Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Formaður Sambands sveitarfélaga á ráðstefnu á Sauðárkróki Of mörg mál hanga í lausu lofti Morgunblaðið/Björn Björnsson FRUMMÆLENDUR f.v. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Árni Gunn- arsson og Skúli Þórðarson í ræðustól. Heita vatnið breytir bæj- arbragnum Drangsnesi - Það var um hádeg- isbilið hinn 10. júní sem heita vatnið fór að streyma úr borhol- unni á Drangsnesi og á fimmtu- dagskvöld voru komnir heitir pottar í fjöruna. Reyndar var sett upp bráðabrigðaaðstaða í veg- kantinum strax á þriðjudag því rúmlega fjórum tímum eftir að borinn var tekinn úr holunni voru komin fiskikör á vegkantinn, full af heitu vatni og hamingjusömu fólki. Krakkarnir vildu fá sundlaug strax en það er kannski ekki hægt að ætlast til að hún sé kom- in í sömu vikunni og vatnið fer að streyma. En menn brugðust skjótt við og Guðmundur Hall- dórsson, sem er með fiskeldi á Ásmundarnesi, gaf þeim tvö fjög- urra fermetra eldisker svo þau gætu að minnsta kosti leikið sér í vatninu. Þess má geta hér til gamans að Guðmundur var á sínum yngri árum mikill sundmaður og var hann fyrsti Islendingurinn sem hlaut afreksmerki hins íslenska Iýðveldis fyrir frækilega björgun félaga sinna er Vörður fórst 29. janúar 1950. Kerin voru sótt norður í Bjarn- arfjörð, þeim komið fyrir í fjör- unni fyrir neðan skólann, vatnið leitt í þau og heitir pottar orðnir að veruleika. Sauðárkróki - Á ráðstefnu um stjórnmálaflokka og sveitarstjórn- armál, sem haldin var í Bóknáms- húsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki 14. júní sl., ræddu fulltrúar flestra stjórnmála- flokkanna samskipti ríkisvalds og sveitarstjórnanna, og þær verulegu breytingar sem orðið hafa með til- færslu grunnskólans og þær breyt- ingar aðrar sem mjög líklega fylgja í kjölfarið. Ráðstefnan hófst á ávörpum þeirra Björns Sigurbjörnssonar for- manns Bæjarráðs Sauðárkróks og Ragnars Garðarssonar formanns Félags stjórnmálafræðinga, en síð- an fluttu framsöguerindi um „Stöðu sveitarstjórna innan stjórnkerfis- ins“, þeir Skúli Þórðarson bæjar- stjóri Blönduóss, sem varaði við auknum flutningum verkefna frá ríki til sveitarfélaga fyrr en frekari sameining þeirra hefði farið fram, þannig að þau væru í stakk búin til þess að takast á við þau verk- efni sem þeim væru falin. Taldi Skúli að stefna ætti að frjálsri sam- einingu, og gefa til þess nokkurn tíma, en ef ekki yrði af, þyrfti að lögbinda sameininguna og miða þá við eitt þúsund manna sveitarfélag. Árni Gunnarsson aðstoðarmaður félagsmálaráðherra ræddi um til- raunasveitarfélög og þær athyglis- verðu tilraunir sem þar væri verið að gera og benti meðal annars á það verkefni Reykjavíkurborgar að sameina alla félagsþjónustu undir eina stjóm í Grafarvogi, en einnig benti hann á að á Akureyri og Hornafirði væri verið að vinna að tilraunum um sameiginlega stjórn- un reksturs öldrunarstofnana og málefna fatlaðra, og virtust þessar tilraunir lofa góðu. Árni taldi efl- ingu sveitarstjómarstigsins hreint byggðamál og taldi að það hamiaði gegn fólksflótta frá landsbyggðinni til suðvesturhornsins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga benti á að þörf væri á skýrri verkaskiptareglu milli ríkis og sveit- arfélaga, og taldi allt of mörg mál hanga í lausu lofti, en benti um leið á mjög mikinn mismun milli verkaskiptingar þessara aðila, hér- lendis og í nágrannalöndunum. Þá gerði Vilhjálmur grein fyrir þeim málum sem nú eru í brenni- depli, meðal annars skattbreyting- um í kjölfar nýgerðra kjarasamn- inga, og taldi eins og aðrir ræðu- menn að sameining sveitarfélag- anna væri stærsta hagsmunamálið, og mikilvægasta verkefni sveitar- stjórnarmanna að vinna að. Stærri sveitarfélög taldi Vilhjálmur hafa alla burði til að taka að sér mun fleiri verkefni en nú væri, en til þess þyrfti einnig að tryggja að nægilegt fjármagn fylgdi. Finna þyrfti nýjum verkefnum farveg í stjórnkerfi sveitarfélaganna, og samskipti ríkis og sveitarfélaganna þyrftu að byggjast á traustum og skýrt afmörkuðum grunni. Flokkspólitík í sveitarstjórnum Að loknum framsöguerindum var fjallað um „Flokkspólitík í sveitarstjórnum" og voru þar frum- mælendur Jóhann Geirdal, Siv Frið- leifsdóttir og Sturla Böðvarsson, en að loknum þeirra ávörpum voru pallborðsumræður, en þá bættist í hóp þátttakenda Steinunn Óskars- dóttir fulltrúi R-Iistans í Reykjavík. Urðu fjörugar og skemmtilegar umræður, þar sem þátttakendur fjölluðu um ýmis mál, svo sem hvort stjórnmálaflokkar samræmdu hver og einn stefnu sína í sveitarstjórnar- málum, hvort marktækur munur væri á stefnu flokkanna, og hvort sveitarstjórnir væru kjörinn vett- vangur til sameiningar flokka. Varð þátttaka almenn og fengu ræðumenn margar spurningar úr sal til meðferðar, og þótti ráðstefn- an takast með ágætum. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir DRANGSNESBÖRN ásamt sumargestum að sunnan skemmta sér í pottinum. Þau eru frá vinstri Villi, Berglind, Helga, Anna Guðrún, Hófí og Ingólfur. Norskir dagar á Seyðisfirði EFTIR vel heppnaða 100 ára af- mælishátíð Seyðisfjarðarkaupstað- ar, sem haldin var síðustu helgi júnímánaðar 1996, var ákveðið að halda svokallaða norska daga á Seyðisfirði 1997. „I samvinnu við norska sendiráð- ið í Reykjavík, Nils 0. Diets sendi- herra, og vinnuhóp á vegum Seyðis- fjarðarkaupstaðar hefur undirbún- ingsvinna verið i gangi í eitt og hálft ár. Helgina 27.-29. júní nk. verður ijölbreytt dagskrá í gangi þar sem m.a. gestir frá Mandal, Askim og Bergen í Noregi verða meðal þátttakenda,“ segir í frétta- tilkynningu frá Seyðisfirði. Dagskráin verður svohljóðandi: Föstudag 27. júní: Norska leikrit- ið „Dýrin í Hálsaskógi" eftir Tor- björn Egner, norska spennumyndin „Hoodet over vannet" í Félagsheim- ilinu Herðubreið. Listsýningar „A Seyði 1997“ verða formlega opnað- ar og meðal annarra sýnd verk 8 norskra listamanna. Laugardag 28. júní: Gönguferð um bæinn og m.a. norsku húsin skoðuð. Hátíðardagskrá verður við minnisvarða Otto Wathne við Fjarð- ará og á Miðbæjartorgi. Þar koma m.a. fram skólalúðrasveit, barna- kór, samkór og kirkjukór, sönghóp- ur, einnig norskur stúdentakór frá Bergen o.fl. o.fl. Leiktækja-tívolí fyrir börn á öllum aldri verður í gangi. Fallbyssuskot við bæjar- skrifstofur og stórdansleikur í Herðubreið um kvöldið með „norsku ívafi“. Sunnudag 29. júní: Listsýningar verða opnar. Lokasýning Leikfélags Seyðisfjarðar á Dýrunum í Hálsa- skógi. Norskir gestir verða kvaddir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Sleppitúr austur 1 sveitir Syðra-Langholti - Helgina 14.-15. júní fóru hundruð hestamanna við sunnanverðan Faxaflóa með þúsundir hesta í sína árlegu sleppitúra austur í sveitir þar sem hestarnir verða í hagagöngu fram á haust eða vetur. Þetta er með seinasta móti sem megin- þorri hestamanna sleppir í haga. Vorkuldarnir hafa valdið því að ekki hefur orðið af því fyrr. Þess- ir Fáksfélagar voru á ferð í Grafningi fyrir skömmu og var ferðinni heitið í Biskupstungur. Steindir gluggar í Víkurkirkju Fagradal - Vegleg gjöf eiginmanns og barna Laufeyjar Helgadóttur sem ættuð var úr Vík í Mýrdal var færð Víkurkirkju til minningar um hana fyrir skömmu. Haraldur M. Kristjánsson, sóknarprestur í Vík telur þetta með þeim merkustu gjöf- um sem Víkurkirkju hefur áskotn- ast. Um er að ræða steint gler í alla glugga kirkjunnar með fagurlega gerðum táknmyndum og boðskap. Það var Hrafnhildur Ágústsdóttir, glerlistakona, sem vann verkið en hún er búsett og starfar í New York. Dr. Sigurbjörn Einarsson, bisk- up, predikaði af þessu tilefni og afhenti gjöfina fyrir hönd fjölskyld- unnar. I messunni söng kór Víkur- kirkju ásamt sænskum drengjakór, St Jakobs Gosskör frá Stokkhólmi sem er stjórnað af John Wiklund en kórinn er nú á tónleikaferð um landið. Heimildarmynd um ferð kórsins, unnin af Helga Felixsyni, kvikmyndagerðarmanni, verður sýnd i sænska sjónvarpinu í haust. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson A MYNDINNI eru f.v.: Haraldur M. Krisijánsson, sóknarprestur í Vík, Áslaug Vilhjálmsdóttir, formaður sóknarnefndar sem tekur við gjafabréfi úr hendi Hrafnhildar Ágústsdóttur glerlistakonu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.