Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1997 23 LISTIR Munn-söfnuður MYNDLIST Gallcrí Sævars Karls, Bankastræti 9 BLÖNDUÐ TÆKNI RAGNA ST. INGADÓTTIR Opið á verslunartíma tíl 9. júlí, að- gangur ókeypis. EFTIRMYNDIR af varalituðum munni sem þrýst er á pappír eru í samhangandi röð og þekja að mestu veggi rýmisins. Verkið sam- anstendur af hliðstæðum einingum sem samsettar eru úr þremur myndum þrykktum í sama litatón. Fyrir neðan myndirnar er hand- skrifaður texti á ensku og er orða- lag setningana eins og mælt af munni fram ?...I place you; I take you; I move you; I see you; I hold you ...?. Fullyrðingar sem textinn felur í sér eru settar fram á hlut- lægan hátt og endurspegla með margþvældum setningum ímynd karla og kvenna á goðsagnakennd- an liátt. Ragna notar varir sínar sem stimpilmerki með hefðbundn- um varalitum og er skírskotun um hvatleika sem á einnig við um full- yrðingar textans. Henni tekst að láta verkið taka á sig efnisform með framleiðslu eftirmynda en út- færslan er of augljós til að vekja forvitni áhorfandans. Framsetning verksins er ekki nógu ögrandi, til dæmis eru myndimar í smekkleg- um viðarrömmum og er útlit þeirra ekki í samræmi við innihaldið. Hug- myndin að verkinu er góð en krefst djarfari vinnubragða og minni um- búnaðar til að nálgast viðfangsefn- ið og markmið sýningarinnar. Hulda Ágústsdóttir * Islenskar kvikmyndir í Liechten- stein Ziirich. Morgunblaðið. UM 240 manns sóttu kvikmyndahá- tíð helgaða íslenskum kvikmyndum í Liechtenstein um helgina. Geir Haarde, alþingismaður, og Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, voru viðstaddir formlega ognun á laugardag ásamt Þorfinni Ómars- syni, formanni kvikmyndasjóðs, og Asdísi Thoroddsen, leikstjóra Ing- aló, en hún var meðal sjö kvik- mynda sem voru sýndar á hátíð- inni. Tjarnarkvartettinn söng við opnun hátíðarinnar. Daniel Quaderer, 32 ára Liecht- enstein-búi, sem starfar hjá sviss- neska sjónvarpinu, var fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Hann hefur hug á að halda árlega hátíð með myndum frá Evrópuþjóðum með færri en 10 milljón íbúum. Is- lenskar myndir urðu meðal annars fyrst fyrir valinu af því að hann hélt að það væri minna umstang að fá myndir frá smáu landi en stóru. Hann hefur komist að raun um að stærð þjóðarinnar skiptir ekki máli, innflutningur á myndum frá íslandi er jafn mikið stórmál og frá öðrum þjóðum. Það er sama og engin_ kvik- myndagerð í Liechtenstein. í land- inu búa um 30.000 manns. Morgunblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir Leiklistarskóli á Húsabakka Dalvík. Morgunblaðið. HÓPUR áhugafólks um leiklist kom saman á Húsabakka í Svarf- aðardal nýlega og settist á skóla- bekk. Þetta voru þátttakendur á sumarnámskeiði Bandalags ís- lenskra leikfélaga sem héðan í frá mun verða árlega fyrstu vikuna í júní, víðs vegar um landið. Að þessu sinni voru þrjú nám- skeið í boði, leiktextasmiðja undir stjórn Þorgeirs Tryggvasonar, leikstjóranámskeið þar sem leið- beinandi var Sigrún Valbergsdótt- ir og leikaranámskeið sem Harpa Arnardóttir sá um. Þátttakendur voru alls 42 og komu þeir víða að af landinu auk þess sem einn kom frá Færeyjum. Þetta form námskeiðs er nýjung hjá Bandalaginu og er tilgangur þess að byggja upp markvisst leik- listarnám fyrir áhugafólk. I febr- úar ár hvert kemur út námskrá þar sem námskeið sumarsins eru kynnt. Námskeiðin eru öllum opin og ekki bundin við fólk innan vé- banda áhugaleikfélaganna, en nán- ari upplýsingar um þau fást hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga. Nýjar • ÚT er komin bókin Sorgarvið- brögð, huggun íharmi eftir breska sálfræðinginn Úrsúlu Markham. í kynningu segir að heimild hafi fengist til að aðlaga bókina íslensk- um aðstæðum og er þar því m.a. að finna yfirlit yfír fjölþætta starf- semi samtakanna Ný dögun, sem hafa verið virk á þessu sviði hér á landi, ásamt tilvísunum í fjölda ís- lenskra rita og ræður, þar sem fjall- að hefur verið um þetta efni, m.a. þættir og ræður eftir prestana Jón Auðuns og Jakob Jónsson. Bókin er í mörgum köflum og fjallar um sorgina bæði í almennum og sérhæfðum tilvikum. í hinum al- menna kafia „Um sorgaráföll" er m.a. í viðbæti fjallað um tvö áhrifa- mikil sonatorrek í íslenskum bók- menntum, þeirra Egils Skallagríms- sonar og Gríms Thomsens. Margvíslegum vanda er lýst, sorg- inni, reiðinni, sektarkenndinni, ótt- anum, léttinum. Sérstakir kaflar eru um viðhorfín þegar fólk veit að dauð- inn nálgast, „Meðan enn er tími til stefnu", og rædd frá ýmsum hliðum hin ólíku viðhorf manna til fram- haldslífs. Mestur hluti bókarinnar fjallar um viðbrögð hinna nánustu, gefin ráð um hvernig hægt er að sigrast á sorginni, hvernig fólk á að minnast hins látna. Þá eru sérstakir þættir um börnin, bæði um sorgmædda barnið og hinsvegar um missi barns, sorgina við skyndidauða, sjálfsmorð, missi maka, fórnarlömb glæpa. Einn kafli er um „Tignun lífsins" og þar vitnað í margt sem getur orðið til huggunar. í viðbótarköflum er svo fjallað um sorgarsamtök almennt og bækur sérstaklega á íslandi. Útgefandi bókarinnar, sem er 160 síður, erFjöiva-Vasaútgáfan. Þýð- andierEva Ólafsdóttir. Prentun: Grafík hf. • EIN af þekktustu skáldsögum rússneska skáldjöfursins Maxims Gorki (1868-1936), Móðirin, hefur verið endurútgefin. Hún kom fyrst út árið 1906. Þar segir af ólæsri bóndakonu, Pelageju Vlassovu, sem vaknar til vitund- ar um ranglætið í þjóðfélaginu og þegar sonur herinar er sendur burt frá henni nauðugur heldur hún ótrauð áfram baráttunni. Bók- in er rituð skömmu eftir uppþot sem áttu sér stað í Rúss- landi árið 1905 og ber hún tíma sínum og eindreg- inni samúð Gorkís með lítilmagnanum glöggt vitni, en sagan er bæði áhri- farík og spennandi, segir í kynningu. Bókmenntafélagið Mál og menn- ing var stofnað 17. júní árið 1937 í þeim tilgangi að koma þekktum bókum á framfæri við almenning á lágu verði. Árið eftir gaf félagið út Móðurina, fyrsta skáldverkið á sín- um vegum, í þýðingu Halldórs Stef- ánssonar rithöfundar sem einnig rit- ar eftirmála. í tilefni af 60 ára af- mæli Máls og menningar er Móðirin nú endurprentuð. Móðirin er 524 síður, prentuð í Svíþjóð. Verð 60 kr. BÍLATORG FUNAHÖFDA 1 S. 587 7777 Ragnar Lövdal, lögg. bifreiðasali Volvo 850 GLE drg. 1995. Toyota Cavny 2000 GLi STW Renault Laguna RT drg. Nissan Patrol GR drg. 1993, Honda Prelutle drg. 1996, Dodge Neoti drg. Grdsans, sjdlfskiptur ABS, drg. 1991, bldsans., 5 gíra, ck. 1996, grænsans., sjdlfsk., mj'óg grdsans., dlfelgut; 32“ dekk, rauður, dlfelgut; leðursæti, grœnsans., ek.57 þús. km. ekinn 25.000 km. lóþús.km. fallegur bíll, ek. 31 þtís. km. ek. 85þús. km. sóllúga, ek. 17þiís. knt. Verð 1.330.000. Skipti. Verð 2.290.000. skipti. Verð 1.180.000. skipti. Verð 1.790.000. Verð 2.690.000. Skipti. Verð 2.450.000. Skipti. BMW 750i drg. 1991, dökk- Mazda 323 LXi drg. 1995, Mercedes Benz 230 TE drg. Toyota 4Runner dísel drg. grdsans., einn með öllum auka- vínrauður, ek. 53 þús. km. 1992, hvitur, sóllúga, dlfelgur, 1994, vinrauður, upphækkaður, hlutum. Sjón er sögu ríkari. Verð 3.350.000.' Verð 1.030.000. mjógfallegur bíll. Verð 2.680.000. Skipti. 33“ dekk, ek. 77þús.km. Verð 2.490.000. Skipti. MMC Eclipce drg. 1995, rauður, sólliiga, dlfelgut; ABS, ek. 24 þtís. km. Verð 2.150.000. Skipti. BMIV 520i Touríng drg. 1996, dökkgrdsans., dlfelgut; ABS, leðursæti, ek. 26 þús. km. Verð 3.490.000. An',zf:zr' VANTAR ALLAR GERDIR BILA A SKRA - VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.