Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 56
MORGUNBLABW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mokveiði var fyrsta solarhringinn á loðnuvertíð
Morgunblaðið/Jim Smart
Dorgað
í Hafnarfirði
DORGVEIÐIKEPPNI var haldin
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára við
Flensborgarbryggju í Hafnarfirði í
gær. Þeir sem ekki áttu veiðarfæri
fengu færi lánuð á keppnisstað og
starfsmenn Æskulýðs- og tóm-
•j^stundaráðs Hafnarfjarðar veittu
leiðbeiningar. Stúlkan á myndinni
hélt fast um sinn feng og fylgdist
grannt með framvindu mála.
-----------------
Flugmenn
semja við
Flugfélag
Islands
SKRIFAÐ var undir nýjan kjara-
samning Flugfélags Islands og Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna
síðla dags í gær. Tekur hann til
íyrrum flugmanna Flugfélags
Norðurlands og nýrra flugmanna
sem starfa nú allir hjá Flugfélagi
Islands, alls nærri 30 flugmanna.
Samningurinn gildir til 15. mars
árið 2000 og er svipaður samningi
sem gerður var við flugmenn ís-
landsflugs fyrir nokkrum vikum.
Liggja laun flugmanna þessara fé-
laga nokkuð undir launum flug-
manna hjá Flugleiðum enda miðað
að nokkru við stærðir flugvéla sem
félögin reka. FÍA á enn ósamið fyr-
ir hönd flugmanna hjá Landhelgis-
gæslunni og flugskólunum.
Flest skip á landleið
með fullfermi í gær
LOÐNUVERTÍÐIN hófst á miðnætti í fyrrinótt
og var mokveiði strax í upphafi og allan daginn í
gær. Þykir þessi byrjun gefa fyrirheit um góða
vertíð og eru sjómenn bjartsýnir á framhald veið-
anna.
Loðnuskipin fengu aflann á tveimur svæðum
um 100 mílur norðaustur af Langanesi. Alls voru
37 íslensk loðnuskip á miðunum í gær og fyrri-
nótt en flest þeirra voru á landleið með fullfermi í
gærkvöldi. Oddeyrin EA landaði fyrsta loðnu-
farmi vertíðarinnar á Raitfarhöfn seinni partinn í
gær, um 720 tonnum. Að sögn þeirra skipstjórn-
armanna sem Morgunblaðið ræddi við í gær var
mikið af loðnu að sjá á litlu svæði og skipin að
fylla sig af fallegri loðnu í aðeins 2-3 köstum.
Voru þeir bjartsýnir á að veiði héldist góð, a.m.k.
út þennan mánuð. Veiðin hefst nú litlu vestar en
á síðustu vertíð en þá var veiði mjög góð allan
júlímánuð en lítið fékkst eftir það.
Fjögur norsk skip tilkynnt afla
Fjögur norsk skip höfðu tilkynnt sig með afla
út úr landhelginni í gærkvöldi, samtals um 4.100
tonn. Samkvæmt nýju reglunum eiga norsku
skipin að tilkynna afla á milli 10-12 á morgnana
og þegar þau sigla í gegnum athugunarpunkt á
leið úr landhelginni. Þar er varðskip Landhelgis-
gæslunnar og fylgist með ferðum og afia skip-
anna. Varðskipsmenn fóru um borð í eitt þeirra
fjögurra skipa sem sigldu með afla til Noregs í
gær og var þar allt í stakasta lagi samkvæmt
upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Veiði var
enn mjög góð í gærkvöldi og því má búast við að
fleiri norsk loðnusMp hafi fyllt sig í gærkvöldi og
nótt. Fjögur norsk loðnuskip „komu inn á“ fyrir
þau sem sigldu með aflann í gær og því eru 30
norsk skip að veiðum samkvæmt settum reglum.
■ Mjög góð/C4
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
ODDEYRIN EA landaði fyrsta loðnufarmi vertíðarinnar í gær, á Raufarhöfn, um 720 tonnum.
Giftusamleg bj örgun
þegar Öðufellið fórst
ÞRIGGJA manna áhöfn skelfisk-
bátsins Öðufells fi-á Þórshöfn var
giftusamlega bjargað um borð í
Kristínu HF 165 í nótt um M. 01.23
eftir að Öðufell fórst um 5,4 sjómílur
undan Skálum á Langanesi. TF
LÍF björgunarþyrla Landhelgis-
gæslunnar var send í loftið laust
fyrir M. eitt í nótt, en henni var snú-
ið við eftir að ljóst varð að áhöfn
bátsins hafði verið bjargað.
Friðrik Friðriksson hjá Björgun-
arstjórnstöð Slysavarnafélagsins,
sem stýrði björgunaraðgerðum,
sagði í samtali við Morgunblaðið
laust fyrir M. 02 í nótt að fyrsta
neyðarsending hefði borist tvær
mínútur eftir miðnætti og eftir það
hefðu nokkur skeyti borist.
Þegar var farið að huga að því
hvaða skip væru nærstödd og á dag-
inn kom að Kristín HF 165 var um 2
sjómflur frá þeirri staðsetningu þar
sem talið var að Öðufellið hefði
farist.
Frá Bakkafirði fengust þær upp-
lýsingar að til Öðufellsins hefði sést
þaðan, alveg fram til M. 21 í
gærkveldi.
Kristín var þegar beðin að halda á
staðinn, en auk þess var haft sam-
band við Hákon, Hvannaberg og
írafoss, sem voru nærstödd. írafoss
var kominn á svæðið um M. 01 í
nótt. Til að byrja með ^sagði Friðrik
að hvorki Kristín né írafoss hefðu
orðið nokkurs áskynja, en kl. 01.16
sáu þeir um borð í Kristínu rautt
neyðarblys skammt frá sér og kl.
01.23 kom Krisín að gúmbjörgunar-
bát og náði að bjarga um borð
þriggja manna áhöfn Öðufells. Skip-
verjar voru þá kaldir og blautir, en
heilir á húfi.
Kristín sigldi með sMpverjana inn
tfl Bakkafjarðar, í skjóli írafoss, þar
sem Björgunarsveit Slysavamafé-
lagsins á Bakkafirði tók á móti þeim.
Bilasalan
jókst um
fímmtung
/ • / /
íjum
SALA á nýjum fólksbílum
jókst um tæp 22% í síðasta
mánuði miðað við sama mán-
uð í fyrra. AIls seldust 1.140
bílar í mánuðinum en 935 í
fyrra. Fyrstu sex mánuði árs-
ins hefur bflasalan auMst um
tæp 20%. Alls hafa selst 5.166
bflar en 4.312 bílar seldust yf-
ir sama tímabil í fyrra.
Þegar gluggað er í tölur yf-
ir einstakar tegundir kemui- í
ljós að mesta markaðshlut-
deild, 11,93%, hefur Subaru,
en skammt undan eru Nissan,
11,67%, og Toyota, 11,40%.
Opel, Volkswagen og Mitsu-
bishi hafa rúmlega 8% mark-
aðarins.
Það sem af er árinu hefur
Toyota hins vegar mestu
markaðshlutdeiM, 15,2% eða
786 seMa bíla, en Subaru
11,5%, 593 seMa bíla, og
Volkswagen 10%, 520 selda
bíla.
Samtals voru fluttir inn 124
notaðir fólksbílar til landsins í
júní.
Bílstjórum Norður-
leiðar sagt upp
Bifreiðastjórafélagið Sleipnir óskar
skýringa á uppsögnunum
ÖLLUM bílstjóram Norðurleiðar,
tíu að tölu, var sagt upp í gær en
alls eru starfsmenn fyrirtækisins
14. Hluti bílstjóranna verður end-
urráðinn. Norðurleið annast sér-
leyfisferðir milli Reykjavíkur og
Akureyrar svo og hópferðaakstur.
í uppsagnarbréfi segir að
rekstrarstaða fyrirtækisins geri
nauðsynlegt að grípa til þessara
ráðstafana. Óskar Stefánsson,
formaður bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis sem einnig er einn af bíl-
stjórum Norðurleiðar, segist hafa
óskað skýringa forráðamanna
fyrirtækisins en þeir eru staddir
erlendis og verða það næstu
daga.
Oskar Stefánsson segir það
ekki góð vinnubrögð að segja upp
bílstjórahópnum án þess að til-
kynna jafnframt hversu margir
og hverjir verði endurráðnir.
Hann segir elstu bílstjórana vera
með nærri 40 ára starfsaldur og
marga með um og yfir 20 ár.