Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Björn Gislason PRESTAR gengu hempuklæddir frá Sigurhæðum til messu i Akureyrarkirkju við upphaf Prestastefnunnar í gærmorgun og gerði biskup þá göngu að umtalsefni í yfirlitsræðu sinni. Herra Ólafur Skúlason biskup við upphaf Prestastefnu á Akureyri Vinnuálag á presta í þéttbýli er yfirþyrmandi HERRA Ólafur Skúlason, biskup íslands, sagði í yfirlitsræðu sinni við upphaf Prestastefnu á Akureyri í gær að verði tillögur sem liggja fyrir Prestastefnu um þjálfun prestsefna samþykktar, verði ekki lengur um það að ræða að allir kandídatar hljóti slíka þjálfun. Hann sagði guðfræðiprófið eitt ekki tryggja getu til þess að verða prest- ur. „Engum er greiði gerður með því að veita honum möguleika til emb- ættis ef ekki eru líkur á því að hann valdi því. Þetta er hvorki gott fyrir viðkomandi né kirkjuna. Það er því áformað samkvæmt þessum tillögum að rætt verði við stúdenta strax á fyrsta ári og síðan fylgst með þeim. Ekki aðeins til að forða kirkjunni frá því að þeir leiti eftir embætti, sem ekki er talið mögu- legt að valdi prestþjónustunni, held- ur einnig og ekki síður til að hjálpa þeim sjálfum til að leita annarra leiða.“ Yfirþyrmandi vinnuálag Ólafur sagði það nú á valdi kjör- inna fulltrúa að gera tillögur um breytingar á prestakallaskipaninni og sjá til þess að prestar nýtist sem allra best. Hann sagði vinnuálag presta í þéttbýli vera yfirþyrmandi og ekki næði nokkru lagi að einn prestur annist fleiri þúsundir sókn- arbarna. „Það er heldur ekki gott fyrir prest ef fámennið er orðið það mikið að erfitt reynist að finna sér verkefni. Sjálfur sagði ég reyndar á árum áður að af tvennu óæskilegu kysi ég þó heldur að sjá ekki út úr verkefnum, heldur en að þurfa að leita þeirra. En hvernig sem litið er á þessi mál verður að taka tillit til fólksins í hinum dreifðu byggðum og ekki svipta það eðlilegri kirkjulegri þjón- ustu, þótt einnig verði að horfa til breytinga á samgöngum, sem auð- velda bæði prestum og sóknarbörn- um að sækja lengra til kirkju en fyrr var talið unnt, er farið var fót- gangandi eða ríðandi.“ Prestar gengu hempuklæddir frá Sigurhæðum til messu í Akureyrar- kirkju í gærmorgun og gerði biskup þá göngu að umtalsefni í ræðu sinni. Hann sagði margt breytast, enda haldið fram að það sé svo bágt að standa í stað. Því þurfí að gaumgæfa stefnuna með meiri at- hygli og forðast að hlaupa eftir hverri skoðanagolu eða láta nýja- brumið slá sig slíkri glýju að ekki sé það metið sem fyrr gagnaði vel. „í góðu samræmi við langa hefð héldum við til guðsþjónustu í morg- un. Fylkingin liðaðist áfram og minnir um margt á sjálfan tímann. Ásjónur göngumanna veita tilbreyt- ingu, sums staðar má sjá bros, aðr- ir eru ofurseldir alvöru stundarinnar en enn aðrir huga að því einu að halda röð og níða hvorki skó af öðrum né verða þess valdandi að fylking riðlist. Og er það þá vitan- lega fordæmi sem kirkjunni ber vel að virða og má yfirfæra á svo margt í samskiptum okkar og þjónustu." RÚSSAFISKI landað til vinnslunnar. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson UNNIÐ var af kappi í frystihúsi Rauðsíðu í gær. 500 tonnum af rússafiski landað hjá Rauðsíðu á Þingeyri 30 manns við vinnu og hráefni tryggt STARFSEMI er komin í fullan gang í frystihúsinu sem var áður í eigu Fáfnis hf. á Þingeyri en vinnsla hef- ur legið þar niðri frá því á síðasta ári. I gærmorgun hófst þar fisk- vinnsla á vegum hins nýja fyrirtækis Rauðsíðu ehf. Fyrsti farmurinn barst á sunnudag þegar landað var 500 tonnum af rússafiski. Rauðsíða ehf. keypti fyrir nokkru eignir Fáfnis hf. sem Byggðastofnun, Fiskveiðasjóður og Landsbanki ís- lands höfðu leyst til sín. Gera áætlan- ir ráð fyrir að unninn verði Rússa- fiskur í fyrirtækinu. Að sögn Ketils Helgasonar, framkvæmdastjóra Rauðsíðu, sóttu 30 manns um vinnu í fiskvinnslunni og voru allir ráðnir. Ketill kvaðst vonast til að unnt yrði að halda uppi samfelldri vinnslu hjá fyrirtækinu á næstu árum og sagði að fyrirtækið hefði tryggt sér nægilegt hráefni á næstu mánuðum. „Þetta er fyrsti farmurinn sem kemur hingað til Þingeyrar á vegum þessa fyrirtækis. Það er nógan fisk að hafa,“ sagði Ketill. Sagði hann um væri að ræða fyrsta flokks hráefni. Fimm prófastar létu af störfum í máli biskups kom fram að á þessu ári létu 5 prófastar af störfum auk biskups og er þar um að ræða þriðjung prófastastéttarinnar. Nýr prófastur hefur þegar verið skipað- ur í Kjalarnesprófastsdæmi, séra Gunnar Kristjánsson. Staða prests til þjónustu við íslendinga í Noregi hefur verið auglýst laus til umsókn- ar en formlegur söfnuður hefur þegar verið stofnaður í Ósló og nágrenni. Tryggingastofnun hættir að borga „Brugðist var við beiðni íslend- inga um prestþjónustu í Vestur- Evrópu. Brást ríkisstjórnin við af miklum skilningi og hét launum til þessa starfs og skyldi kannað um eins árs skeið hvort þörf væri fyrir hana. Séra Flóki Kristinsson var ráðinn til að vinna þetta brautryðj- andastarf og hvarvetna þar sem hann hefur komið hefur beiðni um áframhaldandi þjónustu verið ítrek- uð,“ sagði Ólafur og bætti við að embættið yrði auglýst laust til um- sóknar síðar í sumar. Tryggingastofnun ríkisins hefur tilkynnt biskupi að stofnunin muni hætta að greiða hluta af launum og kostnaði íslenska prestsins í London frá næstu áramótum. Sagði biskup það mál í uppnámi og að leita þyrfti annarra leiða. „Mikill kostnaður er samfara þessari þjón- ustu við landa erlendis, þótt enginn dragi í efa gagnsemi hennar. Kem- ur þar ekki aðeins til hinn trúarlegi þáttur, heldur og þjóðernisrækt og tungumál." Þjónusta byggð á kærleika Ólafur sagði að þó farið væri yfir þau atriði sem hæst bæri þegar litið er til baka, væri vitanlega einn- ig svipast til framtíðar og ber þar hæst tímamótaárið tvö þúsund. Hann sagði undirbúning kominn vel af stað en gríðarlega mikið væri þó eftir. „Felst í þessari nánd þúsund ára afmælisins áminning til okkar, til íslensku kirkjunnar og ekki síst ís- lenskra presta. Ég taldi presta í Reykjavík fyrir þijátíu ánim ekki mundu setja sterkan svip á bæjarlíf- ið, svo það breyttist fyrir nálægð þeirra. Ekki veit ég nú um Akur- eyri og áhrif okkar hér. Hitt veit ég, að prestar í þjóðkirkjunni eru kallaðir til þess að láta muna um sig. Ekki í brambolti og stórum orðum heldur í þjónustu byggðri á kærleika. Þannig á að muna um okkur svo breyting jákvæðra áhrifa fylgi,“ sagði biskup. Aðalfundur Presta- félags íslands Prestkosn- ingar verði afnumdar AÐALFUNDUR Prestafélags Islands, sem haldinn var í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju sl. mánudag, samþykkti að fela stjórn prestafélagsins að beita sér fyrir því að prest- kosningar verði með öllu af- numdar. Jafnframt að tekið verði upp svipað fyrirkomulag við veit- ingu prestsembætta og tíðkast hjá öðrum embættisstéttum í landinu. Aðalfundurinn fól stjórn prestafélagsins að beij- ast fyrir þessari stefnumörk- um. Þá samþykkti aðalfundur- inn að veita Djáknafélagi Is- lands aukaaðild að Prestafé- lagi íslands. í aukaaðild fellst réttur til að senda fulltrúa á fulltrúaráðsfund prestafélags- ins, málfrelsi og tillöguréttur á fundum félagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.