Morgunblaðið - 02.07.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 17
ERLEIMT
Skorað á ríki
heims að veita
Albaníu aðstoð
Reuter
FRANZ Vranitzky, sendifulltrúi Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (t.v.), ræðir við Sali Berisha, forseta Albaníu, í Tirana.
Tirana. Reuter.
í KJÖLFAR kosninganna, sem
fram fóru í Albaníu um helgina,
hefur Franz Vranitzky, sendifull-
trúi Öryggis- og samvinnustofnun-
ar Evrópu (ÖSE), skorað á ríki
heims að veita Albaníu fjárhagsað-
stoð.
Vranitzky átti stóran þátt í að
koma á kosningum í Albaníu er
hann hlutaðist til um samkomulag
stríðandi fylkinga í mars. Hann
hvatti til þess á þriðjudag að Al-
baníu yrði veitt fjárhagsaðstoð
þannig að hægt yrði að fylgja kosn-
ingunum eftir. Einnig lagði hann
á það áherslu að þótt kosningarnar
hefðu farið friðsamlega fram
mætti það ekki þýða það að al-
þjóðastofnanir pökkuðu saman og
færu heim.
Misjöfn viðbrögð
við úrslitunum
I fyrri umferð kosninganna
missti flokkur demókrata, sem far-
ið hefur með stjórn landsins, mikið
fylgi til sósíalista. Viðbrögð alb-
anskra dagblaða við úrslitum kosn-
inganna, hafa verið mjög misjöfn.
Flest hafa þau þó verið sammála
um að Sali Berisha forseti muni
segja af sér í kjölfar ósigurs Demó-
krataflokksins. Berisha getur þó
ekki beðist lausnar fyrr en ný ríkis-
stjórn hefur verið mynduð. Hann
hefur viðurkennt ósigur sinn í sjón-
varpi, en ekki lýst því yfir hvort
hann muni standa við fyrri yfirlýs-
ingar um að segja af sér. Hann
mun hins vegar hafa lýst yfir efa-
semdum um réttmæta framkvæmd
kosninganna í sumum héruðum
landsins.
í Koha Jone, stærsta dagblaði
landsins, sagði að lögreglumenn,
sem unnu störf sín af fagmennsku
og hlutleysi, hafi verið stjörnur
kosninganna. Þar sagði einnig að
mikill meirihluti kjósenda hafi
hafnað þeirri stétt sem stjórnaði
Albaníu með járnhendi á tímum
mikilla breytinga.
Kosið um upptöku
konungdæmis
í Rilindja Demokratike, dagblaði
stuðningsmanna demókrata, sagði
hins vegar að vopnaðir stuðnings-
menn Sósíalistaflokksins, arftaka
Kommúnistaflokksins, hafi haft
óeðlileg áhrif á kosningarnar.
Blaðið spáði því að staða demó-
krata vænkist í seinni umferð
kosninganna sem fram fer 6. júlí
og að það muni endurvekja traust
á flokknum og forða því að komm-
únistar nái völdum á þingi.
í dagblaðinu Albania, sem hlið-
hollt er demókrötum, sagði að
landsmenn hafi valið endurupp-
töku konungdæmis í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem fram fór sam-
hliða þingkosningunum. Opinberar
tölur hafa ekki verið birtar en 50%
atkvæða þarf til að konungdæmi
verði tekið upp. Talningamenn sós-
íalista segja hins vegar að konung-
dæmi hafí einungis hlotið 20-30%
atkvæða.
Leka I, arftaki konungdæmis-
ins, segir að samkvæmt upplýsing-
um stuðningsmanna sinna hafi
endurupptekning konungdæmisins
hlotið 54-66% atkvæða en að sós-
íalistar hafi hundsað vilja almenn-
ings með stórfelldum svikum.
Hann segir yfirlýsingar eftiriits-
fulltrúa ÖSE um framkvæmd
kosninganna vera úrslitum at-
kvæðagreiðslunnar óviðkomandi
þar sem þeir hafi einungis fylgst
með kosningunum en látið at-
kvæðagreiðsluna afskiptalausa.
Leka I fór frá Albaníu er hann
var innan við vikugamall og hefur
búið í Bretlandi, Suður-Afríku og
á Spáni. í kosningaherferð hans,
þar sem áhersla var lögð á glæsta
framtíð Albaníu, voru m.a. settar
fram hugmyndir um að niðurnídd
höfuðborgin gæti í framtíðinni
jafnast á við evrópskar höfuðborg-
ir á borð við London og Madríd.
Þá hefur hann lýst sig fylgjandi
því að landsvæði í Júgóslavíu og
Grikklandi, þar sem meirihluti íbúa
er af albönsku bergi brotinn, verði
sameinuð Albaníu.
Einn leiðtoga GIA í Alsír gaf sig fram
Hefur veitt mikl-
ar upplýsingar
París. Reuter.
ANNAR æðsti maður í skæruliða-
samtökum bókstafstrúaðra músl-
ima í Alsír hefur gefið sig fram
við yfirvöld og veitt þeim miklar
upplýsingar um stöðvar hreyfing-
arinnar, leiðtoga hennar og upp-
byggingu. Skýrði alsírskt dagblað
frá þessu í gær.
Dagblaðið Liberte flutti yfirlýs-
ingu frá skæruliðasamtökunum,
GIA, þar sem segir, að Radouane
Makador, sem var næstæðstur
innan hreyfíngarinnár, sé svikari,
sem gengið hafí herstjórninni á
hönd í síðasta mánuði. Skrifar
Farid Achi, leiðtogi GIA, undir
yfírlýsinguna og hvetur liðsmenn
sína til að vera á varðbergi vegna
uppljóstrana Makadors.
Yfirvöld í Alsír kenna GIA um
flest manndrápin í Alsír, þar á
meðal um fjöldamorð á óbreyttum
borgurum á landsbyggðinni, um
morð á blaðamönnum, mennta-
mönnum og útlendingum og um
að ræna og nauðga ungum stúlk-
um.
Greitt fyrir upplýsingar
Alsírstjóm setti í maí sl. fé til
höfuðs skæruliðum og var heitið
hátt í sex milljónir ísl. kr. fyrir
upplýsingar um helstu foringja
þeirra.
Hefur þetta borið nokkurn
árangur og í maí voru 17 skærulið-
ar felldir eftir að sagt hafði verið
til þeirra. Þá voru þrír menn á
þeirra snærum handteknir í Bret-
landi vegna upplýsinga frá Makad-
or.
Bókstafstrúaðir múslimar fengu
ekki að taka þátt í þingkosningum
í Alsír í síðasta mánuði en flokkar
hófsamra múslima fengu 103
þingmenn af 380 alls. Hafa þeir
sjö ráðherraembætti í ríkisstjórn-
inni en helsta verkefni hennar er
að ráða bót á miklu atvinnuleysi
og húsnæðisskorti.
Leikarínn Robert
Mitchum látinn
Los Angeles. Reuter.
LEIKARINN Robert
Mitchum lést á heimili
sínu í Santa Barbara í
Kaliforníu í fyrrinótt.
Hann dó í svefni og var á
80. aldursári.
Mitchum lék í nokkuð á
annað hundrað kvikmynd-
um, þ.á m. Ryan’s
Daughter og The Big Sle-
ep. Frægð hans gekk í endurnýjun
lífdaga er hann lék í sjón-
varpsþáttum ABC-stöðv-
arinnar, The Winds of
War. Mitchum hafði á sér
orð óþekktarorms í Holly-
wood og átti handtaka
fyrir marijuananeyslu árið
1948 ekki hvað síst þátt
í því. Fyrir það var hann
dæmdur til hálfs árs
vinnubúðavistar.
Útgerðarfélöy!!
- að togari getur sparað meira en milljón íslenskra króna með
því að kaupa olíu í Færeyjum
• - að vistir eru ódýrar í Færeyjum
• - að flutningur til og frá Færeyjum er bæði ódýr og fljótlegur
^ * t. :m 'mk
S.'”'" KAUPW.NHAHOFN
BREMERHAVEN
þriðjud.
Umboðsdeildin
SKIPAFELAGIÐ F0ROYAR
Sími 298 11225
Bréfsími 298 11313