Morgunblaðið - 02.07.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 19
ERLENT
Reuter
Krókódíllinn blessaður
Átök blossa upp að nýju í Kongó
Forsetinn heim
sótti Kinshasa
Kinshasa. Reuter
Jeltsín
sagður
hygla sínum
Moskvu. Reuter.
FORSETI dúmunnar, neðri deildar
rússneska þingsins, sakaði Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, í gær
um að hygla sínu fólki með því að
skipa dóttur sína sem opinberan
ímyndarfræðing í Kreml.
Gennadí Seleznjov, forseti dúm-
unnar, sagði fréttamönnum, að
ráðning Tatjönu Dyachenko sem
ráðgjafa forsetans færi í bága við
lög um ríkisstarfsmenn, sem þing-
ið og forsetinn sjálfur hefðu sam-
þykkt.
Búist hafði verið við skipun
Dyachenko en hún þótti standa sig
vel í kosningabaráttu föður síns á
síðasta ári og hefur síðan orðið æ
áhrifameiri í Kreml.
PRESTUR rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar blessar
nýja Ka-52 bardagaþyrlu, sem
ber nafnið Krókódíll, áður en
henni var fyrst flogið í tilrauna-
skyni í gær skammt utan við
Moskvu. Þyrlunni var flogið í
sex mínútur og nokkrar flóknar
aðgerðir framkvæmdar í 10
metra hæð.
SKÆRUR fylgismanna Pascals
Lissouba, forseta Kongó, og Denis
Sassou Nguesso, fyrrverandi for-
seta, brutust aftur út í dögun í gær
eftir að þær höfðu legið niðri frá
því á mánudagskvöld.
Eftir að bundinn var endi á bar-
daga síðastliðinn föstudag hafa
smáátök brotist út í Brazzaville á
kvöldin og í dögun. Samkvæmt upp-
lýsingum sjónarvotta virðast þau þó
fremur snúast um þörf hermanna
fyrir útrás en alvarleg átök.
Pascal Lissouba forseti yfirgaf
borgina á mánudag í fyrsta skipti
frá því átökin blossuðu upp. Hann
flaug til nágrannaborgarinnar Kins-
hasa þar sem hann var viðstaddur
hátíðahöld í tilefni af þjóðhátíðar-
degi hins nýja Lýðveldis Kongó.
Hann snéri aftur heim að kvöldi og
er ferð hans talin vera áróðursbragð
bæði til að sýna að hann ráði flug-
vellinum í Brazzaville og einnig að
hann sé nógu öruggur um stöðu
sína til að yfirgefa borgina.
Bæði Lissouba og Nguesso segj-
ast vilja að gengið verði til frjálsra
forsetakosninga en þá greinir á um
hvemig að þeim skuli staðið. Sam-
einuðu þjóðimar hafa sett viðvar-
andi vopnahlé sem skilyrði fyrir af-
skiptum af friðarviðræðum í land-
inu.
Ný samtök bandarískra flugfarþega
Gefa 29 flugfé-
lögum falleinkunn
Washington. Reuter.
NÝ SAMTÖK bandarískra flugfar-
þega hafa látið meta öryggi flugfé-
laga um heim allan og komist að
þeirri niðurstöðu að 29 þeirra hljóti
falleinkunn. I gær sendu samtökin
frá sér fyrstu skýrsluna, sem byggð
er á 260 slysum í farþegaflugi í 107
löndum.
Samtökin byggja athugun sína á
flugfélögum sem fóm að minnsta
kosti 20.000 ferðir á tímabilinu jan-
úar 1987 til desember 1996 og not-
ast við þotur og flugvélar smíðaðar
á Vesturlöndum. Fjölda flugslysa var
deilt í ferðatíðni einstakra flugfélaga.
Versta útreið fá Aviateca frá
Gvatemala, COPA Panama, Aero
Peru, Lan Chile, Lauda Air frá Aust-
urríki, Aeroflot frá Rússlandi, ADC-
flugfélagið frá Nígeríu, Air Maurit-
anie, Eþíópíska flugféiagið, China
Northwest-flugfélagið og Xiamen-
félagið frá Kína. Eina bandaríska
flugfélagið sem fær falleinkunn er
ValuJet.
Stofnandi samtakanna, lögmaður-
inn David Stempler, segir fulla þörf
á öryggismati á flugfélögum, reynsl-
an sýni að mun auðveldara sé að
verða sér úti um upplýsingar um
matseðla í flugi en hversu öruggt
flugfélagið sé. Viðurkenndi Stempler
að listinn væri síður en svo fullkom-
inn en að hann væri eina tilraunin
til að meta öryggið. Hugmyndin
hefur hins vegar áður verið rædd
en bandarískir flugvélaframleiðend-
ur og loftferðaeftirlitið hafa lýst því
yfir að erfitt sé að gæta hlutleysis
við gerð slíks lista.
ESB tapar máli fyrir nefnd WTO
Hormónakj öts-
bannið úrskurð-
að ólöglegt
Genf, Brussel. Reuter
SÉRSTÖK úrskurðarnefnd Heims-
viðskiptastofnunarinnar, WTO,
komst að þeirri niðurstöðu í gær,
að bann Evrópusambandsins, ESB,
við innflutningi á svokölluðu horm-
ónakjöti bryti gegn reglum um fijáls
viðskipti. Talið er víst, að úrskurðin-
um verði vísað til áfrýjunardómstóls
stofnunarinnar.
„Nefndin telur, að ekkert eitt ríki
geti sett sér sínar reglur um þessi
mál en við erum á öðru máli,“ sagði
talsmaður framkvæmdastjórnar
ESB í gær og taldi fullvíst, að úr-
skurðinum yrði áfrýjað. í tilkynn-
ingu frá framkvæmdastjórninni
sagði, að nefndin hefði ekki tekið
tillit til ýmissa vísindalegra gagna,
sem ESB hefði lagt fram.
Það voru Bandaríkjamenn, sem
fóru með máiið fyrir úrskurðar-
nefndina, og nutu þeir stuðnings
Ástrala, Nýsjálendinga, Kanada-
manna og Norðmanna en Argentínu-
menn, sem flytja út mikið af nauta-
kjöti en nota ekki hormóna, studdu
ESB. Sambandið bannaði innflutn-
ing á afurðum dýra, sem fengið
hafa hormóna, fyrir ellefu árum og
var það sagt gert af heilbrigðisá-
stæðum og vegna kröfu neytenda.
.★★★*
EVRÓPA^
Erfitt tnál fyrir ESB
Ef ESB tapar fyrir áfrýjunardóm-
stólnum eins og talið er víst, getur
WTO gert því að greiða Bandaríkja-
mönnum skaðabætur, sem svara til
áætlaðs sölutaps. Ef ESB sinnir því
ekki, þá hafa Bandaríkjamenn heim-
ild til að beita ESB samsvarandi
viðskiptaþvingunum.
Deila ESB og Bandaríkjanna um
hormónakjötið hefur staðið lengi og
1989 settu Bandaríkjamenn 10%
toll á ýmsar landbúnaðarvörur frá
ESB-ríkjum. Svaraði hann til 6,4
milljarða ísl. kr. á ári. Hann var
afnuminn á miðju síðasta ári þegar
ESB skaut málinu til úrskurðar-
nefndarinnar. Bandaríski nauta-
kjötsiðnaðurinn telur, að innflutn-
ingsbann ESB-ríkjanna kosti sig á
bilinu sjö til sautján milljarða kr.
árlega.
r PHILIPS
Nú býðst PHILIPS PT 4523
sjónvarpstæki með Black Line
myndlampa á sérstöku tilboði.
Þetta eru hágæða 28" stereo tæki
sem eru búin myndgæðum sem
finnast aðeins hjá PHILIPS.
PHILIPS PT 4521
• Black Line myndlampi
• CTI litastýring
• Nicam stereo
• íslenskt textavarp
• Easy logic fjarstýring með
aðgerðastýringu á skjá
• 2 scarttengi
• Beintenging fyrir hljómt.
(Surround)
• Spatial hljómbreytir
Aoeins
79.900
visa laafiMaafiiaaMÍ
T/L 36 MÁNAÐA O
Stgr.
Heimilistæki
TIL ALLTAÐ 36MANAOA
nf
SÆTUNI 8 SlMI 569 15 OO
http.//www.ht. Is
umboðsmenn um land allt
Umboðsmenn:
Akureyri, Radíónaust
títranes, Hljómsýn, Bygingahúsið
Blönduós, Kf Húnvetninga
Borgames, Kf Borgfirðinga
Búóardolur, Einar Stefónsson
Djúpivogur, K.A.S.K.
Drangsnes, Kf Steingrímsfjarðor
Egilsslaðir, KfHéroðsbúa
Eskifjörður, Elís Guðnason
Fóskrúðsfjörður, Helgilngoson
Roleyri, Björgvin Þórðarson
Grindavík,
Grundafjörður, Guðni Hallgrímsson
Hofnorfj., Roftaekjov. Skúla hórss., Rafmætti
Hella, Mosfell
HeHisandur, Blómsturvellir
Hólmavik, Kf Steingrímsf jarðar
Húsavík, Kf Wngeyinga, Bókav. Þ. Stefónss.
Hvommstongi, Kf Vestur- Húnvetninga
Hvolsvöllur, KfRongæinga
Höfn Hornofirði, K.A.S.K.
ísafjörður, Póllinn
Keflavík, Samkoup, Radiókjallarinn
Neskaupsstoður, Verslunin Vík
Ólafsfjörður, Valberg, Radíóvinnustofan
Patreksfjörður, Rafbúð Jónasar
Reyðarfjörður, Kf Héroðsbúa
Reykjavík, Heimskringlan Kringlunni
Sauðórkróki, Kf Skogfirðingo
Selfoss, Rafsel
Siglufjörður, Aðalbúðin
Vestmanneyjar, Eyjoradió
Þorlókshöfn, Rós
Þórshöfn, Kf langnesinga
Vopnafjörður, Kf Vopnfirðingo
VíkMýrdal, KfÁrnesinga
© ©