Morgunblaðið - 02.07.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Atvinnuflugmönnum heiniil-
að að fljúga til 65 ára aldurs
ATVINNUFLUGMÖNNUM verður frá 15. júlí
heimilt að starfa til 65 ára aldurs að uppfylltum
nokkrum skilyrðum, en þeir hafa til þessa orðið
að hætta í síðasta lagi 63 ára gamlir. Samgöngu-
ráðherra gaf út reglugerð þessa efnis í síðustu
viku.
Nýja reglugerðin felur í sér breytingu á reglu-
gerð um skírteini, sem gefin var út af Flugmála-
stjórn 1990. Hún kveður á um að skírteinishafi
skuli ekki starfa sem „flugmaður í loftfari, sem
rekið er í atvinnuflutningum, eftir að hann hef-
ur náð 60 ára aldri,“ nema að uppfylltum nokkr-
um skilyrðum. Meðal skilyrða er að í áhöfn séu
fleiri en einn flugmaður, að aðrir flugmenn í
áhöfninni séu yngri en 60 ára, að um sé að
ræða innanlandsflug eða samþykki erlends ríkis
komi til og að hann gangist undir læknisskoðun
á f|ögurra mánaða fresti. Flugmenn gangast
undir læknisskoðun á sex mánaða fresti til sex-
tugs.
í samræmi við Evrópureglur
Þessi nýja reglugerð er í samræmi við reglur
Flugöryggissamtaka Evrópu, en flest aðildarlönd
þeirra hafa heimilað 65 ára aldurinn. í flugi til
Bandaríkjanna mega flugmenn hins vegar ekki
vera eldri en sextugir.
Hjá íslenskum flugrekendum þýðir þessi regla
að flugmenn geta nú stundað atvinnu sína til
65 ára aldurs í stað 63 áður. Þannig eru t.d.
tveir flugmenn Flugleiða nálægt 63 ára afmælis-
degi sínum um þessar mundir og munu því starfa
tvö ár í viðbót ef fyrrgreindum skilyrðum er
fullnægt. Ekki er ljóst hvort flugmenn sem ný-
verið hafa látið af störfum geta tekið upp þráð-
inn á ný, það yrði að ráðast af samkomulagi
við_ vinnuveitendur.
í nýju reglugerðinni er einnig ákvæði um að
skírteinishafi geti starfað áfram sem flugmaður
eftir að hámarksaldri er náð, m.a. í einkaflugi,
kennsluflugi, fræsáningar- og áburðarflugi,
mælinga- og könnunarflugi, leitar- og björg-
unarflugi og þar sem ekki sé um að ræða flutn-
inga á farþegum eða vörum gegn endurgjaldi
o.fl.
Byggt fyrir embætti
ríkislögr eglustj óra
Kostnaður
allt að 140
millj. króna
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær að kaupa nýtt hús-
næði fyrir embætti ríkislögreglu-
stjóra og er ráðgert að byggt verði
1.100 fermetra hús fyrir starfsemi
embættisins sem keypt verði full-
búið af byggingaraðila. Gera áætl-
anir ráð fyrir að ríkið verji allt að
140 milljónum króna vegna þessa.
Nýbygging á lóð við Borgartún
Að sögn Sólmundar Jónssonar,
fjármálastjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, var auglýst eftir tilboðum
vegna kaupa eða leigu á húsnæði
fyrir ríkislögreglustjóraembættið
fyrir nokkru og barst m.a. tilboð
frá byggingaraðila um nýbyggingu
húss fyrir embættið á lóð við Borg-
artún, þar sem Klúbburinn stóð
áður. Kvaðst Sólmundur gera ráð
fyrir að fljótlega verði hafinn undir-
búningur að samningagerð við við-
komandi byggingaraðila um bygg-
ingu hússins.
Starfsmenn embættis ríkislög-
reglustjóra verða fyrst um sinn í
húsnæði Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins í Kópavogi eða þar til flutt verð-
ur í nýja húsið. Verður húsnæði
RLR þá selt til að fjármagna hús-
næðiskaupin en einnig á að sækja
um heimild á fjárlögum til að fjár-
magna það sem á kann að vanta.
Gert er ráð fyrir að Útlendingaeftir-
litið fái einnig aðsetur í nýja hús-
næðinu.
Sólmundur sagði að þessi niður-
staða hefði af ýmsum ástæðum
þótt hagkvæmari en að kaupa not-
að húsnæði eða að nýta húsnæði
RLR til frambúðar fyrir ríkislög-
reglustjóra. Húsnæði RLR er tals-
vert stærra en sú bygging sem á
að kaupa og er staðsetning þess
einnig talin óhentug. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins mun annast
undirbúning og samningagerð
vegna kaupanna í samvinnu við
dómsmálaráðuneytið.
Morgunblaðið/Amaldur
UNNIÐ er hörðum höndum við að leggja brúargólf nýju brúarinnar yfir Sæbraut.
Forgangsröðun í
heilbrigðismálum
Skýra þarf
ramma
forgangs-
röðunar
STURLA Böðvarsson, alþingismað-
ur og varaformaður fjárlaganefnd-
ar, sem á sæti í forgangsröðunar-
nefnd þeirri í heilbrigðismálum, sem
heilbrigðisráðherra skipaði í upp-
hafí síðasta árs, tekur undir orð
Ólafs Ólafssonar landlæknis, for-
manns nefndarinnar, í blaðinu í gær
þar sem hann ræðir um að eðlilegt
hefði verið að hafa samráð við
nefndina áður en ákvarðanir voru
teknar um framkvæmdir.
Nefndin í úlfakreppu
„Starfi nefndarinnar hefur miðað
bærilega en mér sýnist hún vera í
hálfgerðri úlfakreppu nú. Margar
sjúkrastofnanir eru í miklum rekstr-
arvanda og ljóst er að fjármuni
skortir. Við stöndum frammi fyrir
tímabundnum lokunum deilda og
stofnana með öllum þeim alvarlegu
afleiðingum sem af þeim hljótast.
Ef við lítum annars vegar á að
milli áranna 1996 og 1997 aukast
útgjöld ríkisins til heilbrigðis- og
tryggingamála um tæpa 2,7 millj-
arða króna og hins vegar á vanda
þeirra stofnana sem starfræktar eru
í dag þá finnst mér ekkert vit í að
taka ákvarðanir um nýjar stofnan-
ir. Sé það gert, stöndum við frammi
fyrir að þurfa að loka áfram deild-
um, varanlega eða til skemmri tíma,
og skera niður hjá stofnunum, bæði
úti á landi og á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir hann.
Hann segir að það sé heilbrigðis-
ráðuneytisins að samræma mál.
„Ég held að það sé algjört grund-
vallaratriði að slá striki undir það
sem þegar hefur verið gert, þær
stofnanir sem til eru og leggja allt
kapp á að tryggja þeim rekstrarfé
og leggja síðan upp á forsendum
nýrrar forgangsröðunar þannig að
mönnum verði alveg ljóst hvað það
kostar að opna nýjar stofnanir og
hvaðan fjármunirnir eigi að koma
en ekki að gera ráð fyrir að skera
niður hjá þeim stofnunum sem eru
fyrir til að geta opnað nýjar eins
og blasir við núna,“ segir Sturla.
Brúargólf
langt komið
BRÚARSMÍÐ yfir Sæbraut mið-
ar vel og eru iðnaðarmenn langt
komnir með að leggja brúargólf-
ið. Áætluð verklok eru 1. nóvem-
ber en umferð verður hleypt yfir
nýju brúna mánuði fyrr. Þá
verða akreinarnar orðnar þrjár
í hvora átt. Viðvörunarbúnaður
fyrir háa bíla hefur verið settur
upp beggja vegna brúarinnar.
Bílar með hærri farm en fjóra
metra komast ekki um Sæbraut
á þessum stað til 1. ágúst.
Fyrsta nýja kerið
gangsett í Straumsvík
FYRSTA kerið í kerskála þtjú í
Straumsvík var gangsett í gær-
morgun. Aðalstjórn og fram-
kvæmdastjórn Alusuisse-Lonza
Holding Ltd. var viðstödd gang-
setninguna _ ásamt starfsmönnum
og stjórn ÍSAL. Stækkun ÍSAL
verður formlega fagnað þann 17.
október.
Stjórnar- og aðalfundur ÍSAL
var haldinn í gær og voru niður-
stöður ársreikninga kynntar.
Hagnaður ÍSAL var 876,6 milljónir
króna fyrir skatt en 580,6 milljónir
króna eftir greiðslu skatts. Ragnar
S. Halldórssson, sem hefur verið
stjórnarformaður síðan 1988, gekk
úr stjórn félagsins en við stöðu
hans tekur dr. Christian Roth.
Stjórnarfundur Alusuisse-Lonza
var haldinn hér á landi í fyrsta sinn
síðastliðinn mánudag og verður
greint frá niðurstöðum fundarins í
Ziirich á föstudag.
Ströng fundahöld hjá ríkissáttasemjara
Ríki og borg ræða
við fagfélög
SAMNINGANEFNDIR 15 féiaga
voru á fundum hjá ríkissáttasemjara
á mánudag. Dýralæknar sömdu við
ríkið, lögfræðingar við Reykjavíkur-
borg, arkitektar við ríki og Reykja-
víkurborg og Útgarður, félag há-
skólamanna, við ríkið.
Upp úr samningaviðræðum slitn-
aði hjá iðjuþjálfum og hefur nýr
fundur ekki verið boðaður.
Með pennana á lofti
Samninganefnd Stéttarfélags
sálfræðinga á íslandi var að því
komin að skrifa undir samning á
mánudagskvöld en af því varð ekki,
að sögn Kolbrúnar Baldursdóttur,
varaformanns félagsins, vegna þess
að ekki fékkst heimild frá forsvars-
mönnum Ríkisspítala til að setja
yfirgreiðslur inn í taxta eins og fé-
lagið hefði barist fyrir í um hálft
ár. Hún sagði að samninganefndir
hefðu verið með pennana á lofti,
enda væri samkomulag um öll önn-
ur atriði og samningurinn í raun
tilbúinn. Félagið hefði farið fram á
að fundi yrði frestað til dagsins í
gær til að hægt yrði að ræða við
forsvarsmenn Ríkisspítala en samn-
inganefnd ríkisins hefði ekki viljað
fallast á það.
Kolbrún segir að fallist Ríkisspít-
alar á þessa kröfu verði ekki um
aukin útgjöld þeirra að ræða þar
sem um sé að ræða greiðslur sem
sálfræðingar fái nú þegar. Félags-
menn vilji hins vegar fá þær inn í
taxtakaupið þar sem þeir óttist að
þær muni að öðrum kosti smátt og
smátt verða teknar af.
Síðasti samningafundur Stéttar-
félags sálfræðinga við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga var 23. júní
en þá ákvað samninganefnd sam-
bandsins að vísa deilunni til ríkis-
sáttasemjara. Að sögn Kolbrúnar
fengust þær upplýsingar hjá ríkis-
sáttasemjara á mánudag, að emb-
ættinu hefði enn ekki borist beiðni
frá Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga. Kolbrún lýsir furðu sinni á
þeim seinagangi sambandsins og
telur hann bera vitni litlum samn-
ingavilja þess.
26 mál óleyst
Þær upplýsingar fengust hjá
embætti ríkissáttasemjara í gær
að þar hefði verið fundað með
samninganefnd lögreglumanna um
morguninn. Þá var fundað í kjara-
deilu V erkamannasambands ís-
lands og Pósts & síma og verður
fundahöldum í þeirri deilu haldið
áfram í dag.
í dag eru einnig boðaðir fundir
með samninganefndum sjúkraliða,
bókasafnsfræðinga og röntgen-
tækna. Á morgun eru boðaðir fund-
ir með meinatæknum og náttúru-
fræðingum.
Enn eru óleyst 26 mál sem vísað
hefur verið til embættis ríkissátta-
semjara.