verður dreginn niður. Síðasti fundur stjórnar Chris Pattens, landstjóra í Hong Kong, var haldinn í gær. Flestir stjórnar- manna hverfa frá völdum í næstu viku er við tekur stjórn, sem Kín- veijar fólu Tung Chee-hwa að veita forystu. Anson Chan, vin- sæll staðgengill Pattens og ráð- herra opinberrar þjónustu gengur til liðs við stjórn Tungs og sömu- leiðis Donald Tsang fjármálaráð- herra Pattens. Blóm fyrir elskendur BLÓMIN á myndinni, sem kallast „kadam“, eru í miklum metum í Bangladesh og einkum meðal ungra elskenda. Hafa margir nokkrar tekjur af því að se\ja þau en þó aðeins í stuttan tima því að jurtin blómgast að- eins þegar regntíminn er mestur. Afrýjun í eiturlyfjamáli í Víetnam Hanoi. Reuter Á þriðjudag hófust málaferli vegna áfrýjunar 19 sakborninga af 22 í stærsta eiturlyfjahneyksli sem kom- ið hefur upp í Víetnam. Af sakborningunum 19 hlutu 8 dauðadóm í undirrétti fyrr á árinu. Mikillar öryggisgæslu var þörf við réttarhöldin í undirrétti, bæði til að hemja æstan almenning og til að hindra samstarfsmenn sakborning- anna í að ná sambandi við þá. Helm- ingur þeirra eru landamæraverðir eða lögreglumenn. Upphaf þessa máls var það að eiturlyfjasali frá Laos brotnaði sam- an, skömmu áður en framfylgja átti dauðadómi yfir honum, og bauð upplýsingar í skiptum fyrir líf sitt. Upplýsingar hans sviptu hulunni af svikavefi sem náði allt til stjórnsýslu- kerfísins. Haft var eftir einum af dómar- anna að „smyglararnir séu ekki heimskir" og þar af leiðandi ómögu- legt að segja hvort eitthvað nýtt eigi eftir að koma fram við réttarhöldin Reuter Full búö af nýjum vörum C*OD*K CYKLES REPEAT 590 4.790.- 3.990,- New Silver buxuw Kari síður kjóll 1 Kari sumablússur Karla blússur Marilyn bolir 3 990. kf 2.990,- kl 3.890,- Svartar og teinóttar drag i tilboð CHA*CHA Kringlunni, s. 588 4848. Geymdi lík eiginmannsins Hong Kong. Reuter CHOW Au King, 59 ára ekkja í Hong Kong, faldi lík eiginmanns síns á heimili sínu í þijú ár. Lögregla fann lík listkennarans eftir að ein af dætrum hjónanna gerði lögreglu viðvart. Fjögur börn hjónanna sem bjuggu á heimilinu vissu um líkið en höfðu ekki tekið í taumana vegna sjálfsmorðshót- ana móðurinnar. Ekkjan sem trúði því að maðurinn myndi vakna ein- hvem daginn hafði daglega þvegið og klætt líkið og jafnvel sofið hjá því í stofunni til að veita því félags- skap. Nágrannar sögðu hjónin hafa verið mjög samrýnd. Þakka öllum þeim sem minntust mín á áttrœðis- afmœlinu 10. júní 1997. Einar Sturluson. Kínverjar and- vígir framsali Pol Pots Peking, Phnom Penh. Reuter. KÍNYERSK stjórnvöld gáfu til kynna í gær andstöðu við áform Bandaríkja- manna um að fá Pol Pot, leiðtoga ógnarstjórnar Rauðu khmeranna í Kambódíu 1975-79, framseldan svo hægt yrði að leiða hann fyrir alþjóð- legan stríðsglæpadómstól. Bandarísk stjómvöld hafa leitað eftir liðsinni kanadískra stjórnvalda við að fá Pol Pot framseldan, en kanadísk refsilöggjöf gerir það kleift. Stjómin í Ottawa sagðist í gær vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna veiti samþykki sitt fyrir hvers kyns tilraunum til að fá Pol Pot leiddan fyrir stríðsglæparétt. „Okkar afstaða er að mál Pol Pots sé innanríkismál Kambódíu," sagði Cui Tiankai, talsmaður utan- ríkisráðuneytisins í Peking. „Kambódíumönnum ber sjálfum að ákveða hvað gert verði og þurfa ekki aðstoð erlendra ríkja í því sam- bandi,“ bætti hann við. Pol Pot flýði frá stöðvum Rauðu khmeranna í Anlong Veng í norð- vesturhluta Kambódíu eftir aftöku á varnarmálaráðherra hans og nokkr- um fjölskyldumeðlimum. Leiðtogar Kambódíustjórnar lýstu því yfir að hann hefði verið klófestir sl. fimmtu- dag af fyrrverandi stuðningsmönn- um sínum, en óyggjandi staðfesting þess hefur ekki borist. í gær sagði Norodom Ranariddh prins, forsætisráðherra Kambódíu, að khmerafylkingin, sem héldi Pol Pot, yrði að selja hann í hendur stjórnvalda innan örfárra daga vilji hún semja um sakarauppgjöf liðs- manna sinna. Ranariddh vísaði á bug efasemd- um um sannleiksgildi þess að Pol Pot væri í haldi og sagði að gerðar hefðu verið ráðstafanir til þess að senda blaðamenn á vettvang til að binda enda á vangaveltur þar að lút- andi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.