Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Deild fyrir langlegnsj úklinera á Sjúkrahúsi Þingeyinga hefur verið lokað vegna verkfalls HARKA er komin í kjaradeilur á Sjúkrahúsi Þingeyinga á Húsavík. „ÞIÐ eruð vonandi á hreinum skóm - því hér er ekkert skúrað,“ segir Soffía Anna Steinars- dóttir og horfír áhyggjufull á blaðamann og ljósmyndara sem komnir eru í heimsókn. Soff- ía Anna er deiidarstjóri öldrunardeildar Sjúkrahúss Þingeyinga, þar sem verkfall ófag- lærðs starfsfólks hófst síðastliðið sunnudags- kvöld. „Þetta kemur mjög illa niður á starfi sjúkra- hússins," segir hún. „Við höfum verið að senda heim langlegusjúklinga og þurft að leita á náðir ættingja. Þeir hafa reyndar tekið því mjög vel og dæmi eru um að fólk hafi tekið sér leyfi frá störfum til að sinna ættingjum sínum.“ Ellefu langlegusjúklingar hafa verið sendir heim og eru 28 sjúklingar eftir, en með fullri nýtingu getur sjúkrahúsið sinnt 54 sjúkling- um. Búið er að loka annarri af tveimur deild- um sjúkrahússins fyrir langlegusjúklinga. „Verkfallið hefur það í för með sér að við getum aðeins sinnt frumþörfum; önnur þjón- usta á borð við böð verður erfíðari í fram- kvæmd," segir Soffía Anna. „Auðvitað er þetta ófremdarástand." Reynum að gera okkar besta Rétt fyrir helgi var hringt í Ásdísi Þórsdótt- ur á Bergsstöðum í Aðaldal og henni borin þau tíðindi að hún yrði að taka Helgu Bene- diktsdóttur, tengdamóður sína, heim af sjúkra- húsinu. Helga er 76 ára og með sjúkdóminn alzheimer. Hún hefur verið langlegusjúklingur á sjúkrahúsinu síðan í fyrrahaust. „Við vorum tilbúin að reyna að taka við henni, þrátt fyrir að aðstæður hér væru ekki góðar fyrir veikburða fólk,“ segir Ásdís. „Þetta er gamalt hús; hér er stigi sem er ekki með „Reynuin að bjarga málunum frá degi til dags“ góðu handriði, baðherbergið er niðri og svefnherbergin eru uppi.“ Það frestaðist um tvo daga að Helga væri send heim vegna þess að hún var ekki talin ferðafær, að sögn Ásdísar. „Svo var hringt og við beðin um að taka við henni.“ Starfsfólk sjúkrahússins hefur lofað að vera henni innan handar ef eitthvað kemur upp á. „Ég er auðvitað illa að mér í umönnun- arstörfum," segir hún. „Ég hef aldrei komið nálægt slíkri vinnu og hef ekki hugmynd um hvað ég er að fara út í. Ætli við verð- um ekki að reyna að gera okkar besta.“ Að sögn Ásdísar er dagamunur á heilsu Helgu. „Öll viðbrigði eru mjög slæm fyrir alzheimer-sjúklinga," segir hún. „Hún er orðin frekar veikburða líkamlega og þarfn- ast mikillar aðstoðar. Tíminn verður að leiða í ljós hvort ég er fær um að veita hana. Maður vonar að þetta verk- fall verði sem styst, en mér skilst að ástandið sé orðið mjög vont og horfur slæmar í samningamál- um.“ Hún segir að þetta komi óhjá- kvæmilega niður á störfum sínum í sveitinni. „Ég vinn yfirleitt úti allan daginn alia daga. Það breyt- ist við þetta, sem er slæmt vegna þess að það er mikill annatími núna,“ segir hún, brosir og bætir við: „Ætli ég reyni ekki bara að taka til hendinni inni við í stað- inn.“ Aðstandendur taka þessu með jafnaðargeði „Ástandið er þannig að við erum búin að senda alla heim sem við getum,“ segir Frið- finnur Hermannsson, framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Þingeyinga. Hann hefur varla tíma Friðfinnur Hermannsson til að ræða við blaðamenn vegna anna í eldhús- inu og kvartar undan því að hann þyrfti að fá sér blaðafulltrúa. „Við reynum að halda uppi viðunandi þjón- ustu við sjúklinga með því starfsfólki sem er fyrir hendi, þ.e. hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum," segir hann. „Það sem er erfíð- ast að leysa er ræstingin, þvotturinn og matur- inn. Við þurfum helst að fá undanþágu svo það gangi upp, en annars verðum við að leysa málið öðruvísi." Friðfinnur segir að ástandið gæti gengið endalaust með þessum hætti. „Við höldum áfram að reyna að bjarga málunum frá degi til dags. Það verður þó væntanlega erfíðara og erfíðara og gæti endað með því að við þyrftum að flytja þetta fólk yfír á aðrar stofn- anir.“ Verkfallið bitnar langverst á sjúklingum og aðstandendum, að sögn Friðfínns. „Eins og gildir um önnur verkföll bitnar það líka illa á þeim sem fara í verkfall." Hann segir að að- standendur taki þessu með jafnaðargeði. Þeir skilji hvernig málum sé háttað og reyni að bjarga því sem bjargað verður. „Við erum ekki aðilar að deilunni og getum afskaplega lítið gert nema hvetja fólk til að semja," segir hann. „Stjórn sjúkrahússins hef- ur sent frá sér ályktun þar sem hún hvetur deiluaðila til þess að semja áður en verkfallið fari að bitna verulega á sjúklingum, aðstand- endum og stofnuninni. Svo tók stjórnin sér- staklega fram að öll almenn læknis- og bráða- þjónusta væri veitt hér sem fyrr.“ Friðfinnur segir að óformlegar viðræður séu í gangi hjá ríkissáttasemjara milli deiluaðila. „Eg er ekki bjartsýnn á lausn deilunnar," seg- ir hann. „Mér sýnist allt vera komið í hnút.“ ÁSDÍS aðstoðar Helgu tengdamóður sína úr kápunni eftir að hafa sótt hana á sjúkrahúsið. Morgunblaðið/Þorkell ÞEIR ERU annasamir dagarnir á Sjúkrahúsi Þingeyinga. Tveir piltar dæmd- ir fyrir líkamsárás Framsalsmál á hendur Hanes-hjónum í dómskerfinu Yonir um niðurstöðu um miðjan júlímánuð GÓÐAR líkur eru taldar á að fyrir- taka í máli Hanes-hjónanna verði í Héraðsdómi Reykjavíkur í þessari viku eða byijun næstu og úrskurður hans liggi fyrir innan tveggja til þriggja vikna. Veijandi Hanes-hjón- anna kveðst gera sér vonir um end- anlega niðurstöðu dómskerfísins um miðjan næsta mánuð. Málsmeðferðin sem fyrir höndum er má teljast endurtekning þess sem búið er að eiga sér stað, en þó er gagnaöflun og undirbúningi lokið að mestu vegna fyrri málsmeðferð- ar, og því fyrirsjáanlegt að málið muni taka styttri tíma en áður. Fyrri úrskurður Héraðsdóms lá fyrir um tveimur vikum eftir málflutning, eða 3. júní, og þremur dögum síðar var hann kærður til Hæstaréttar og barst réttinum ásamt kærumáls- gögnum 9. júní sl. Niðurstaða Hæstaréttar lá síðan fyrir á mánu- dag, 23. júní, tveimur vikum eftir að kæran barst réttinum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er búist við að úrskurður Héraðsdóms verði kærður til Hæsta- réttar, hvort sem niðurstaða hans verði sú að lagalegar forsendur framsals séu til staðar eða ekki. Héraðsdómur þarf þó væntanlega nokkurn tíma til að semja rökstuðn- ing fyrir ákvörðun sinni og sömuleið- is Hæstaréttur eftir að úrskurður dómsins er kærður. Hæstiréttur er í réttarhléi í júlí og ágúst, en meðan á því stendur eru þó til staðar starfandi dómarar til að Qalla um mál sem þarfnast sérstakrar flýtimeðferðar, eins og t.d. þegar gæsluvarðhaldsúrskurður er kærður til Hæstaréttar. Lög um framsal gera ráð fyrir skjótri með- ferð, og því má ætla að þegar og ef væntanlegur úrskurður Héraðs- dóms liggur fyrir, muni Hæstaréttur fjalla um hann þrátt fyrir réttarhléið. Ragnar Tómas Árnason, skipaður veijandi Hanes-hjónanna, kvaðst í samtali við Morgunblaðið gera sér vonir um að heildarmálsmeðferð taki ekki lengri tíma en þtjár vikur, eða til miðs júlímánaðar. TVEIR piltar, 18 og 19 ára gamlir, voru í gær í Héraðsdómi Reykjavík- ur dæmdir í fangelsi til annars veg- ar 9 mánaða og hins vegar 3 mán- aða, fyrir að hafa ráðist á 23 ára gamlan mann í júní á seinasta ári og veitt honum mikla áverka. Refs- ing piltanna er skilorðsbundin í þijú ár. Þriðji pilturinn, sem var ákærð- ur vegna sömu árásar, var sýknað- ur. Þá voru piltarnir tveir dæmdir til að greiða þeim sem fyrir árás- inni varð samtals rúmlega 87 þús- und krónur ásamt vöxtum í miska- bætur og vegna útlagðs kostnaðar og allan sakarkostnað. Hnefahögg og spörk Piltarnir þrír voru ákærðir fyrir að hafa ráðist á fórnarlambið 9. júní 1996 á Lækjartorgi við Dóm- húsið og veitt því hnefahögg og spörk, með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð hlaut opið sár og margvíslegt mar og áverka aðra. Báru lögreglumenn sem urðu vitni að árásinni meðal annars að árásarmennirnir hefðu sparkað í kvið og höfuð fórnar- lambsins. Einn árásarmanna var handtekinn á staðnum en við rann- sókn málsins kom í ljós að hann hafði ekki verið einn á ferð. Annar þeirra sem hlaut dóm var dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skil- orðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað og líkamsárás í apríl síðastliðnum, en hinn pilturinn hafði þrívegis gengist undir lögreglustjórasátt, bæði fyrir ávana- og fíkniefnabrot og umferðarlagabrot.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.