Morgunblaðið - 02.07.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
______FRETTIR___
Sophia fékk
ekki dæturnar
SOPHIA Hansen fékk ekki að hitta
dætur sínar í gærmorgun eins og
henni bar samkvæmt dómi undir-
réttar í Tyrklandi frá 13. júní í
fyrra, en sá dómur var staðfestur
í hæstarétti í Ankara. Samkvæmt
dóminum fékk Sophia umgengnis-
rétt við dætur sínar frá 1. júlí til
31. ágúst, og áttu þær að dvelja
hjá henni þann tíma.
Sophia fór ásamt lögmanni sínum
og fulltrúa og fulltrúum lögreglu
og fógeta að heimili Halims A1 og
skrifstofu, en enginn kom til dyra
á þessum stöðum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá samtökunum Börnin
heim er fyrirhugað að kæra Halim
A1 fyrir brot á umgengisrétti í kjöl-
far þessa.
Þá gagmýna talsmenn samtak-
anna, sem Sigurður Pétur Harðar-
son veitir forstöðu, að Trygginga-
stofnun hefur hætt að senda Sophiu
greiðslur, en þær hafa borist henni
frá því að henni var úrskurðað fullt
forræði yfir dætrum sínum á Is-
landi.
í yfirlýsingu samtakanna segir
m.a. að Hilmar Björnsson, yfirmað-
ur í lífeyristryggingadeild stofnun-
arinnar, hafi sent bréf til forstjóra
TR 6. júní sl., þar sem fram komi
að hæstiréttur Tyrklands hafi fellt
þann lokadóm að Halim A1 fái for-
ræði dætra hans og Sophiu. Því
skuli fella niður allar greiðslur til
Sophiu frá 1. júlí 1997, og hafi
ekki verið greitt inn á reikning
hennar í gær. Þetta valdi miklum
íjárhagslegum vandræðum og hafi
þessi ákvörðun ekki verið tilkynnt
Sophiu með formlegum hætti.
Morgunblaðið/Þorkell Ass Johannsson
ATR-flugvél íslandsflugs í lendingu á flugvellinum við Mývatn
en það er stærsta vél sem lent hefur þar. Flugstjóri var Stef-
án P. Þorgrímsson. Flugbrautin var malbikuð í fyrra og er
hún 1.000 metra löng.
Islandsflug í innan-
landsflug erlendis?
HUGSANLEGT er að íslands-
flug taki að sér innanlandsflug
erlendis en frá 1. apríl sl. var
flugfélögum frjálst að stunda
innanlandsflug í ríkjum sem
aðild eiga að Evrópska efna-
hagssvæðinu. Slík heimild er
fyrir hendi á íslandi frá degin-
um í dag.
Gunnar Þorvaldsson,
stjórnarformaður íslandsflugs
sem annast umsjón á erlendum
verkefnum fyrir fyrirtækið, seg-
ir enn ekki tímabært að greina
frá í hvaða löndum hugsanlegt
sé að bera niður varðandi innan-
landsflug. Verið sé að kanna
nokkra möguleika. Þá segir
Gunnar sífellt verið að leita
leiguflugsverkefna fyrir vélar
félagsins, hvort sem væri með
eða án áhafna.
Ný kærunefnd jafn-
réttismála skipuð
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað í kærunefnd jafnréttismála
til næstu þriggja ára. í nefndinni
Nýr for-
maður
Barna-
verndarráðs
INGVELDUR Einarsdóttir,
dómarafulltrúi í Héraðsdómi
Reykjavíkur, hefur verið skip-
uð formaður Barnaverndar-
ráðs til næstu fjögurra ára í
stað Sigríðar Ingvarsdóttur,
héraðsdómara.
Skipan Barnaverndarráðs
er að öðru leyti óbreytt. Aðal-
menn eru Guðfinna Eydal, sál-
fræðingur og Jón Kristinsson,
barnalæknir. Varamenn eru
Ragnheiður Thorlacius, lög-
fræðingur, sem er varafor-
maður, Vilhjálmur Árnason,
dósent og Rannveig Jóhanns-
dóttir, sérkennari.
sitja Sigurður T. Magnússon, for-
maður, tilnefndur af Hæstarétti,
Hjördís Hákonardóttir, tilnefnd af
Hæstarétti, og Gunnar Jónsson,
skipaður án_ tilnefningar. Til vara
eru Andri Árnason, tilnefndur af
Hæstarétti, Erla S. Árnadóttir, til-
nefnd af Hæstarétti, og Helga Jóns-
dóttir, skipuð án tilnefningar.
Hlutverk kærunefndar jafnréttis-
mála er að taka við ábendingum
um brot á ákvæðum laga nr.
28/1991 um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla, rannsaka mál
af því tilefni og senda að rannsókn
lokinni niðurstöður til þeirra aðila
er málið varða. Atvinnurekendum,
opinberum stofnunum, félagasam-
tökum og öðrum þeim er upplýst
geta málið er skylt að veita kæru-
nefnd hvers konar upplýsingar hér
að lútandi. Telji nefndin að ákvæði
laganna hafi verið brotin skal hún
beina rökstuddum tilmælum um
úrbætur til hlutaðeigandi aðila.
Fallist aðili ekki á tilmælin er nefnd-
inni heimilt að fylgja málinu eftir
fyrir dómstólum.
Skrifstofa kærunefndar jafnrétt-
ismála er á Skrifstofu jafnréttis-
mála, Pósthússtræti 13, Reykjavík.
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 7
Góðar fréttir fyrir
tedrykkjufólk
Áhugi á heilnæmi jurta hefur vaxið undanfar-
ið á Vesturlöndum. Margrét Þorvaldsdóttir
smakkaði grænt te sem talið er að geti veitt
vörn gegn myndun krabbameins.
GRÆNT TE
KOMID AFTUR
heilsuhúsið
KRINGLUNNI
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
REYNDAR er ekki um uppgötv-
anir að ræða þegar rætt er um
heilnæmi jurla heldur endurupp-
götvanir. Vitneskja um heilsu-
bætandi áhrif jurta hefur um ald-
ir verið fyrir hendi í mörgum lönd-
um þar sem þær hafa verið hluti
af daglegri neyslu fólks. Aí'tur á
móti hafa rannsóknír seinni ára
á efnasamsetningu jurta gefið
mörgum þeirra, eins og laufi
græna tesins, aukið vægi.
Grænt te og
lungnakrabbatnein
í nóvemberblaði tímaritsins
„Nutritional Insights" kemur
fram að heiinæmi tedrykkju verð-
ur tedrykkjufólki stöðugt hag-
stæðara. Nýlega var gerð rann-
sókn í Okinawa í Japan á áhrifum
græna tesins á lungnakrabba-
mein. 1 henni tóku þátt 333 ein-
staklingar sem drukku „grænt te“
og 666 einstaktingar sem ekki
voru tedrykkjufólk. Þar kom t Ijós
að þó að veigamesti áhættuþáttur
lungnakrabbameins væru reyk-
ingar, hafði drykkja á grænu te
mjög jákvæð áhrif, sérstaklega á
konur.
í bókinni „Herbs That Heai“
er sérstaklega athyglisverður
kafli um grænt te. Þar segir að
frá fomu fari hafí grænt te verið
talið hafa læknandi áhrif á kvef,
inflúensu og andiega þreytu. Á
19. ötd var það trú margra sér-
fræðinga að teið hefði góð áhrif
á taugakerfið, væri styrkjandi
fyrir starfsemi hjarta- og æða-
kerfisins og lækkaði blóðþrýsting.
Grænt te forvamir
gegn krabbameini
Vísindamenn í Japan hafa á
seinni árum fundið nýja heilsu-
bætandi ávinninga af neysiu á
grænu tei. Þeir segja að það komi
ekki í veg fyrir allar tegundir
krabbameina, en teið sé ein heppi-
legasta leiðin sem fólk hefur völ
á til að fyrirbyggja krabbamein.
Grænt te er aðallega drukkið í
Austurlöndum, sérstaklega í Klna
og Japan, en hér á Vesturlöndum
er aðallega drukkið svart te.
Munurinn á grænu og svörtu tei
liggur f því, samkvæmt alfrasði-
bókum, að svart te hefur verið
látið gerjast, en grænt te er gufu-
hitað til að stoppa gerjunina.
Græna teið hefur heilsubætandi
áhrif umfram svart te, það inni-
heldur meira af vítamínum og t.d.
tvöfalt meira af C-vítamíni og
helmingi meira af andoxunarefnum
sem hindra skemmdir á erfðaefninu
(DNA) en andoxunarefni eru talin
geta hindrað æxlismyndun.
Heilsubætandi
áhrif græna tesins
Rannsóknir hafa leitt í Ijós hin
þægilegu áhrif af drykkju græna
tesins á smitsjúkdóma, sérstak-
lega niðurgang. Kannanir far-
aldsfræðinga þykja benda til að
drykkja á grænu tei dragi úr sjúk-
dómum í brisi og magakrabba-
meini. Vitað er að í grænu te-
laufi eru ákveðin efni, „polyphols"
og hafa nýlegar rannsóknir sýnt
fram á að þau hafa hæfiieika til
að örva ónæmiskerfið og vera
bakteríudrepandi.
Grænt te inniheldur
breiðvirk varnarefni
Á seinni árum hefur verið vax-
andi áhugi á því að greina hvaða
efnasambönd í fæðunni geti
hindrað stökkbreytingar.
Heilsubætandi
áhrif græna tesins
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
hin þægilegu áhrif af drykkju
græna tesins, sem hafa verið rak-
in tii „caffeins", má rekja til
andoxunarefna í teinu. Margir
vísindamenn hafa komist að því
að efnafiokkur sem m.a. inniheld-
ur andoxunarefnin hindrar æða-
kölkun. Klínískar rannsóknir
leiddu ótvírætt í Ijós greiniieg
áhrif gena sem geta haft krabba-
meinsmyndandi áhrif. Þar hefur
grænt te reynst hafa mjög heil-
næm áhrif. Bæði japanskir og
bandarískir vísindamenn hafa
sýnt fram á, með tilraunum á
músum, að grænt te getur hindr-
að myndun æxla f lifur, í húð og
f meltingarveginum. Það er hin
breiða virkni græna tesins sem
þykir sérstaklega áhugaverð.
Vakið hefur athygli að jap-
anskir reykingamenn fá sjaldnar
lungnakrabbamein en t.d. banda-
rískir. Kannanir bafa sýnt fram
á jákvæð áhrif græna tesins við
að hindra krabbamein, m.a. rann-
sóknir staðfesta vitneskju kyn-
slóðanna.
Seinni tima efnarannsóknir
hafa leitt líkur að því að sérstæð
efnasamsetning græna tesins sé
ábyrg fyrir hinum mikilvægu
heilsubætandi eiginleikum þess.
Japanir sem búa á teræktar-
svæði (Shizuoka) nota telaufin
aðeins einu sinni, þar sem .Japanir
sem búa f öðrum landshlutum
nota þau nokkrum sinnum. Þeir
sem búa í Shizuoka neyta því mun
meira magns af þessum æskilegu
efnum í teinu en hinir. Á þessu
teræktarsvæði eru dauðsfoll af
völdum magakrabbameins áber-
andi færri en annars staðar í Jap-
an. Einnig virðist beint samband
vera á milli krabbameins og te-
drykkju annars staðar í Japan.
Nútíma rannsóknir
staðfesta vitneskju
kynslóðanna
Seinni tfma efnarannsóknir
hafa leitt líkur að því að sérstæð
efnasamsetning græna tesins sé
ábyrg fyrir hinum mikilvægu
heilsubætandi eiginieikum þess.
Þó að ítarlegri rannsóknir á teinu
séu framundan, staðfesta þær
rannsóknir sem þegar hafa verið
gerðar, þekkingu kynslóðanna.
Því gæti bolli af grænu te í fram-
tíðinni orðið annað og meira en
þægilegur, góðu drykkur.
Grænt te má fá í heilsuverslun-
um hér en er nokkuð dýrt.