Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Leiðarvísir um íslenskt handverk Hnífjafnt á toppi Evrópumótsins BRIDS Montccatini, Itaiíu EVRÓPUMÓTí S VEIT AKEPPNI Evrópumótið í sveitakeppni er haldið í Montecatini Terme á Italiu dagana 14.-29. júní. Island tekur þátt í opnum flokki og kvennaflokki. eftir að hafa átt 11 stiga forustu í hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var frekar rólegur, en stærsta sveiflan í hálf- leiknum lenti íslendinga megin í þessu spili: Vestur gefur, allir á hættu Norður ♦ ÁKD1097 VK85 ♦ 107 STAÐAN í opna flokknum á Evr- ópumótinu í brids var með ólíkind- um jöfn þegar tæplega 2A hlutar mótsins voru búnir. Aðeins 15 stig skildu 2. og 8. sætið að en ítalir höfðu enn góða forustu þrátt fyrir nokkuð erfiðan kafla um miðbik mótsins. Þá voru þeir m.a. heppn- ir með að ná jafntefli við „litlu bræður“ sína frá San Marínó, en það er raunar ekki ný saga á Evrópumótum. íslendingar voru í 5. sæti eftir að hafa setið yfir í 23. umferð í gær. Þá voru ítalir með 442,5 stig, Pólveijar með 425,5, Norðmenn með 425, Spánveijar með 422, íslendingar 420, Hollendingar 418, Frakkar með 416 og Danir með 410 stig. Eftir tvo góða leiki gegn Búlg- aríu og Sviss fyrri hluta mánu- dagsins misstu Islendingar aðeins flugið þegar þeir mættu fjandvin- um sínum Pólveijum um kvöldið í sýningarleik 22. umferðar. ís- lendingar töpuðu leiknum 10-20, + G5 Vestur ♦ G542 V 643 ♦ KG93 ♦ 96 Austur ♦ 85 ▼ D972 ♦ D85 ♦ ÁK83 Suður ♦ 6 VÁG10 ♦ Á642 ♦ D10742 Við annað borðið spiluðu Pól- veijarnir Jacek Pszczola og Mich- ael Kwiecien 4 spaða í NS og fóru einn niður þegar sagnhafi gaf tvo slagi á lauf, einn á tígul og einn á spaða. Við hitt borðið sátu Guð- mundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson NS gegn Apolinary Kow- alsky og Jacek Romanski. Vestur Norður Austur Suður JR ÞJ AP GPA 1 lauf pass 1 tígull 1 spaði pass 1 grand pass 3 grönd// Laufopnun austurs var sam- kvæmt pólska laufinu, sem er raunar einskonar nútímaútgáfa af vínarlaufinu góða og gamla. 1 tíg- ull var afmelding og síðan tóku Þorlákur og Guðmundur Páll við. Vestur spilaði út tígli og Guð- mundur Páll gaf tvisvar en tók þriðja tígulinn með ás. Hann þurfti að henda í borði og eftir á sagði Guðmundur að hann hefði átt að láta spaða, en í raun henti hann tígli eins og virðist liggja beinast við. Nú tók Guðmundur þijá efstu í spaða, henti tígli og laufi heima, en gosinn kom ekki, austur henti hjarta. Guðmundur spilaði þá litlu laufi úr borði og reiknaði með austur myndi setja lítið; ætlaði þá að eiga á tíuna, taka þijá hjarta- slagi með svíningu og spila laufi á gosann, og austur yrði að gefa blindum 9. slaginn á laufadrottn- ingu. En austur sá við þessu. Hann stakk upp laufakóngi og spilaði hjarta og skyndilega var Guð- mundur í vanda. Hann varð að drepa heima á kóng, og spila laufagosa, og ,nú gat austur hnekkt spilinu með því að drepa á ás, spila Guðmundi inn á lauf og bíða eftir slag á hjartadrottn-- inguna. En Romanski missti einbeiting- una eitt augnablik. Hann gaf Guð- mundi á laufagosann og þá gat hann svínað hjarta og brotið út laufaás svo spilið vannst á end- anum. Guðm. Sv. Hermannsson SVR tekur við akstrinum í Mosfellsbæ Fargjöld munu lækka Á NÆSTU dögum kemur út á vegum reynsluverkefnisins Hand- verks bæklingur sem hefur að geyma upplýsingar um framleið- endur og sölustaði íslensks hand- verks um allt land. Að sögn Guð- rúnar Hannele, verkefnisstjóra Handverks, er bæklingurinn hugs- aður sem einskonar leiðarvísir fyr- ir ferðamenn sem hafa áhuga á að sjá og kaupa vandað íslenskt handverk. Handverk var upphaflega reynsluverkefni til þriggja ára, styrkt af forsætisráðuneytinu, í þeim tilgangi að efla hefðbundinn heimilisiðnað, handverks- og list- munagerð sem stunduð er af ein- staklingum og smáfyrirtækjum. Markmið verkefnisins er að stuðla að vöruþróun í handverki og efla gæðavitund. Þriggja ára verkefn- inu lauk sl. áramót og var sam- þykkt að veita því rekstrarstyrk í tvö ár til viðbótar. Þar eru nú tveir starfsmenn í einni og hálfri stöðu. Skrifstofa Handverks flutti nýverið um set og er nú til húsa að Amt- mannsstíg 1, þar sem einnig er rekið gallerí. Hönnuðir og handverksmenn leiddir saman Ymislegt er á pijónunum um þessar mundir, að sögn Guðrúnar. Aætlun um ofanbyggða- veg endur- skoðuð BÆJARSTJÓRN Hafnar- fjarðar samþykkti á bæjar- stjórnarfundi í gær að áætlan- ir um framtíðarlegu ofan- byggðavegar verði teknar til gagngerrar endurskoðunar og að leitað verði eftir samstarfi við yfirvöld í Garðabæ, Vega- gerðina og Skipulag ríkisins. Jafnframt var tekið fram að forsenda samþykktar þessarar væri sú að skipulagsstjórn rík- isins frestaði skipulagi að vegarstæði Reykjanesbrautar frá Garðabæ að Kaldársels- vegi I samræmi við 20. gr. skipulagslaga. Þá var samþykkt að þessi málsmeðferð frestaði ekki endurbótum á Reykjanesbraut sem tæki mið af þörfum vax- andi umferðar og umferðarör- yggis og þeirri útfærslu í meginatriðum sem gildandi aðalskipulag segði fyrir um. Endanlegt aðalskipulag samþykkt Bæjarstjórn samþykkti enn- fremur á fundi sínum í gær breytta tillögu bæjarskipulags Hafnarfjarðar dagsetta 24. júní 1997, að aðalskipulagi Hafnarijarðar 1995-2015, þ.e. landnotkun og kort ásamt greinargerð. Jóhannesi Kjar- val, skipulagsstjóra bæjarins, var falið að ganga að fullu frá gögnum málsins, þ.e. land- notkun, uppdrætti og greinar- gerð í samræmi við löggjöf og hefðir og leggja fyrir skipu- lagsstjóm ríkisins. í samtali við Morgunblaðið sagðist Jóhannes vonast til þess að skipulagsstjórn af- greiddi aðalskipulagið 9. júlí næstkomandi. „Nýverið tókum við t.d. að okkur að vera ráðgjafar fyrir nýja hand- verksverslun sem verið var að opna á svokölluðu Bakaralofti, á annarri hæð fyrir ofan Upplýsingamiðstöð ferðamála við Bankastræti í Reykjavik. Við erum að reyna að finna leiðir til að auka og bæta gæðin í handverki, en við teljum það vera lykilinn að því að hand- verk geti orðið alvöruatvinnuveg- ur. Þá rekum við einnig gallerí hér í húsinu, þar sem við erum að reyna að koma handverksfólki á fram- færi með því að halda sýningar á verkum þess,“ sagði Guðrún. Sýning á Hrafnagili í ágúst „Við tökum þátt í að undirbúa handverkssýningu á Hrafnagili I ágúst og einnig er í bígerð ráð- stefna handverksfólks í Noregi. Enn eitt verkefni sem við höfum sett í gang er að leiða saman hönn- uði og handverksmenn. Þá finnum við handverksmann sem þarf á hönnuði að halda og finnum svo hönnuð fyrir hann. Þeir vinna svo saman að því að þróa nýja vöru. í sem stystu máli, þá vinnum við stöðugt að því markmiði okkar að finna allar leiðir til að auka gæðin og styrkja fólk í því að gera hand- verk að atvinnu,“ segir Guðrún. Haukadalsá byijar vel VEL hefur aflast í Haukadalsá í Dölum, en þar hófst veiði 14.júní síðast liðinn. Hópur ítala hefur staðið vaktina frá því að áin var opnuð og þrátt fyrir að ekki var hægt að veiða í þijá daga vegna vetrarkulda voru í gærdag komnir 22 laxar á land að sögn Júlíönu Guðmundsdóttur bústýru í veiðihúsinu. Laxarnir voru allir dregnir á maðk og voru á bilinu 7 til 15 pund. 64 laxa holl Alls voru komnir 295 laxar á land úr Norðurá á hádegi í gær. Þá var holl að hætta sem náði 64 löxum á þurrt. Voru þá komn- ir 266 laxar af aðalsvæðinu, en 29 fiskar af Munaðarnessvæðinu. Laxinn er nú blandaður, stór og smár. Mikill kraftur hefur verið í göngum að undanförnu. Á föstudaginn gengu t.d. 114 laxar um teljarann á rúmum sex klukkustundum, rauk talan þá úr 88 í 202, auk þess sem menn hafa séð laxinn ganga Laxfoss á fleiristöðum en í gegn um teljar- ann. í gærmorgun veiddist 9 punda hrygna í Króksfossi og er það fáheyrt að lax veiðist svo ofarlega svo snemma á veiðitíma. Fleiri fiskar sáust, einnig undir Króksbrú. Góð veiði í Þverá Veiði gengur vel þessa dagana í Þverá og Kjarrá og á hádegi í gær voru komnir 225 laxar á land að sögn Jóns Þórs Friðgeirs- sonar, kokks í veiðihúsinu að Helgavatni. Voru komnir 133 lax- ar úr Þverá og 92 úr Kjarrá. Jón Morgunblaðið/Jón Sigurðsson FRÁ Dulsum í Laxá á Ásum. Þar hefur heldur glæðst eftir mjög dapra byrjun. Þór sagði aflann blandaðan, ann- ars vegar væri um 5-7 punda fiska að ræða og síðan slangur af 9-11 punda. Stærsti laxinn var 20 pund, en síðan kemur 17 punda stærst. Úr ýmsum áttum Um 30 laxar hafa veiðst á Brennunni, bæði vænir og smáir. Besta hollið var fyrir skömmu ogfékk 12 laxa. Laxá í Kjós er komin í 60 laxa, en þar er laxinn „leiðinlegur þessa dagana“ eins og Ásgeir Heiðar leigutaki orðaði það í gærdag. Atti hann við að ýmist gengi laxinn hratt fram og týnd- ist, eða að þeir bunka sig upp, taka illa og láta eins og selur sé í hylnum ef agn sést á sveimi. Aðeins um 30 laxar eru komn- ir úr Elliðaánum. Þar er reyting- ur af laxi en tekur afar illa. Fjór- ir komu á land í gærmorgun, þar af þrír á sömu stöngina. FRÁ og með 1. september munu Strætisvagnar Reykjavíkur taka að sér umsjón og rekstur almennings- samgangna í Mosfellsbæ. Að sögn Jóhanns Siguijónssonar bæjarstjóra í Mosfellsbæ mun breytingin hafa í för með sér iækkun á fargjöldum en ekki er gert ráð fyrir breytingum á leiðakerfinu fyrst um sinn. Að sögn Lilju Ólafsdóttur, forstjóra SVR, er gert ráð fyrir að samið verði við undirverktaka um akstur í Mos- fellsbæ og á Kjalarnesi. Almenningsvagnar bs. hafa séð um rekstur almenningsvagna í Mos- fellsbæ og munu gera það fram til 1. september. Sagði Jóhann að þeg- ar SVR tæki við yrði helsta breyting- in að fargjöld lækkuðu. „Við kom- umst einnig inn í skiptimiðakerfið, sem er stórt mál fyrir okkur,“ sagði hann. „Nú er það þannig að þeir farþegar sem staðgreiða og eru að fara úr eða í Mosfellsbæ verða að greiða sérstaklega fyrir ferðina þeg- ar skipt erum vagn í Ártúnsholti og kostar orðið um 500 kr. að komast fram og til baka.“ Að sögn Jóhanns verður leiðakerf- ið fyrst um sinn óbreytt með sama þjónustustig og nú er en í samningn- um við SVR, væri gert ráð fyrir hugsanlegri hagræðingu í framtíð- inni og samnýtingu á leiðakerfinu. „í því sambandi erum við að horfa á að Reykjavíkurborg er að byggja upp austursvæðin," sagði hann. „Byggðin fer að komast að bæjar- mörkum Mosfellsbæjar og aðal- skipulag okkar beggja gerir ráð fyr- ir tengingu á því svæði milli sveitar- féiaganna. Við erum með sameigin- legan framhaldsskóla í Borgarholti þangað sem okkar nemendum er stefnt og það kallar á þann mögu- leika að leiðir, sem koma frá Mos- felisbæ geti tekið hluta af austur- hverfunum á leið í Ártún og þannig verður betri nýting á vögnum héðan til Reykjavíkur.“ Óbreytt leiðakerfi | Lilja Ólafsdóttir forstjóri SVR, j sagði að ekið yrði frá Ártúni um , Mosfellsbæ samkvæmt gildandi ' leiðakerfi í fyrstu og til baka að Ártúni en ef Mosfellingar óskuðu eftir breytingum yrði gert um það samkomulag. Sagði hún að í ráði væri að semja við undirverktaka um aksturinn. Það sama ætti við um akstur SVR á Kjalarnesi og er búið að leggja niður ramma um hvernig þar verður staðið að málum. Akstur- i inn yrði eftir sem áður hluti af leiða- ^ kerfi SVR og yrði honum stjórnað . frá stjórnstöð SVR, þaðan sem allar * leiðir og ferðir væru samhæfðar. „Talað hefur verið um að hag- kvæmt yrði að samnýta ferðir um Mosfellsbæ af Kjalarnesi en þær ferðir verða stijálli og ekið á minni vögnum og munu því ekki draga úr ferðum, sem þarf að skipuleggja um Mosfellsbæ," sagði Lilja. Pétur Fenger, framkvæmdastjóri j Almenningsvagna bs., sagði það | lengi hafa verið stefnu stjórnar fyr- í irtækisins að sameina allt svæðið frá I Hafnarfirði upp á Kjalarnes í eitt leiðarkerfi. Almenningsvagnar bs. er í eigu sveitarfélaganna og er allur akstur á þess vegum boðinn út en fyrirtækið sér um reksturinn fyrir sveitarfélögin, kynningar og upplýs- ingar. „Við höfum ekki náð að sam- nýta leiðir í Mosfellsbæ eins og við höfum getað gert á suðursvæðinu í j Kópavogi, Hafnarfirði og í Garðabæ. | Leggurinn er mjög langur fyrir okk- í ur þangað og hefur hann verið dýr- I ari en gengur og gerist,“ sagði hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.