Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
i AU.AN DA6 MBE>
GflAS'A MtLLÍ
E
8
1
&
B
i
Ljóska ■
Núj píð eru/ ,
m'ýUo nstr -
sa auk- />,ess <
Uðurmer ,
/>ér. /Mer
LiJbcw V&C
andrúms -
ioftié her.
Bn rnaturinrc..
\er Aann sa.m- •
'baeri/egur trið
'atinn hennarri
Aubv/tað er mcdu'Jnn. \
samóðeri/egur iriðnennar-j
l/jð L/iljum BnrcK eJck/
Ferdinand
^'22
THE TROOPS ARE HUN6RY..
N0THIN6 TO EAT 6UT
FIRECAKE AND WATER..
ANPTHISM0RNIN6
6ENERAL U)A5HIN6T0M
6AVE U5 MORE
8AP NEW5...
MORALE IS LOU) AT
VALLEV F0R6E..
------é----'
Mórallinn er slæmur í Hermennirnir eru svangir... Og í morgun færði Allt marmelaðið
Valley Forge ... ekkert að borða annað en herforinginn okkur er búið!
sviðnar kökur og vatn ... fleiri slæmar fréttir ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Menntastefna
Bakkabræðra
Frá Björku Óttarsdóttur:
NÚ ERU liðnir sjö mánuðir síðan
leikskólakennarar lögðu fram
kröfugerð sína og enn er ekki far-
inn að sjást neinn vilji launanefndar
sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar
eða ríkisins til að semja um mann-
sæmandi laun. Það eina sem kemur
á borðið er smánarboð þar sem við-
semjendur okkar vilja tína út úr
samningum ýmis ákvæði sem við
höfum barist fyrir og jafnvel hafa
kostað okkur minni launahækkanir
en ella hefðu fengist.
Stundum finnst manni að við-
semjendur okkar séu í sama leik
og sumir landkönnuðir sem höfðu
með sér sekki
fulla af glerperl-
um til að bjóða
innfæddum fyrir
útskornu lista-
verkin þeirra.
Skóla- og
menntamál hafa
mikið verið til
umræðu og það
er tvímælalaust
vaxandi meðvit-
und um að það
er knýjandi nauðsyn að sjá til þess
að börnum okkar sé búið sem mann-
vænlegast og þroskavænlegast
umhverfi. Hið háa Alþingi sam-
þykkti nú í vor ályktun um fjöl-
skyldustefnu, um stofnun sérstaks
fjölskylduráðs og aðrar ráðstafanir
til að bæta aðbúnað barnafjöl-
skyldna. Æ sterkari raddir heyrast
frá foreldrum um að þeir vilji fá
gæði fyrir börnin sín og hafa
menntað fólk, leikskólakennara, í
leikskólunum. Gæði og menntað
fólk fæst ekki nema við fáum mann-
sæmandi laun og virðingu fyrir
okkar störfum.
Þakkir
ELSKU dætur, tengdasynir,
barnabörn, faðir og öll systkini
og makar þeirra. Vinir og
skyldmenni. Konur sem hjálp-
uðu til í sal ásamt öllu lista-
fólki sem kom fram og glöddu
okkur 14. júní, sem var
ógleymanlegur. Við viljum
þakka þessu yndislega fólki
alla hjálpina og stuðninginn.
Megi kærleikur og ljós fylgja
ykkur.
BIRNA OGINGÓ.
Reykjavíkurlistinn lagði mikla
áherslu á það fyrir síðustu kosning-
ar að nú yrði að byggja upp leikskól-
ana í borginni og skoða sérstaklega
kjör kvennastétta. Því verður illa
trúað að þessir sömu aðilar ætli
ekki að sjá sóma sinn í því að meta
störf leikskólakennara að verðleik-
um og semja um laun sem taka
mið af þeirri miklu ábyrgð sem er
í því fólgin að mennta yngstu þegna
þjóðfélagsins.
í einni af sögunum af Bakka-
bræðrum segir frá því að þeir
keyptu stórkerald í Borgarfirði,
slógu sundur og fluttu heim til sín
í Fljótin. Þegar heim var komið var
keraldið sett saman og farið að
safna í það en það vildi leka. Eftir
nokkra skoðun kom einn bræðranna
auga á ástæðu þessa og mælir:
„Gísli-Eiríkur-Helgi, ekki er kyn þó
keraldið leki, botninn er suður í
Borgarfirði."
Við höfum öli heyrt ráðamenn
þessarar þjóðar halda því fram á
tyllidögum að ekkert sé dýrmætara
þessari þjóð en börnin. Bömin séu
það mikilvægasta og þeim beri allt
gott. Mér verður stundum hugsað
til þessarar sögu af Bakkabræðrum
þegar ég heyri slíkar hátíðarræður.
Ef einhver alvara býr að baki þessu
tali af hveiju sér þess svo sjaldan
stað? Af hveiju eru réttindi ís-
lenskra foreldra til að vera með
börnum sínum þau lökustu sem
þekkjast á Norðurlöndum? Af
hveiju sjá menn ofsjónum yfir því
fé sem varið er til að gera umhverf-
ið sæmilega barnvænt? Og af hveiju
eru bankastjórar á sjöföldum laun-
um leikskólakennara? Af hveiju lek-
ur keraldið?
Ég held að ástæðan sé einfald-
lega sú að ráðamenn halda að þeg-
ar kemur að bömum sé unnt að
skilja botninn eftir suður í Borgar-
firði, þetta reddist nokk. Ég held
hins vegar að eigi keraldið að halda
þá sé alger nauðsyn að botninn sé
með og vel traustur. Án þess grunns
sem felst í góðu, stöðugu og vel
menntuðu vinnuafli á leikskólunum
verður grannurinn að menntun
barna okkar seint viðunandi. Það
er komin tími til að ráðamenn standi
við stóru orðin í hátíðarræðunum,
meti störf leikskólakennara að verð-
leikum og greiði þeim mannsæm-
andi laun.
BJÖRK ÓTTARSDÓTTIR,
leikskólakennari í Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.