Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 ERLEfUT MORGUNBLAÐIÐ Yfirlýsing Hashimotos lækkaði gengi á dollara Japanir segja um- mælin misskilin Bond-bíl stolið SEAN Connery hallar sér hér að bifreið þeirri sem hann ók í hlutverki James Bonds í kvik- myndinni „Goldfinger“ árið 1964. Þessum sögulega sportbíl af gerðinni Aston Martin DB5, sem þjónaði sem farkostur 007 í fyrstu myndunum um ævintýri kappans, hefur nú verið stolið úr flugskýli í baðstrandarbæn- um Boca Raton á Flórída og telur lögregla líklegt að þjóf- arnir hyggist selja bílinn vel stæðum safnara. Hraðskreiðar glæsibifreiðir eru reyndar ekki sjaldséð sjón á götum Boca Raton, en líkleg- ast myndi hinn silfurliti vagn með stýrinu hægra megin, inn- byggðum vélbyssum, skotheldu gleri og búnaði til að skjóta farþeganum út úr bílnum skera sig úr þannig að auðvelt væri að bera kennsl á hann. Tókýó. Reuter. STJÓRNVÖLD I Japan reyndu í gær að bæta fyrir hvatskeytleg ummæli Ryutaro Hashimotos, for- sætisráðherra landsins, í New York í fyrradag en þau höfðu veruleg áhrif á bandarískum fjármála- markaði. Þótt japanska fjármála- ráðuneytið segi, að ummælin hafi verið misskilin, er talið, að þau geti haft slæm áhrif á samskipti ríkjanna. Hashimoto flutti ræðu í Columb- ia-háskóla í New York í fyrradag og þegar hann svaraði spurningum að henni lokinni, sagði hann, að Japanir hefðu oft hugleitt að selja það, sem þeir ættu af bandarískum ríkisskuldabréfum, og fjárfesta þess í stað í gulli. Það hefðu þeir þó ekki gert og kvaðst hann vona, að Bandaríkjastjóm ynni að stöð- ugleika á gjaldeyrismarkaði til að ekki þyrfti til þess að koma, að Japanir seldu ríkisskuldabréfin. Mesta lækkun frá 1987 Þessi ummæli höfðu þau áhrif, að gengi dollarans og bandarískra verðbréfa lækkaði meira en það hefur gert síðan í hruninu 1987, í yfirlýsingu japanska fjármála- ráðuneytisins sagði, að ummælin hefðu verið misskilin og vildu Jap- anir vinna að því ásamt Banda- ríkjamönnum að gæta stöðugleika á fjármálamarkaði. Talið er, að ummæli Hashimotos endurspegli óánægju hans með gagnrýni Bandaríkjamanna á fjár- málastefnu japönsku stjórnarinnar en þeir eru farnir að ókyrrast vegna sívaxandi afgangs Japana í viðskiptum ríkjanna. Þá er sagt, að Hashimoto sé einnig óánægður með litla hrifningu Bandaríkja- stjórnar á efnahagsumbótum hans, „Hvellinum mikla“, sem er ætlað að auka samkeppni á japönskum fjármálamarkaði. Ekki er líklegt, að Japanir muni láta verða af hótun Hashimotos því að það myndi koma þeim sjálf- um verst. Þá myndi dollarinn lækka en japanska jenið hækka og gera þar með japönskum út- flutningi erfiðara fyrir. Reuter Tyrkland Yilmaz og Ciller í viðræðum Ankara. Reuter. MESUT Yilmaz, formaður Föður- landsflokksins í Tyrklandi, átti í gær stjórnarmyndunarviðræður við for- menn fjögurra stjórnmálaflokka. Tveir vinstri flokkar og lítill hægri flokkur eru sagðir styðja Yilmaz en hann vantar þó enn nokkra stuðn- ingsmenn til að standast vantrausts- yfirlýsingu á þingi. Meðal þeirra sem hann átti fund með var Tansu Ciller formaður Sannleiksstígsins. Fyrir fundinn hafði Ciller lýst því yfír að hún muni aldrei ganga til liðs við ríkisstjóm undir forsæti Yilmaz. Yilmaz fékk umboð til stjórnar- myndunar á föstudag, eftir að Sul- eyman Demirel, forseti Tyrklands, hunsaði samkomulag Necmettins Erbakans, fyrrum forsætisráðherra, og Cillers um að hún tæki við for- sæti samsteypustjómar þeirra. Ávarp Davíðs Oddssonar á Umhverfisráðstefnu SÞ Efnaliagxir og- umhverfi eru óaðskiljanleg VIRÐA verður réttindi, hagsmuni og skyldu þjóðríkja til að nýta lifandi nátt- úruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti, sagði Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, m.a. í ræðu sinni á Umhverfis- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York í gær. í ræðu sinni sagði forsætisráðherra ennfremur: „Ef við viljum vernda og styrkja eindrægni okkar um forgang umhverfismála hljótum við að gæta þess, að verða ekki fyrir áhrifum frá einfeldningslegum og villandi áróðri sem, þegar til kastanna kemur, grefur undan henni. Samstarf við stofnanir, sem ekki tengjast stjórnvöldum, er ákaflega mikilvægt, en einnig er mikil- vægt að standast þrýsting óábyrgra umhverfisverndunarhópa sem vilja slíta hin nauðsynlegu tengsl milli umhverfis og efnahags og líta síður á umhverfið sem auðlind fyrir afkomu fólks en verndaða náttúru.“ Davíð minnti á, að næsta ár sé af SÞ helgað úthöfunum. Sagði hann, að ríkisstjórn íslands liti svo á, að þá gæf- ist mikilvægt tækifæri til þess að endur- skoða mál er varða sjávarumhverfi, en þau hefðu hingað til ekki notið þeirrar athygli sem þau verðskulduðu. Forsætisráðherra lagði áherslu á, að vemdun sjávarumhverfis og sjálfbær nýting allra sjávarauðlinda yrði talin til forgangsverkefna. Vernda verði lífkerfi sjávar fyrir úrgangi og eiturefnum, og Washington-aðgerðaáætlunin, sem miði að því að hefta mengun frá starfsemi á landi, skuli þegar öðlast fullt gildi. Davíð sagði, að í sumum tilvikum mætti beinlínis rekja slæmt ásigkomu- lag fiskistofna til niðurgreiðslna til sjáv- arútvegsins. Þó mætti ekki gleyma því, að mikil árangur hefði náðst á mörgum sviðum við að samhæfa leyfða veiði vís- indalega ákvarðaðri og sjálfbærri stöðu. „Sífellt fleiri lönd hafa áttað sig á því, að til skamms og langs tíma litið eru markmið í efnahagsmálum og umhverf- Eeuter ismálum óaðskiljanleg,“ sagði Davíð DAVÍÐ Oddsson ávarpar Umhverfisráðstefnu SÞ. Oddsson. Voðaverk í Alsír SKÆRULIÐAR bókstafstrú- aðra múslima myrtu 18 manns í þorpinu Mouzaia í Alsír í síð- ustu viku. Sagði alsírska dag- blaðið El Watan frá því í gær en meðal hinna látnu voru fjög- urra ára gamalt bam og annað 16 mánaða. Fólk á þessum slóð- um hefur nú tekið höndum sam- an, vopnast og ætlar að elta uppi morðingjana. Blaðið sagði, að þrátt fyrir hryllileg ódæðis- verk væri farið að fjara undan skæruliðum, sem skorti vopn og nýja liðsmenn. Ekkja Malc- olms X látin BETTY Shabazz, ekkja banda- ríska blökkumannaleiðtogans Malcolms X, lést í fyrradag af brunasárum en hún brenndist mikið í eldi, sem kom upp í íbúð hennar aðafararnótt 1. júní sl. Talið er, að Malcolm, 12 ára gamalt barnabam hennar, hafi valdið eldinum en hann hefur átt við andlega erfiðleika að etja. Malcolm X var myrtur 1965 en fyrir tveimur árum var ein dóttir hans ákærð fyrir að hafa ætlað að ráða Louis Farr- akhan, leiðtoga samtakanna Þjóðar íslams, af dögum. Hafði móðir hennar sakað Farrakhan um aðild að morðinu á manni sínum. Átöká Filippsexjum MEIRA en 30 manns hafa látið lífið og um 10.000 hafa flúið heimili sín vegna vikulangra átaka filippískra stjórnarher- manna og múslimskra uppreisn- armanna. Hófust þau á mánu- dag í síðustu viku en þá höfðu skæruliðar lagt undir sig bygg- ingarsvæði fílippíska rikisolíufé- lagsins í bænum Sultan-sa-Bar- ongis. Stjórnvöld segja, að skæruliðar stundi það helst að ræna fólki og krefjast lausnar- gjalds. Spor eftir Stórfót KÍNVERSKA fréttastofan Xin- hua sagði í gær, að vísindamenn hefðu hugsanlega fundið fót- spor eftir hinn dularfulla „Stór- fót“. Hefðu hundruð spora, sem líktust fari eftir mannsfót en væru miklu stærri, fundist í skógum Shennongjia-þjóð- garðsins í Hubei-héraði. Var haft eftir einum vísindamann- anna, að stærsta sporið væri 37 sm langt en samkvæmt sög- unum er Stórfótur tveggja metra hár og alþakinn rauðu hári. Lúkashenko fær aukin völd ÞINGIÐ í Hvíta Rússlandi gerði í gær að lögum niðurstöðu mjög umdeildrar þjóðaratkvæða- greiðslu á síðasta ári en sam- kvæmt henni fær Alexander Lúkashenko, forseti landsins, mjög mikil völd. Valdatími hans var framlengdur til ársins 2002 og hann sér um að tilnefna for- seta og helming dómara stjóm- arskrárréttarins, forystumenn efnahagsréttarins, seðlabanka- stjórann og fleiri frammámenn í þjóðlífinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.