Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SIGRÍÐUR - ÓLAFSDÓTTIR + Sigríður Ólafsdóttir fæddist á Drangastekk í Vopnafirði hinn 3. janúar 1898. Hún lést hinn 15. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Ólaf- ur Oddsson og Oddný Runólfs- dóttir. Ólafur og Oddný eignuð- ust 13 börn og var Sigríður næstelst. Eiginmaður Sigríðar víir Nic- olai Þorsteinsson f. 30. júní 1897, d. 2. ágúst 1965 og áttu þau sex •börn. Þau eru: Nicolai, f. 1920 (látinn), Edith, f. 1923, Þor- steinn, f. 1927 (látinn), Óddný, f. 1930, Ólafur, f. 1932 (látinn), og Guðni, f. 1935. Barnabörnin eru tuttugu og fjögur, barna- barnabörnin þrjátíu og fjögur og barnabarnabarnabörnin fjög- ur.# Útför Sigríðar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Að fæðast inn í stórfjölskyldu var eðlilegt lífsmynstur um 1950 og svo heppin er ég að hafa fengið að njóta þess að búa mín bemsku- og æskuár í faðmi slíkrar fjölskyldu á Lind- argötu 58. Ættmóðirin, hún Sigríður amma, bjó á efri hæðinni, þrír synir hennar og foreldrar mínir með fjöl- skyldur sínar bjuggu einnig í þessu stóra, vinalega húsi. Amma var einstök kona sem bjó yfir takmarkalausum kærleika og elsku, hún vildi öllum gott gera og við bamabörnin nutum þess að eiga hana að, hún hafði alltaf tíma til að hlusta og miðlaði okkur af þekkingu sinni á sinn einstaka, kærleiksríka hátt. Amma var sanntrúuð og ófáar eru bænirnar og sálmamir sem hún kenndi mér og fékk mér í veganesti út í lífið. Amma var mjög giaðlynd og til- finningarík kona, oft var skammt milli hláturs og gráts og um hana var stundum sagt að hún gréti með öðru auganu og hlægi með hinu. Minningamar hrannast upp og ljúft er að ylja sér við þær, og minnast með gleði og þakklæti allra ógleym- anlegu stundanna með henni. Hún var falleg og geislandi kona og lagði metnað sinn í að líta alltaf vel út, með fallega greitt hár og vel klædd. Amma var næstelst 13 systk- ina og lifði þau öll, það verður því örugglega Qölmenn móttökunefndin hinum megin og vísast miklir fagnað- arfundir því einlæglega trúði hún amma því að líf væri eftir þetta líf. Amma mín valdi bjarta, fagra sumar- nótt til að kveðja lífið á jörðu hér og flytjast til æðri heima. Hvíldin var henni áreiðanlega kærkomin, 99 ár hafði hún lagt að baki og hálfu betur, líkaminn hennar var orðinn slitinn og lúinn og svo sannarlega hafði hún skilað sínu með sóma. Ég kveð þig, elsku amma mín, með þakklæti fyrir allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu minni, með kveðjunni sem þér fannst fallegust allra kveðja. „Guð blessi þig og varð- veiti.“ Ingibjörg Jónasdóttir. Amma. I give you those wings so you may take flight open them wide and never lose sight. We’ll love you forever as you will love us. Good bye, dear angel. Good bye. (Sigriður Rós.) (Amma. Eg gef þér þessa vængi svo þú getir dregið amsúg á fluginu án þess að missa sjónar á okkur. Við munum unna þér að eilífu á sama hátt og þú annt okkur. Vertu sæll, elsku engill. Vertu sæll.) Elsku amma mín. Guð blessi þig og haldi í hönd þína og hjálpi þér að finna þau sem eru farin frá okkur og búa hjá honum. Ljósið er bjart og hlýtt og tekur á móti þér. Ég er þakklát Guði að hafa nú gefið þér nýtt líf, og fyrir að gefa okkur þig. Ég horfí til himins á kvöld- in og sé nýja stjömu og veit að þar er einn engill enn kominn heim. Þú lifír áfram í hjarta mínu og bamanna minna og hjá öllum sem þekktu þig. Ég veit núna af hveiju Nilli var tekinn svona fljótt. Hann fór til að sýna þér leiðina svo þú yrðir ekki hrædd að sofna. Guð blessi Nilla okkar. Nú veit ég að við eigum öil tvo nýja verndarengla til að líta eftir okkur. Takk fyrir allt, amma, við elskum þig og við sjáumst aftur. Sigríður Rós Guðnadóttir. Elsku langamma mín, nú er komið að kveðjustund, og þá er margs að minnast. Helst þó hve þú varst létt í lund og jákvæð, og það var alltaf jafngott að koma til þín og eiga hjá þér góðar stundir. Það gladdi mig mikið eitt sinn er ég hringdi í þig á síðasta ári að þú 98 ára gömul varst búin að læra utan að þessa fallegu bæn sem ég sendi þér: Ég lofa þig, ó Kristur kær, þú koma vilt mér sjúkri nær, að lækna, gleðja, leysa bönd og leiða mig við kærleikshönd. Kveðja, Lilja Gísladóttir. AÐAUGLÝSINGAR ATVIMMU- AUGLÝSIMG AR Ferðaskrifstofustarf Þekkt ferðaskrifstofa í aiþjóðlegum viðskiptum óskar eftir að ráða starfsmann með reynslu ^og gott vald á Amadeuskerfinu til afleysinga eða jafnvel framtíðarstarf. Umsóknir, sem greina frá menntun, reynslu og högum, sendisttil afgreiðslu Mbl. fyrir 27. júní, merktar: „Ferðafær 1997" Óskum eftir að ráða: Biaðamann í hlutastarf. Prófarakalesara í hlutastarf. Pistlahöfunda til að skrifa um heilsu, matreiðslu, fatnað, ferðalög, hár og snyrtingu, popp, heimili og fleira. Sölufólk til að selja auglýsingar og fjölbreytta þjónustu sem Xnet býður. Áhugasamir vinsamlega sendið e-mail til xnet@xnet.is „ Xnet.is, Nóatúni 17, sími 562 9030. Bílstjóri óskast Verktakafyrirtæki á stór-Reykjavíkursvæðinu óskar að ráða vanan bílstjóra strax til sumar- afleysinga. Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir laugar- daginn 28. júní, merkt: „I — 488". Jarðýtumenn Vantar vana jarðýtumenn til starfa strax á Flateyri — mikil vinna. »%,Upplýsingar í símum 896 5870, 852 5563, 852 5568 og 565 3140. Góð kjör fyrir góða kennara Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn skóli og verða í honum tæplega 70 nemendur í 1.—10. bekká næsta skólaári. Enn vantar kenn- ara í nokkrar stöðurfyrir næsta skólaár. Kennslugreinar: Tungumál, raungreinar, almenn kennsla, tölvukennsla, heimilisfræði og kennsla yngri barna. Flutningskostnaður verður greiddur og frítt húsnæði ertil staðar á vegum sveitarfélagsins. Staðaruppbót er greidd. Kennurum verður gef- inn kostur á að sækja námskeið innanlands. Raufarhöfn er tæplega 400 manna sjávarþorp í norður- Þingeyjarsýslu. Þorpið er á austanverðri Melrakkasléttu og er nyrsti þéttbýlisstaður á ísiandi. Vinna við sjávarútveg er burðarás atvinnulífsins auk ýmiss- konar þjónustu. Mjög góð aðstaða ertil íþróttaiðkana svo sem nýtt íþróttahús, sundlaug, tækjasalur og fleira. Leikskólinn er rúmgóður og vel búinn. Á staðnum er t.d. starfandi leikfélag, kór, íþróttafélag og tónlistarskóli. Skólaþjónusta Eyþings hefur lokið fyrsta áfanga i sérstöku þróunarverkefni fyrir grunnskólann í samvinnu við Raufar- hafnarhrepp. Verkefnið hefur það að markmiði að efla skólastarf á staðnum, bæta skólannn sem vinnustað fyrir nemendur og kennara og auka virkni foreldra í skólastarfinu. Okkur vantartil starfa metnaðarfulla kennara sem vilja starfa við kennslu í litlu en öflugu sjávarþorpi úti á landi, þar sem markmið heimamanna er góður skóli sem stenst kröfur tímanns. Nánari upplýsingar veita: Sveitarstjóri í síma 465 1151, skólastjóri í sím- um 465 1241 og 465 1225 og formaður skóla- nefndar í síma 465 1339. ÝMISLEGT Menntamálaráðuneytið Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular biology Orgaization, EMBO) styrkja vísindamenn sem starfa í Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rann- sóknatofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýsingarog umsóknareyðublöð fást hjá professor Frank Gannon, Executive Secret- ary, European Molecular Biology Organization, Postfach 1022.40, D-69012 Heidelberg, Þýska- landi. Límmiði með nafni, póstfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Umsóknarfrestur um langdvalarstyrki ertil 15. febrúarog 15. ágúst, en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær sem er. Veffang EMBO er: http://www.embl-heidelberg.de/Externallnfo/ embo/ Menntamálaráðuneytið, 20. júní 1997. HUSNÆÐI I BQÐI Til leigu er 117 fm íbúð Staðsetning: Garðabær/lðnbúð. Lausfrá 1. júlí. íbúðin er í góðu standi og með sérinn- gangi. Áhugasamir leggi inn tilboð á afgreiðslu Mbl. fyrir 1. júlí merkt: „íbúð -1312". 5MAAUGLYSINGAR FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerlndisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00 FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SÍMI 568-2533 Fjölskylduhelgi í Þórsmörk 27. -29. júní. Brottför föstud. kl. 20.00. Afmælisverð kr. 4.000 I skála og 3.500 kr. I tjöld. Frítt fyrir 10 ára og yngri og hálft gjald fyrir 11-15 ára með foreldr- um sínum. Fjölbreytt dagskrá. Pantið strax. Fimmvörðuháls — Þórsmörk 28. -29. júní. Brottför laugardag kl. 8.00. Gist í tjöldum í Langadal. Afmælisverð kr. 3.500. Miðar á skrifstofu. Skógræktarferð í Heiðmörk kl. 20.00 i kvöld, miðvikud. 25. júní. Brottför frá BSI, austan mengin og Mörkinni 6. Frítt. Gönguferðir um „Laugaveg- inn" hefjast um næstu helgi. Sjálfboðaliðar óskast til skála- vörslu í Hvítárnesi í sumar (viku í senn) og í vinnuferðir m.a. í Laugar um næstu helgi. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Lofgjörð, bæn og biblíulestur kl. 20.00 Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. G 5> IY ii #i LlJlJJ =3 Hallvcigarstíg 1 • sími 561 4330 Dagsferðir Sunnudaginn 29. júní: Reykja- vegurinn, 5. áfangi: Bláfjöll — Grindarskörð. Brottför frá BSI kl. 10.30. Verð kr. 1.000. Sunnudaginn 29. júni: Dagsferð ( Þórsmörk. Brottför kl. 8.30. Fararstjóri frá Útivist verður með leiðsögn í rútu. Stansað verður við Seljalandsfoss og gengið að Gljúfrabúa. Merkursker verður skoðað og ekið að Jökulsárlóni. Nýjar göngubrýr vígðar og boðið upp á hressingu í skála Útivistar í Básum. Verð kr. 3.800. Helgarferðir 28.-29. júní: Hjólreiðarferð. Ekið á laugardagsmorgni á Þing- velli. Hjólað um Kaldadal, Hlöðu- velli og gist þar. Daginn eftir verður hópurinn sóttur. 27.-29. júní: Básar. Ferð fyrir alla fjölskylduna. Fararstjóri frá Úti- vist með í för. Gönguferðir við allra hæfi. Varðeldur og fjör. Gist í tjöldum eða skála. 27.-29. júnh Lakagígar. Ekið að Laka og farið í styttri ferðir um þetta einstaka landsvæði. Farar- stjóri: Anna Soffía. .....SAMBAND (SLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30 i Kristniboðssalnum. Ástráður Sigursteindórsson talar. Bylgja Dís Gunnarsdóttir syngur einsöng. Allir velkomnir. Muniö Almenna mótið í Vatnaskógi um næstu helgi. Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.