Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
146. TBL. 85. ÁRG.
MIÐYIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogar Kína fagna valdaskiptunum í Hong Kong
Skorað á Tævan
að sameinast Kína
Peking. Reuter.
LEIÐTOGAR kínverska kommún-
istaflokksins hvöttu í gær stjórn-
völd á Tævan til að stefna að sam-
einingu við Kína með sama hætti
og Hong Kong, sem varð aftur
hluti af Kína á mánudag eftir 156
ára nýlendustjórn Breta.
Li Peng, forsætisráðherra Kína,
hvatti Tævani til að líta á valda-
skiptin í Hong Kong sem fyrir-
mynd og nokkrum klukkustundum
síðar sagði Jiang Zemin, forseti
Kína, að Tævanir ættu að láta af
sjálfstæðistilburðum sínum og
stefna að „algjörri endursamein-
ingu Kína“.
„Við erum ekki aðeins að fagna
upphafi nýs tímabils í Hong Kong,
heldur einnig að fagna miklum
sigri í baráttunni fyrir friðsam-
legri endursameiningu Kína,“
sagði Li. „Áætlunin um „eitt land,
tvö kerfi“ gefst vel í Hong Kong og
hún mun einnig gefast vel á Tæv-
an.“
Samkvæmt samningi Breta og
Kínverja frá árinu 1984 á Hong
Kong að halda kapítalísku hagkerfi
sínu og frelsi í hálfa öld eftir sam-
eininguna. Lien Chan, varaforseti
Tævans, tók áskorunum kínversku
leiðtoganna fálega og sagði að
Tævanir gætu aldrei fallist á að
lúta yfirráðum kommúnista. Hann
bætti við að sameining kæmi að-
eins til greina ef Kína færi að dæmi
Tævans og tæki upp fjölflokkalýð-
ræði. Það fyrirkomulag kallaði
hann „eitt land, eitt gott kerfi“.
Friðsamleg mótmæli
Þúsundir lýðræðissinna gengu
um götur Hong Kong í gær til að
krefjast lýðræðis og gangan var
fyrsti prófsteinninn á það hvort
íbúamir héldu rétti sínum til mót-
mæla. Ríkisútvarpið í Hong Kong
sagði að 10.000 manns hefðu tekið
þátt í göngunni, en henni lauk án
átaka eftir tvær klukkustundir og
litið var á það sem sigur fyrir alla
aðila. Nýju valdhafarnir í Hong
Kong gátu bent á að ekki hefði ver-
ið reynt að hindra mótmælin, lýð-
ræðissinnarnir sýndu að þeir geta
efnt til friðsamlegra mótmæla og
lögreglan sýndi að ekki er þörf á
kínverskum hermönnum til að hafa
hemil á andófsmönnum.
„Við viljum lýðræði. Við viljum
það strax,“ hrópuðu göngumenn-
irnir og héldu á borðum með víg-
orðum eins og „Bindum enda á
einsflokksræðið" og „Byggjum upp
lýðræðislegt Kína“.
■ Hong Kong verði/18
Reuter
ÞUSUNDIR lýðræðissinna gengu um götur Hong Kong í gær til að
krefjast lýðræðis. Göngunni lauk án átaka.
Kohl segir að markmið-
um EMU verði fullnægt
Miinchen. Reuter.
Innbyrðis
hatur gerir
Yilmaz erf-
itt fyrir
Ankara. Reuter, The Daily Telegraph.
TYRKNESKA þingið samþykkti í
gær að atkvæðagreiðsla um trausts-
yfirlýsingu við nýja ríkisstjóm
Mesuts Yilmaz skyldi haldin 12.
júlí. Möguleikar Yilmaz á að hafa
betur hafa aukist að undanfórnu
vegna þess að fjöldi þingmanna,
sem tilheyra íhaldssinnuðu flokks-
broti, tengdu Velferðarflokki Erb-
akans, hafa yftrgefið flokkinn.
Fréttaskýrendur segja þó að það
geti reynst þrautin þyngri fyrir
Yilmaz að halda stjórnarsamstarf-
inu gangandi. Meðal samstarfs-
manna hans er Bulent Ecevit, sem
var forsætisráðherra 1974 og gaf
skipun um innrásina á Kýpur.
Við atkvæðagreiðsluna í næstu
viku verður Yilmaz að reiða sig á
stuðning Þjóðarflokks repúblikana,
sem Deniz Baykal fer fyrir. Frétta-
skýrendur fullyi-ða að Baykal og
Ecevit hati hvor annan. Erbakan
spáði því í gær að nýja stjórnin
myndi ekki fá nægan fjölda at-
kvæða 12. júlí og því myndi flokki
hans gefast nýtt tækifæri til þess
að komast til valda.
Rannsaka ásakanir
á hendur Ciller
Ríkissaksóknari Tyrklands fól
dómstól í Ankara í gær að kanna
ásakanir Verkamannaflokksins,
flokks öfgasinnaðra vinstrimanna, á
hendur Tansu Ciller, fráfarandi ut-
anríkisráðherra, þess efnis að hún
hafi verið á mála hjá erlendum
leyniþjónustum allt frá 1974 og
þegið fé fyrir að láta af hendi upp-
lýsingar er skaðað hefðu tyrkneska
ríkishagsmuni, m.a. þau ár sem hún
sat í ríkisstjórn.
Reuter
Slapp
undan
skruggum
MEÐ því að flýta geimskoti
bandarísku geimfeijunnar Kól-
umbíu með litlum fyrirvara í
gær tókst að koma í veg fyrir
tafir af völdum þrumuveðurs á
Flórída. í ferðinni verður lokið
við rannsóknir sem ekki tókst að
framkvæma í ferð sömu ferju og
sömu áhafnar í apríl sl., en þá
var ferjunni snúið til jarðar eftir
fimm daga af 16 vegna rafkerf-
isbilunar.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, ítrekaði í gær að Þjóðverjar
myndu uppfylla skilyrði fyrir aðild
að evrópska myntsamstai’finu
(EMU) á tilsettum tíma og minnti
á, að þýska þingið hefði samþykkt
að taka því aðeins upp sameigin-
legan gjaldmiðil Evrópu, evróið, að
þær áætlanir stæðust.
Kohl lýsti þessu yfir á ársfundi
vinnuveitendasambands Bæjara-
lands í Munchen í gær, en þar hóf
hann sókn gegn andstæðingum sín-
um og áhrifamönnum, sem eru fullir
efasemda um að Þjóðverjar og
BANDARISK stjórnvöld sam-
þykktu í gær fyrir sitt leyti sam-
runa flugvélaverksmiðjanna
Boeing og McDonnell Douglas.
Engin skilyrði voru sett og með
þessu verða Boeing-verksmiðjum-
ar langstærstu flugvélasmiðjur
heims.
Viðskiptanefnd ríkisins (FTC)
samþykkti með fjórum atkvæðum
gegn einu að setja enga íýrirvara
við samkomulagið um samruna fyi'-
irtækjanna. Að því búnu var boðað
til hluthafafundar 25. júlí til að
ganga frá síðustu formsatriðum
fyrir samrunann, sem tekur gildi 1.
ágúst en nýja fyrirtækið hefur síð-
an starfsemi 4. ágúst undir merkj-
um Boeing.
Frakkar uppfylli ákvæði stöðug-
leikasáttmálans um forsendur aðild-
ar að EMU. I þeim hópi er Edmund
Stoiber, forsætisráðherra Bæjara-
lands, sem aukið hefur áróður fýrir
því að undanfömu, að áætlunum um
EMU og sameiginlegan gjaldmiðil
yrði slegið á fi-est. Ottast hann að
hægri öfgasinnar notfæri sér hin
ströngu efnahagslegu markmið sér
tO framdráttar í kosningum til
þings Bæjaralands á næsta ári.
Theo Waigel fjármálaráðherra, for-
maður Kristilega sósíalsambands-
ins (CSU) í Bæjaralandi og einarð-
Andstæðingar samrunans höfðu
haldið því fram að með honum
myndu aðeins tvö fyrirtæki keppa
um smíði farþegaflugvéla, Boeing
og evrópsku verksmiðjurnar Air-
bus.
Því höfnuðu fjórir af fimm full-
trúum í viðskiptanefndinni og
sögðu að McDonnell Douglas hefði
verið orðinn óvirkur samkeppnis-
aðili.
FTC tók þó undir megin gagn-
rýni Evrópusambandsins (ESB)
um að sérsamningar Boeing um
þotusmíði fyrir flugfélögin Delta,
American og Continental „væru til
vandræða" frá samkeppnissjónar-
miði, en ákvað þó að aðhafast ekk-
ert á því sviði.
ur andstæðingur Stoibers, hefiir
lengi krafist þess að staðið yrði við
ströngustu ákvæði stöðugleikasátt-
málans. Blaðið Leipziger Volkszeit-
ung sagði í gær, að hann hefði
ákveðið að lækka efnahagsaðstoð og
niðurgreiðslur til austurhluta lands-
ins um 4,5 milljarða marka á næsta
ári til að stoppa upp í fjárlagagatið.
Kohl vísaði því á bug að fresta
gildistöku EMU. Boðaði hann 2,5%
hagvöxt á þessu ári og 3% á því
næsta er leiða myndi til þess að
markmið um minnkun fjárlaga-
halla myndu nást.
Afneita
vefsíðu um
Pol Pot
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA fréttastofan It-
ar-Tass þvertók í gær fyrir að
hún tengdist vefsíðu á alnet-
inu, þar sem fullyrt er að Pol
Pot, leiðtogi Rauðu khmer-
anna, sé kominn til Svíþjóðar,
þar sem hann hyggist sækja
um pólitískt hæli.
Fullyrðir fréttastofan að um
sjóræningjasíðu sé að ræða og
ekki er vitað hvaðan hún er
upprunnin. Hafði hún spurnir
af síðunni er sænska utanrík-
isráðuneytið fór að spyrjast
fyrir um hana. Á síðunni segir
að Pol Pot hafi lent á Arlanda-
flugvelli á mánudagskvöld og
að félagar í vinstri samtökum í
Stokkhólmi hafi tekið á móti
honum.
Bandarísk samkeppnisyfirvöld
Samþykkja sam-
runa við Boeing
W;ishing1on. Reuter.