Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 37 + Margrét Árna- dóttir fæddist í Reykjavík 15. jan- úar árið 1908. Hún lést á heimiii sínu í Reykjavík 17. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Árni Árna- son verkamaður, f. 2. september 1863 í Breiðholti við Reykjavík, d. 1. febrúar 1959, og Kristín Ólafsdóttir, f. 8. desember 1868 á Vatnsenda við Ell- iðavatn, d. 22. júní 1946. Framættir Árna voru í Árnessýslu en Kristínar þar og íKjósarsýslu. Börn Kristínar og Árna voru voru alls 12: 1) Ólaf- ía Guðlaug (1890-1981), g. Her- berti M. Sigmundssyni prent- smiðjustjóra. 2) Valdemar (1893-1962) verksljóri í Sænska frystihúsinu, kv. Guðlaugu I. Sigurðardóttur. _ 3) Laufey (1895-1971), g. Árna Kristjáns- syni vélsljóra. 4) Stefanía (1898 dáin sama ár). 5) Guðrún (1899-1900). 6) Guðrún Hjartar (1891-) g. Lofti G. Hjartar húsasmið. 7) Kristinn (1903-82) vélgæslumaður, óg. 8) Stefanía (1906-92), g. Sigurþóri Jóns- syni úrsmið. 9) Margrét (1908-97), g. Emil Birni Magn- ússyni féhirði. 10) Áslaug Björg (1909-), g. Sigtryggi Árnasyni verslunarmanni og síðar Stein- grími M. Guðmundssyni bifreið- arstjóra. 11) Gunnhildur (1910-61), g. Sigurjóni H. Ing- Það land sem höfuðborgarsvæðið stendur á var í eina tíð sveit sem ekki var frábrugðin öðrum sveitum landsins. Hér hétu bæir nöfnum sem hljóma okkur höfuðborgarbúum kunnuglega í eyrum; Bústaðir, Ár- bær, Rauðará, Kleppur, Langholt, Vatnsendi eða Breiðholt. Sveitin hét Seltjarnarneshreppur og hér lágu rætur Margrétar Árnadóttur. Móðir hennar, Kristín Ólafsdóttir húsmóð- ir, var fædd á Vatnsenda við Elliða- vatn árið 1868. Voru foreldrar henn- ar Ólafur Ólafsson óðalsbóndi þar og kona hans Guðlaug Guðmunds- dóttir. Var Kristín fimmta í röð 13 alsystkina en einungis sjö þeirra komust upp og af þeim eignuðust tvö afkomendur. Faðir hennar, Árni Árnason verkamaður, var fæddur árið 1863 í Breiðholti, sonur Árna Jónssonar bónda þar og hreppstjóra Seltjarn- arneshrepps og seinni konu hans Kristbjargar Jónsdóttur. Árni var áttunda barn föður síns en fyrsta barn móður sinnar, en alsystkini hans urðu tíu. Af sautján börnum Árna í Breiðholti komust tíu til full- orðinsára. Leiðir þeirra Kristínar og Árna lágu fyrst saman er hann gerðist vinnumaður Ólafs á Vatnsenda og voru þau gefin saman í Dómkirkj- unni á gamlársdag 1889 og hófu þau búskap í vesturbæ Reykjavíkur. Árni vann sem verkamaður alla tíð, fyrst hjá Brydesverslun og síðar hjá Eimskipafélaginu. Hann var einn af stofnendum verkamannafélagsins Dagsbrúnar árið 1906, tók virkan þátt í starfsemi þess og var síðar gerður að heiðursfélaga. Má geta þess að á stofnfundi félagsins var Árni kosinn dyravörður en hlutverk þeirra var að hindra óboðna gesti í að ryðjast inn á fundi og máttu þeir ekki vera neinir aukvisar. Árið 1893 keyptu þau tómthúsbýl- ið Hansbæ og á þeim sama stað reistu þau sér hús árið 1901 sem var Bakkastígur nr. 7 á horni Mýr- argötu. Þar stóð heimili þeirra til æviloka en hús þetta er horfið fyrir allnokkru. Á árunum 1890 til 1911 varð þeim Kristínu og Árna tólf bama auðið, tíu komust til fullorðinsára og eru systumar Guðrún og Áslaug eftirlif- andi af þessum myndarlega hópi. varssyni sjómanni, síðar Jóhannesi L. Jóhannessyni prent- ara. 2) Olafur (1911-43) prentari, óg- Margrét giftist 18. maí 1930 Emil Birni Magnússyni féhirði frá Reyðar- firði, f. 2. ágúst 1906 á Eskifirði, d. 25. nóvember 1952 í Reykjavík. Foreldr- ar hans voru Magn- ús Magnússon (1868-1941) kenn- ari og kaupmaður og kona hans Emelía Soffía Björnsdóttir (1883-1960). Börn Margrétar og Emils eru: 1) Edda, f. 14. júlí 1931 meina- tæknir, g. Þorsteini Þorsteins- syni (1925-) lífefnafræðingi frá Húsafelli. Þeirra börn: Ingi- björg tónlistarmaður, Björn líf- fræðingur, Þorsteinn trygg- ingamaður og Margrét tónlist- armaður. 2) Héðinn, f. 22. febr- úar 1933 tryggingamaður, kv. Ingibjörgu Olgu Hjaltadóttur (1934-96). Þeirra börn: Margrét hjúkrunarfræðingur, María Sol- veig skólastjóri, Emil Björn for- ritari, Magnús matreiðslumeist- ari og Davíð iðnrekstrarfræð- ingur. Sambýliskona Héðins er Júlíana Magnúsdóttir. Barna- barnabörn Margrétar og Emils eru alls 16 og eitt barn í fjórða lið. Útför Margrétar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Margrét Árnadóttir var sú níunda í röðinni, fædd heima á Bakkastíg þann 15. janúar árið 1908 og þar átti hún heima fram yfir tvítugsald- ur. Þetta mannmarga heimili var ekki stórt á mælikvarða nútímans, ein hæð og um 35 fermetrar að grunnfleti en allt bar vott um reglu- semi og snyrtimennsku. Af gömlum myndum að dæma var húsið vestast í vesturbænum við stórt opið svæði í kringum Ánanaust og má segja að þessi hluti bæjarins hafi verið eitt samfellt stakkstæði þar sem saltfiskur var sólþurrkaður á sumrin. Af Bakkastíg hefur verið fallegt og vítt útsýni yfir höfnina og flóann. Auk heimilisstarfa tók Kristín húsfreyja físk heim til sín, vaskaði hann og þurrkaði og hafði hún stakkstæði í Mýrarholti. Tók Mar- grét þátt í þeirri vinnu ásamt systk- inum sínum og vandist því snemma vinnusemi og dugnaði sem einkenndi hana alla tíð síðan. Það má því segja sem svo að á Bakkastíg hafi lífið verið saltfiskur en elja og samheldni fjölskyldunnar gerði heimilið bjarg- álna. Margrét sagði undirrituðum þá sögu að þegar hún var um tíu ára aldur veiktist hún af kirtlaveiki. Var talið að henni yrði gott af því að fara í sveit þar sem meira væri um mjólkurmat en það var ekki sjálfsagt að börn á efnaminni heimilum í Reykjavík fengju mjólk enda var hún farin að drekka kaffi þriggja ára. Þegar henni var tilkynnt að búið væri að útvega henni vist í sveit, „sagði ég bara þvert nei og fór út að stafla saltfiski", og varð henni ekki haggað. Þarna komu fram eig- inieikar sem voru ríkir í skapgerð hennar; hún var heimakær og föst fyrir. Margrét gekk í Miðbæjarbarna- skólann frá 10 til 14 ára aldurs en eftir fermingu hóf hún störf við Isa- foldarprentsmiðju og vann þar til 1930. Á blaðsíðu 36 í bókinni ís- landsdætur sem kom út árið 1991 má líta Margréti á ljósmynd ásamt tveimur systrum sínum og vinkonu sem tekin er á Austurvelli árið 1926. Af þeirri mynd og öðrum að dæma hefur Margrét verið glæsileg stúlka sem bar sig vel. Á þessum árum kynntist hún mannsefni sínu Emii Birni Magnús- syni frá Reyðarfirði sem stundaði þá nám við Verslunarskólann. Hann var fæddur á Eskifirði 2. ágúst 1906, sonur hjónanna Magnúsar Magnús- sonar kennara og kaupmanns og Emelie Soffie Björnsdóttur. Þau gengu í hjónaband 18. maí árið 1930 og stofnuðu heimili austur á Eski- firði þar sem þau bjuggu til ársins 1951 er þau fluttust til Reykjavíkur. Þar fæddust þeim tvö börn, Edda árið 1931 og Héðinn árið 1933. Á Eskifirði annaðist Margrét heimili og börn en Emil starfaði lengst af sem féhirðir í útibúi Lands- bankans. Framan af bjuggu þau í húsinu Framkaupstað en árið 1940 flytjast þau í húsið Hól þar sem þau bjuggu þangað til þau fluttust suður. Þau hjónin tóku virkan þátt í félagslífinu á Eskifirði og var Margrét félagi í Slysavarnafélaginu sem hún studdi ávallt. Fjölskylda Emils bjó í ná- grenninu og einnig mynduðust sterk vinatengsl við fjölskyldur þar á staðnum sem hafa haldist síðan. Árið 1951 fluttu þau búferlum til Reykjavíkur og settust að í Garði í Skeijafirði en aðeins einu ári síðar lést Emil langt um aldur fram. Um svipað leyti eða skömmu síðar stofn- uðu börn hennar heimili, Edda gift- ist Þorsteini Þorsteinssyni frá Húsa- felli en Héðinn kvæntist Ingibjörgu Hjaltadóttur. Urðu barnabörnin 9. Þarna urðu kaflaskil í lífi Margrét- ar og hóf hún brátt störf utan heimil- isins á nýjan leik. Starfaði hún við bókband í Herbertsprenti og síðar í Hilmi hf. Naut prentiðnaðurinn starfskrafta hennar óslitið til ársins 1986 eða í alls 34 ár sem má teljast full starfsævi og bætast við það starfsárin fyrir giftingu. Herbert M. Sigmundsson, stofnandi Her- bertsprents, var eiginmaður Ólafíu systur Margrétar og störfuðu mörg systkinanna frá Bakkastíg við prent- verk að einhveiju eða öllu leyti. Árið 1964 flytjast dóttir hennar og tengdasonur, Edda og Þorsteinn, til Reykjavíkur og byggði hún með þeim hús að Háaletisbraut 35 þar sem hún bjó til dauðadags. Naut hún þar samvista með fjölskyldu þeirra og börnum og hélt með þeim heimili. Ég kynntist Margréti „tengda- ömmu“ fyrir sjö árum og hafa þau kynni verið mér ánægjuleg og verð- mæt. Þá hafði hún látið af störfum en gekk til verka á heimilinu af vinnusemi, verklagni og nýtni sem mér fannst einkenna hana svo mjög. Meðal annars bakaði hún afbragðs gott brauð fyrir heimilið og ef allir gengju eins samviskusamlega frá sorpi eins og Margrét gerði þá væri uhverfisvandinn sem af hlýst öllu minni en hann er. Margrét var ekki sú manngerð sem er með óþarfa málalengingar en var vel skynug og viðræðugóð. Hún lumaði á skemmtilegri kímni- gáfu sem lýsti sér gjarnan í örstutt- um neyðarlegum athugasemdum sem gátu fengið mann til að springa úr hlátri. Hún fylgdist ágætlega með þeim hlutum sem hún hafði áhuga á en var þó sérstaklega vakandi yfir hag afkomenda sinna sem hún studdi oft svo um munaði. Hún hafði gam- an af barnabörnum sínum og börn- um þeirra og var hlý og skemmtileg langamma. Stofan hennar bjó yfir þokka þess tímabils sem oft er kennt við stríðsárin og bar þeirri sömu snyrti- mennsku og myndarskap vitni sem mun hafa einkennt fjölskylduna á Bakkastíg 7. Margrét var sterkbyggð kona, heilsuhraust og vel ern. En fyrir um mánuði kenndi hún þess meins er dró hana til dauða á þremur vik- um eftir stutta en snarpa baráttu. Að eigin ósk var hún flutt heim af sjúkrahúsi eftir fárra daga dvöl og naut frábærrar aðhlynningar af- komenda sinna og heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Hún lést á heimili sínu nákvæmlega þegar sól stóð hæst á þjóðhátíðardaginn 17. júr.í um svipað leyti og skrúðgöng- urnar voru að leggja af stað í höfuð- borginni þar sem hún átti sinn upp- runa. Minning Margrétar Árnadótt- ur lifir meðal okkar sem kynntumst henni. Arinbjörn Vilhjálmsson. MARGRET ÁRNADÓTTIR + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ÓLÖF GUNNSTEINSDÓTTIR frá Nesi, lést á Vífilsstöðum aðfaranótt þriðjudagsins 24. júní. Haraldur Jóhannsson, Fjóla Guðrún Friðriksdóttir, Guðrún Edda Haraldsdóttir, Jóhann Friðrik Haraldsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL J. EGGERTSSON fyrrverandi varðstjóri í slökkviliði Akureyrar, Klettastíg 10, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 18. þ.m., verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 27. júní kl. 13.30. Guðrún Þorkelsdóttir, Skúli Lórenzson, Páll Þorkelsson, Sigurlaug Tobíasdóttir, Kristján Þorkelsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Lilja Þorkelsdóttir, Geir Hólmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLENDUR M. HJARTARSON vélvirki, Hrauntungu 14, Kópavogi, lést á Landsspítalanum mánudaginn 16. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna, Jónína Hjartardóttir, Erla Erlendsdóttir, Hilmir Sigurðsson, Hreinn H. Erlendsson, Sigrún V. Ólafsdóttir, Hjörtur Erlendsson, Guðrún Benediktsdóttir, barnaböm og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, KAREN BJÖRG ÓLADÓTTIR frá Friðheimi í Mjóafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni þriðjudagsins 24. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Magnús Tómasson. + Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL ÁSMUNDSSON húsasmíðameistari, Seljahlíð, Hjallaseli 55, áður til heimilis á Grettisgötu 84, sem lést miðvikudaginn 18. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. júní kl. 13.30. Anna Kristinsdóttir, Guðbjörg Þorkelsdóttir, Ásmundur Kr. Þorkelsson, Ellen Þorkelsdóttir, Kristín E. Þorkelsdóttir, Helga I. Þorkelsdóttir, Guðmundur V. Þorkeisson, Páll Guðjónsson, Hrafnhildur Kristinsdóttir, Gunnar B. Kristinsson, Kristján B. Samúelsson, Guðmundur H. Haraldsson, Jóna S. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.